Alþýðublaðið - 14.01.1976, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 14.01.1976, Qupperneq 7
FRÉTTA------- ÞRÁÐURINN Atök framundan hjá verkalýðsfélögunum Örn Ó. Johnsen, forstjóri Flugleiða: Alþýðublaðið hafði samband við Björn Jónsson, forseta Al- þýðusambands Islands, í gær og spurðist fyrir um gang samninga- mála. Björn sagði að samninga- málunum miðaðiekkert áfram og að rikisstjórnin heföi ekkert gert til þess að þoka málunum i sam- komulagsátt. Ef ekkert nýtt kem- ur fram hjá rfkisstjórninni og at- vinnurekendum allra næstu daga, eru meiriháttar átök ófyrirsjáan- leg. Björn sagði, að visu væri eitt og annað i athugun hjá rikis- stjórninni, en ekkert heföi enn komið fram, sem benti til þess að samkomulag væri framundan á næstunni. Björn var spurður, hvort það væri ekki algengt að vinnuveit- endur drægju á langinn tillögur, sem þeir mundu ganga að og leggja fram að endingu. Björgn sagði, að slikt gæti vel gerzt, en þó bæri að athuga, að þeir væru búnir að vera i samningaþófi á annan mánuð frá þvi samninga- viðræður hófust, Þá var Björn Jónsson spurður um það, hvaö yrði gert, ef ekkert gengi saman næstu tvær vikur. Björn sagði: ,,Ef ekkert kemur nýtt fram i málinu nú alveg á næstunni, sé ég ekki annað en að til átaka komi á vinnumarkaðin- um”. Um það hvort Alþýðusam- bandið legði mesta áherzlu á hliðarráðstafanir ýmisskonar en minni áherzlu á beinar kaup- hækkanir, sagði Björn, að ekki kæmu til greina neinir samningar nema verulegar breytingar yrðu á kaupinu jafnframt. „Sarnt sem áður mun Alþýðusambandið einnig halda fast við þær tillögur sinar, sem ekki fela i sér beinar kauphækkanir,” sagði Björn Jónsson, forseti ASÍ, að lokum. Næsti samningafundur verður haldinn i dag. Loðnuverðið í vikulokin? Loðnuverð hefur enn ekki verið ákveðið. Þó virðist sem til tfðinda fari að draga hvað varðar verð- ákvörðun á frystri loðnu til út- flutnings. Standa nú yfir viðræður viö okkar aðalkaupendur ytra, Japani, og er þess að vænta að samningaviðræðunum ljúki i vikulokin og verð og magn til út- flutnings þá ákveðið. Loðnusjómenn hafa verið alló- hressir með seinagang við ákvörðun loðnuverðs og telja það fásinnu að verðið sé ákveðið á miðri vertfð. Er ekki seinna vænna fyrir yfirvöld að ákveða verðiö þvi loðnuvertið fer senn aö hefjast. 1 fyrra fannst fyrsta torf- an 9. janúar svo efalaust verður þess ekki langt að biða að loðna finnist i ár. Alvarlegt slys í Njarðvíkum Mjög alvarlegur árekstur varð klukkan 16.20 i gær i Grænsás- brekku, Njarðvikum. Kona stór- slasaöist i slysinu, en hún var far- þegi i annarri bifreiðinni. Málavextir eru þeir, að Volks- wagen bifreið var á leið niður Grænsásbrekku, og fólksfiutn- ingabifreiö á uppleið. Skipti þaö engum togum, að fólksbifreiðin fauk af völdum vindstrekkings og hálku, framan á fólksflutnings- bifreiöina og er minni bifreiðin nær ónýt eftir höggið. Farþegar i fólksbifreiðinni meiddust allir en misjafnlega þó. Fyrrnefnd kona meiddist mest, eins og áður sagði, og eru meiðsli hennar talin mjög alvarleg, en þó ekki fullkönnuð ennþá. Bifreiða- stjórinn og barn er i bifreiðinni voru, hlutu ekki teljandi meiðsli. Seðlanúmerin sönnuðu glæpínn Brotizt var inn I verzlun Slátur- félags Suðurlands i fyrrinótt. Vaktmaður i Búnaðarbankanum varð var við mannaferðir þar inn- an dyra og tilkynnti lögreglunni. Þjófurinn slapp þó út, en fannst á róli i miðborginni nokkrum min- útum siðar. Neitaði þjófurinn, ungur utan- bæjarpiltur, i fyrstu innbrotsá- sökunum og kvaðst alsaklaus af öllum glæpum. Hann hafði þó um 7 þúsund krónur i sinum fórum i hundraðkrónu seðlum og sam- svaraði það einmitt þeirri upphæð sem stolið var úr SS. búðinni. Rannsóknarlögreglan var þó alls ekki af baki dottinn, þrátt fyrir sakleysishjal kauða. Veitti hún þvi athygli, að nokkrir 100 króna seðlanna, sem pilturinn hafði i fórum sinum, voru nýir og iréttri númeraröð. Fór lögreglan þá á innbrotsstað og uppgötvaði að verzlunin hafði nýlega fengið peninga úr bankanum og hafði einmitt númeraða hundraðkrónu seðla i framhaldsnúmeraröð af seðlum piltsins. öll spjót beindust nú að utan- bæjarsnáðanum. Hann áttaði sig á vonlausri aðstöðu sinni, játaði þvi glæpinn og segir vonandi ekki frekar af heimsókn utanbæjar- mannsins til Reykjavikur. Forstjórar Flugleiða héldu i gær blaða- mannafund, þar sem gerð var grein fyrir rekstri félagsins á und- anförnum árum og stöðu þess i dag, tveim og hálfu ári eftir að Flugfé- lag íslands og Loftleiðir sameinuðust — og harð- vitugu striði beggja inn- lendu flugfélaganna um farþega á flugleiðum til og frá hinum Norður- löndunum lauk með samvinnu og samein- ingu. Grein sú, sem hér fer á eftir, er megininntak ræðu Arnar Ó. Johnsen, sem hann hélt á blaða- mannafundinum i gær, en þar vikur hann einnig að þeirri gagnrýni, sem þessi flugfélagasam- steypa hefur sætt i fjöl- miðlum að undanförnu. Flugmálin, og hinir ýmsu þætt- ir flugrekstrar og fiug- samgangna, hafa mjög verið i sviðsljósi á nýliðnu ári, ekki aðeins erlendis heldur einnig hér á landi. 1 umræðum um þessi mál virðist sem erlendis hafi hæst borið hina erfiðu fjárhagsafkomu mikils fjölda flugfélaga viða um heim, enda haft á orði, að sum þekkt flugfélög hafi jafnvel riðað til falls. Orsakir þeirra erfiðleika, sem steðjað hafa að flugrekstrinum eru sjálfsagt margþættar, en ekki fer þó milli mála að megin vanda- málin hafa verið oliuhækkanirnar og almennar hækkanir reksturs- kostnaðar á flestum sviðum vegna verðbólgu. Flugleiðir hafa auðvitað átt við þessi sömu vandamál að striða einsog erlendu flugfélögin, og raunar i enn rikara mæli þarsem verðbólga hefur verið meiri iVrá landi en viðast annarsst. Auk þess jók það á erfiðleika okkar að ýms verstu áföllin á þessu sviði, svo sem oliukreppan, skullu yfir skömmu eftir stofnun Flugleiða og áður en timi hafði unnist til að koma við þeirri margvislegu hag- ræðingu, sem sameining flug- félaganna gerir mögulega. Arið 1975 var annað heila árið, sem Flugleiðir störfuðu. Arið var nokkur prófsteinn á árangurinn af sameiningu flugfélganna þvi það var fyrsta árið, sem við varð komið ýmsum þýðingarmiklum breytingum, sem leiddu til auk- innar hagræðingar i rekstrinum. Strax eftir stofnun félagsins, sumarið 1973 var að visu hafist handa um stöðvun þeirrar sóunar fjármuna, sem leitt hafði til samkeppni flugfélaganna tveggja á Evrópuleiðum, aðallega þó flugleiðunum til Norðurlanda. Hinsvegar tók það frameftir ári 1974 að ákvarða ýms megin atriði i skipulagi Flugleiða og árið 1975 var þvi fyrsta árið, sem ýmsir jákvæðir þættir sam- einingarinnar tóku að segja til sin. fyrir Rekstraráætlun 1975. Arið 1975 var lika hið fyrsta, sem gerð var heildar rekstrar- áætlun fyrir félögin, bæði um flutninga og þá einnig um tekjur, gjöld og fjárstreymi. Við gerð þessarar rekstraráætlunar, sem byrjað var að vinna að um haust- ið 1974, varð auðvitað að taka tillit til þess efnahagssamdráttar, sem SAMKEPPNIN KEMUR UTAN FRÁ Forstjórar Flugleiða, frá vinstri: Sigurður Helgason, Örn ó. Johnsen og Al- freð Eliasson. farið var að gæta bæði hérlendis og erlendis á árinu 1974 og gera mátti ráð fyrir að farið gæti vaxandi. 1 öllum markaðslöndum fyrirtækisins hafði verðbólgan vaxið frá árinu áður. Mest varð hún á Islandi, 43% að meðaltali, en minnst i Þýzkalandi, 7%. Þá mátti einnig gera ráð fyrir nei- kvæðum áhrifum af þeim far- gjaldahækkunum, sem reynst höfðu óhjákvæmilegar vegna hinna miklu oliuhækkana, sem byrjuðu haustið 1973 og dundu yfir með miklum þunga, sérstak- lega fram eftir ári 1974, en sem dæmi um þær hækkanir má nefna, að eldsneytis kostnaður beggja félaganna varð 130 millj. krónum hærrii júlimánuði 1974 en FLUGLEIOIR HF Skipting tekna í flugrekstri 1975 POSTUR LEIGUFLUG hann hafði verið i sama mánuði árið áður og var þó flugáætlun svipuð báða þessa mánuði. Þá blöstu þær staðreyndir við haustið 1974, að farþegum i áætl- unarflug yfir Norður-Atlantshaf fækkaði allverulega frá árinu áður og fagmönnum kom yfirleitt saman um, að ekki væri bata að vænta á þeirri flugleið, nema siður væri, á árinu 1975 (Við lok ársins 1974 kom I ljós heildar far- þegaflutningar yfir Norður-Atlantshaf höfðu minnkað um 10,5%, en flutningar Loftleiða á sömu leið þó mun minna, eða um 4,2%) Af þessari ástæðu var strax um haustið 1974 tekin sú veigamikla ákvörðun að starfrækja aðeins þrjár DB-8 —flugvélar á Norður-Atlantshafsleiöinni sumarið 1975, i stað fjögurra sumarið 1974. Þessi ákvörðun var öllum ráðamönnum Flugleiða þungbær, sérstaklega þar sem hún hafði i för með sér uppsögn 16 flugliöa, en hún var nauðsynleg eins og á stóð og við teljum nú, þegar horft er til baka, að rétt- mæti þessarar ákvörðunar hafi sannast á liðnu ári, enda héldu flutningar á Norður-Atlantshafi áfram að dragast saman á árinu. Loks blasti það við i lok ársins 1974, að komum erlendra ferða- manna til Islands hafði fækkað um 7,5% frá árinu áður og f jölgun farþega með Fí og LL á Evrópu- leiöum hafði verið með minnsta móti, eða aðeins 1.9% frá árinu áður. Einnig hafði dregið úr aukningu farþegaflutninga inn- anlands i 10.0%, en þeir höfðu aukist um 20.4% árið áður. 1 ljósi alls þessa og með tilliti til rekstrarafkomu fyrirtækisins undanfarandi ár, og erfiðrar fjár- hagsstöðu, vartalinbrýn nauðsyn að gæta fyllstu varúðar við gerð rekstraráætlunar fyrir árið 1975, m.a. með fækkun ferða yfir Norður-Atlantshaf, svo sem áður ergetið, og með þvi aðhalda uppi svipuðum ferðafjölda á Evrópu- leiðum og árið áður, en að fjöiga þó nokkuð ferðum á innanlands- leiðum. Jafnframt var i flutn- ingaspám og tekjuáætlunum gert ráð fyrir 10% fækkun farþega á öllum miliilandaleiðum, en 10% fjölgun farþega á innanlands- leiðum. Varðandi fjárhagsafkomu Flugleiða á liðnu ári er þvi miður ekki mikið hægt að segja enn sem komið er. Þó má gera ráð fyrir að hagnaður verði af rekstrinum, þótt ekki verði hann mikill. Reynist það svo, hygg ég að við getum sæmilega við unað miðað við allar aðstæður. þ.e.a.s. sam- drátt i flutningum og mikla hækk- un reksturskostnaðar vegna verðbólgu. Hefur þá ráðið úrslit- um, annarsvegar, takmörkun á sætaframboði, sem leiddi til betri nýtingar flugvélanna og, hins- vegar margháttuð hagræðing og spamaður i rekstri. Um þetta hvorttveggja hefur svo örugglega betur tekist en ella hefði vegna þess, að félögin höfðu verið sam- einuð. Vegna sameiningar þeirra varð taprekstri forðað þrátt fyrir Skipting kostnadar 1975 FLUGREKSTUR STÓOVAKOSTN. SALA OG AUGLYSINGAR erfitt árferði og vegna hennar hafa sparast drjúgar fjárhæðir i erlendum gjaldeyri, sem miklu máli skiptir fyrir þjóðarbúið. Áætlanir fyrir nýbyrjað ár. Nú er verið að ljúka við gerð rekstraráætlunar fyrir árið 1976. Nokkur óvissa rikir þó enn um vissa þætti sumaráætlunar, en helstu breytingar i miliilanda- flugi frá liðnu sumri verða vænt- anlega þær að fjölgað verði um eina ferð milli Luxembourg og Chicago, þ.e. úr 3 i 4 ferðir viku- lega og i stað 2ja ferða til Osló og Stockholm, sem farnar voru með DC-8 flugvélum i fyrra, verða nú 3 ferðir með Boeing 727. Þá mun beinum ferðum til Kaupmanna- hafnar fjölga úr 8 i 9 og verða og gengið frá kaupum DC-8 flug- vélanna. Hefur rúm 1 millj. doll- ara af þessum lánum nú þegar verið endurgreidd, i samræmi við gerða lánasamninga. Fyrirhugað rekstrarlán að upphæð 5 millj. dollara hefur hinsvegar ekki enn verið tekið og gæti svo farið að ekki yrði þörf á að taka það fyrst um sinn. Við teljum hinsvegar mikið öryggi i þvi fólgið fyrir Flugleiðir að eiga kost á rikis- ábyrgð fyrir sliku láni, ef nauð- synlegt reynist að bæta f járhags- stöðu fyrirtækisins, enda er Farþegafjöldi innanlands 1975 (ÞUS.) FLUGLEIÐIR HF FLUGLBÐtfí HF' tvær þeirra með DC-8. Tvær ferð- ir verða til Þýzkalands vikulega, hliðstætt þvi sem var sumarið 1973. Fleiri minniháttarbreyt- ingar kunna einnig að verða gerðar á sumaráætluninni frá þvi sem var i fyrra, en ekki er gert ráð fyrir neinum stökkbreyting- um, enda margt sem bendir til að hófleg bjartsýni varðandi vænt- anlega flutinga henti bezt á þessu nýbyrjaða ári. Rikisábyrgðir. Haustið 1974 sóttu Flugleiðir um rlkisábyrgð fyrir tveimur erlendum lánum. Hið fyrra, að upphæð $13.500.000, var til kaupa á tveimur þotum af gerðinni DB-8-63, sem Loftleiðir höfðu starfrækt um nokkurt árabil á leigukaupsamningi við Seaboard World Airlines, en upphaflegt kaupferð þessara flugvéla, og nú- verandi markaðsverð, er um 22 millj. dollara. U $8.500.000 af leiguverði höfðu áður gengið upp i kaupferð flugvélanna. Siðara lán- ið, að upphæð $5.000.000, var ætl- að til að bæta rekstrarfjárstöðu félagsins. Rikisstjórnin fól sérstakri nefnd að kanna fjár- hagsstööu félagsins ásamt rekstrar- og fjárstreymisáætlun- um. Að fengnu jákvæðu áliti hennar, lagði rikisstjórnin frum- varp fyrir Alþingi til að afla heimildar fyrir veitingu ábyrgöanna og var frumvarpið, svo sem kunnugt er, samþykkt eftir nokkrar umræður. Að rikisábyrgð fenginni voru tekin tvö lán i Bandarikjunum, alls að upphæð 13,5 millj. dollara rekstursfé þess vissulega I lág- marki. Allmiklar umræður hafa orðið um þessa rikisábyrgö og aðrar sem Flugfélag Islands og Loft- leiðir höfðu áður fengið. Virðist svo sem sumir vilji likja þeim við beinan rikisstyrk, sem er auðvit- að hin mesta fjarstæða. Skemmst er frá að segja að hvorugt flugfé- iaganna hefir nokkru sinni notið rikisstyrkja og er liklegt að eins- dæmi sé að tekist hafi að byggja upp flugsamgöngur þjóðar, inn- anlands og við umheiminn, al- gjörlega án rikisstyrkja, svo sem hér hefur verið gert. 1 þessu sambandi skal þess og getið að lán þau til kaupa á Fokk- er-flugvélum og þotunni ,,GULL- FAXA”, sem Flugfélagi íslands var veitt rikisábyrgð fyrir á sin- um tima, eru nú að fullu endur- greidd og staðið hefir verið að fullu við alla lánasamninga Loft- leiða og Flugleiða. Áróður gegn Flugleiðum A nýliðnu ári, þá sérstaklega i siðasta mánuði þess, hefur marg- vislegum áróðri verið uppi haldið gegn Flugleiðum. Kennir þar margra grasa, en að ýmsum dylgjum slepptum, sem ekki geta talist svaraverðar, má greina eft- irfarandi tvö meginatriði ároö- ursins: 1 fyrsta lagi: Að fargjöld á áætlunarleiðum innanlands og milli landa séu óeðlilega há og hið sama gildi um verð Kanarieyja- ferða. PlnstiM lif PLASTPOKAVE R KSMKP JA Sfmar 82A39-82Á55 Vetn*göf6um 6 Box 4064 - Rayfcjavik Pípulagnir 82208 Tökum að okkur alla pipulagningavinnu Oddur AAöller löggildur pipulagningameistari 74717. Hafnarfjar&ar Apótek Afgreiðslutimi: Virka daga kl. 9-18.30 'Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Upplýsing^sími 51600. Birgir Thorberg málarameistari simi 11463 ónnumst alla I máiningarvinnu — úti og inni — . gerum upp gömul húsgögn Teppahreinsun ! HréTnsum gólfteppi og húsgögn I heimahúsum og fyrirlekjum. Érura meö nýjar vélar. GÓÖ þjón- * ústa. Vanir menn. SIGFÚS BIRGIR 82296 40491 Innrettingar VBBv husbyggingar BREIÐÁS Vesturgötu 3 simi 25144 KOSTABOÐ á kjarapöllum KJÖT & FISKUR Breiðholti Simi 74200 — 74201 1 öðru lagi: að með sameiningu flugfélaganna hafi þau náð einok- unaraðstöðu, sem hættuleg sé og leiða muni til hærri fargjalda til tjóns fyrir almenning. Þvi beri að heimila samkeppni á áætlunar- leiðum af hálfu innlendra aðila. — 0 — Ég tel ekki rétt að ljúka svo máli minu að ekki sé fullyrðing- um þessum gerð nokkur skil, með lýsingu staðreynda eða með rök- færslum, eftir þvi sem við á. Fargjöld: Vfkjum fyrst að fargjöldum á áætlunarleiðum. Gerður hefur verið samanburður á innanlands- fargjöldum okkar og flugfar- gjöldum innan hvers hinna þriggja skandinavisku landa, Ðanmerkur, Noregs og Svi- þjóðar, á hliðstæðum vegalengd- um. Miðað er við þrjár flugleiðir okkar, þ.e. styztu flugleiðina, sem er milli Reykjavikur og Vest- mannaeyja, milli vegalengd sbr. Reykjavik—Akureyri og hlut- fallslega langa flugleið eins og Reykjavik—Hornafjörður. Þessi samanburður sýnir, að i þessum nágrannalöndum okkar eru inn- anlandsfargjöld mun hærri en hér, eða, sé tekið meðaltal far- gjaldanna á Norðurlöndum, eru þau 95% hærri á styztu vega- lengdinni, 83% hærri á millivega- lengd og 86% hærri á lengstu leiðinni, eða m.ö.o. næstum helmingi hærri á öllum leiðum, en fargjöld eru hér á landi. Sé fargjaldið frá Reykjavik til Kaupmannahafnar borið saman við fargjöld frá öllum fjórum höfuðborgum hinna Norðurland- anna til staða i svipaðri fjarlægð, kemur I ljós að þau eru öll hærri, þetta frá 18 upp i 42% eða að meðaltali 34% hærri. Við þetta má svo bæta þvi, að Flugfélag tslands, hefur um langt árabil verið aðili að sambandi þeirra Evrópuflugfélaga, sem eru meðlimir IATA, en samband þetta safnar árlega upplýsingum um tekjur og gjöld þeirra félaga, sem eru innan vébanda þess. Meðal þeirra upplýsinga, sem þar koma fram eru rauntekjur félag- anna eða nyt eins og það hefur verið kallað, miðaðviðhvern far- þega-kilómetra. Tekjur Flug- félags Islands hafa ætið verið langlægstar allra félaganna fyrir hverja slika einingu og voru t.d. fyrirárið 1974 rúmlega 40% lægri FLUGLEIÐIR HF Sætanýting DC-8 1972 1973 HAQÐBLD 3/1 1878 en meðal bandsins. 1974 1975 nyt meðlima sam- Kana riey ja ferðir: Þá hefur þvi verið haldið fram, aö tilkoma samkeppnisaðiia i Kanarieyjaflugi hafi leitt til lækkunar á verði þeirra ferða. Staðreyndin er hinsvegar sú, að þegar Flugfélag fslands h.f. hóf Framhaid á bls. 4. fWQLBÐIRHF Farþegatekjur 1975 bandaríkjadaur MARKAO3RANNS0KNADQLD 3/1 1976 ii»r€ttir Tveir þýðingarmiklir leikir í handboltanum í kvöld Tveir þýðingarmiklir leikir verða leiknir i Is- landsmótinu i handknattleik i Laugardalshöll- inni i kvöld. Fyrst leika Grótta og Ármann og strax á eftir Fram og Valur. Fyrri leikurinn hefur mikla þýðingu fyrir botnsætið i 1. deildinni. Flestir eru sammála um það, að eins og staðan er i dag þá verða það þessi félög — þ.e.a.s. Grótta og Ármann — sem koma til með að berjast um fall niður i 2. deild að ári komanda. Armann stendur betur aö vigi heldur en Grótta þar sem það hefur einu stigi meira. Töluvert er þó eftir af mótinu ennþá, svo það er kannski ekki sanngjarnt að dæma annað hvort þessara félaga til þess að falla, þótt óneitanlega sé staða þeirra i deildinni lökust. Þegar þessi fé- lög léku saman i Hafnarfirði I fyrri umferðinni, unnu Seltjarnarnesmennirnir örugglega. Leik- urinn i kvöld verður efalaust mikill baráttuleik- ur, og verður áreiðanlegt að bæði liöin selja sig dýrt. Seinni leikurinn i kvöld milli Fram og Vals, verður ekki siður spennandi en fyrri leikurinn. Þegar liðin léku saman I fyrri umferðinni unnu Valsmenn 13:12. Sá leikur var hnifjafn allan timann, og hefði sigurinn auðveldlega getað lent hjá hvoru liðinu fyrir sig. Jón H. Karlsson, landsliðsmaðurinn úr Val, gerði þá sigurmark liðs sins á lokaminútu. Valur stendur óneitan- lega langbezt að vigi i deildinni i ár, en ef Fram vinnur i kvöld, þá opnast staðan i deildinni þaö mikið að jafnvel Fram og Vikingur eiga mögu- leika á að verða Islandsmeistarar. Jón H. Karlsson ekki með Val í kvöld Jón H. Karlsson, landsliðsmaðurinn úr Val, mun ekki leika með liði sinu i kvöld, i hinum þýð- ingarmikla leik gegn Fram I íslandsmótinu i 1. deild. Vegna atvinnu sinnar fór Jón til V-Þýzka- lands i gærdag og getur þvi ekki tekið þátt i tveimur næstu leikjum Vals i mótinu. Er þetta mikill missir fyrir Valsmenn, einkum þegar tillit er tekið til þess, að ef þeir sigruðu i þessum tveimur leikjum, væru þeir án nokkurs vafa búnir að hálftryggja sér tslandsmeistaratitilinn I ár. Heyrzt hefur, að gamla landsliðskempan, Gisli Blöndal, muni taka sæti Jóns i Valsliðinu i kvöld. Gisli hóf æfingar ekki alls fyrir löngu. Jón H. Karlsson leikur ekki með Val i kvöld. Kasettuiönaöur og áspilun, fyrir útgefendur hlíómsveitir, kóra og fi. Leitiö tilboöa. Mifa-tónbÖnd Akureyri Pósth. 631. Slmi (94)22136 Dúnn Sfðumúla 23 /ími 64900 Heimiliseldavélar, 6 litir - 5 gerðir Yfir 40 ára reynsla Rafha við Óðinstorg Simar 25322 og 10322

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.