Alþýðublaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 12
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent h.f. Tæknil. frkvstj: Ingólfur Steins- son. RiUtjóri: Sighvatur Björg- vinsson Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson Aðsetur rit- stjórnar Siðumúla 11, simi 8-18-66. Prentun: Blaðaprcnt h.f. Askrift- arverð: Kr.: 800 á mán. Lausa- söluverð: Kr.: 40.- KÓPAVOGS APÓTEK ,0piö öll kvöld til kl. 7 i laugardaga til kl. 12 ■ •• - - . j r ¥edrrid Á sunnanverðu landinu verður suðvestan átt með skúrum og siðan éljum. Nyrzt á landinu er hins vegar gert ráð fyrir áframhaldandi hvass- viðri og snjókomu. Heildarspá fyrir land- ið: t nótt og i dag mun vindáttin snúast til suð- vesturs og veðurástand sunnanlands smám sam- an færast yfir allt landið. Gátan Vll<U HLU7I 13^7 ------1---- ---------------!*— V/nN UR i g'olHP GBftlR HUrtiXJ. 5K/P • EnD /NCr L NUÐ „ h£ nu/? táuTar. ISTÓRV. 1 BOF/ rv/V f 'HKrLfK BPU END. 'fíTT FXOSK mvuf> mjfí PÚÍiR^ i ~ L'/TA Þvæ li Sftmm 3ftft~ EFL/ V mjOLL M»S/ \ VOHKlíD OLUNÍr 1 'N 2*1 £/N$ l MEGUM VIÐ KYNNA Garðar Halldórsson yfirarktitekt við embætti Húsa- meistara rikisins, er fæddur i Reykjavik 5. júli árið 1942, og hef- ur hann búið i höfuðborginni alla sina tið, nema þegar hann var við nám. Foreldrar Garðars eru Halldór H. Jónsson, arkitekt, og Margrét Garðarsdóttir. Kona Garðars heitir Birna Geirsdóttir, og eiga þau hjónin tvær'stelpur, Birnu sem er fjögurra ára, og eina óskfrða á fyrsta ári. Garðar varð stúdent frá M.R. árið 1962, og lá leið hans þá i Tækniháskólann i Aachen i V- Þýzkalandi, og útskrifaðist hann þaðan árið 1968 sem arkitekt. Er heim kom, byrjaði Garðar aö starfa við embætti Húsameistara rikisins, og hefur verið þar siðan. Nú um siðustu áramót var Garð- ar skipaður yfirarkitekt við embættið frá og með 1. janúar 1976. Er við spurðum Garðar um fé- lagsstörf hans og áhugamál, sagði hann. „Þetta árið var ég kosinn formaður byggingaþjón- ustu Arkitektafélagsins, og einnig er ég i skipulagsnefnd Reykja- vikurborgar. Helzta áhugamál mitt er liklega hestamennska, en við hana föndra ég töluvert, og svo á ég þessi sumarfrishobbi, þ.e.a.s. renna fyrir fisk, ferðast og slikt. Hér áður fyrr stundaði ég aðeins körfubolta, en nú er ég hættur öllu sliku,” sagði Garðar Halldórsson að lokum. OKKAR Á MILLI SAGT Það eru fleiri aðilar, en „vinir okkar i NATO”, sem hafa áhyggjur af þvi, að þorskastriðið verði til þess, að Islendingar segi sig úr samstarf- inu. Það er ekkert launungarmál, að Kinverjar eru mjög áfram um að NATO veikist ekki og nota þeir hvert tækifæri til þess að koma þeim skoðunum sinum á framfæri við okkur, að það sé siður en svo kominn timi til þess að leggja NATO niður eða að við Islendingar hverfum úr þvi samstarfi. XXX Einhver snjallasta hugmynd, sem komið hefur fram lengi, er sú nið- urstaða Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins, að hægt sé að nota afgangspappir sem grunnefni i milliveggjaplötur ásamt með öðrum efnum. Hugsið ykkur bara hvað hægt er þá að gera við allar gömlu skattskrárnar, gamlar simaskrár — og alla þessa hlaða af opinberum skýrslum, sem samdar eru til þess að einhverjir hafi eitthvað að gera? XXX Á striðsárunum þótti það góður brandari úr Bretavinnunni, að Bretar væru svo vitlausir, aðhægt væri að hafa á launaskrá hjá þeim urmul af fólki, sem þeir hefðu ekki hugmynd um, og gæti þar fyrir verið hvort heldur lifandi eða dautt. A þvi herrans ári 1974 þótti það hins vegar eng- inn brandari að sjálft islenzka rikið hefði á launaskrá hjá sér nokkuð á þriðja hundrað manns, sem það hafði aldrei veitt leyfi til þess að ráða. XXX Eftir þá skálmöld, sem gengið hefur yfir Reykjavik i vetur, hafa menn haft það á orði, að þjóðinni hefði verið nær að gefa sér rúmgott fangelsi i hátiðagjöf fremur en nýja þjóðarbókhlöðu. XXX Fljótamenn hafa frá fornu fari verið miklir garpar i skiðagöngu og oftast haft sigur i þeirri grein á landsmótum. Ástæðan er sú, að á vetr- um eru allir vegir ófærir i Fljótum, menn hafa ekki komizt bæjarleið nema á skiðum, og þvi veriði stöðugri þjálfun. Nú er haft á orði, að ein- veldi Fljótamanna i skiðagöngu sé senn á enda. Astæðan sé snjósleð- arnir, sem komnir munu vera á hvern bæ, og séu þeir unga fólkinu miklu nærtækara farartæki en skiðin. XXX Og svo haldið sé áfram skiðatali, þá fer að verða svo að menn veigri sér við að fara i Bláfjöll til þess að renna sér á skiðum, nema þeir eigi galla, sem kostar tugi þúsunda. Enginn þykist þar nefnilega maður með mönnum nema hann sé eins og klipptur út úr tízkublaði svo þeir, sem koma til þess að renna sér i venjulegum gallábuxum og sinni gömlu Islandsúlpu verða feimnir g niðurlútir — og forða sér hið hrað- asta eitthvað annað. ORVAR HEFUR orðið ma Loðnustrlð í vændum? Nýja bliku hefur dregið á loft I þorskastriðinu. Innan skamms mun is- lenzki loðnuveiðiflotinn halda á miðin og þar mun hann vera að veiðum inn- an um brezka togaraflot- ann og brezku herskipin. Við fyrstu sýn mætti halda,að það gæti verið okkur hagkvæmt. Þá ættu varðskipin auðveldara um vik að læðast óséð að brezkum togurum og halastifa þá. En svo er þó ekki, þegar betur er að gáð. Viðbrögð brezka tog- araflotans yrðu sennilega þau, að þeir myndu keyra yfir veiðarfæri islenzku loðnubátanna og spilla þeim öllum. Og vart myndu herskipin láta sinn hlut eftir liggja. Islenzku loðnusjómenn- irnir kviða þessu. Bretar vænta þess sjálfsagt lika, að þarna bjóðist þeim tækifæri til þess að borga Islendingum fyrir sig með rentum og rentu- rentum. Valda islenzkum fiskiskipum meira veið- arfæratjóni, en islenzku varðskipin hafa valdið brezkum togurum. Hvernig sem fer munu viðsjár örugglega aukast þegar loðnuvertiðin hefst. Og illa þekkir örvar Is- lenzka sjómenn ef þeir taka þvi með umburðar- lyndi, að brezki flotinn launi Islendingum rauðan belg fyrir gráan með þvi að keyra niður veiðarfæri loðnuskipanna islenzku. ísland minnir á sig. Það verður ekki annað sagt, en að land elds og isa minni þjóðina óþyrmi- lega á eðliseigindir þess nú um stundir. Eldsum- brot og jarðskjálftar á aðra hönd. Snjóbyljir með frosthörkum á hina. Með þvi að beita nýj- ustu tækni hefur þjóðin gert land sitt vel byggi- legt — beizlað orku jarð- elda i sina þágu og m.a. notað þá orku til þess að mynda sér skjól fyrir vetrarhörkunum. En náttúruöflin hafa þrátt fyrir allt siðasta orðið. Hvenær sem er geta þau hrundið i rúst þeim varn- arvirkjum, sem þjóðin hefur byggt um sig með aðstoð tækninnar. Eldur- inn i iðrum jarðar veitir okkur þjónustu — en er ekki þý okkar. Veturinn umber okkur, en hefur samt öll okkar ráð i hendi sér. Við getum búið I hag- inn fyrir okkur i landi okkar — en ekki breytt þvi. Islandi hefur þótt á- stæða til að minna okkur á það. FIMM á förnum vegi 1--------"N Hvernig leggst nýja árið í þig? Sigriður Sigurðardóttir, sima- mær: Alveg ljómandi vel, ég hef undan engu að kvarta, nema siður sé. Mér finnst þetta vera alveg prýðis vetrarveður, og vona ég að sumarveðrið verði að sama skapi gott. Ragna Valdimarsdóttir, skrif- stofustúlka: Það leggst mjög vel i mig, og þar sem veðrið i vetur er þetta slæmt, þá vona ég að sumarið verði gott, það er þá helzt rikisstjórnin, sem boðar ekki gott ár, en vonandi rætist úr þvi. Heiðar V. Viggósson, af- greiðslumaður: Þaðleggst mjög vel i mig, og vona ég bara að harður vetur boði gott sumar, og einnig vonast ég til að öll okkar þjóðmál gangi i haginn á nýja árinu. Halldór Kristinsson, sölumað- ur: Agætlega, ég er bjartsýnn maður að eðlisfari, og á það til að trúa á kraftaverk. Björg Freysdóttir, skrifstofu- stúlka: Ég get ekki sagt annað, en að það leggist vel i mig, og vona ég að sólin eigi eftir að skina meira en á liðnu ári. Einn- ig ætla ég að vona að nýja árið færi okkur sigur i landhelgis- striðinu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.