Alþýðublaðið - 14.01.1976, Side 4

Alþýðublaðið - 14.01.1976, Side 4
Flugleiðir: Hörð samkeppni gæti ógnað sjálfstæði íslenzks flugs FRAMHALD ÚR OPNÚ brautryðjandastarf sitt i vetrar- orlofsferðum með flugi til Kanarieyja fyrir 5 árum siðan var verði á þeim ferðum haldið i algjöru lágmarki og tekið fullt til- lit til hinnar auknu nýtingar flug- véla og áhafna, sem gerði kleift að bjóða hið lága verð. Hefur verið stefnt að þvi að halda verði sem lægstu i þessum ferðum æ siðan og hafa hækkanir á þeim ekki fylgt verðlags- og kauphækkunum. Þegar hinn nýji aðili kom til skjalanna fyrir ári siðan var þvi ekki um lægri verð að ræða af hans hálfu, a.m.k. ekki svo þýðingu hefði. Rétt er að það komi fram hér, að Flugleiðir munu framvegis sem hingað til stefna að þvi að halda uppi ferðum til sólarlanda i lægstu gjöldum sem við verður komið, án tijlits til þess hvort þar verur um samkeppni að ræða eða ekki. Einokunargrýlan. Hér er komið að þeim þætti áróðurins gegn Flugleiðum, sem telja verður þann skaðlegasta, og jafnframt þann hættulegasta sé stefnt að þvi sem hlýtur að vera þjóðinni kappsmál, að sam- göngurnar við landið séu sem mest i höndum landsmanna sjálfra. Það getur hinsvegar aldrei orðið ef leyft verður að vega að þeim aðila, sem til- nefndur hefur verið til að halda uppi áætlunarflugi til og frá land- inu, með óeðlilegri og skaðlegri samkeppni. Aðeins með sterku is- lenzku flugfélagi getum við eygt einhverja von um að geta sjálfir að mestu annast flugsamgöngur okkar. Samkeppnin mun örugg- lega koma utan frá og það mun þurfa styrk til að mæta henni. FLUGŒIÐIR HF Farþegaflutningur í mjllilandaflugi 1975 (þus.) HEILDARFARÞEGAFJOLDI 1975 - 487.364 1974 - 510.604 F/EKKUN - 23 240 HAGO 5/1 19/6' Þá er og þess að minnast i sam- bandi við sameiningu flug- félaganna, að til hennar var stofnað af yfirvöldum landsins, fyrrverandi samgöngu- og fjár- málaráðherrum með vitund og samþykki þáverandi rikisstjórn- ar. Allur flugrekstur er háður leyf- um yfirvalda og gagnkvæmum millirikjasamningum. Hann er ekki frjáls einsog siglingar á sjó. Viðkomandi yfirvöldum ber þvi að annast stefnumótun i þessum málum, eða a.m.k. eða taka ábyrgðan þátt i henni. Það var það, sem fyrrverandi rikisstjórn gerði og sýndi þá, að minu mati, stjórnvizku og framsýni sem ætla má að verði þjóðinni til góðs um langa framtið, verði málum fylgt eftir svo sem til var stofnað. En ýmsir eru ókunnugir sögu þessa máls og aðrir sem kunnugri eru, kunna að hafa gleymt ýms- um þáttum hennar. Ástæða er þvi til að rifja hana upp mönnum til fróðleiks og skilnings. Til þess þarf aðeins að skyggnast þrjú stutt áraftur i timann. Þá, einsog nú, héldu islenzku flugfélögin, Flugfélag íslands og Loftleiðir uppi áætlunarferðum milli Is- lands og nágrannalandanna, þá i samkeppni hvort við annað, nú i samstarfi. Það skeði þá dag nokkurn í vetrarbyrjun, nánar til tekið þann 3. nóvember 1972, að báðum flugfélögunum barstsam- hljóða bréf frá þáverandi sam- gönguráðherra, svohljóðandi: „Flugmálastjóri hefur skýrt ráðuneytinu frá fyrirætlun Flug- félags Islands h.f., og Loftleiða hf., um flug félaganna á flug- leiðinni milli Islands og Noregs, FLUGLEIÐIR HF GREIDENDUR vinsamlega veitið ef tirfarandi erindi athygli: Frestur til að skila launamiðum rennur út þann 19, janúar. Það eru tilmæii embættisins til yðar, að þér ritið allar upplýsingar rétt og greinilega á miðana og vandið frágang þeirra. Með því stuðlið þér aó hagkvæmni í opin- berum rekstri og firrið yður óþarfa tímaeyðslu. RÍKISSKATTSTJÓRI Danmerkur og Sviþjóðar á þess- um vetri. Hefur flugmálastjóri varað við hinni hörðu samkeppni félaganna, sem stofni reksturs- öryggi þeirra i hættu. Flugráð hefur fjallaðum málið og fylgir bráðabirgðaálit flugráðs hjálagt, dags. 26. f.m. Ráðuneytið er sammála flug- ráði um, að nauðsynlegt sé af þjóðhagslegum orsökum að draga úr innbyrðis samkeppni islenzku flugfélaganna, að þau taki nú þegar upp viðræður um ráðstafanir til að draga úr samkeppni sinni á Norðurlanda- leiðunum. Hafi ekkert komið fram um næstu mánaðarmót um sameigin- legar aðgerðir félaganna til að draga verulega úr samkeppni á téðum flugleiðum, mun ráðu- neytið óska tillagna flugráðs um skiptingu umræddra flugleiða milli félaganna samkvæmt þvi, sem segir i niðurlagi bréfs flug- ráðs.” Eftir nokkra yfirvegun málsins ákváðu flug- félögin „að taka upp viðræður sin á milli til að draga úr samkeppni sinni á Norðurlandaleiðunum”, einsog það var orðað og fóru þess á leit við samgönguráðherra að -rikisstjórnin tilnefndi hlutlausan aðila til að veita hugsanlega að- stoð við viðræður félaganna. Þann 24. sama mánaðar barst svo flugfélögunum samhljóða svarbréf frá þáverandi fjármála- ráðherra „ritað i samráði við og með samþykki samgönguráðu- neytisins”, svohljóðandi: „Ráðuneytið hefur að undan- förnu að gefnu tilefni tekið til ihugunar rekstrarafkom u islenzku flugfélaganna m.a. vegna samkeppnisflugs þeirra á flugleiðum til og frá íslandi til annarra Evrópulanda. Er það viðhorf ráðuneytisins byggt á fyrirliggjandi upplýsingum, að núverandi skipan þessara mála sé áhuggjuefni, stefni rekstri beggja aðila i hættu og sé þjóðhagslega óhagkvæm. Ráðuneytið vill með þessu bréfi staðfesta þetta viðhorf sitt, sem það hefur áður látið i ljós munn- lega við báða aðila og leggur mikla áherzlu á, að flugfélögin gangi til samninga um samvinnu Starfsmannafjöldi Flugleida - þróun FLUGLEIOIR HF FI448 1779 1635 1624 STJÓRNUNARDEIIO i um flutninga (pool-samninga) á þeim flugleiðum, sem félögin bæði þjóna, svo og samninga um viðhaldsþjónustu og skrifstofu- hald á þeim stöðum erlendis, þar sem bæði félögin hafa starfsemi. Jafnframt er lögð áherzla á, að samhliða geri félögin áætlun, þar sem stefnt verði að nánari sam- vinnu og samruna félaganna innan tiltekins árafjölda, ef það telst hagkvæmt við athugun málsins. I samræmi við framkomnar óskir flugfélaganna beggja, eru ráðuneyti fjármála og sam- gangna sameiginlega reiðubúin til þess að tilnefna fulltrúa til þess að leiða umræður vegna áður- nefndrar samvinnu og hafa falið Brynjólfi Ingólfssyni, ráðuneytis- stjóra, það starf af sinni hálfu. Jafnframt eru starfandi fulltrúar þess ráðuneytis, samgönguráðu- neytis og Seðlabankans um þessi málf Hörður Sigurgestsson, sér- fræðingur, Ólafur S. Valdimarsson, skrifstofustjóri og Sigurgeir Jónsson, aðstoðar- bankastjóri. Munu þeir verða Brynjólfi Ingólfssyni til aðstoðar vegna þessa máls, og er þess óskað, að þeir sitji sameiginlega fundi með félögunum eftir þvi sem ástæða þykir til.” Að lokum þetta: Islenzka þjóðin glataði sjálf- stæði sinu þegar hún bar ekki lengur gæfu til að standa saman, en sóaði þess i stað kröftum sin- um i innbyrðis deilur i þýðingar- mestu málum. Sumir virðast telja, að með sameiningu flugfélaganna innan Flugleiða hafi skapast fyrirtæki, sem sé of stórt, of mikið bákn. Þetta er mikil skammsýni. Stærð er auðvitað afstætt hugtak og fer eftir þvf við hvað er miðað. Sé miðað við önnur Islenzk fyrirtæki berað játa að Flugleiðir er i hópi hinna stærstu þeirra. Sé aftur á móti miðað við þau flugfélög i nágrannalöndum okkar, sem rétt eiga á að stofna til samkeppni um áætlunarflug til og frá landi okk- ar, þá er Flugleiðir aðeins peð. Ein af megin forsendum þess að þjóðin haldi endurheimtu sjálfst. er sú, að hún sé fær um að annast sjálf samgöngurnar við landið, hvort heldur er á legi eða i lofti. Forsenda þess er aftur á móti sú, að hún hafi yfir að ráða sterkum fyrirtækjum. Reglu- bundnum og öruggr.n flugsam- göngum verður ekki uppi haldið án styrks og stærðar, fjármagns og kunnáttu. Islendingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af stærð Flugleiða heldur af smæð félagsins. Örn Ó. Johnson. Alþýðublaðið Miðvikudagur 14. janúar 1976.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.