Alþýðublaðið - 24.01.1976, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 24.01.1976, Blaðsíða 8
sími 81866 Klíkuskapur starfsmanna veitingastaðanna óþolandi i WHi Það má vel búa strætis- vagnana með snjókeðjum! Steinunn hringdi, og var mikið niðri fyrir. Ég get nú ekki lengur orða bundizt. Klikuskapur og mann- greining ýmiskonar er orðin svo algjör i þessu þjóðfélagi okkar, að út yfir allan þjófabálk tekur. Maður verður að þekkja þennan eða hinn ef einhverju skal áorka eða koma til leiðar. Þá fær maður helzt ekki vinnu, nema vinur frænda, bezta vinar forstjóra við- komandi fyrirtækis mæli með manni. Mig langar til aö draga fram eitt dæmi, sem i sjálfu sér er ekki mjög mikilvægt fyrir þjóðarbúið i heild, en er ósköp leiðigjarnt og mætti vel missa sin. Það er kliku- skapur starfsmanna vinveitinga- húsa gagnvart einstökum gest- um. Oft hefur verið kvartað i les- endadálkum dagblaðanna yfir dyravörðunum, sem hleypa að- eins fáeinum útvöldum inn i húsið eftir að „uppselt” er orðið, þrátt fyrir það að mikill mannfjöldi hafi beðiö timunum saman utan dyra i von um inngöngu. Nei, þeir geta ekki komizt inn, en Palli vin- ur dyravaröarins hann má koma inn, þótt hann eigi reyndar að vera aftast i röðinni. En þetta er nú reyndar ekki aðalkveikjan að hringingu minni i Horn ykkar Al- þýðublaðsmanna. Tilefnið er þetta. Um siðustu helgi, nánar tiltekið á laugar- dagskvöldið, fór ég út að skemmta mér ásamt nokkrum vinum og kunningjum. Ferðinni var heitið i Sigtúnið hans Sigmars við Suðurlandsbrautina. Við viid- um hafa vaðið fyrir neðan okkur og hringdum þvi og pöntuðum borð. Var okkur tjáð að borðinu yrði aðeins haldið, þar til klukkan 22 um kvöldið. Gott og vel. Við urðum nokkuð sein fyrir og kom- um eftir kl. 22 og var þá tjáð af þjóni vestan megin i salarkynn- um Sigtúns, að þvi miður væri bú- ið að ráðstafa borðinu. Að sjálf- sögðu sættum við okkur við þessa afgreiðslu mála, enda hafði okkur verið tjáð um þessar reglur húss- ins. En nóg um það. Um eliefu leytið rekum við aug- un i laust borð i austari enda hússins. Við setjum okkur við borðið.pöntum drykki og allt virð- ist i lukkunnar velstandi. En skyndilega um klukkan 11.30 þeg- ar húsinu hefur verið lokað kem- ur þjónn aðvifandi og tilkynnir okkur að fólkið sem pantaði þetta borð upprunalega, sé komið og vilji fá borðið sitt. Við mölduðum að sjálfsögðu i móinn og bentum á, að samkvæmt reglum hússins væri borðum ekki haldið lengur en til klukkan 22.00 og væri hon- um þvi ekki stætt á þvi, að visa okkur frá borðinu, að minnsta kosti ekki á þessum forsendum. Þjónninn brást hinn versti við og hótaði að sækja dyravörð, sem hann og gerði. Dyravörðurinn kom siðan á staðinn og var hinn ljúfasti. Bað hann okkur að vikja frá borðinu. Gerðum við honum ljósar aðstæður og við það hvarf hann um stund á eintal með þjón- inum. Eftir það samtal þeirra, kom dyravörðurinn að nýju að borðinu i fylgd með þjóninum og sagði að hann yrði þvi miður að biðja okkur að yfirgefa borðið, þvi þótt meginregla hússins væri sú að halda ekki borðum nema til klukkan 22, þá væri réttur þjóns- ins til ráðstöfunar borðum húss- ins alger. Hafði þetta þref nú staðið i hálf- an klukkutima og klukkan orðin 24. Akváðum viö þá að láta undan siga og hverfa frá borðinu, þvi ætlunin var að skemmta sér en ekki standa i þrefi við þjón sem ekki virðir settar reglur. Við brottför spurðum viö þjóninn kur- teislega til nafns en hann svaraði þvi með skætingi einum. Nú er min spurning þessi til Sigmars veitingamanns og eig- anda Sigtúns og reyndar flestra yfirmanna dansstaða hérlendis, þvi að atburðurinn sem skeði i Sigtúni á laugardagskvöldið er langt frá þvi að vera einsdæmi eða einungis staðbundinn við Sig- tún, er þjónum gert að virða við- teknar reglur veitingahúsanna. Þessi hrærigrautur og kliku- myndanir verða að taka enda. Traustir viðskiptavinir dansstað- anna láta ekki bjóða sér slika framkomu til lengdar. MUNIÐ að senda HORNINU nokkrar línur. Utanáskrift: HORNID, ritstjórn Alþýðublaðsins, Siðumúla 11, Reykjavik. Bílstjóri hjá SVR hringdi til Alþýðublaðsins í gær og sagði það vera rangt, sem komið hefði fram í blaða- skrifum að undanförnu, að ekki væri hægt að búa strætisvagnana nægilega vel undir akstur í þeirri færð, sem verið hefur í borginni að undanförnu. Hann kvað þessa skoðun for- ráðamanna vagnanna annað- hvort byggjast á kunnáttuleysi eða hreinlega viljaleysi. Það hefði veriðreynt að setja keðjur á nokkra vagna og slikt hefði gefizt vel. Til dæmis hefðu vagnar á leið 3 ekið með keðjur, og það hefði ekkert verið athugavert við það. Það væri ekki verið að taka með i dæmi allan þann kostnað sem hlytist af þvi þegar vagnar lentu i árekstrum vegna ónógs vetrarbúnaðar, þegar reiknaður væri út kostnaðurinn við að setja keðjur á vagnana. Þá væri ekki heldur tekið með i dæmi hve miklar tafir verða og óþægindi jafnt fyrir farþega SVR sem starfsfólk, þegar vagnarnir væru að aka svona illa búnir eftir leiða- kerfi sem miðast við beztu færð. Hér skortir ekkert nema vilj- ann, sagði þessi ökumaður SVR. FRAMHALDSSAGAN QE — Sandra setti i sig hörku. — Nú veldurðu ekki meiri vand- ræðum fyrir mig i vinnunni, sagði hún brosandi. — Fyrirgefðu, sagði Jake afsakandi. — Hvernig átti ég að vita, aðhann lægi á hleri? Cheerio, elskan. Sandra sat kyrr. Það var engin kurteisi, en einhvern veginn fannst henni hún ekki þola meira i bili. Jake hlaut að skjátlast um Alan. Hún þvoöi upp og lagaði til i eldhúsinu og fór inn til að skipta um löt áöur en Noel kæmi. Það var hringt að dyrum um leið og hún var að Ijúka við að mála sig. Hún leit á úrið. Noe! kæmi áreiðanlega ekki svona snemma. Hver var að koma ? Siðasta manneskjan sem hún hafði átt von á — Renée le Blanc kom siglandi inn, beið eftir aö Sandra lokaði og fór svo inn i stofuna eins og hún væri húsráöandi hér. — Má ég setjast? Ég hef haft mikið aðgera i dag. Sandra barðist við að missa ekki stjórn á sér. — Alls ekki madame le Blanc. Vilduð þér segja mér, hvaða erindi þér eigið? Ég vil ógjarnan vera ókurteis, en ég er á útleið. — Ég veit það — og þess vegna kom ég... til að láta vita, aö Noel kæmi ekki. Sandra staröi orðvana á hana: — Ég skil ekki, hvað þér eigið við, madame le Blanc, stamaði hún. — Setjist Sandra. Ég þarf að tala við yður, sagði Renée rólega. Sandra titraði, þegar hún settist — en af reiði, ekki hræðslu. — Hefjið þá mál yðar, sagði hún. Renée le Blanc sagði kæruleysislega: — Verið ekki svona óþolinmóð Sandra. Þetta er löng saga og ég ætla að byrja á byrjuninni. Þér eruð nýkomin til Montre 'l og þvi er skiljanlegt, að þer vitið ekkert um hefðbundnar venjur hér — þær standa djúpum rótum. Fjölskyldurnar Desjardins og Lamont eru hluti fortiðar borgarinnar. Slikar fjölskyldur — eins og i Frakklzndi — tengjast hjúskaparböndum til að valdið og auðæfin haldist innan ættanna með hjúskap milli sona og dætra. Þér eruð ný- komin og vitiö ekki, aö slikt hjónaband hefur verið i bi- gerö milli Noels Desjardins og Bettinu Lamont. Trúlofun- in hefur ekki verið opinberuð — það hefur verið álitið ónauðsynlegt, þvi aö allir hafa vitað málavexti! — Vita Noel og Bettina það? spurði Sandra öskureið. Augu Renée le Blanc skutu gneistum af reiði, en hún sagði rólega: — Vitanlega hafa þau alizt upp i fullvissu þess, að fjölskylduböndin yrðu treyst ennfrekar i fram- tiöinni en hingað til- Sandra dró andann djúpt. — Við Noel erum vinir — ekk- ert annaö. Ég býst viö, að þér hafið viljað vel, en það var ástæöulaust fyrir yður að koma hingaö. Ég held, aö Noel hafi engan áhuga á — konum! Alþýðublaðið Renée ie Blanc stóð á fætur. — Það var leitt, að skemmtunin er eyðilögð fyrir yður, en einhvern timann eigið þér eftir að þakka mér fyrir að segja yður allt af létta. Hún sveif út. Sandra starði á eftir henni með samblandi af létti og reiði. Hvernig dirfðist þessi kona að haga sér svona? Gat verið að Bettina hefði beðið hana um að koma til að sýna henni — Söndru — i tvo heimana? Eða voru eldri fjölskyldumeðlimir hjá Desjardins og Lamont með i spilinu? Siminn hringdi og hún flýtti sér að svara. Ef til vill var þetta Noel til að segja, að um misskilning hefði verið að' ræða? — Sæl elskan? Enn ófarin? Köm karlinn ekki? Viltu koma út með mér? Fyrst ætlaði Sandra að neita. Hún gat sagt, að Noel væri á leiðinni. Jake fengi aldrei að vita, að það væri lygi. En Noel hafði ákveðið að láta ekki sjá sig. Það var engin leið nema mannsrán til að fullorðinn maður sæti heima... nema hann hefði orðið fyrir slysi — og það hefði jafnvel Renée ekki getað séð um á svona stuttum tima. Allt i lagi, Jake, ég kem. Noel þurfti að vitja sjúklings. — Ég kem eftir tiu minútur. Ég tek bil, sagði hann hrif- inn. Jake stóð við orð sin og bjallan hringdi áður en hún hafði haft tima til aðhugsa málið. — Komdu, elskan! Þú ert svo sæt, að ég gæti étið þig! Billinn biður... Sandra léthann hjálpa sér i kápuna, athugaði, hvort hún væri með lykilinn og læsti á eftir sér. Þegar þau komu út fyrirkom bill æðandi á móti þeim og nam staðar fyrir aft- an leigubilinn. Maður stökk út og kom hlaupandi til þeirra. — Sandra! Hvað kom fyrir? Fyrirgefðu, hvað ég kem seint. Ég reyndi aðhringja en þú varst á tali. Sandra leit ringluð á Noel. — En hún sagði að þú kæmir ekki og ég lofaði þvi að fara út með Jake, þegar hann hringdi. Nú fyrst virtist Noel taka eftir hinum manninum. — Svo þetta er'þá Jake. Hér er um misskilning að ræða, en ég ætla að farh út með miss Elmdon fyrst ég náði hingað i tima. Jake tók fastar um handlegg Söndru. — Ekkert liggur á, góði! Ég náði henni fyrstur, er það ekki, elskan? — Biddu nú andartak, Jake, sagði Sandra utan viðsig. — Við getum ekki rokið svona af stað. Noel sem hafði starað á þau flýtti sér að segja: — Ég viðurkenni, að ég kem alltof seint, að það er ekki mér aö kenna. Svo er það ekki heldur ýður að kenna. Ég hef pantað borð — eigum við ekki að koma öll þrjú? Á eftir skildi Sandra ekki, hvernig Noel hafði farið að ------------------------------------------------1 I þessu, en staðreyndin var sú, að hann róaði Jak, borgaði I bilinn, lét Söndru setjast i framsætið og Jake aftur i. Allt á I styttri tima en tekur að telja upp að þremur. Veitingahúsið, sem þau ætluðu að borða á var skammt J frá, og þau voru orðin vingjarnleg hvert við annað, þegar J þau settust, Sandra slappaði af og byrjaði að skemmta sér. Það var | alltaf gaman aðfara út með glæsilegum karlmanni... hvað | þá meö tveim, sem slógust um athygli hennar. Það var | næstum betra, en unnt var að dreyrna um. Noel, svo glæsi- I legur, fyirmannlegur og kurteis, og Jake vsvo laglegur. I ákafur og aðlaðandi glaumgosi... þeir hefðu ekkigetað- I verið ólikari, en samt voru Leir báðir hlutar af Kanada og I hvor gegndi sinu starfi i lifinu. Sandra borðaði matinn, sem Noel hafði pantað, dreypti | á vininu og hlustaði á samræður Noels og Jakes, sem virt- | ust hafa gleymt öllumværingum — ja, þeir virtust orðnir | alúðarvinir. | Jake yfirgaf þau andartak til að heilsa vinum sinum á í nálægu borði og Noel flýtti sér að nota tækifærið: — Hver sagði, að ég kæmi ekki? Eða var þetta afsökun | til að komast út með Jake? spurði hann. Sandra starði á hann. — Auðvitað ekki! Renée sagði I mér, að þú kæmir ekki. Noel leit undrandi á hana. — Renée? Það skil ég ekki. I Usss... flugmaðurinn þinn er á leiðinni. Hittu mig i hádeg- I inu á litla veitingahúsinu, sem við borðuðum á fyrsta J kvöldið. Klukkan eitt... ég lofa að koma timanlega. Hann J setti fingur á varirnar. Kvöldiö, sem byrjaði svona illa, endaði frábærlega vel. | Og það bezta af öllu, hugsaði Sandra, er hvað Noel og Jake | kom vel saman, þó að þeir ynnu svona ólik störf. En hvað I þetta hafði verið mikill léttir eftir allt annrikið og leiðindin I Hvers vegna fórstu?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.