Alþýðublaðið - 30.03.1976, Side 10
Þriðjudagur 30. marz 1976.
alþyóu-
blaóíó
Húsvörður í
Digranesskóla
Staða húsvarðar við Digranesskóla i
Kópavogi er hér með auglýst laus til
umsóknar.
StarfU' \erötir \eitt frá 1. mai 1076. Launakjör i samræmi
við slartsniannasamning Kópavogskaupstaöar.
L’riisöknarfrestur el til -6. april 1976 og umsóknir sendisl
fræðsluskrifstofu Kópavogs, Uigranesvegi 10, fyrir þann
Fræðsiustjórinn I Kópavogi
Tilkynning frá Reykjavíkurhöfn:
Smábátaeigendur
Eigendur allra smábáía, sem hug hafa á
að geyma báta sina i Reykjavikurhöfn i
sumar, skuiu hafa samband við yfirhafn-
sögumann fyrir 10. april n.k. vegna niður-
röðunar i legupláss og frágangs á iegufær-
um.
Yfírhafnsögumaður
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Húsavikur óskar að ráða nú
þegar hjúkrunarfræðinga. Upplýsingar
veita framkvæmdastjóri og forstöðukona i
simum 96-41333 Og 96-41433.
Sjúkrahúsið i Húsavik s.f.
Frá Hofi
Munið ódýra Hjartagarnið kr.
176.00 hnotan, i heilum kilóum
kr. 3000.00 eða kr. 150.00 hnot-
an. Nokkrir Ijósir litir á kr.
100.00 hnotan. Allt á að selj-
ast, þar sem hætt verður
framleiðslu á Hjartacrepi og
Combierepi, i núverandi
mynd.
Hof
Þingholtsstræti.
Kaupið bílmerki
Landverndar
Hreint k
fáS>land |
fagurt I
lond ■
LANDVERND
Tilboð óskafit i timburhús, til brottflutnings (áður sumar-
bústaöur). jlúsið stendur hjá bækistöö gatnamálastjóra i
Ártúnsbrekku, við Sævarhöfða.
Útboðsgögii eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 1. april
1976, kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Fríkirfcjuvegi 3 — Sími 25800
r
Dugir söngurinn einn
til að drepa mann?
SYDNEY: Daglega fylgist
einn frumbyggi með heimili
fylkisstjóransí Queensland, Jon
Bjelke Petersen og biður eftir
dauða hans.
Ef hann deyr berast þær sigur-
fregnir til allra byggða frum-
byggja á óraviddum sléttunnar.
„Söngur dauðans hefur hrifið”.
Fyrir viku dæmdu frum-
byggjarnir Petersen til dauða i
mótmælaskyni vegna stefnu
hans i málum frumbyggja.
Hundruð þeirra hópuðust
saman og gólu ægilegan galdra-
söng, sem stóð i þrjá daga.
öldungar meðal frumbyggj-
anna, segja, að þetta sé seiður
„draumatimans” — en það
kalla þeir forna sögu sina og
þjóðsögur. „Og”, bæta þeir við,
„hann drepur áreiðanlega”.
Foringi þeirra, Charlie Perkins,
sem er i framboði sem óháður
þingmaður til þings sagði:
„Petersen ætti að fara að deyja
bráðum. Hann er búinn að vera
bæði andlega og likamlega”.
Nornin
En hingað til hafa engin sjúk-
dómseinkenni sézt á fylkis-
stjóranum. „Mér liður bara
ágætlega,” sagði hann. „Ég er
ekki einu sinni með höfuðverk,
sem á að vera eitt af fyrstu ein-
kennum þess, að dauðinn nálg-
ist.Ef ég finn til yfirleitt... þá er
það með Charlie fyrir forneskj-
una.”
Það er samt einn frumbyggi,
sem ekki er sammála kynsystk-
inum sinum. Norn i Brisbane,
sem kallar sig „Circe”. Circe
hefur gert sjálfa sig að
„verndarengli” fylkisstjórans.
„Hann er mikill maður,” sagði
hún,„ og til að vernda hann hef
ég snúið formælingunum að
Charlie Perkins.”
Fylkisstjórinn er ekkert
hrifnari af þessum tilraunum
hennar en af tilraunum Perkins
og áhanganda hans. „Látum
nomina og Perkins útkljá þetta
sin á milli.”
En öldungarnir meðal frum-
byggjanna halda þvi fram, að
nomin geti ekki dregið úr magni
seiðsins. „Þaðerhvorki hægtað
snúa honum á annan né draga
úr honum,” segja þeir.
I
Aðvörun
Hafa þessi álög nokkru sinni
hrifið? Frumbyggjarnir halda
þvi fram, að tveir ungir, hraust-
ir frumbyggjar hafi verið
sungnir til bana árið 1961 og ári
seinna létust tveir frumbyggjar
i trúboðsstöð ensku biskupa-
kirkjunnar i Höfðaborg eftir að
töfralæknir hafði sungið söng
dauðans yfir þeim.
Væri unnt að ákæra Charlie
Perkins fyrir morð, ef Petersen
dæi?
Dómsmálaráðherrann sagði:
„Hámarksrefsing fyrir galdra
er eins árs þrælkunarvinna.
Hins vegar virðist mér þessi
furðulegi galdraseiður Perkins
vera óvenjulega mis-
heppnaður.”
Fyrst af öllu bíl...
HÖFÐABORG: Afrískur verkamaður, sem
vann 10,2 milljónir á miða, sem kostaði
hann 85 kr, sagði: „Ég ætla að kaupa mér
bíl — og svo kannski nýja konu".
Þá veit maöur hvert
aurarnir runnu...
COLOMBO: Blindur betlari, Jayatissa
Perea, fékk aldrei meiri ölmusu en 70 kr. á
dag. Nýlega vann hann stóra vinninginn í
Happdrætti ríkisins — 10,2 milljónir kr.
Hvað ætli miðinn hafi kostað? Aðeins 70 kr.
Nú brosir seppi með
fölsku tönnunum sínum
SOFiA: Það munaði minnstu, að lögreglu-
hundurinn, Tchoko, væri „settur af", þegar
hann missti f jórar tennur við að reyna að
stöðva bfl, sem sakborningur var að reyna
að sleppa i.
En nú hefur hann tekið til starfa á ný —
með fjórar krómíum-kóbalt gervitennur,
sem búlgarskur tannlæknir smíðaði sér-
staklega fyrir hann.
FRAMHALDSSAGAN
Hann visaði henni leiðina i
gegnum dimman garðinn að hús-
inu, þar sem hann opnaði aðal-
dyrnar, svo að þau kæmust inn i
anddyrið.
— Mér liður eins og innbrots-
þjóf! hvislaði Phillida.
— Ég þori að veðja, að við gæt-
um stungið af með allar mínar
eigur, án þess að nokkur af þjón-
ustufólkinu vaknaði, sagði hann
og sleppti vandlega þvi að segja
henni, aðhann hefði sina eigin að-
ferð við að rjúfa aðvörunarkerfið,
þegar hann sneri óvænt heim aft-
ur. — Ef þér vilduð fara inn i
bókasafnið, þá skal ég blanda
handa yður eitthvað að drekka,
hélt hann áfram. — Ég held, að
við þurfum bæði á þvi að halda!
En það Var hjarta lians, sem sló
svo hátt, að hann var hálft i hvoru
hræddur um að það heyrðist i
kyrrðinni. .
Hvað var það einginlega, sem
hann hafði hugsað sér, þegar
hann fór með henni i ökuferð? Ef
satt skal segja, þá hefði hann
varla getað svarað þessari spurn-
ingu. Kannski svolitið daður . ..
fyrsta tilraunin til að brjóta niður
varnir hennar.
Eins og Beverly hafði sagt með
sanni, þá var „tækni” hans full-
komin. Þegar hann reyndi við
eitthvert hjartað, þá var hann
alltaf reiðubúinn að vera þolin-
móður. . . . en hann hafði ekki
hugsað sér neitt i þessa áttina, og
skyndilega rann það upp fyrir
honum, að það hlutu að vera ör-
lögin, sem höfðu hagað þessu
þannig.
Hér var hún, stúlkan, sem hann
hafði þráð vikum saman, sem
hann vissi nú, að var hræðilega
óhamingjusöm i hjónabandi sinu.
.. ein hjá honum klukkan hálf eitt
um nóttina i sofandi húsi. . .
— Setjist niður!
Sinclair Arliss dró fram djúpan
hægindastól handa henni.
— Er yður kalt?
— Kalt? t svona dásamlegu
veðri? sagði Phillida og fór úr
kápunni. — Hvenær haldið þér
eiginlega, að við komumst á hót-
elið, herra Arliss?
— Það skiptir minnstu máli!
svaraði hann kæruleysislega,—
Næturvörðurinn verður hvort eð
er hálfsofandi og tekur sjálfsagt
ekki einu sinni eftir þvi, hver við
erum. Þér eruð ekki. . . hræddar,
er það nokkuð?
— Ekki vitund, en ég er satt að
segja farin að verða svolitið syfj-
uð!
Hún hallaði sér aftur á bak i
stólnum og brosti til hans.
Guð minn góður! Mikið er hún
ótrúlega eðlileg, hugsaði hann.
Alveg eins og barn. Og i eitt skipti
var eitthvað, sem minnti óþægi-
lega mikið á slæma samvizku,
sem angraði hann.
Því hann gerði sér fullkomna
grein fyrir þvi, að hann stofnaði
mannorði hennar i hættu með þvi
að fara með hana heim á þessum
tima nætur. Ef einhver kæmist að
þvi?
Samvizka hans hefði kannski
angrað hann enn meir, ef hann
eftir Valerie North.