Alþýðublaðið - 04.10.1975, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 04.10.1975, Qupperneq 11
Sjónvarps- leikurinn f .f} 1 L Á tj Hr i Æ M H*i U | Í.J £ ijr-' t- i ^ s % Pólska landsliðið í handknattleik, sem hreppti 4. sætið í síðustu heimsmeistarakeppni í A-Þýskalandi. Nr. 5 á myndinni má sjá Klempel þeirra besta skotmann og nr. 1. Szymczak einn besta markvörð heimsins. ISLAND — PÓLLAND í DAG Páll Björgvinssorr. Ekki nægi- lega undir- búnir „Við eigum dágóða möguleika á að vinna Pólverjana, enda unn- um við þá 16:14 i Júgóslaviu i sumar. Fyrir þann leik — vorum við búnir að æfa mjög vel, þ.e.a.s. um sumarið en nú höfum við haft aðeins um 5 daga til undirbúnings og það gæti ráðiö baggamunin- um” sagði fyrirliöi islenska hand- knattleiksliðsins Páll Björgvins- son, en hann leikur nú sinn 11. landsleik. Pólverjarnir eru geysi- lega sterkir, bæði snöggir og hafa yfir mikilli tækni að ráða, og hafa einn besta markvörö I heimi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er fyrirliði landsliðsins og það væri óneitanlega gaman að byrja á sigri, þótt það verði erfitt gegn þessu velþjálfaða liði, sem er ný- komið úr ströngu landsleikja- ferðalagi frá Kanada. Ef viö spil- um rólega og örugglega I sókninni og skjótum ekki nema I dauða- færum, þá er ekki útilokaö aö sigurinn falli okkur I skaut, sagöi Páll Björgvinsson að lokum, en hann er nú fyrirliði Islenska landsiiðsins I fyrsta skiptiö. Liðin sem mætast í Laugardalshöllinni kl. 3. ISLAND Ólafur Benediktsson Rósmundur Jónsson Páll Björgvinsson Magnús Guðmundsson Stefán Gunnarsson Jón Karlsson Gunnsteinn Skúlason Sigurbergur Sigsteinsson Björgvin Björgvinsson Hörður Sigmarsson Gunnar Einarsson Ólafur Einarsson — Pólland — Andrzej Scymaczak — Zszislaw Antczak. — Jerzy Klempel — Henryk Rozmiarek — Jan Gmyrek — Alfred Kaluzinski — PiotrCiesla — Wojciech Swózdz — Andrsej Sololowski — Zygfryd Kuchta — Janusz Brzozowski — Zbigniew Dybol Majorek Stanislav: „tslendingar eru alltaf erfiðir andstæðingar og að vanmeta liö ykkar stendur ekki til enda vitum við vel hversu island er megnugt i handknattleik” sagði Majorek Stanislaq þjálfari pólska lands- liösins f handknattleik þegar viö töluöum við hann i gær. „Við töp- uðum fyrir tslendingum siðast I Júgóslaviu i sumar 16:14 og vit- um að lið ykkar er mjög gott, sér- staklega á heimavelli. Pólska landsliðið er nýkomið úr lands- leikjaferð frá Kanada þar sem liðið tók þátt I sex liöa handknatt- leikskeppni. Þessi ferð var svona hálfgerður undirbúningur fyrir Olympíuleikana f Montreal f Kanada á næsta ári. Sex lið tóku þátt i þessari keppni, Sovétrfkin, Pólland, Danmörk, Japan, Bandarikin og Kanada. Við hrepptum annað sætið I þessari keppni, töpuðum aöeins einum leik fyrir Rússum 21:16. T.d. unnum við nágranna ykkar Dani 29:26. Við erum i riðli með Norð- mönnum og Englendingum i und- ankeppninni og gerum okkur góðar vonir með að komast til Montreal á næsta ári. Eg veit að leikirnir um helgina gegn íslend- ingum verða mjög erfiðir en geri mér samt góöa von um sigur, enda komum við hér með þvi hug- arfari. Islending- ar eru alltaf erfiðir and- stæðingar Týndist með öðru fragtgóssi Það stóð til að sýna leik Aston Villa og Birmingham frá þvi á siðasta laugardag, en að sögn Ómars Ragnarssonar þá hefur sá leikur týnst einhversstaðar á leiðinni innan um annað „fragt- góss” og óvist hvort sá leikur skilar sér nokkurn timann. Þess i stað mun sjónvarpið sina leik Derby County og Burnley sem fram fór i byrjun september. Francis Lee — gamli landsliðs- maðurinn sem Derby keypti frá Manchester City i upphafi siðasta keppnistimabils fyrir 100.000 pund — kemur mjög við sögu i þessum leik eins og hann gerði þegar Derby lék við Bratislava i Evrópukeppni meistaraliða i vikunni. Einnig stendur til að sýna leik Cassius Clay — en svo hét Muhamed Ali þá — og Sonny Liston — en hann er nú látinn — um heimsmeistaratitilinn i boxi — þungavigt — og er það fyrra einvigi þeirra félaga. Þá var Clay aðeins tvitugur að aldri. Francis Lee kemur mikiö viö sögu I iþróttaþætti Ómars f dag. Hér sést hann I skyrtu Man- chester City, en með þvf félagi varð hann einu sinni enskur meistari, einu sinni bikarmeist- ari og einu sinni Evrópumeist- ari bikarliöa. Hann bætti einni skrautfjööur f hattinn síðast lið- iö vor þegar hann varð enskur mcistari með Derby County. Spilum bæði heima og heiman „Þetta þýðir það að viö spil- um örugglega heima og heim- an”, sagði Gunnar Sigurðsson formaður Iþróttabanda- lags Akraness þegar hann frétti að Skagamenn hefðu dregist gegn Rússlands- meisturunum í 2. umferð Evrópukeppni meistaraliða. „Ég held að ekkert liö hafi veriö eins óheppið meö þátttöku f Evrópukeppni og við. Fyrst þurftum við aö fara alla leiö til Kýpur og nú varla styttri leið þar sem Kiev er langt inn I Rússlandi og t.d. mikiö sunnar heldur en Moskva. Að spila báöa leikina úti er algjörlega útilokað þar sem við yrðum þá aö dvelja 10 daga i Rússlandi — Ef báöir leikirnir eru leiknir á útivelli þarf að liða minnst 10 dagar á milli — og eftir þvl sem strákarnir i landsliðinu segja okkur er það gjörsamlega úti- lokað þar sem allur aöbúnaður I Rússlandi hafi veriö mjög léleg- ur þegar þeir voru þar. T.d. höfðu tveir leikmenn i liöinu sagt það áður en drátturinn fór fram að ef þeir fengu Kiev þá myndu þeir alls ekki fara til Sovétrikjanna”. „En það er þó eini ljósi punkturinn við að fá Kiev er þaö að liðið er þvi sem næst landslið Sovétrikjanna og áreiðanlega eitt af sterkustu félagsliöum heims i dag. T.d. kepptu þeir nýlega við Bayern Munchen — þýsku meistarana — i svo köll- uðum „Super-Cup” en svo nefn- ist leikurinn milli Evrópu- meistara meistaraliða og Evrópumeistara bikarhafa. Leikurinn fór fram i Múnchen og unnu Rússarnir 1:0. Viö eig- um að leika útileikinn fyrst en ætlum okkur að reyna aö fá þvi breytt og leika við þá hér heima seinna i þessum mánuði á Mela- vellinum. Þaö er öruggt að gamli Melavöllurinn verður troðfullur ef við fáum fyrri leik- inn hér heima þvi Kiev er geysi- lega sterkt lið og veröur senni- lega besta félagslið sem heim- sótt hefur Island”. sagði Gunn- ar aö lokum. Dráttur í Evrópukeppni: Dregið var i Evrópukeppni meistaraliða i gær, og drógust eftir- farandi lið saman: Bayern Munchen (V-Þýskal.) — Malmö FF (Sviþjóö) B. Mönchengladbach — Juventus (Italiu) $t. Etienne (Frakkl) — Rangers (Skotlandi) Dinamo Kiev (Rússl.) — Akranes (Islandi) Ruch Chorzow (Póil.) — PSV Eindhoven (Holi.) Hajduk Split (Júgósl.) — Molenbeek (Belgiu) Derby County (Engl.) — Real Madrid (Spáni) Benfica (Portúgal) — Ujpesti Dozsa (Ungverjal.) I Evrópukeppni bikarhafa dróst lið Jóhannesar Eðvaldssonar Celtic gegn Boacista Portúgal. Enska liöið West Ham fékk sovéska liðið Ararat. I UEFA keppninni lentu saman meöal annars Hertha Berlin gegn Ajax Hollandi og FC Köln og Ac Milan. Laugardagur 4. október 1975 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.