Alþýðublaðið - 20.03.1976, Síða 6

Alþýðublaðið - 20.03.1976, Síða 6
6 FRÉTTIR Laugardagur 20. marz 1976 biaöið ðu- - : Akveðið hefur verið að efna til aukasýningar á bellettum þeim sem frumsýndir voru i Þjóðleik- húsinu i byrjun þessa mánaðar. Sýningin verður i dag laugar- dag, kl. 15 og verður i formi fjölskyldusýningar. Verð aðgöngumiða verður hið sama og á barnasýningar. Ilér er um að ræða þrjá ball- etta: „Or borgarlifinu”, eftir Unni Guðjónsdóttur, við tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar, „Dauðinn og stúlkan” eftir Alexander Bennett við tónlist Schuberts og nokkur atriði úr „Þyrnirós'u” i dansgerð Bcnnetts við tónjist Tsjai- kovskis. i sýningunni koma fram is- lenzki dansf lokkurinn og nemendur úr Listdansskóla Þjóðleikhússins. Alls koma um 30 dansarar fram i sýningunni. Myndin er úr balletti Unnar, Or borgarlifinu. Fremst á gólfinu: Auður Bjarnadóttir sem dansar dótt- urina. Danskt alþýðuleikhús væntanlegt til íslands Carmen slær öll met Á sunnudags- kvöldið verður 40. sýning á óperunni Carmen í Þjóðleik- húsinu. Á sýning- unni syngur brezki söngvarinn Simon Vaughan hlutverk nautabanans í stað Jóns Sigurbjörns- sonar. Mun hann syngja a.m.k. i þremur næstu sýningum. Sigriður Ella Magnús- dóttir syngur Carmen, Magnús Jónsson Don José, en aðrir helztu söngvarar eru: Ingveldur Hjaltested, Elin Sigur- vinsdóttir, Svala Nielsen, Kristinn Hallsson, Garð- ar Cortes, Hjálmar Kjartansson og Halldór Vilhelmsson. Hljóm- sveitarstjóri er Ragnar Björnsson. Rúmlega 21 þúsund manns hafa nú séð Carmen og hefur engin önnur ópera sem bjóð- leikhúsið hefur sýnt náð slikum vinsældum. Sú ópera komst næst Carmen hvað fjölda sýningargesta snerti var Rigoletto en hana sáu 18.605 manns. Mikil aðsókn er ennþá að Carmen, en búast má við að sýningum taki þó senn að fækka. MIKIL GRÖSKA í STARFSEMI LEIKFÉLAGS SELTJARNARNESS Anne-Lise Gabold f hlutverki sinu i „STÖVLER OG SKO” sem væntanlcgt cr til tslands á næstunni. Leikfélag Seltjarnar- ness var stofnað 13. október 1971. Fyrsti formaður þess var Sigurður Sigmunds- son, en núverandi formaður er Guðjón Jónatansson. Félagið sýndi árið 1972 einþáttungana Jóðlif eftir Odd Björns- son og Sköllóttu söng- konuna eftir Ionesco. Árið 1973 sýndi leik- félagið barnaleikritið Gosa eftir Jóhannes Steinsson, Geimfarann eftir Hreiðar Eiriksson árið 1974 og með það leikrit fór 4 manna leik- flokkur til Álandseyja i tilefni 10 ára afmælis sambands finnsk- sænskra áhugaleikara. Leikfélagið hefur jafnframt efnt til fimm framsagnarnámskeiða og notið þar leiðsagnar Péturs Einarssonar, Hákons Waage, Jóns H jartarsonar og Ingunnar Jensdóttur. 19. febrúar s.l. kom finnskur leikflokkur frá Braga Dramaten í Helsinki I boði Leik- félags Seltjarnarness og hafði 4 sýningar í félagsheimilinu við Buddy og Peggy Evans (Hilmar Oddsson og Guðrún Brynja Vilhjáímsdóttir. ágætar undirtektir. Einnig tók félagið á móti og liðsinnti finnska leikflokknum Tila- teatteri frá Helsinki ár- ið 1974. Næsta verkefni Leik- félagsins nefnist „Hlauptu af þér hornin” og er eftir bandariska leikritaskáldið Neil Simon. „Hlauptu af þér horn- in” er gamanleikur í þrem þáttum. Leik- stjóri er Helgi Skúlason en leikmynd gerði Steinþór Sigurðsson. Leiktjaldasmiði og allan annan undirbún- ing hafa félagsmenn unnið sjálfir, en nokkur fyrirtæki hafa lánað leikmuni og búninga. Leikendur í þessu verki eru: Jóhann Steinsson, Hilmar Oddsson, Jón Jónsson, Jórunn Karlsdóttir, Þórunn Halldórsdóttir, Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir og Guð- jón Jónatansson. Frumsýning á „Hlauptu af þér hornin” verður i Félagsheimili Seltjarnarness þriðju- daginn 23. marz n.k. og hefst kl' 9 s.d. Næstu sýningar þar á eftir verða á fimmtu- dagskvöld og sunnu- dagskvöld. Jafnframt hefur leik- félagið mikinn hug á að fara með leikinn til nær- liggjandi byggðarlaga og þá helzt i samvinnu við áhugafélög á við- komandi stöðum. jss Við rákumst á það i dönsku blaði, eigi alls fyrir löngu, að danskur leikflokkur væri væntan- legur hingað til lands. Okkur tókst ekki að hafa upp á þeim sem hafa þann heiður að bjóða listafólkinu hingað, en okkur þykir engu að siður rétt að segja i stórum dráttum frá þvi sem það hefur upp á að bjóða. Verkið sem leikflokkur- inn sýnir núna heitir „STÖVLER OG SKO” og er eftir Erik Knudsen. Sýningar eru orðnar 60 og hafa þær notið mikilla vinsælda i Danmörku. Am.k. 60 sýningar tii viðbótareru fyrirhugaðar i Danmörku, auk þeirra sem verða á íslandi og i Sviþjóð. Með aðalhlutverkið i „STÖVLER OG SKO” fer Anne-Lise Gabold en auk hennarkoma fram: Gyrd Löfqvist, John Hahn Pet- ersen og Finn Nielsen. TÚNLEIKAR „Brottnámið ur kvennabúrinu” Hljómsveit Tónlistar- skólans i Reykjavik, heldur tónleika i Háskólabiói, laugar- daginn 20. marz kl. 2.30 siðdegis. Stjórnendur eru: Marteinn Hunger Frið- riksson, Stanley Hrynuik og Jón Sigurðs- son. A efnisskrá eru þessi verk: Forleikur að óperunni „Brottnámið úr kvennabúrinu” eftir W.A. Mozart. Konsert nr. 3 i A-dúr fyrir selló og hljómsveit i útgáfu F. Pollain eftir Carl Ph. E. Bach. Einleikari Inga Rósa Ingólfsdóttir. Litil sinfónia fyrir blás- ara: C. Gounod. Variations Symphoniques eftir César Franck. Einleikari: Hrefna U. Eggertsdóttir.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.