Alþýðublaðið - 30.03.1976, Side 3

Alþýðublaðið - 30.03.1976, Side 3
alþýöu' talaöíó RÍKIÐ SLÆR 300 MILLJÚNIR HJÁ ÞJÚÐINNI A morgun ætlar Seðlabankinn fyrir höndrikissjóðs að slá lán hjá þjóð sinni að þessu sinni 300 milljónir króna. Fjárhæðinni skal varið til framkvæmda við Norður- og Austurveg. Boðin verða út happdræattis- skuldabréf, hvert að fjárhæð 2. þús. kr. Bréfin verða endurgreidd handhafa að 10 árum liðnum, ásamt verðbótum i hlutfalli við þá hækkun sem kann að verða á framfærslúvisitölu á lánstiman- um. Arlega verða greiddir happ- drættisvinningar að upphæð 30 milljónir króna eða 10% af heildarlánsf járhæðinni. Fyrst verður dregið þ. 20. mai nk. Happdrættisskuldabréfin eru undanþegin framtalsskyldu og eignarsköttum, en vinningar og verðbætur eru undanþegnar tekjuskatti og tekjuútsvari. Sölustaðir eru bankar og útbú þeirra um land allt, svo og spari- sjóðir. Þetta eri sjöunda sinn sem boð- ið er út lán til rikisins af þessu tagi og hefur rikið fengið að láni alls 1100 milljónir króna. Peningunum hefur verið varið til að fullgera hringveg um landið og ljúka við Djúpveg. EB. Sjónvarpskeppnin SUÐURLANDI DÆMDUR SIGURINN! „Þau úrslit sem tilkynnt voru i þættinum á laugardagskvöld, eru og rétt og það er þvi lið Suður- lands sem heldur áfram i spurn- ingakeppninni, „Kjördæmin keppa”, ,sagði Helgi Skúli Kjartansson höfundur spurninga fyrrnefnds þáttar i spjalli við Alþýðublaðið. Eftir þáttinn á laugardaginn — þar sem lið Reykjaneskjördæmis, m.a. með Pétur Gaut Kristjánsson innan- borös (sá ósigrandi i „Þekkirðu land” spurningakeppni hljóð- varpsins i fyrravetur) og Suður- lands leiddu saman hesta sina — var hringt ósleitilega til sjón- varpsins og kvartað yfir mistök- um i þættinum sem hefðu leitt til þess að rangt lið hefði sigrað. Úrslitin iþættinum urðu þau að lið Suðurlands sigraði, svaraði 18 spurningum af 20, en lið Reyknes- inga svaraði 17. Voru það svör við einni spurn- ingunni sem deilunum ollu. Var um það spurt, hver væri elzta vatnsaflsvirkjun á Vestfjöröum. Lið Reykjaness svaraði þvi til, Söluskatts- skilin sett undir smásjá Nú mun vera ætlunin að stórauka eftirlit með söluskatt- skilum fyrirtækja hér i borg. Söluskattsdeild Skattstofu Reykjavikur hefur auglýst eftir starfsfólki og ætlar að auka umsvif sin til muna. að virkjun Litladalsár við Geirs- eyri i Patreksfirði, væru sú elzta. Lið Suðurlands, nefndi hins vegar Fossárvirkjun i Skutulsfirði. Var svar þeirra siöarnefndu dæmt rétt og réði þessi spurning úrslit- um f keppninni, þar sem aðeins eitt stig skildi liðin i lokin. Hin fyrsta en ekki hin elzta. En af hverju upphófust þessar deilur og hviheldurDagblaðið þvi fram i gærdag, að um mistök hafi verið að ræða, og lið Reyknesinga sé þvi hinn rétti sigurvegari? Blaðið spurði Helga Skúla þess- ara spurninga. „Sannleikurinn er sá, að Dagblaðiö og þeir aðilar sem við þáttinn gerðu athuga- semdir, heyrðu ekki spurninguna rétt. Eg var uppi i sjónvarpi i morgun og fór yfir þáttinn, til þessað fullvissa mig um réttmæti áður tilkynnts svars.” „Hið rétta i málinu er það, að spurt var um elztu va'tnsvirkjun á Vestfjörðum, en ekki þá fyrstu einsog margir héldu, þ.á m. Dag- blaðið. Reyknesingar nefndu þá fyrstu, sem lögð var niður árið 1919 og getur þvi ekki i dag talizt hin elzta. SvarSunnlendinga eftir þessu var aftur á móti rétt.” Það er augljóst á fjölda hring- inganna og umræðum um þetta atriði og önnur atriði þáttarins, að mikið er á þátt þennan horft. Taka áhorfendur greinilega virk- an þátt i keppninni. Það sýnir fjöldi þeirra sem leiðrétta vildu meinta villu i þættinum. Stjórn- endur þáttarins og Sunnlendingar standa hins vegar með pálmann i höndunum. Ibúar Reykjaneskjördæmis sitja eftir með sárt ennið. Lið þeirra er úr leik. —GAS. Þriðjudagur 30. marz 1976 FRÉTTIR 3 Númer 77 Við vitum, að hún er númer 77. Svo sýnist okkur að á svuntunni hennar standi Asta Þórarinsdótt- ir,en gætiverið Þórðardóttir. Við vitum lika að hún vinnur hjá Fiskiðjunni i Vestmannaeyjum, og að hún er að snyrta fiskflök. Meira vitum við ekki, en þetta er allnokkuð. — Jú, raunar vitum við að Guðmundur Sigfússon tók myndina. An: 1 stk. hraðbátur: milljónir! Þe i r Þr ö s t u r Sigtryggsson og Gurinar Ólafsson komu heim um helgina eftir að hafa skoðað hraðbáta i Þýzkalandi og Dan- mörku fyrir Landhelgis- gæzluna. Munu þeir nú vera að vinna að skýrslu um ferðina. Eins og fram kom i frétt Alþýðublaðsins á laugardaginn hafa þvzku hraðbátarnir verið boðnir fram fyrir geypifé. Samkvæmt upplýsingum sem Alþýðublaðið fékk hjá Baidri Möller ráðuneytisstjóra i gær, er það verð sem sett er upp fyrir einn bát um 450 milljónir króna. Ekki er hægt að sjá neina leið til að reiða fram þá upphæð, en eins og Baldur tók fram þarf fyrst að fá vitneskju um hvort bátar af þessari gerð henta okkur áður en farið verður nánar út i fjárhags- hliðina. Alit skipherranna liggur vænt- anlega fyrir innan örfárra daga. —SG. Engin skip að „Westan” Bandarikjamenn virðast ekki ætla að verða við beiðni tslend- inga um að lána eða leigja skip til eflingar Landhelgisgæzlunni. Dómsmálaráðherra lýsti þvf yfir f samtali við Alþýðublaðið fyrir viku, að bærist ekki svar fyrir þá helgi sem nú er liðin, liti hann á það sem synjun. Ekki tókst að ná tali af dóms- málaráðherra i gær, en samkvæmt upplýsingum scm Alþýðublaðið telur öruggar hafði ekki borizt ákveðið svar siðdegis i gær. Hins vegar höfðu bandarisk yfirvöld lýst þvi yfir, aö beiðnin væri „til vinsamlegr- ar athugunar.” Er álitið að hér sé um kurteislega neitun að Réttargæzlumenn í Geirfinnsmálinu: Rannsóknarlögreglan leynir mikilvægum atriðum Réttargæzlumenn þriggja manna af fjórum, sem sitja I gæzluvarðhaldi vegna Geir- finnsmálsins hafa borið rann- sóknarlögregluna þungum sök- um. Meðal annars ásaka þeir lögregluna um að þegja yfir mikilvægum upplýsingum á blaðamannafundinum s.l. föstu- dag, en þær upplýsingar rýri verulega framburð þeirra er hafa vitnað á móti skjólstæðing- um réttargæzlumannanna. — Við teljum rannsóknarlög- regluna hafa leynt svo mikil- vægum atriöum á þessum blaðamannafundi að það tekur engu tali. En við erum eiðsvarn- ir og megum þvi ekki láta i té þá vitneskju sem við höfum um málið, sagði einn réttargæzlu- manna i samtali við Alþýðu- blaðiö i gær. Hann sagði jafn- framt, að áfrýjun þeirra á gæzluvarðhaldsvistinni byggð- istá þvi, að þeirálitu varðhaldið byggt á veikum grunni. En það versta sem fyrir gæti komið væri það, að mönnunum yrði sleppt úr varðhaldi án þess að bera fram ákæru eða hreinsa þá af öllum grun. Þá myndi almenningsálitiö kveða upp sinn dóm og álita að með lögfræði- legum klækjabrögðum hefði tekizt að koma i veg fyrir ákæru. • Enginn árangur? f yfirlýsingu lögfræðinganna þriggja segir m.a.: „Við ásök- um löks rannsóknaríögregluna fyrir að hafa sleppt þvi að skýra frá þvi á nefndum blaðamanna- fundi, að allt frá 26. janúar s.l. eða i 62daga, hefir ekkert komið fram viðrannsókn málsins, sem styður frásögn hinna þriggja ógæfuungmenna.” Hér er átt við þann framburð er leiddi til handtöku skjólstæð- inga lögmannanna. A hitt ber einnig að lita, að Hæstiréttur hefur staðfest framlengingu á gæzluvarðhaldsúrskurði þriggja þeirra manna sem sitja inni vegna meintrar aðildar að Geirfinnsmálinu. Það út af fyrir sig er þó engin ábending um hugsanlega aðild mannanna að hvarfi Geirfinns, en sýnir aöeins að Hæstiréttur álitur nauðsyn- legt að umræddir menn sitji áfram i gæzluvarðhaldi meðan rannsókn málsins er á þessu stigi. Sekt eða sakleysi. í yfirlýsingu réttargæzlu- mannanna er vakin athygii rannsóknarlögreglunnar á grundvallarákvæðum i 39. gr. laga nr. 74/1974 um meðferð opinberra mála, sem er svo- hljóðandi: „Lögreglumenn skulu stöðugt miða alla rannsókn sina við það að leiða hið sanna og rétta i ljós i hverju máli, sem þeir hafa til meðferðar, og rannsaka jöfnum höndum þau atriði, sem benda til sektar sakaðs manns og sýknu.” Siðan segir i yfirlýsingunni: „Við ásökum rannsóknarlög- regluna fyrir að hafa ekki haft þetta ákvæði að leiðarljósi á nefndum blaðamannafundi.” Undirritaður sat blaða- mannafund rannsóknarlögregl- unnar og af hennar hálfu kom ekkert fram sem sakfelldi eða sýknaði skjólstæðinga lögfræð- inganna. Hins vegar var skýrt frá framburði vitna sem leiddi til handtöku umræddra manna. —SG.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.