Alþýðublaðið - 16.06.1976, Qupperneq 4
4 iÞRÖTTIR
AAiðvikudagur 16. júní 1976
alþýAu*
blaðiö
»Ég mun svæfa Ali á 10 mín.«
_y_____________________________ ■_
leikari en
i
og Redford
til samans!!!
Muhammed Ali, sem einu
sinni hét Cassius Clay, er ekki
einn af þeim, sem eru fram úr
höfi hógværir. Hann nefndi sj-
álfsævisögu sina, sem hann
skrifaöi i samvinnu viö Richard
Durham, og sem er nýútkomin:
„Sjá mesti-saga min”.
Columbia kvikmyndafyrir-
tækiö vill fá aö kvikmynda
endurminningar hans. Myndin
kemur til meö aö nefnast „Ali”,
og mun þetta veröa til þess aö
auka enn á sjálfsánægju hins
höggþunga heimsmeistara. Ali
á nefnilega aö leika aöalhlut-
verkiö sjálfur.
Vegna áætlananna um kvik-
myndageröina, buöu forystu-
menn Columbia heimspressunni
aö hitta hina væntanlegu kvik-
myndastjörnu. A þessum
fundiiétAli fólkið hylla sig og
sagði ánægöur frá sjálfum sér.
Þaö var greinilegt, að Ali naut
þess að vera i brennideplinum,
hann veltir sér hreinlega upp úr
frægð sinni.
óþægilegt
Þetta veröur bezta mynd, sem
nokkurn tima hefur veriö gerö i
Hollywood, sagöi Ali kokhraust-
ur, meöan framleiöandi
myndarinnar, John Marshall
virtist vera aö leita aö músar-
holu sem hann gæti faliö sig i og
stjórnandinn David Begelman
horföi feiminn i kringum sig.
Leikstjórinn Tom Gries, sem
áöur hefur sett á filmu myndir
eins og „Will Penny”,
„Breakout”Breakout” og
„Breakheart Pass”, reyndi aö
láta litiö á sér bera og hvarf
siöan inn á barinn og fékk sér
einn hjartastyrkjandi.
Þetta snerti Ali ekkert, hann
viröist ekki vera næmur fyrir
pfnlegu andrúmslofti. Og hóg-
værö er orö, sem hann strikaði
út af oröaforða sinum fyrir
löngu siöan.
Ég er fallegur
„Ég verö meiri kvikmynda-
stjarna en Clark Gable,
Humphrey Bogart og Robert
Redford til samans”, sagöi Ali
sjálfsöruggur.
Sjálfsánægja Alis gæti veriö
vegna minnimáttarkenndar, en
liklega er þetta þó bragö hjá
Ali. Mont hans. Mont hans hefur
útvegaö honum meiri blaöaskrif
og auglýsingu en allir sigrar
hans i hringnum. Hann kann aö
koma sér áfram.
„Ég er fallegur án þess að
nota faröa” sagöi hann, „svo
biðið bara þangaö til þiö sjáiö
mig farðaöan”.
Ali er svo heppinn, aö hann
getur sagt svona lagaö, án þess
aö maöur sjái hann roöna.
Hættu legur
A þessum blaöamannafundi
var Ali einkar ánægður, og
krafturinn geislaöi svo frá hon-
um, aö maður gat ekki annaö en
velt því fyrir sér, hvað hann
getur haldiö hraöanum lengi
uppi. Hann talaöi og talaði, aö
þannig aö enginn annar gat
skáskotiö inn oröi. Hann var
eins og yfirspenntur trúboöi. Og
heimskur er hann alls ekki, þess
vegna er hann kannski örlítiö
hættulegur.
„Þetta verður fyrsta svarta
myndin, sem hefur veriö gerö
rétt” sagöi Ali hárri röddu,
meöan Begelman og Marshall
litu i aöra átt og Gries fékk sér
annan á barnum.
„Og þetta veröur I fyrsta
skiptiö sem jafn fræg persónu
og ég leikur sjálfan sig á mynd.
Endurminningar mfnar voru
prentaöar i 100.000 eintökum i
fyrstu útgáfu, sem er óvanalegt.
Og bókin varö strax valinn
Literary Guild-book, sem er
mjög fint. Ég spái þvi, að þessi
bók verði seld i milljónatali út
um allan heim, þvi eg er stórt
nafn, frægur alls staðar”.
Maöur ætti ekki aö taka Ali
karlinn allt of hátiölega, það
gerir hann sjálfsagt ekki
sjálfur. Þessi sjálfsánægja er
bara yfirboröið. Ali hefur
skapaö sér imynd, og á þessari
imynd hefur hann grætt.
Samt er klárt mál, aö þetta er
ekki eintómt mont. Aö minnsta
kosti hefur bókin fengiö góöa
dóma og útgáfufyrirtækiö er
búiö aö prenta 100.000 eintök til
viöbótar, þannig aö upplag
„The greatest: My own story”
er komiö upp I 200.000 eintök og
Nýlega Iét AIi þau orö
falla aö hann yröi ekki
lengi aö afgreiöa „litla
Ijóta Japanann” þess má
geta aö þessi litli er stærri
heldur en Ali.
Báöir hafa þeir félagar
gefiö út yfirlýsingar. AIi
hefur sagt: — Mig hefur
alltaf langaö til aö berja á
fjölbragöaglimumanni.
Ég er sko ekki einhver
dauölegur. Ég er stærri
iþróttinni sjálfir.
Inoki, fjalliö sem kom
til Muhammed, hefur
ekki látiö sitt eftir liggja:
— Ég mun svæfa AIi I
köölunum á tlu minútum
— e.t.v. tekur þaö
skemmri tima.
manna boxsamtaka
vestra oröaði þaö nýlega:
— Þetta mun hafa slæm
áhrif á unga fólkiö, meist-
ari sem tekur þátt i sliku,
Htilsyiröir Iþróttina. En
hinn 34 ára gamli meist-
ari segir einfaldlega:
,Ég geri þetta pening-
anna vegna.” Og þaö er
svo sem eftir seölum aö
slægjast fyrir Ali, hann
mun fá 3 milljónir punda
fyrir slaginn ásamt ölium
aögangseyri og þá munu
tekjur hans af sjónvarps-
réttinum nema 2 milljón-
um punda. Inoki fær um 2
milljónir punda I sinn
hlut.
t þessum mánuöi fer
fram I Tókió sögulegt
einvlgi, þar munu þeir
takast á Muhammed Ali
og japanski fjölbragöa-
gllmukappinn Antonio
Inoki. Boxsérfræöingar
vestra hafa veriö hræddir
um aö nú hafi Ali tekiö of
mikla áhættu. Honum
hefur veriö gefin aövör-
un: Þú gætir bráðlega
endaö sem buff, en ekki
sem meistari'.
Þær raddir hafa einnig
heyrzt i boxheiminum
vestra aö meö þessu sé
Ali aö taka nföur fyrir sig.
Fjölbragðagliman sé
aöeins „show business”.
Eöa eins og einn tals-
þaö aöeins mánuöi eftir að hún
kom út.
Góökunningi Alis,
blökkumaöurinn William Gunn,
sem vann Emmy verölaunin
1972, á aö skrifa handritið aö
mynd Alis.
Fleiri myndir
Hin faliega kona Alis, Belinda
sagöist lika leika sjálfa sig i
myndinni, en hún hefði ekki
áhuga á aö veröa kvikmynda-
stjarna, ekki i bili aö minnsta
kosti. En veröi myndin góö, þó
ekki veröi nema brot af þvi, sem
Ali segir, er ekki óhugsandi aö
bæöi hann og Belinda muni
reyna sig I öörum myndum
seinna meir.
Sveltur ekki
Þvi er haldiö fram, aö Ali hafi
gert samíning viö útgáfufyrir-
tækiö fyrir meira en sex árum
siöan, þegar hann haföi misst
heimsmeistaratitil sinn, af þvi
að hann neitaöi aö gegna her-
þjónustu. Hann fékk 200.000
dollara fyrirfram. Búið er aö
selja bókina til Þýzkalands fyrir
aörar 200.000 og sagt er, aö
rétturinn fyrir blaökilju
(paperback) kosti 2 milljónir $.
Þannig er ekki llklegt aö Ali
komi til meö að svelta næstu
árin.
Ali vill koma meö ferskt loft
til Hollywood og á blaöamanna-
fundinum sýndi hann, aö hann
er góöur leikari, grinleikari aö
minnsta kosti.
Þaö verður s jálfsagt rothögg I
Hollywood þegar Ali byrjar á
myndinni sinni.
ATA
Þetta er Inoki,
litli ljóti Japan-
inn, sem ætlar
sér aö svæfa Ali á
10 minútum.
Sennilegt er aö
þaö veröi þá ekki
meö neinum
silkihönzkum
sem þaö veröi
gert.
I