Alþýðublaðið - 20.03.1976, Side 2

Alþýðublaðið - 20.03.1976, Side 2
2 STJORNMÁL alþýðu’ Laugardagur 20. marz 1976 biaðíð blaöiö Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Tæknilegur fram- kvæmdastjóri: Ingólfur Steinsson. Rit- stjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnars- son. Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar er I Síðumúla 11, simi 81866. Auglýsingar: sími 28660 og 14906. Prentun: Blaðaprent h.f. Áskriftarverð: 800 krónur á mánuði og 40 krónur i lausasölu. _________________ ________________ Verðstöðvun - eða hitt þó heldur Af og til — svona á milli þess, sem menn hlýða á fregnir af nýjum verðhækkunum — kemur fólki verðstöðvunin i hug, sem ólafur Jóhannes- son setti einhvern tima fyrir langa löngu. „Hvernig er þetta með verðstöðvunina? ” spyr fólk. „Er hún enn i gildi, eða hefur hún verið afnumin?” Viðskiptaráðherrann hæstvirtur er leiddur fram i sjónvarpi eða útvarpi og spurður. Og hann svarar kampakátur að auðvitað sé verðstöðvun enn i gildi á íslandi. Þannig berast okkur þau merkilegu tiðindi, að á þvi herrans ári 1975 hafi orðið rúmlega 50% verðbólga i verðstöðvun og að 27% hækkun á gjaldskrá hita- veitu Reykjavikur og 30% hækkun á afnota- gjöldum útvarps og sjónvarps breyti þvi ekki, að verðstöðvun sé á íslandi. Þegar saga þessa timabils verður rituð einhvern tima siðar meir verður það merkilegast, að aldrei hafi verð- stöðvun verið lögboðin jafn lengi i landinu — og að aldrei hafi verðlagshækkanir orðið jafn mikl- ar og á þessu verðstöðvunartimabili. Þannig er öll efnahagsstefna núverandi valdhafa. Þar rek- ur sig eitt á annars horn og öll orð, sem nota á til þess að reyna að lýsa stefnunni, reynast öfug- mæli — alveg eins og verðstöðvunin þýðir i raun óðaverðbólga. Ráðherrarnir gætu þvi tekið undir með Páli postula og sagt: „Það góða, sem við viljum, gerum við ekki, en það illa, sem við ekki viljum, gerum við.” Jafnari atkvæðisréttur Um 1250 Suðurnesjamenn afhentu forseta Sameinaðs alþingis undirskriftarlista i fyrra- dag, þar sem þeir mótmæla atkvæðamisrétti i alþingiskosningum. Frá þvi breyting var siðast gerð i þessum efnum hafa miklir tilflutningar fólks átt sér stað. Einkum og sér i lagi hefur fólkinu fjölgað i Reykjaneskjördæmi, en þar þarf nú tvöfalt fleiri kjósendur á bak við kjör- dæmiskjörinn þingmann en að meðaltali yfir landið allt. Samhliða þessu hefur komið upp sú staða, að það getur gerzt, að flokkur, sem fær 10% atkvæða i alþingiskosningum, komi engum þingmanni að, en flokkur, sem fær helmingi færri atkvæði, fái fleiri en einn þingmann. Að sjálfsögðu er ekki hægt að taka nákvæm- lega jafnt tillit til allra i alþingiskosningum þannig, að hvert atkvæði sé jafngilt án tillits til þess, hvar það er greitt á landinu. í fyrsta lagi þyrfti þá i hverjum kosningum að færa þingsæti á milli kjördæma. í annan stað myndi þá meiri- hluti þingmanna koma frá einu horni landsins — þaðan, sem mestur aðflutningur fólks er, þjónusta bezt og ýmsar aðstæður hag- kvæmastar. Áhugi er ekki fyrir hendi hjá neinum aðila að ganga svo langt i endurskoðun á skiptingu þingsæta á milli kjördæma enda verður einnig að taka tillit til byggðasjónarmiða i þessu sambandi. Allir flokkar munu hins vegar sammála um, að atkvæðamisréttið sé orðið of mikið, eins og nú standa sakir. Umræður eru þegar hafnar innan flokkanna um leiðir til úrbóta og eitthvað hefur verið ræðst við á milli flokka um málið Ýmsar hugmyndir hafa komið fram, m.a. sú, að ekki þurfi að gera breytingu á stjórnarskrá til þess að leiðrétta þetta heldur nægi e.t.v. að breyta lögum um úthlutun uppbótaþingsæta þannig, að fjölmennustu kjördæmin geti fengið fleiri uppbótarsæti. Er liklegt, að þessi mál komi mjög til umræðu og athugunar á næstunni og að ekki liði langur timi áður en þær breytingar verði gerðar, sem stuðla að jafnari atkvæðisrétti landsmanna. Réttarvernd heldur fund um meðferð og skipan opinberra mála Félagið íslenzk réttarvernd hefur ákveðið að boða til al- menns kynningarfutular um meðferð og skipan opinberra mála. Fundurinn verður hald- inn á Hótel Esju á miðvikudag og hefst klukkan 20:30. Ræður flytja þeir Sigurður Gizurarson, sýslumaður á Húsavik, og Sigurgeir Jónsson, bæjarfógeti i Kópavogi. Sig- urður fjalla um hugmyndir um stofnun umboðsmannsembættis hér á landi, en Sigurgeir um nýtt frumvarp til laga um rann- sóknarlögreglu rikisins, skipan dómsvalds og meðferð opin- berra mála. Að loknum ræðum geta fund- armenn borið fram fyrirspurn- ir. Stjórn Islenzkrar réttar- verndar hefur ákveðið að halda félagsfund i næsta mánuði, þar sem rætt verður um rekstur al- mennrar, lögfræðilegrar þjónustuskrifstofu. —AG TILRAUNIR MEÐ NÝTT KOL- MUNNATROLL Norðmenn eru um þessar mundir að gera tilraunir með nýja gerð af kolmunnatrollum. Þessi troll eru með víðara opi en áður hefur tiðkazt á þessum veiðarfærum. Það hefur verið eitt helzta vandamálið við kolmunnaveið- arnar að vegna þess að fiskurinn er veiddur á allmiklu dýpi, þenst hann Ut þegar trollið er dregið upp. Sé komið of mikið magn i troll- ið, verður þenslan það mikil að hún rifur pokann og aflinn næst ekki. Lengi hafa menn reynt að sigr- ast á þessu vandamáli og reyndu Þjóðverjar t.d. margvislega raf- eindatækni i þeim tilgangi. Norðmenn reyna nú, ásamt þessu nýja trolli, einskonar svörunartæki, sem byggir á verk- un krafta i trollinu. Frá opi og inn i poka er kapall festur við trollið og þegar átak á ákveðna punkta trollsins er orðið svo og svo mikið sendast boð um það upp i brú skipsins. Siðan byggist það á þvi hversu sterkt trollið er, hve mikið skal tekið i trollið i hverju togi. Eftir þvi hve átakið er mikið má gera sér nokkra grein fyrir þvi hve mikið magn af kolmunna er komið i trollið. EB Lausn gát- unnar í dag F K r H r r v N N fí N N K R U U /v' N F A' R fí N R N F H R U N F m 'R B Æ u r m fí /< N R K N N r r F N N R u N V fí N Þ r R F U K R R rv N z> BILASALINN v/VITATORG Opið öll kvöld til kl. 10 Símar 12500 og 12600 TRÉSMIÐJA BJÖRNS ÓLAFSS0NAR REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975 HAFNARFIRÐI HÚSBYGGJENDUR! Munið hinar vinsælu TI- TU og Slottlistaþétting- ar á öllum okkar hurð- um og gluggum. * Elkki er ráð nema i tíma sé tekið. Pantið timanlega. Aukin hagræðing skapar lægra verð. Leitið tilboða. Rtnl íisLos liF er nú flutí á GRENSÁSVEG 5~7 sama .. rgoöa voruvalw m •I sama góða þjónustan NYIR OG GAMLIR VIÐSKIPTAVINIR,- VERIÐ VELKOMNIR Á GRENSÁSVEG! Plastos lil Oddur Sigurðsson, simi 82655

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.