Alþýðublaðið - 16.06.1976, Síða 1
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ
Áskriftar-
síminn er
14-900
I BLAÐINU I DAG
uuim
ar
Sjálfstæður elnstaklingur?
Er barnið sjálfstæður einstaklingur með
tilfinningar og eigin skoðanir, eða er
barnið eign foreldranna sem gátu það aft
sér og hafa alið önn fyrir þvi og gert það T
sem það er. Er foreldrum heimilt að‘J
ákveða allt fyrir barnið eða hver er réttur
þess?
Sjá bls. 8-9
’c
Sac;
UTLðND
r- ngj
:í
Pólitískur heiðarleiki?
Verður Jimmy Carter næsti forseti
Bandarikjanna. Honum er fundið skoð-
analeysi til foráttu, en aðrir segja hann
vera fulltrúa þess sem koma skal i banda-
riskum stjórnmálum: Heiðarleiki í orði
og á borði.
Sjá bls. 5
>a'
-j’ qgaeiw
■ auc:--1
ia
tí
BE
InocJ'
CT3C
Mikið fall í lyfjafræði
Af 17 nemum sem gengust undir próf sem
veitti réttindi til starfa sem aðstoðarlyjfa-
fræðingur náðu aöeins 7 tilskilinni eink-
unn. Þessi fallprósenta er óvenju há.
Sjá baksíðu.
3ca>
LCE
501
D?
acz
Hi
;cc-jqQgc
Gildi skoðanakannana
Það er alltaf hætta á þvi að þeir sem
aðhyllast öfgaskoðanir, á hvorn veginn
sem er, móti endanlegar niðurstöður
skoðanakannanna sem gerðar eru, eink-
um ef um er að ræða mál sem menn
greinir á um.
Sjábls. 13
^dL
,D
Q
Ríkið gefur og rfkjð tekur
Rikið tekur og rikið gefur. Ein helzta
tekjulind rikissjóðs er sala á áfengi og
tóbaki. A sama tima greiðir rikið stór
framlög til þess að hressa upp á andlegt
og likamlegt ástand þeirra sem verða
þessari tekjulind að bráð.
Sjá bls. 2.
íacz
3C3!
iLJL-JL.
o
pa
Wí~5
=>l_M_J I_* ,-l----
» —~~1C
s’SOUfeöaOi
íQf
Of fljótir á sér með
karfaverðshækkunina?
- óvíst um frekari hækkun á Bandaríkjamarkaði
— Það á eftir að koma
i ljós hvort verðið á
karfaflökum á Banda-
rikjamarkaði þolir
aukningu á útflutningi
héðan, sagði Eyjólfur
ísfeld Eyjólfsson frarxi-
kvæmdastjóri SH i sam-
tali við Alþýðublaðið.
Nýlega ákvað verð-
lagsráð sjávarútvegsins 46%
hækkun á karfaverði. Eyjólfur
sagði, að nú nýlega hefði orðið
smáhækkun á karfa i Banda-
rikjunum, en sú hækkun væri
hverfandi miðað við þessa hækk-
un hér. Verðjöfnunar-
sjóður yrði að gripa inn i til að
hægt væri að greiða þetta verð.
Hins vegar væri möguleiki á að
unntverðiaðselja meira magn af
karfa vestur, en það yrði ekki fyrr
en seinna i sumar eða haust sem i
ljós kæmi hvort aukið framboð
leiddi til lækkunar á verði i
Bandarikjunum.
Arið 1974 voru flutt út til Banda-
rikjanna 580 lestir af karfaflök-
um, en sama ár til Sovétrikjanna
7.554 tonn eða tæp 93% af út-
flutningi karfa. Aukin eftirspurn
virðist nú vera eftir karfaflökum
vestra vegna minna framboðs frá
öðrum löndum. Talið er, að hér
megi veiða allt að 80 þúsund lestir
af karfa á ári og með verð-
hækkuninni er stefnt aö stór-
aukinni sókn I karfann vegna
minnkandi þorskafla. —SG
Þjóðhátíð á morgun
A morgun er þjóðhátlö ísiendinga. Þótt
þessi litli snáði, sem DG festi á filmu viti
minnst af þvi, þá er ýmislegt á dagskrá,
einkum fyrir börn I borginni um miðjan dag á
morgun, og i úthverfum borgarinnar annað
kvöld. Almenn útihátið i miðborginni virðist
hins vegar úr sögunni, hvort sem mönnum
ifkar það betur eða ver. Á blaðsiðu 3 er dag-
skrá hátiðarhaldanna.
Fylgizt með frásögnum
blaðsins af Listahátfð
Tröllkonan, elzta grafík-
myndin á Kjarvalsstöðum
Útvarpsmenn halda yfirvinnu-
banni áfram meðan þeir bíða
úrskurðar kjaranefndar
- óska breytinga á röðum í launaflokka
Yfirvinnubann starfsmanna
Rikisútvarpsins heldur áfram og
hefur ekki verið rætt við þá siðan
1. júni. Starfsmenirnir hafa sent
kjarnefnd bréf um kröfur sinar
varðandi röðun i launaflokka og á
nefndin að hafa lokið störfum
næstu mánaðamót. Úrskurður
hennar á að vera bindandi fyrir
báða aðila.
Dóra Ingvadóttir formaður
Starfsmannafélags Rikisútvarps-
ins sagði að yfirvinnubanni yrði
haldið áfram um óákveðinn tima.
Fréttamenn og tæknimenn hefðu
t.d. viðmiðun við stéttarbræður
sem ekki starfa hjá rikinu og
launamismunurinn væri mikill.
Það væri staðreynd að rikis-
starfsmenn hefðu dregist langt
aftur úr i launum og enginn lifði
lengur á fastakaupinu. Dóru var
ekki kunnugt um að starfsmenn
sjónvarpsins hyggðu á mótmæla-
aðgerðir að sinni, en sjónvarpinu
verður lokað vegna sumarleyfa
þann 1. júni.
Útvarpsþulir taka ekki þátt i
yfirvinnubanninu og vinna eftir
þörfum eins og áður. —SG