Alþýðublaðið - 25.04.1976, Side 5
VETTVANGUR 11
bla
öu-
íð
Sunnudagur 25. apríl 1976
0 ára afmælishátíðahöldunum í Bandaríkjunum í sumar
JAMIS7CWN,
NtW YORK
cmtivNo,
on:o
ST. JOSEFII,
MISSOL'CI
taií.
HNNSYIVANM
SAKATOCA STCINCS,
NtW YOBK
UFArrrrt,
INCIANA
c:wra.
CCICBADO
SI.VNATCUS,
LNC’JANA
TBOUT CKtXX.
UTAH
ST. IOLTS,
MSSOt'BI
IUAWATKA,
KANSAS
THE PLAJNS
St. Joseph, Missouri
to
Chcyenne, Wyoming
Saratoga Springs,
New York
» dayt
þvi. Fariö veröur um 13 fylki
Bandarikjanna og um fornar
söguslóöir úr sögu landnáms
Ameriku, svo sem Oregon Trail,
Mormon Trail og The Diamond
Field Jack Trail. Farið veröur
um 293 bæi og borgir, en ibúar
þeirra svæða, sem riöiö
verður um, eiga þvi kost á að sjá
keppendur fara hjá, eru 34.653041
samkvæmt siðasta manntali.
Falli enginn úr keppni og allir
ljúki henni, þá verða framreiddar
handa keppendum og fylgdar-
mönnum þeirra 297 þúsund máls-
verðir og hestum þeirra gefin 250
tonn af fóðri og 15 þúsund hey-
pokar.
Allir hestar eru skoðaðir af
dýralækni fjórum sinnum á dag
til að ganga úr skugga um að þeir
hafi enga sjúkdóma fengið og i
engu verið ofboðið, en óráðlegt
þótti að senda hesta héðan frá
Islandi með svo stuttum fyrir-,
vara, þar sem algengt er að
hestar héðan fái 2-3 sjúkdóma úti
Gunnar Bjarnason, sem verður fararstjóri hópsins,
sem fer héðan og situr islenzku hestana. Vegna
þess að islenzkir hestar fá yfirleitt nokkra sjúk-
dóma fyrstu mánuðina eftir að þeir koma til út-
landa þótti ráðlegt að fá til keppninnar islenzka
hesta, sem þegar hafa hlotið þjálfun í Evrópu.
fyrstu mánuðina.
Gunnar sagði að islenzki
hesturinn ætti talsvert góða
möguleika á að standa sig i
þessari keppni, og nú sem stendur
væri hestahópurinn i þjálfun á
vesturströndinni og i Nevada
eyðimörkinni. Astæöan fyrir þvi
að flogið var með hestana alla
leið til vesturstrandarinnar, þótt
keppnin sjálf hefjist á austur-
ströndinni og riðið verði yfir þver
Bandarikin er sú, að sögn
Gunnars, að islenzki hesturinn er
svo heimfús, að þegar hann hefur
kynnzt grösugum högum vió
borgina Sakramento i Kaliforniu,
þar sem keppninni lýkur, þá mun
heimhugurinn bera hann yfir
siöasta og erfiðasta kafla
leiðarinnar, Nevada eyði-
mörkina.— BS
; SPJARAR
J HESTURINN
iNGSTU
ama
il að
and-
igar
i is-
;u i
gert
rnar
mur
stur-
; og
nnar
r is-
laðið
ferð.
;tu á
sem
liklu
snzki
5 og
>essa
illaði
nzka
em i
rður-
enzki
eyði-
syði-
hann
izku
nda-
nast
1 tilefni þessarar greinar
snérum við okkur til Gunnars
Bjarnasonar, sem unnið hefur að
undirbúningi þátttöku islenzka
hestsins i keppninni, og inntum
hann upplýsinga um hana.
Gunnar sagði, að ákveðiö hefði
verið að taka þátt i keppninni til
að sýna bandarlsku þjóðinni þann
hug á þessu afmæli rikisins,
végna þess að báðar þjóðirnar
skildu vel, öðrum þjóðum betur,
hvern þátt hesturinn ætti i land-
námi manns og menningar.
„Það er mitt álit, að tsland
hefði aldrei orðið þjóöveldi, eða
byggzt, án hjálpar þessara einst.
hesta, og án hestsins hefði land-
nám Evrópumannsins i Ameriku
ekki orðið það sem raun bar
vitni,” sagði Gunnar. „Það sem
skildi á milli farsældar Leifs
heppna og Kólumbusar var það
að Leifur gleymdi hestunum.”
Miklir hitar
Þegar ákveðið var að láta is-
lenzka hestinn taka þátt i þessari
keppni þótti ekki ráðlegt að senda
hesta héðan, heldur var leitaö til
eigenda islenzkra hesta á megin-
landi Evrópu um aöfá léða hesta,
sem þegar hafa vanizt miklum
hitum. Eigendur Islenzkra hesta i
Þýzkalandi, Sviss og Austurriki
eru yfirleitt ákafir unnendur
þessa litla hests, og vilja mikið á
sig leggja til að halda hróðri hans
á lofti, og þvi tóku þeir vel þeirri
málaleitan að ljá hesta og knapa
til þátttöku I þessari keppni. Þaö
verða þvi islenzkir hestar, sem
vaxið hafa úr grasi hér heima á
lslandi, en fengið þjálfun i meiri
hitum á meginlandinu, sem
keppa — og reyndar hefur þegar
verið flogið með hestana til Kali-
forniu á vesturströnd Banda-
rikjanna, þar sem þeir eru nú, og
hafa verið siöan i marzmánuði,
þjálfaðir undir keppnina miklu.
Það verða knapar frá fyrr-
nefndum löndum þrem, sem sitja
islenzku hestana, klæddir is-
lenzkum reiðfötum, og þessir
knapar hafa verið i stööugri
þjálfun frá þvi i lok
febrúarmánaðar, daglegri leik-
fimi, heitum og köldum sturtum,
gufubaði, miklum hitum og
kuldum — allt til að undirbúa
þriggja mánaða ferð um lands-
svæðin þar sem hitinn getur farið
upp i allt að 35 stig yfir daginn, en
fallið niður undir frostmark á
nóttunni.
Það er með styrk frá Sambandi
islenzkra samvinnufélaga, land-
búnaðarráðuneytinu og Búnaðar-
félagi Islands, sem ráðizt er i
þessa ferð, en eins og fyrr segir
eru knaparnir erlendir, þeir gefa
sina vinnu og leggja okkur til
hestana að kostnaðarlausu.
Gunnar Bjarnason, og kona
hans, Guðbjörg Ragnarsdóttir,
verða fyrirliðar „islenzka”
hópsins ef hægt er að kalla hóp
Svisslendinga, Þjóðverja og
Austurrikismanna þvi nafni, og
verða samferða öllum evrópsku
keppendunum með skipi 21. mai
n.k. til New York, en keppnin
sjálf hefst i bænum Saratoga
Springs 31. mai.
30 hvíldardagar
Farin verður 5.600 kilómetra
leið á alls 106 dögum, en af þeim
eru 30 algerir hvildardagar.
Þetta verður þvi ekki stöðug reið
allan timann, með naumri hvild,
heldur verður ferðast miklu
meira i likingu við ferðir land-
nemanna, sem fóru með fjöl-
skyldur sinar og og einhverja
búslóð, og áðu þvi nægilega oft til
að ofgera hvorki sér né
hestunum. Riðiö verður að
meðaltali 56 kilómetra leið hvern
dag keppninnar, og timi hvers
keppanda mældur dag hvern, og
árangurinn metinn samkvæmt
' 4 n
THE
MCUNTAJNS
Cheycnne, Wyoming
to
Nevada/Utah Une
V »djy, .
2
THE
HEAJLTLAND
Uma, Ohlo
to
$t. loseph, Miuouri
14 diyi
TKE GílEAT AMERJCAN HORSE «ACE REGIONS
Saritoga Spjm-s, New York to Sacramonto, Californla—59 days