Alþýðublaðið - 22.11.1975, Blaðsíða 2
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og
SJÚKRALIÐAR óskast á nýja
Vökudeild Barnaspitala Hringsins
nú þegar. Upplýsingar veitir for-
stöðukonan, simi 24160.
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast til starfa nú þegar eða eftir
samkomulagi á lyflæknadeild
(gervinýra). Upplýsingaar veitir
forstöðukonan, simi 24160.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á
Svæfingar- og gjörgæzludeild spital-
ans frá 1. janúar nk. i næstu sex
mánuði. Nánari upplýsingar veitir
yfirlæknir deildarinnar. -Umsóknir
er greini aldur, námsferil og fyrri
störf ber að senda skrifstofu rikis-
spitalanna fyrir 22. desember nk.
MEINATÆKNAR óskast á Rann-
sóknardeild nú þegar eða eftir sam-
komulagi. Vinna hlufa úr fullu starfi
svo og á kvöldvöktum koma til
greina. Upplýsingar veitir yfirlækn-
ir, simi 24160.
KLEPPSSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNAR: Tveir að-
stoðarlæknar óskast til starfa á
spitalanum frá 1. janúar nk. i næstu
sex mánuði a.m.k. Nánari upp-
lýsingar veitir yfirlæknir spitalans.
Umsóknir er greini aldur, námsferil
og fyrri störf ber að senda skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 22. desember
nk.
Reykjavik, 21/11 1975
SKRIFSTOFA
R í KISSPÍTALANN A
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
Sjóðsfélagafundur verður haldinn i húsi
SVFl, Grandagarði, i dag, laugar-
daginn 22. nóvember kl. 14.
Dagskrá:
1. Lögð fram ný reglugerð fyrir sjóðinn.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
sjóðsins fyrir árið 1974.
3. Stjórnarkosning skv. 5. gr. reglugerðar
sjóðsins.
4. önnur mál.
Stjórnin.
-------------------
Rósina i
hnappagatið
fáið þér hjá
FRIÐFINNI
Blómastofa Friðfinns
Suöurlandsbraut 10 Sími 31099.
Alþýðublaðið
alþýðu
n nm
RÖDD
JAFNAÐARSTEFNUNNAR
Óheilindi og illdeilur
Til þess að rikisstjórn geti náð
árangri i störfum sinum er nauðsyn-
legt, að innan hennar riki sam-
starfsvilji og gagnkvæm heilindi. Á
þetta skorti mjög i rikisstjórn Ólafs
Jóhannessonar. Ráðherrar þeirrar
rikisstjórnar voru meira eða minna
ósáttir hver við annan og settu sig
ekki úr færi með að litillækka hver
annan gæfust slik tækifæri. Þvi náði
rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar
aldrei saman.
Ástandið i rikisstjórn Geirs Hall-
grimssonar er að mörgu leyti
áþekkt, hvað þetta varðar. öllum er
kunnugt um þau persónulegu átök
manna, sem átt hafa sér stað innan
Sjálfstæðisflokksins og þá valda-
baráttu, sem þar hefur verið háð og
er enn ekki til lykta leidd. Þessi átök
hafa það að sjálfsögðu i för með sér
að heldur litil samstaða er á milli
þeirra flokksbræðra, sem harðast
berjast — enda leynir það sér ekki
hvernig samkomulagið er i
flokknum þegar lesin eru skrif mál-
gagna Sjálfstæðisflokksins, þar sem
alveg opinskátt er veitzt mjög
harkalega að vissum forsvars-
mönnum flokksins likt og fjallað
væri um ákafa pólitiska andstæð-
inga. Hvernig eiga svo menn, sem
svo hart deila bæði um persónur og
völd, að geta komið sér saman i
rikisstjórn — enda gera þeir það
ekki.
Ofan á þetta bætist svo það, að þvi
fer f jarri, að heilindi og gagnkvæmt
traust riki á milli stjórnarflokkanna
— Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins. Mjög margir
Framsóknarmenn eru mjög
óánægðir með samstarfið við Sjálf-
stæðisflokkinn og það dylst engum,
sem fylgist vel með atburðum á
vettvangi stjórnmálanna, að ólafi
Jóhannessyni, formanni Fram-
sóknarflokksins, er það ekkert
óskaplega mikið á móti skapi að
Geir Hallgrimsson eigi i erfiðleikum
i embætti forsætisráðherra. Þessi
afstaða Ólafs Jóhannessonar er ef
til vill skiljanleg þegar tillit er tekið
til þess, hversu mjög honum sjálfum
misheppnaðist sitt starf sem
stjórnarleiðtogi. Honum er ekkert
umhugað um, að Geir Hallgrimsson
nái betri árangri, en hann náði
sjálfur og ekki verður sú afstaða
Ólafs Jóhannessonar til þess að auð-
velda sambúð stjórnarflokkanna
eða efla samvinnuna þeirra á milli.
Auðvitað er það þeim Sjálfstæðis-
mönnum ekkert ánægjuefni, þegar
Ólafur Jóhannesson fær ekki dulið
glaðklakkalegan svip er foringjar
Sjálfstæðisflokksins eiga i hvað
mestum erfiðleikum með að halda
þingliði sinu saman, eins og margoft
hefur borið við á alþingi.
Til núverandi rikisstjórnar var
stofnað með talsvert óvenjulegum
hætti. Stefnumál stjórnarinnar voru
ekki svo mjög mikið rædd, heldur
fyrst og fremst hver skyldu verða
valdahlutföllin milli flokkanna.
Niðurstaðan varð sú, sem báðir
undu illa við. Ólafur Jóhannesson
myndaði stjórnina, en varð að
afsala sér stjórnarforystunni yfir til
Geirs Hallgrimssonar. Þvi hafa
Ólafur og félagar aldrei getað
gleymt.
Sjálfstæðisflokkurinn varð hins
vegar að láta af hendi við Fram-
sóknarflokkinn i skiptum fyrir for-
sætisráðherraembættið flest þau
fagráðuneyti, sem þeim Sjálfstæðis-
mönnum munaði mest i. Þvi hafa
þeir ekki getað gleymt.
1 sandi slikrar innbyrðis valdatog-
streitu og gagnkvæmrar litil-
lækkunar var núverandi rikisstjórn
byggð. í valdatið hennar hafa þau
auðkenni á henni komið skýrar og
skýrar i ljós. Þetta er e.t.v. megin-
skýringin á þvi, hve óskaplega illa
rikisstjórninni hefur tekizt i
störfum.
Magnús E. Baldvinsson ásamt afgreiöslufólki, I nýja húsnæöinu.
Mótorhjól
Montesa Cota 247 ’75,
nýtt.
Honda CB 450 ’74
Kawasaki 500 ’73
Montesa Cota 247 ’73
Tökum notuð hjól i
umboðssölu. Sér-
verzlun með mótor-
hjól og útbúnað.
Vélhjólaverslun
Hannes Úlafsson
Skipasundi 51. Sími 37090
llrabúð flytur
Úra- og skartgripaverzlun
Magnúsar E. Baldvinssonar opn-
aði nýlega verzlunarhúsnæði á
Laugavegi 8, en verzlunin var áð-
ur til húsa á Laugavegi 12.
Magnús E. Baldvinsson úr-
smiðameistari stofnaði fyrst
verzlun sina 7. júli árið 1947, á
Laugavegi 82, en þar var verzl-
unin i tvö ár, áður en hún fluttist á
Laugaveg 12, sem hún hefur verið
þar til nú. Verzlunin selur úr,
klukkur, úrabönd, skartgripi og
ýmisskonar gjafavörur, ásamt
úrvali af verðlaunagripum fyrir
allar greinar iþrótta. Samfara
verzluninni rekur Magnús verk-
stæði sem þjónar öllu sem verzl-
uninni viðkemur, og einnig
málmiðju sem framleiðir minja-
gripi, félagsmerki og margt
fleira. Fyrirtækinu er stjórnað af
Magnúsi E. Baldvinssyni og Birni
Agústssyni úrsmið.
Laugardagur 22. nóvember 1975.