Alþýðublaðið - 24.01.1976, Qupperneq 7
Skipherrann
leystur út
með sólar-
strandaferð
INGOLFUR Guðbrands- dagskvöldum, einkum
son í útsýn hefur fest í yfir vetrarmánuðina.
sessi í skemmtanalíf i Á Útsýnarkvöldin koma
höf uðborgarinnar ferða- gestir úr öllum áttum en
kvöldin, sem haldin eru aðallega fólk sem á það
að Hótel Sögu á sunnu- sameiginlegt að hafa
Að afloknum sigri i upplýsingastríðinu: Norman Reece sjónvarpsfréttamaður
situr fyrir miðju borði vinstra megin, en Helgi Hallvarðsson skipherra fyrir
miðju borði hægra megin. Ingólfur Guðbrandsson stendur fyrir borðsendanum.
hitzt í Útsýnarferð á ein-
hverri sólarströndinni og
gælir ef til vill við þann
draum að komast þangað
sem fljótast aftur.
Ingólfi og öðrum þeim, sem
staðiö hafa að slikum ferða-
kvöldum verður að segja það til
hróss, að þarna fer fram hin
bezta og árekstralausasta
skemmtun, sem yfirleitt er völ
á, þarna er i algerum meiri-
hluta fólk, sem vill skemmta
sér, án þess að ofgera á nokkurn
hátt og fyrir bragðið er hinn
bezti blær yfir þessum
skemmtikvöldum.
A sunnudagskvöldið var, voru
meðal gesta á Útsýnarkvöldi á-
höfn varðskipsins Þórs og þeir
brezku og islenzku blaðamenn,
sem verið höfðu i siglingu með
skipinu, en brezki sjónvarps-
fréttamaðurinn Norman Reece
frá ITN sjónvarpsstöðinni og lið
hans hafði boðið Helga Hall-
varðssyni, skipherra og áhöfn
hans ásamt frúm, út að borða
eftir samveruna á vigvellinum.
Hópurinn skemmti sér hið
bezta á Sögu, og gestgjafinn hélt
i heiðri þenn forna siö að leysa
nafntogaða gesti út með gjöfum.
Bauð Ingólfur Helga Hallvarðs-
syni og frú til ttaliu að launum
fyrir frábæra frammistöðu i
þorskastriðinu.
—BS
l< IK
Ingólfur býður brezka sjónvarpsfréttamanninn Norman Reece velkominn á út-
sýnarkvöld. Hægra megin stendur Magnús Finnsson, á Morgunblaðinu, en hann
var um borð f Þór sömu ferð og brezku sjónvarpsmennirnir.
íprcttir
Heimsbikarkeppnin í
svigi í sjónvarpinu í dag
Aðalefni iþróttaþáttar sjón-
varpsins i dag er keppni i svigi,
sem fram fór i Wengen i Sviss
fyrir 14 dögum. Keppni þessi er
liður i heimsbikarkeppninni, og
koma þar fram allir beztu skiða-
menn heims, einsog t.d. Ingemar
Stenmark Sviþjóð, Peter Gros
ttaliu, Hans Hinterseer Austur-
riki og fleiri nafntogaðir skiða-
menn.
Sýndir verða kaflar úr leikjum
tslandsmótsins i' handknattleik,
sem leiknir voru i Hafnarfirði nú i
vikunni. Leikir þessir þóttu
skemmtilegir og spennandi, þvi
margt óvenjulegt átti sér stað þar
syðra á miðvikudaginn, svo sem
brottrekstur þjálfara Vikings af
leikvelli, og óvænt tap liðs hans,
fyrir botnliðinu Gróttu.
Einnig mun kappakstursmynd
vera meðal efnis þáttarins, og er
það ábyggilega ánægjulegt fyrir
hina mörgu tslendinga sem
áhuga hafa á þeirri iþrótt.
Enski leikurinn verður svo
leikur Burnley og Derby sem
leikinn var á Turf Moor i Burnley
siðasta laugardag. Þetta var
fyrsta heimsókn welska lands-
liðsmannsins Leighton James til
sins gamla félags, eftir að Derby
keypti hann fyrir 300.000 pund.
James, sem þykir mjög snjall
knattspyrnumaður, fékk ekki
bliðar móttökur frá unnendum
Burnley i þessum leik, en hann lét
það ekki á sig fá og kom m jög við
sögu i þessum leik. Ekki er þó al-
veg vist að leikurinn komi til
landsins i tæka tið, þvi oft hefur
vijað bregða fyrir að undanförnu,
að myndir frá leikjum i Englandi
berist seint til landsins vegna
samgönguerfiðleika. En vonandi
kemur hann i tæka tið fyrir hina
fjölmörgu unnendur knattspyrnu-
iþróttarinnar á Islandi.
Skákir frá Wijk aan Zee
Alþýðublaðinu hefur borist
skákir frá 3. umferð i
Hoogoven-skákmótinu i Wijk aan
Zee, sem nú stendur yfir,- Þessi
umferð var frekar róleg, þar sem
þremur af sex skákum mótsins
lauk með stuttu jafntefli, þar af
skák Rússans Dvorecki og Frið-
riks ólafssonar eftir aðeins 16
leiki. Ein skák þótti þó tilþrifa-
mikil enda áttust við tveir ungir
og snjallir baráttuskákmenn,
stórmeistararnir Ljubojevic frá
Júgóslavi'u — en hann er efstur á
mótinu og Sviinn ungi Ulf Anders-
son. Ljubojevic stýrði hvitu
mönnunum og fer skák þeirra hér
á eftir:
Sikileyjarvörn.
1. E4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cd4 4. Rd4
Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be2 a6 7. 0-0 Rf6
8. Be3 Be7 9. f4 d6 10. Del 0-0 Dg3
Bd7 12. e5 de5 13. fe5 5e5 14. Bf4 B
d6 15. Hadl Db8 16. Hd3 Re8 17.
Re4 Bc7 18. Hc3 Rc6 19. Bc7 Rd4
20. Bd3 Da7 21. Rc5 Bb5 22. Be5
Rc6 23. Bh7+ Kh7 24. Hf4 f6 25.
Dh3 Kg8 26. Hh4 Rd8 27. Bd4 b6 28.
Re6 Re6 29. De6 Df7 30. De4 g5 31.
Hh6 Ha7 32. Hch3 Dg7 33. Hg6 Hff7
34. c4, og Anderson gafst upp.
Til gamans birtum við hér 16
leikja skák Dvorecki og Friðriks:
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. c3 d5 4. ed5 ed5
5. dZ a6 6. Bg5 Db6 7. Db3 De6 8.
Be2 c4 9. Ddl Be7 10. 0-0 Bg5 11.
Rg5 Df6 12. Rf3 Re7 13. b3 cb3 14.
ab3 0-0 15. Re5 Dd6 16. Ra3 Rd7
og hér sömdu keppendur um jafn-
tefli.
Hin árlegu skákmót á Wijk aan
Zee eru ávallt mjög vel mönnuð
af góðum skákmönnum
og svo er einnig nú. Friðrik Olafs-
son hefur teflt vel það sem af er
mótinu og sannað að hann er einn
afsterkustu skákmönnum heims-
ins. Ljubojevic er þó liklegastur
sigurvegari. enda hefur árangur
þessa 26 ára gamla Júgóslava
verið hreint frábær á .siðustu
tveimur árum . Hann teflir hvasst
og likjast skákir hans oft flug-
eldasýningum . Annars er auðvit-
að of fljótt að spá um úrslit móts-
ins, þvi þegar keppendur eru eins
sterkir og raun ber vitni, er það
oft heppni hverjir hljóta efstu
sæt in.
Nýtt íþrótta- •
hús á Skaga
verður vigt við hátiðlega
athöfn á laugardag
í húsinu er einn af stærstu
iþróttasölum landsins með 970
ferm. gólfflöt, auk áhorfenda-
svæðis fyrir 1200 mannS.
lþróttasalnum má skipta i 4
minni sali. f honum er lögleg
aðstaða fyrir alþjóðlega
keppni i badminton, blaki,
körfubolta og handbolta.
Vfgsluathöfnin hefst
klukkan 13.30 með þvi að
karlakórinn Svanur, syngur
undir stjórn Hauks Guðíaugs-
sonar, söngstjóra Þjóðkirkj-
unnar. Þá verða flutt ávörp.
Leikfimissýning verður á
vegum skóla bæjarins og
iþróttadagskrá i umsjá
Iþróttabandalags Akraness.
Keppt verður i knattspyrnu.
handknattleik. badminton.
borðtennis, körfuknattleik.
blaki og golfi.
Aðgangurerókeypis og allir
bæjarbúar velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Neita 1
Yfirmaður Miröndu bað um frest
meöan hann hefði samband við
London og hafðist varðskipið ekki
að seinni hluta dags, meðan beðið
var svars frá London. I gærkvöldi
lá ekki ljóst fyrir hvort togararnir
myndu sigla af miðunum eða
ekki, en Ægir var þá farinn að
dóla i kringum þá á nýjan leik.
Ekki er óliklegt að fréttin um að
skipstjórarnir hafi fengið skipun
um að hætta veiðum sé á rökum
reist. Brezka stjórnin var búin að
lýsa þvi yfir, að freigáturnar yrðu
sendar aftur á vettvang ef varð-
skipin hæfu aðgerðir gegn togur-
unum. Engar likur eru þó á aö
Bretar vilji senda herskip á miðin
meðan á viðræöum Geirs Hall-
grimssonar og Wilsons stendur og
þvi vilji þeir togarana burt á
meðan þær fara fram.
Milli 40 og 50 brezkir togarar
voru á miðunum i gær og voru
flestir eða allir að veiðum.
i
UH Llj SKA.H I uLir'IR
KCRNLLÍUS
JONSSON
SKÚLAVOHÐUSIIG 8
BANKASTR4116
1H«»H0-106OO
Hitaveita Reykjavíkur
óskar að ráða starfsmann til skrifstofu-
starfa, vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsókn, ásamt upplýsingum um fyrri
störf,"sendist skrifstofunni, Drápuhlið 14,
fyrir 5. febr. n.k.
Laugardagur 24. janúar 1976.
Alþýðublaðið