Alþýðublaðið - 08.11.1975, Síða 7

Alþýðublaðið - 08.11.1975, Síða 7
UNDIRBÚNINGUR AÐ JARÐARFÖRINNI HAFINN Spánverjar eru þegar farnir að búa sig undi'r að eitthvað stór- kostlegt gerist i landinu þann dag sem Franco einræðisherra kveð- ur þennan heim. Flestir eru sam- mála um, að þjóðin megi vænta „óþægilegrar truflunar”, „slæmrar viku”, eða „hættulegra tiu daga” strax eftir lát Francos. Fótgönguliðasveitir hersins og lögregla, sem nú hafa haft það til- tölulega náðugt undir sterkri stjórn fasistaleiðtogans Francos i 39 ár, eru við öllu búnar þegar hinn stóri dagur ris. Það má vera að þeir séu við öllu búnir, en það er ekki jafn vist að þeir sjái fyrir hvað raunverulega á eftir að ger- ast. Að visu hefur embættismanna- stétt landsins og stjórnmála- mennirnir fengið viðeigandi upp- fræðslu hjá hinum „Guðs útvalda leiðtoga sínum” Franco, fyrrver- andi og núverandi aðdáanda Hitlers og Mússolinis, sem i kristilegri hlýðni sinni hefur stjórnað landinu i anda Páfans. Og þó. Siðustu stjórnarafrek Francos benda frekar til þess að þjóðarleiðtoginn hafi i raun, verið orðinn ihaldssamari en Páfinn. Um réttlætiskenndina þarf ekki að ræða. Fangelsin á Spáni eru full af pólitiskum föngum, mönnum og konum sem vildu heldur láta lif- tóruna heldur en að segja og gera annaðen samvizkan þeirra bauð. Þessháttar mannskapur kemst yfirleitt ekki langt undir verndar- væng fasistisks réttarfars. Aðstandendur hinna pólitisku fanga eru nú mjög uggandi um hvað gerist. Ef upplausn og borgarastyrjöld brýzt út i landinu er hætt við að stjórnvöld muni gripa til mjög harðvitugra að- gerða til þess að skapa ótta meðal almennings, ótta sem mundi knýja alþýðu landsins til hlýðni. Ekkert mundi koma stjórnendum landsins eins illa og að missa til- trú fólksins. Þeirra markmið er þvi að stjórna, með illu eða góðu. Hinn kaþólski jarðvegur samfé- lagsins ætti einnig að vera nokkuð frjór fyrir þess háttar valdboði. Að visu hefur spænsk alþýða ekki farið algerlega á mis við frelsis- og mannréttindahugsjónir okkar tima og má þvi vera að þjóðinni takist að velta af sér oki fasims- ans og taka upp mannúðlegri stjórnarhætti. Spennan hefur þegar vaxið svo mikið i landinu að ýmsir einstak- lingar og hópar hafa þegar óskað eftir lögregluvernd. Meðal þess- ara manna eru fréttamenn og for- ystumenn ýmissa samtaka, að- standendur pólitiskra fanga og skyldfólk einstaklinga sem fara huldu höfði vegna pólitiskra skoð- ana eða aðgerða. En hvers getur þetta fólk vænzt? Getur það virki- lega átt von á þvi, að verðir lag- ann^ liti eftir hag þeirra og lifi? Ekki er það trúlegt. Ýmsir óttast fremur, að hin fasistisku stjórn- völd láti verða af þvi að fremja fjöldamorð á pólitiskum föngum til þess að hræða almenning og sýna að þeim sé alvara. Þessir menn ætla sér ekki að láta völdin frá sér fara. Þeir eru staðráðnir i þvi að viðhalda einræðinu með öllu þvi misrétti og þeirri svivirðu sem þvi fylgir. Það er þvi fjarri lagi að útlitið sé gott á Spáni þessa stundina. En þá er það önnur hlið þessa máls. Ýmsir fréttamenn á Spáni hafa upplýst að innan valdaklik- unnar séu nú þegar mjög mikil á- tök, sem ef til vill eiga eftir að draga dilk á eftir sér. Það sem helzt gæti komið i veg fyrir alvar- lega árekstra innan valdaklik- unnar er ótti þeirra við uppreisn og borgarastrið i landinu. Spænska stjórnin hefur þegar hafið undirbúning að jarðarför Francos. Það á að bjóða helztu stórmennum og áhrifamönnum heimskringlunnar til útfararinn- ar, og enginn vafi er á þvi að mörg einföld sálin mun fella tár og senda bænir sinar i upphæðir fyrir sál þessa manns, sem hefur leitt spænsku þjóðina i gegn um erfiðleika og forðað henni frá verkföllum og öðrum óþægindum i hart nær fjóra áratugi. Fólk sem þannig hugsar mætti gjarnan láta það fylgja, að biðja himnaföður- inn að afsaka það að Franco skyldi endilega vilja halda spænskri alþýðu i almennri fá- fræði og hafi ekki viljað „gútera” almannatryggingar og annað þess háttar, sem nú á timum telst til sjálfsagðra hluta i flestum menningarlöndum heims. Þessi forðum áhrifamikla og volduga þjóð hefur undir forystu einræðisherrans orðið ein af fá- tækustu og aumustu þjóðum Evrópu. Stéttaskipting er þar meiri en viðast annars staðar, menntun lakari og öll samneyzla i lágmarki. Það er þvi mikið verk að vinna i þessu landi og vonandi tekst þeim öflum sem berjastfyr- ir auknum mannréttindum og frelsi að fá alþýðu landsins til þess að fylkja liði og mótmæla svo kröftuglega að fasistastjórnin hrökklistfrá. En þvi miður. Þetta er auðveldara sagt en gert. Við skulum bara vona að réttlætið sigri að lokum, þótt siðar verði. i prentun fcll niður ein lina úr fréttaklausu á baksiðu i gær, þar sem fjallað var um nýtútkomið blað, Staðreyndir. Birtist klausan hér óstytt, og eru lesendur beðnir velvirðingar á misfellunum. STAÐREYNDIR heitir nýútkomið hálsmánaðarrit i dagblaðsbroti, fjórar siður, sem Jón Þ. Arnason i Kópavogi gefur út. Gegn lýöræði — fyrir stórnræðiheitir blaðið að undirtitli, og leynir sér ekki að þarna er boðaður hreinn og ómengaður fasismi. A forsiðu eru helztu stefnumál væntanlegrarfasistahreyfingar á Islandi boðuð, og fyrsta kenningin er svohljóðandi: Allir menn eru skapaðir ójafnir, allar manneskjur eru mismunandi, allir einstaklingar eru á einhvern hátt sérstæöir og ber þeim þess vegna misjöfn réttindi og misjafnar skyldur. En þegar lengra er lesið fer ekki hjá þvi aö stefnumál þessara renna i æði likan farveg stefnu hins nýja DAGBLAÐS. Og ef við bættum orðinu „þrýstihópar” inn á viðeigandi stöðum i svohljóðandi baksiðu- tilvitnun, þá gæti hún verið úr leiðara eftir Jónas Kristjánsson: „Stað- reynd er, að það er ekki HÆGT að stjórna ncma GEGN sérhagsmuna- klíkunum, þ.m.t. heilög verkalýðshreyfing. Það er ein af frumskyldum rikisstjórnar að beita lögum og valdi gegn ágirnd (VSt) og öfundsýkii (ASi), sem öll lýðræðisleg stéttasamtök sækja bölmátt sinn I.” Þessari spurningu er beint til þín, ungi islendingur. Þaö þýöir ekkert fyrir þig aö berja höföinu vió steininn og segja aö þú vitir ekki aö reykingar séu heilsuspillandi. Athugaðu þinn gang áöur en þú snertir sigarettur. Stefnir þú að þvi aó leggjast inn á sjúkrahús meó hjarta- eóa lungnasjúkdóma, þegar þú ert á bezta aldri eöa ætlar þú aö deyja úr einhverjum reykingasjúkdómanna, þegar kunningjarnir, sem ekki reykja, eru enn i fullu fjöri ? Láttu bitra reynzlu allt of margra islendinga af reykingum veróa þér viti til varnaðar. .^^^^Byrjaðu aldrei aó reykja. SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR 1 1 | H 1 1 . ■ ; fi. Ökum ekki utan vega"NDVER"| SKEYTI Mótmæla herstöðvumm Um 15.000 manns f Bremen I Vestur-Þýzkalandi hafa undir- ritað mótmælaskjal gegn því að Amerisk herstöð verði starfrækt þar i nágrenni. Sadat og Wilson 1 viðtali sem Anwar Sadat átti við Wilson, forsætisráðherra Breta i gær, lagði hann áherzlu á að Bretar beittu sér fyrir þvi að koma á varanlegum friði i landinu. Heimsókn þjóðarleið- toga Egyptalands, sem áður var undirstjórn Stóra-Bretlands er að ýmsu leyti söguleg og m.a. fyrir þá sök að þetta er fyrsta heim- sóknin til Bretlands frá þvi fyrir strið. Undirróður gegn Titó Fréttir frá Belgrad herma að undirróðursöfl i Júgóslavfu vinni nú að þvi að steypa forsetanum af stóli. Næringarskortur eykst Samkvæmt upplýsingum frá Bonn er talið að fjöldi þeirra sem þjást af næringarskorti i heiminum muni aukast frá 300 i 460 miljónir á næstu fimm árum. Indira hreinsuð Hæstiréttur Indlands hefur hreinsað Indiru Gandhi og dæmt úrskurð undirréttar ómerkan. Kurt Waldheim um Spænsku Sahara Kurt Waldheim mun gefa öryggisráði Sameinuðu þjóðanna skýrslu um ástandið i spænsku Sahara i dag. LJÓSKASTARAR í miklu úrvali Lágt verö — Góö vara Hverfisgötu 64 Sími22800 Laugardagur 8. nóvember 1975 Alþýðublaöið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.