Alþýðublaðið - 31.12.1975, Page 1
252. TBL. - 1975 - 56. ARG.
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER
Ritstjórn Sfðumúla II - Simi 81866
Benedikt Gröndal -
Aramótakveðja - Sjá opnu
Því herrans kvennaári að ljúka
Þá er það loksins liðiö, herrans árið 1975. Herrans
árið já. Það hefur reyndar verið kallaö kvennaár-
ið 1975, og konur hafa risið upp til umhugsunar um
stöðu sina i samfélaginu, bæði hér á tslandi og
annarsstaðar, enda er árið kallað kvennaár að til-
hlutan Sameinuðu þjóðanna. Konur hér á tslandi
stóðu öðrum framar um að gera árið eftirminni-
legt og ber þar hæst útifundinn niikla á Lækjar-
torgi þann 24. okt. scin var hápunktur kvennafris-
ins. Það, að allar konur i einu landi gætu samein-
ast um að taka sér fri frá störfum, þó ekki væri
nema einn dag, mun óviða vera möguleiki hjá öðr-
um þjóðum, a.m.k. misfórst tilraun amerískra
kvenna til að apa eftir kynsystrum sinum hér.
Annað ártal kemur, en margt cr brcytt, ekki
einungis konur hafa opnað hug sinn fyrir stað-
reyndum, heldur á karlpeningurinn ekki eins auð-
velt með að halda forréttindum sinum og áður
var. Batnandi mönnum er bezt að lifa.
AR ATVINNULEYSIS
AÐ GANGA í GARÐ?
miðri
verðstöðvun:
Farið fram á
50-60%
Samningaviðræður Alþýðusam-
bandsins og atvinnurekenda
munu hefjast að nýju hinn 6.
janúar n.k. en 5. janúar munu
baknefndir ASÍ og Verka-
ma nna sa mbandsins haida
fundi. 1 viðtali, sem Alþýðublað-
ið átti við Guðmund J. Guð-
mundsson, formann Verka-
m a nnasa m ba ndsins, i gær,
sagði Guðmundur að búast
mætti við einhverjum
ákvörðunum frá fundum bak-
nefndanna.
Um sl. helgi voru haldnir
fundir i trúnaðarráði Dagsbrún-
ar og siðan almennur félags-
fundur i Pagsbrún á sunnudag.
Sá fundur var mjög fjölmennur
og komu þar til umræðu
samningamálin og horfurnar
almennt. Sagði Guðmundur að
horfurnar i kjaramálum væru
alvarlegar. Atvinnuleysi færi
vaxandi og vinna lægi alls ekki á
lausu. ,,Að óbreyttu ástandi
reikna ég með að komið verði
atvinnuleysi strax fyrri hluta
janúarmánaðar” sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson.
Þá hafði Alþýðublaðið sam-
band við Karl Steinar Guðnason
i Keflavik og spurði hann álits
um horfur i kjaramálum og
samningum. Karl sagði að enda
þótt ekki væri enn mikið farið að
bera á atvinnuleysi væru
horfurnar þvi miður mjög ugg-
vænlegar. Taldi hann liklegt að
atvinnuleysið mundi skelia á
cftir áramótin, og væri sam-
dráttar þcgar orðið vart i ýms-
um atvinnugreinum.
Samvinnubankinn
í Keflavík
undir eftiriiti
Sá orðrómur komst á kreik, að
eitthvert misferli hefði átt sér
stað i útibúi Samvinnubankans i
Keflavik. Var haft fyrir satt að
útibússtjóranum hefði verið vikið
frá störfum um stundarsakir.
Blaðið hafði samband við Svein
Jónsson, forstöðumann banka-
eftirlits Seðlabankans. Sveinn
sagði það ekki vera venju banka-
eftirlitsins að veita neinar upp-
lýsingar um einstaka viðskipta-
aðila, þó svo höfð hefðu verið af-
skipti af málum þeirra af hálfu
eftirlitsins. Allar slikar upp-
lýsingar yrðu að koma frá við-
skiptaaðilunum sjálfum.
Þá hafði blaðið samband við
Framhald á bls. 10.
r
~ Okyrrt _
veður á
miðunum
Frá Sæmundi Guðvinssyni
blaðamanni Alþýðublaðsins
um borð i varðskipinu Ægi:
Varðskipið Ægir öslar nú i
stórsjó og átta til niu metra
ölduhæð út af Austfjörðum.
Þröstur Sigtryggsson skip-
herra og hans menn láta sér
fátt um finnast enda hafa þeir
lent i mun verra veðri en
þessu, þótt landkrabba þyki
nóg um.
Laust fyrir klukkan 11 i
morgun birtist brezk Nimrod
njósnaþota skyndilega út úr
éljabakka og sveimaði um
stund yfir varðskipinu, en
hvarf siðan á brott. Brezki
togaraflotinn mun vera á
svæðinu út af Hvalbak ásamt
freigátum og verndarskipum.
Þröstur skipherra er þögull
sem gröfin um sinar fyrir-
ætlanir, eins og gefur að
skilja, en það hafa vart verið
neinar gelðifregnir fyrir
brezku togaraskipstjórana,
þegar fréttir að Ægir væri ekki
langt undan.
Þrátt fyrir stórsjó og óveður
liður öllum vel um borð, og
borðsalur skipsins hefur verið
skreyttur á smekklegan hátt
fyrir nýjárshátiðina, sem er
að ganga i garð.
hækkun
gjaldskrár
Nú liggja fyrir samgönguráðu-
neytinu beiðnir frá ýmsum höfn-
um, þess efnis að leyfð verði
hækkun á hafnargjöldum frá þvi
sem nú er, þrátt fyrir verð-
stöðvunina, sem gildir.
Blaðið snéri sér til Gunnars B.
Guðmundssonar, hafnarstjóra i
Reykjavik, og spurðist fyrir um
þessar beiðnir, en Gunnar er for-
maður Hafnarsambands sveitar-
félaga.
„Hvað snertir Reykjavikurhöfn
þá liggur fyrir ráðuneytinu beiðni
frá okkur um hækkun frá gjald-
skránni, sem tók gildi á þessu ári.
en hún var ekki staðfest fyrr en i
marz. Mér er kunnugt um að
svipaðar beiðnir frá öðrum höfn-
um hafa verið sendar, eða er ver-
ið að senda, til ráðuneytisins.
t fyrra var gjaldskrár-
hækkunarbeiðni Reykjavikur-
hafnar skorin niður að allmiklu
leyti. í þeirri hækkunarbeiðni,
sem við höfum nú sent ráðuneyt-
inu, er farið fram á 35% hækkun á
hafnargjöldum frá þvi, sem farið
var fram á i fyrra. Þetta þvðir að
við förum fram á 50-60% hækkun
frá þeirri gjaldskrá, sem nú er i
gildi. Ef þessi hækkun nær fram
að ganga, verður greiðslustaða
hafnarinnarsvipuðog hún var ár-
ið 1973. Það er að segja að þá
höldum við i við verðbólguna.
sem nú er i gildi. Verðstöðvunin
kann þó að hafa sitt að segja, þeg-
ar stjómvöld taka sina afstöðu til
hækkunarbeiðnanna”.
Blaðið fékk þær upplýsingar i
samgönguráðuneytinu að enn
hefði ekki verið tekin nein afstaða
til þessara beiðna, m.a. vegna
verðstöðvunarinnar, sem nú er i
Framhald á bls. 9
Líkleeasta skvringin bótt iátning liggi ekki enn fvrir:
VAR MYRTUR AF ÞVf AD
HANN VISSI OF MIKIÐ!
Fjórir ungir menn hafa verið
úrskurðaðir i gæzluvarðhald,
grunaðir um að vera valdir að
hvarfi 18 ára gamals pilts, Guð-
mundar Einarssonar Hraunprýði
i Blesugróf, en hann hvarf þann
27. janúar 1974. A sinum tima var
gerð mikil leit að Guðmundi en
slðast sást til hans i Hafnarfirði
að loknum dansleik i Alþýðuhús-
inu þar i bæ. Sú leit bar ekki
árangur, og hefur þvi hvarf hins
unga manns verið óupplýst, þar
til nú i desember að ungur maður
var færður til yfirheyrzlu hjá
rannsóknarlögreglunni vegna
annars máls. Einhverra hluta
vegna upplýstist þá einhver angi
máls Guðmundar Einarssonar og
i framhaldi af þvi voru þrir menn
til viðbótar handteknir. Gerðist
það á Þorláksmessu.
Siðan hafa stanzlausar yfir-
heyrslur staðið yfir, en þeir hafa
ekki játað. Þó hafa þeir ýmislegu
uppljóstrað um hvarfið, atriðum,
sem ekki voru kunn fyrr.
t Dagblaðinu i gær er þess getið
að einn þeirra fjögurra, sem i
gæzluvarðhaldi sitja, hafi játað
að hafa ekið liki Guðmundar
Einarssonar aðfararnótt hins 27.
jan. 1974, og likið hafi siðan verið
dysjað, ekki langt frá Hafnar-
firði.
Alþýðublaðið spurði örn
Höskuldsson, aðalfulltrúa hjá
Sakadómi Reykjavikur, en hann
stjórnar rannsókn þessa máls,
um sannleiksgildi frásagnar Dag-
blaðsins. örn kvaðst ekki vilja tjá
sig frekar um þetta mál. en hann
hefði gert nú þegar i fjölmiðlum,
en hann vildi taka það fram að
blaðamenn frá Dagblaðinu hefðu
ekki rætt við sig um málið. Hvað
varðaði frásögn Dagblaðsins af
játningum eins þeirra fjögurra.
sem inni sætu, þá vildi hann alls
ekki staðfesta þá frásögn, né neitt
um þann hluta málsins segja i
bili.
Alþyðublaðið hefur sannfrétt að
engum blöðum sé um það að
fletta að hér hafi verið um morð
að ræða. Fleiri en þeir fjórir. sem
sitja inni. hafa játað að hafa séð
lik Guðmundar þessa sömu nótt.
Lögreglan hefur leitað liksins eft-
ir ábendingum þess aðila. er bif-
reiðina keyrði. en enn hefur það
ekki fundist.
Þeir fjórir aðilar. sem inni
Framhald á bls. 9