Alþýðublaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 2
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 65., 66. og 68. tbl. Lög-
birtingablaðs 1974 á verksmiðjuhúsi við
Sæmundargötu á Sauðárkróki með til-
heyrandi lóðarréttindum og með vélum og
tækjum tilheyrandi sokka- og prjónaverk-
smiðju i húsinu, töldu eign Samverks h/f,
fer fram að kröfu Framkvæmdasjóðs Is-
lands, Iðnaðarbanka íslands h/f, og fl. á
eigninni sjálfri, þriðjudaginn 20. janúar
1976 kl. 14.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
Tilkynning til launagreiðenda
sem hafa í þjónustu sinni
starfsmenn búsetta í Kefla-
vík, Grindavík, Njarðvík, og
Gullbringusýslu
Samkvæmt heimild i 7. tölulið 103. gr.
reglugerðar nr. 245/1963, er þess hér með
krafist, af Öllum þeim er greiða laun
starfsmönnum búsettum i Keflavik,
Grindavik, Njarðvik og Gullbringusýslu,
að þeir skili nú þegar skýrslu um nöfn
starfsmanna hér i umdæminu, sem taka
laun hjá þeim, nafnnúmer, heimilisfang
og gjalddaga launa.
Jafnframt skal vakin athygli á skyldu
kaupgreiðanda til að tilkynna er launþeg-
ar hætta að taka laun hjá kaupgreiðanda
og þeirri ábyrgð, er kaupgreiðandi fellir á
sig ef hann vanrækir skyldur sinar sam-
kvæmt ofansögðu, eða vanrækir að halda
eftir af launum upp i þinggjöld samkvæmt
þvi sem krafist er, en i þeim tilvikum er
hægt að innheimta gjöldin hjá kaupgreið-
anda, svo sem um eigin skuld væri að
ræða.
Bæjarfógetinn i Kefiavik og Grindavík
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu.
TRÉSMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Muniö hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurð-
um og gluggum.
*
Ekki er ráð nema i
túna sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
BÍOI
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verö.
Reynið viöskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
alþýðu
mRmm
RÖDD
JAFNAÐARSTEFNUNNAR
Frumkvæðið vantar
í forystugrein sinni i gær hvetur
Morgunblaðið til þess að aðgerðir
brezku herskipanna á Islandsmið-
um verði ekki til þess að sá óeiningu
meðal islenzku þjóðarinnar. Þessi
ábending Morgunblaðsins er út af
fyrir sig rétt. Á hinn bóginn verður
blaðið að gera sér grein fyrir þvi, að
þvi lengri timi sem liður án þess að
rikisstjórnin taki forystu um á-
kveðnar aðgerðir til þess að mót-
mæla framferði Breta þvi liklegra
er að ýmsir hópar manna gripi til
sinna ráða varðandi mótmælaað-
gerðir. Rikisstjórnin hefur verið
mjög svifasein, hún virðist hafa átt i
erfiðleikum með að gera upp hug
sinn um til hvaða aðgerða beri að
gripa og þjóðin er orðin óánægð. Til
dæmis eiga menn erfitt með að
skilja hvers vegna endilega þurfti
að gripa til sjóréttarhalda út af á-
siglingunni á Þór áður en rikis-
stjórnin tæki ákvörðun um, hvort
hún myndi slita stjórnmálasam-
bandi við Breta. Álmenningi þykir
þessi afstaða rikisstjórnarinnar
lykta af ráðleysi, jafnvel efasendum
um, að Landhelgisgæzlan skýri rétt
frá atburðum. Þá undrast menn
hvers vegna forsætisráðherra, Geir
Hallgrimsson, vildi ekki koma fram
i fréttatima sjónvarpsins nú á dög-
unum til þess að fjalla um málið. Al-
menningur á bágt með að skilja
þessi viðbrögð rikisstjórnarinnar og
ástandið er orðið þannig, að ef rikis-
stjórnin glatar frumkvæði i málinu
munu landsmenn sjálfir taka til
sinna ráða eins og þegar hefur
gerzt. Alþýðublaðið er siður en svo
þeirrar skoðunar, að slikt sé æski-
legt.
Við íslendingar verðum að
koma fram sem ein, samstæð heild i
þessu máli og rikisstjórn okkar á að
hafast að i nafni þjóðarinnar allrar.
En þá verður hún lika að sýna rögg-
semi, hafa frumkvæði og gera sér
ljóst hver er þjóðarviljinn.
Góð sambúð
Samskipti fjölmiðla og yfirstjórn-
ar Landhelgisgæzlunnar hafa verið
öll önnur og betri i þessu þorska-
striði en þvi siðasta. 1 siðasta
þorskastriði var sambúð fjölmiðla
og æðstu yfirmanna Landhelgis-
gæzlunnar mjög stirð vegna þess, að
yfirmenn Landhelgisgæzlunnar
héldu dauðahaldi i þá óskiljanlegu
og heimskulegu afstöðu sina að
neita blaðamönnum um að fá að
fylgjast með atburðum landhelgis-
málsins frá borði varðskipa með
þeim afleiðingum, að islenzka þjóð-
in fékk flestar fréttir af atburðum á
miðunum frá erlendum fréttastof-
um, meira eða minna rangfærðar.
Um hrið rikti einskonar kalt strið á
milli islenzku blaðanna annars veg-
ar og dómsmálaráðherra og for-
stjóra Landhelgisgæzlunnar hins
vegar vegna þessarar stirfni hinna
siðarnefndu i garð innlendra fjöl-
miðla. Gætti þess jafnvel á stund-
um, að islenzku fjölmiðlarnir væru
við pressuna
ekki nógu jákvæðir i garð Land-
helgisgæzlunnar sem stofnunar
vegna þess arna.
En nú er ástandið allt annað og
betra. Æðstu yfirmenn Landhelgis-
gæzlunnar hafa loksins skilið nauð-
syn þess að hafa góða samvinnu við
fjölmiðla, jafnt erlenda sem inn-
lenda. Blaðamenn innlendir sem er-
lendir hafa fengið að fara með varð-
skipunum út á miðin til þess að
fylgjast með atburðum þar jafnóð-
um og þeir gerast. Er ekki nokkur
vafi á þvi, að þessi breytta afstaða
æðstu yfirmanna Landhelgisgæzl-
unnar hefur orðið málstað okkar i
landhelgismálinu til mikils góðs þvi
nú fá islenzkir fréttamenn að leggja
sinn skerf af mörkum til þess að
kynna viðburði landhelgismálsins
og islenzka þjóðin fær góðar og
skjótar fréttir af atburðum. Sambúð
Landhelgisgæzlunnar og fjölmiðla
er þvi nú eins og bezt verður á kosið
og þannig á það lika að vera.
Feröafélag islands
heldur kvöldvöku i Tjarnar-
búð miðvikudaginn 14. janúar
kl. 21.00. Húsið opnaö kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Sigurður Þórarinsson, jarö-
fræðingur, sýnir litskyggnur
frá Nýja-Sjálandi og útskýrir
þær.
2. Sýnd verður kvikmynd af
brúargerðinni á Skeiðarár-
sandi, tekin af kvikmynda-
gerðinni Kvik s/f, Reykjavik.
Aðgangur ókeypis, en kaffi
selt að loknum sýningum.
Ferðafélag islands,
Oldugötu 3,
simar: 19533—11798.
t
Otför fööur okkar
Ólafs Á. Halldórssonar
sildarmatsmanns
Hliðarvegi 14,
fer fram frá isafjaröarkirkju fimmtudaginn 15. janúar kl.
2 e.h.
Alda ólafsdóttir
Halldór M. ólafsson
Ritstjórn Alþýðublaðsins er í
Síðumúla 11 - Sími 81866 j
Alþýðublaðið
Miðvikudagur 14. janúar 1976.