Alþýðublaðið - 29.04.1976, Page 3
blattö1' Fimmtudagur 29. april 1976
FRÉTTIR 3
Sólarorkan
Fuglaveiöar með fálkum og öðrum ránfuglum er nú nær ó-
þekkt iþrótt. t Mið-Aslu þekkist hún þó enn, og fara veiði-
mcnnirnir út á eyðimörkina og dveljast þar i marga daga. —
Nútimatækni gerir þeim lifið auðveidara og þægilegra. Nú
geta þeir haft með sér hitunartæki, sem nemur geisla sólar-
margs nýtileg
innar og breytir þeim i hitagjafa, sem veiðimennirnir geta
notað til að sjóða og steikja mat. — Þetta tæki er siðan hægt
að leggja saman eins og regnhlif, og fer þá sáralitiö fyrir þvi.
— Myndin er óvenjuleg aö þvf leyti, að þarna birtist háþróuð
nútímatækni við hlið aldagamailar hefðar og fábrotins lifs.
t'-
Bridge
Undanrásir i islandsmóti
Bridgesambands íslands voru
spilaöar dagana 14. til 17. april.
Fjórir sex sveita riðlar tdku
þátt i undanrásinni
Tvær efstu sveitir úr hverjum
riðli hafa svo rétt til að spila i
úrslitakeppni, sem fram á að
fara i Reykjavik dagana 3.-7.
júní n.k. Þar munu allir spila
við alla. Islandsmeistaratitilinn
hlýtur svo stigahæsta sveitin úr
þeirri keppni.
Hér á eftir fara stig hverrar
sveitar i undanrásinni og eru
A-riðill: Stig.
Sveit Jón Hjaltasonar Rvik 84
Sveit Ólafs Gislasonar
Hafnarf. 74
Sveít Jóns Haukssonar
Vestm. 53
Sveit Óla Kr, Bjarnasonar
Hafnarf. 34
Svéit Vilhjálms Vilhjálmss
Kópav. 25
Sveit Vals Sigurðssonar
Akran. 23
B-riðill Stig
Sveit Hjalta Eliassonar Rvik 90
Sveit Böðvars Guðmundss.
Hafnarf. 56
SveitÓlafsLárussonar Rvik 52
SveitPáls Valdimarss Akran. 39
Sveit Einars V. Kristjánssonar
tsaf. 34
Sveit Viktors Björnssonar
Akran. 23
C-riðill Stig
Sveit ÓlafsH. Ólafss Rvik 70
SveitStefán Guðjohnsens
Rvik 69
Sveit Armanns Láruss Kópav 44
Sveit Kára Jónassonar Kópav 39
Sveit Ellerts Kristjánssonar
Stykkish. 33
Sveit Friðþjófs Einarssonar
Hafnarf. 30
D-riðill Stig
Sveit Jóns Baldurssonar Rvik 77
Sveit Boggu SteinsReykjan. 63
SveitGylfa Baldurss. Rvik 59
Sveit Birgis Þorvaldss Rvik 37
Sveit Júliusar Thorarens. Ak 36
Sveit Alfreðs Pálss. Ak 19
Iðnnemar telja
úrbóta þörf
Ráðstefna Iðnnemasambands
Islands, sem haldin var um
iðnaðarmál, á Norðfirði dagana
24. og 25. april sl. telur, að Iðn-
fræðsluráð hafi algjörlega
brugðizt þvi hlutverki sínu, að
gera heildaráætlun um upp-
byggingu iðnskóla eins og
ráðinu er ætlað i lögum.
1 niðurstöðum ráðstefnunnar
er lögð áherzla á, að ákveðið
verði að leggja niður ýmsa litla
og fámenna iðnskóla svo og
skóladeildir,sem staðsettar eru
viða um land. 1 staðinn verði
lögð áherzla á stofnun kjarna-
skóla, sem veitt geti viðunandi
aðstöðu til menntunar. Fram
hafa komið frá framhaldsskóla-
nefnd hugmyndir um hvernig
haga beri iðnfræðslunni og lýsir
ráðstefnan yfir jákvæðri afstöðu
gagnvart þeim, en leggur
áherzlu á, að iðnnemar taki
virkan þátt i að fjalla um þau
drög.
Kennslutækjaskortur
Ráðstefnan benti á að
kennslutækjaskortur hái
kennslunni i mörgum iðnskólum
og þar þurfi að ráða bót á.
Einnig telja iðnnemar að koma
þurfi á fót námsbókaútgáfu
fyrir framhaldsskólastigið með
svipuðu sniði og Rikisútgáfu
námsbóka, sem þjónar grunn-
skólastiginu.
Betra skipulag —
meiri samræmingu
Ráðstefnan setur fram þá
skoðun, að forsenda fyrir góðu
kennslufyrirkomulagi sé, að hið
fyrsta verði gerðar námsskrár
i'yrir iðnfræðsluna. Slikar
námsskrár munu vera væntan-
legar i málm- og tréiðnaðar-
kennslunni.
Iðnnemar luku upp einum
rómi um, að sveinspróf i
flestum iðngreinum væri ekki i
samræmi við þær kröfur sem
gerðar eru til iðnáveina i dag og
þurfi þvi að aðlaga sveinsprófið
nútimanum. —-ES
Norska olíumölin
reynist vel á Eskifiröi
- Eskfirðingar eiga enn ósamið um sérkröfurnar
„Við hér erum nú að undirbúa
1. mai hátiðarhöld”, sagði .Bragi
Haraldsson, nýkosinn formaður i
Verkalýðsfélaginu á Eskifirði i
spjalli við blaðið.
„Um þau er fullkomin sam-
staðaoghefur ekki i annan tima
verið betri”, hélt hann áfram.
,Við ætlum að búa að okkar eigin
kröftum i þvi, enda er kostnaðar-
samt að fá skemmtikrafta að.
Hér er ró og spekt yfir stjórn-
málunum, og verkalýðsmálunum
og við gerum okkur vonir um að
geta mjög bráðlega gengið frá
okka- sérsamningum, sem
frestað var eins og kunnugt er.”
„Hvað er helzt fréttnæmt að
öðru leyti hjá ykkur?”
„Ef við vikjum fyrst að at-
vinnuástandi, má segja, að það sé
og hafi verið sæmilegt siðan verk-
falli lauk. Fiskveiðarnar hafa
gengið rétt þokkalega, en á þeim
byggist auðvitað mest. Bygginga-
framkvæmdir eru nokkrar á döf-
inni, t.d. bygging nokkurra ibuða
eftir lögum um verkamannabú-
staöi, og svo er grunnskóla-
bygging hafin.
Mikið byggt
Skólahúsnæði hefur verið og er
mjög áfátt, enda er gamla skóla-
húsið siðan litlu eftir aldamót, og
skólinn hefur orðið að notast
öðrum þræði við leikskóla-
byggingu undanfarið. Nú á að
bæta úr með skólamannvirkjum,
sem byrjað er á innan við Ás-
byrgi. Þar eiga að koma auk
skólahússins bæði sundlaug og
iþróttahús. Tónlistarskóla rekum
við i félagi við Reyðfirðinga að
hálfu. Sá skóli hefur á að skipa
mikið lærðum og vel hæfum tón-
listarmanni, tékkneskum.”
„Þið fenguð Norðmenn til að
leggja oliumöl á götur hjá ykkur,
ef ég man rétt, hvernig hefur það
gefizt?”
„Já, oliumöl var lögð á aðal-
götuna gegnum bæinn, og ber
ekki á öðru en það hafi gefizt vei
enn sem komið er. Vitanlega má
gera ráð fyrir einhverju viðhaldi,
en þetta gerbreytti útliti bæjar-
ins, það sem það náði.”
„Er fólki að fjölga i bænum?”
„Það fer nú fremur hægt, en
tölur um það hef ég ekki hand-
bærar.”
„En eruð þið ekki bjartsýnir á
viðgang bæjarins?”
„Jú, það held ég að mér sé
óhætt að segja að við séum”,
sagði Bragi Haraldsson að
lokum,— OS
Skoðanakönnunin
Ríkir
RAUNVERULEGT
trúfrelsi hér
á landi?
1
Sá sem svarar þessum spurningum er-ára
Karl-----kona-----1 (Setjið x þar sem við á)
1. ER TRÚFRELSI Á ÍSLANDI? JA---------NEI-----
2. TRÚIR ÞO ÁGUÐ? JÁ---------NEI------
3. TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLIF JÁ------------NEI-------------- j
Setjið x við það svar, sem við á.
Sendið í lokuðu umslagi:
f
Skoðanakönnun Alþýðublaðsins
Pósthólf 320 j
Reykjavík [