Alþýðublaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 4
Björgvin Guðmundsson, formaður Fulltrúaráðsins: Alþýðuflokkurinn eini flokkurinn, sem ekki ber ábyrgð á efnahagsöngþveitinu Alþýöuflokkurinn er eini stjórn- málaflokkurinn, sem enga ábyrgð ber á þvi efnahagsöng- þveiti, sem skapazt hefur i land- inu, sagði Björgvin Guðmunds- son, formaður fulltrúaráðs Al- þýðuflokksfélaganna i Reykjavik I setningarræðu sinni á Kjör- dæmisþingi Alþýðuflokksins i Reykjavík. Björgvin sagði að óheillaþróun- in i efnahagsmálunum hefði byrj- að i tið vinstri stjórnarinnar svo- nefndu en haldið áfram i tið nú- verandi stjórnar. A þessu ári yrði verðbólgan yfir 50%. Alþýðubandalagið og Samtök frjálslyndra og vinstri manna bæru ábyrgð á þessari þróun ásamt núverandi stjórnarflokk- um, Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Núver- andi stjórn hefði ekkert ráðið við þróunina i efnahagsmálum, ekki fremur en vinstri stjórnin. Alþýðuflokkurinn er eini flokk- urinn sem staðið hefur utan við báðar þessar rikisstjórnir, sagði Björgvin. Hann hefur gagnrýnt ástandið i efnahagsmálum og bent á leiðir til úrbóta. Um kjördæmismál Reykjavik- ur sagði Björgvin m.a.: Það er stundum sagt, að Reykjavik eigi enga þingmenn. Reykjavikurþingmennirnir séu allir önnum kafnir við að sinna hlutverkum sinum sem lands- feður og þvi komist sérmál höfuð- borgarinnar ekki að. I þessu er vissulega nokkur sannleikur fólg- inn. Þetta kjördæmisþing á að gera tilraun til þess að fá a.m.k. þingmenn Alþýðuflokksins i Reykjavik til þess að hugsa um málefni Reykjavikur, enda þótt mérsé það ljóst, að mörg af hags- munamálum Reykvikinga eru jafnframt hagsmunamál alls al- mennings i landinu. Stefna Alþýðuflokksins i lands- málum og byggðamálum er hin sama. Hvort sem vettvangurinn er Alþingi eða borgarstjórn er það samhjálpin og félagshyggjan, sem einkennir stefnu Alþýðu- flokksins og baráttu. Undanfarið hefur Alþýðuflokk- urinn barizt fyrir þvi i borgar- stjórn Reykjavikur að gert væri átak á sviði málefna aldraðra og langlegu sjúklinga, en vandræða- ástand rikir i málum þessa fólks. Hér gætu þingmenn Alþýðu- flokksins i Reykjavik komið til hjálpar. Það vantar fjárframlag frá rikinu, svo að unnt sé að byrja byggingu langleguálmu Borgar- spitalans. Þingmenn Alþýðu- flokksins ættu að knýja á i þvi efni. Hins vegar stendur upp á borgina sjálfa varðandi byggingu dvalarheimila fyrir aldraða. Enn þann dag i dag hefur borgin ekki reist eitt einasta elliheimili. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍ TALINN: Meinatæknir óskast til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi á Rannsóknarstofu Landsspitalans. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar, simi 24160. Reykjavik 27. október 1975 SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANN A EIRÍKSGÖTU 5.SÍM111765 Ljósmæöur Staða ljósmóður við Sjúkrahús Húsavikur er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur til 15. nóv. 1975. Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri i sima 91-4-13-33 Og 91-4-14-33. Sjúkrahúsið í Húsavik s.f. Hjúkrunarfræðingar Staða forstöðukonu við Sjúkrahús Húsa- vikur er laus til umsóknar. Umsóknar- frestur til 15. nóv. 1975. Umsóknir sendist til framkvæmdastjóra sjúkrahússins er veitir allar nánari upplýsingar, i sima 91- 4-13-33 og 91-4-14-33. Sjúkrahúsið i Húsavik s.f. Barnafataverzlunin Rauðhetta Látið ekki verðbólgu- úlfinn gleypa peningana ykkar, í dýrtíðinni. Vörur seldar með miklum afslætti, allt nýjar og fallegar vörur á litlu börnin. Lítið inn og gerið góð kaup. Opið á laugard. kl. 10 til 12. Barnafataverzlunin Rauðhetta Iðnaðarmannahúsinu/ Hallveigarstíg 1 — Sími 28480. Ályktanir kjördæmisþings Alþýðu- flokksfélaganna í Reykjavík Annað kjördæmisþing Alþýðu- flokksins i Reykjavik ályktar að skora á þingmenn Alþýðuflokks- ins að beita sér fyrir fullum samnings- og verkfallsrétti opin- berra starfsmanna á Alþingi þvi, er nú situr. MALEFNI REYKJAVtKUR Kjördæmisþing Alþýðuflokksins i Reykjavik skorar á þingmenn Alþýðuflokksins að beita sér fyrir framgangi eftirtalinna hags- munamála Reykvikinga á Alþingi: 1. Stuðningi við byggingu dvaiar- og hjúkrunarheimila fyrir aldraða enda ekki vansalaust, að opinberir aðilar skuli ekki hafa staðið fyrir byggingu elliheimilis i höfuðborginni. 2. Stuðningi við byggingu B-álmu Borgarspitalans til þess að bæta úr brýnni þörf fyrir aukið lang- legurými m.a. fyrir aldraða lang- legu sjúlkinga. Brýna nauðsyn ber til þess að taka á fjárlög næsta árs framlag til byggingu B-álmunnar. 3. Stuðningi við byggingu heilsu- gæzlustöðva i Reykjavik m.a. til þess að bæta skilyrði til heimilis- læknaþjónustu i borginni. 4. Að stuðlað verði að aukinni byggingu dagvistunarstofnana, þar á meðal skóladagheimila. Stefnt verði að þvi að byggja á næstu 5 árum dagheimili fyrir 100 börn árlega og leikskóla fyrir 200 börn árlega. Jafnframt verði stefnt að sem hagkvæmustum rekstri þessara stofnana. 5. Að rikisvaldið taki meiri þátt I byggingarkostnaði fjölbrautar- skóla en á sér stað samkvæmt gildandi reglum. 6. Stuðningi við eflingu Reykja- vikurhafnar sem auðveldi stækkun Sundahafnargerð oliu- hafnar og endurbætur á fiskihöfn, m.a. til þess að bæta löndunarað- stöðu fyrir togara og auka land- rými fyrir fiskverkunarstöðvar. 7. Stuðningi við áframhaldandi uppbyggingu Bæjarútgerðar Reykjavikur i samræmi við bar- áttu fulltrúa Alþýðuflokksins i borgarstjórn. 8 Aukningu ibúðabygginga i Reykjavik á grundvelli 4-5 ára áætlunar sem gerð verði um ibúðaþörf Reykvikinga á þvi timabili og hvernig tryggt verði að sá fjöldi ibúða verði örugglega byggður. Ennfremur með veru- legri fjölgun verkamanna- bústaða. Einnig að byggður verði umtalsverður fjöldi leiguibúða i borginni með sömu kjörum og landsbyggðin nýtur nú, t.d. i formi námsmannahúsa, ibúða fyrir aldraða, fyrir einstæða for- eldra og aðra þá, er höllum fæti standa og ekki hafa möguleika á ibúðakaupum. Sett verði á yfir- standandiþingi lög um efnisatriði yfirlýsingar þeirra um húsnæðis- mál er rikisstjórnin gaf i febr. 1974. Gerðar verði ráðstafanir m.a. i lánamálum til að tryggja það, að auðveldara verði en nú er að kaupa eldri ibúðir i hinum ýmsu borgarhverfum, án þess þó að það leiði til svimandi verð- hækkana á þeim. Kannað verði hvort ekki sé grundvöllur fyrir þvl, að lifeyrissjóðir Reykvikinga fáist til að taka þátt i f jármögnun þessara framkvæmda, auk annarra þeirra aðila, sem taka þátt i þeim með hefðbundnum hætti. Drög að ályktun um verkalýðsmál Kjördæmisþing Alþýðuflokksins haldið i Reykjavik dagana 11. og 12. október 1975 lætur i ljós þungar áhyggjur út af þeirri ógn- vekjandi verðbólgu sem geysar i landinu, og þvi öngþveiti sem rikir i efnahagsmálum þjóðar- innar, en hvort tveggja þetta hefur rýrt kjör launþega með óbærilegum hætti. Kjördæmis- þingið átelur harðlega aðgerðar- leysi rikisstjórnarinnar i þessum efnum ogbendirá, aðefekkiáað koma til atvinnuleysis, til við- bótar kjaraskerðingunni sem orðin er, þá má ekki dragast lengur að hefjast handa um að draga stórlega úr verðbólguvext- inum og tryggja kaupmátt launa og atvinnu launafólks. Kjördæmisþing Alþýðuflokksins i Reykjavik lýsir fyllsta stuðningi sinum við þá stefnumörkun sem fram kemur i ályktun mið- stjdrnar Alþýðusambands Islands, þar sem lögð er rik áherzla á nauðsyn þess að verka- lýðshreyfingin sæki fram I einni órjúfandi fylkingu gegn þeirri geigvænlegu kjaraskerðingu sem að undanförnu hefur dunið yfir alþýðu manna. Ennfremur vill þingið lýsa sérstakri ánægju sinni yfir þeirri skoðun Alþýðu- sambandsins, að nú beri að snú- ast gegn rótum kjaraskerðingar- innar, þar sem er óðaverðbólgan og fylgifiskar hennar, en láta ekki við það sitja að glima eingöngu við afleiðingar hennar. Þinginu er ljóst, að sá mikli vandi sem verkalýðshreyfingin á nú við að etja, verður ekki leystur með hefðbundinni kauphækkunarbar- áttu einni saman, heldur verður einnig til að koma gagngerð stefnubreyting á stjórnmála- sviðinu, sem hefur að markmiði að hefta verðbólguþróunina og verja og bæta almenn lifskjör með raunhæfum stjórnmála- legum aðgerðum. Kjördæmisþing Alþýðuflokksins i Reykjavik heitir á flokksmenn alla i verka- lýðshreyfingunni að styðja að sem víðtækrastri einingu verka- fólks i þeirri baráttu, sem nú er framundan, og býður jafnframt fram af fíokksins hálfu heils- hugar samstarf á öllum sviðum við þau stjórnmálaöfl, sem fús kunna að reynast til að snúa við af óheillabraut verðbólgu og kjara- skerðingarstefnu þeirri er um sinn hefur ráðið ferðinni, og vilja ráðast að rótum vandamálanna með hagsmuni launafólks og alþjóðar að leiðarljósi. SKATTAMAL Kjördæmisþing Alþýðuflokksins i Reykjavik haldið 11. og 12. október 1975, fordæmir harðlega það misrétti i skattamálum sem augljóslega á sér stað og vakin hefur verið athygli á með áskorunum borgara i nokkrum sveitarfélögum á skattyfirvöld um að rannsaka framtöl skatt- greiðenda á hlutaðeigandi stöðum. Kjördæmisþingið telur nauðsynlégt að skattyfirvöld bregðist myndarlega við þessum áskorunum og leiðrétti það mis- réttisem átt hefur sér stað. Jafn- framskorar þingið á þingflokk Alþýðuflokksins að beita sér fyrir gagngerri endurskoðun á skatta- kerfinu, þannig að skattbyrðin dreifist réttlátlega og að misrétti eigi sér ekki stað. VERÐTRYGGING LÍFEYRISSJÓÐA Kjördæmisþing Alþýðuflokksins haldið I Reykjavik dagana 11. — 12. okt. 1975 felur þingmönnum flokksins að bera fram á yfir- standandi alþingi, að lifeyris- sjóðir launþega verði vfsitölu- tryggðir á sama hátt og sjóðir opinberra starfsmanna. Rétt- lætismál þetta er nauðsyn fyrir alla lifeyrisþega þar sem verð- bólgan brennir sultarlaun þeirra dag hvern. Kjördæmisþingið skorar einnig á Alþýðusamband íslands og öll verkalýðsfélög innan þess að fylgja þessu máli eftir. LANDHELGISMAL Kjördæmisþing Alþýðuflokksins i Reykjavik lýsir fögnuði yfir þeim sögulega atburði, að fiskveiðilög- saga Islands verður 200 milur hinn 15. október 1975. Þingið telur, að íslendingar eigi nægilegan skipakost til þess að veiða allt það aflamagn, sem unnt er að taka innan 200 milnanna án þess að fiskistofnunum sé stefnt i hættu, og eigi þvi að nýta þessi mið einir. Viðræður við aðrar þjóðir verða að byggjast á þessari megin- staðreynd. Kjördæmaþingið fordæmir við- skiftaþvinganir og löndunarbönn og telur sjálfsagt að íslendingar beygi sig aldrei fyri slikum aðgerðum. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen I allflestum iitum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. Alþýöublaðiö Þriðjudagur 28. október 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.