Alþýðublaðið - 23.06.1976, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ
123. tbl. — 1976 — 57. árg.
Áskriftar-
síminn er
14-900
I BLAÐINU I DAG
i'l^ÉfcVil/fflTT
Hvernig er hægt að lifa
af þessu kaupi?
I þeirri óöaveröbólgu, sem nú rikir hér á
landi, reynist mörgu alþýöuheimilinu ]
erfitt að láta enda ná saman. Alþýðu-
blaðið ræddi við nokkra verkamenn og
konur um efnahagsástandið. Flestir eru
þeirrar skoðunar að ástandiö geti ekki
versnað frá þvi sem nú er.
3C
Sacr:
OTLðND
Konur myrða í eldhúsinu
Morðið er eitt þeirra fylgikvilla, sem
oftast kemur i kjölfar æðstu tækniþróunar
nútimaþjóðfélagsins. Bandariskur fræði-
maður hefur komist að þeirri niðurstöðu
að morð séu orðin að þjóöariþrótt þar i
landi. Konur velji helzt eldhúsiðtilþessara
iþróttaiðkana, en karlmenn svefnher-
bergið.
Hvernig geta fatlaðir
keypt og rekið bifreið?
Inútimaþjóðfélagier bifreiöin ekki lengur
munaður og fyrir hreyfihamlaða er hún
ómissandi. Þetta hafa stjórnvöld ekki
alltaf gert sér grein fyrir, en þó hefur
margt þróast til betri vegar frá þvi sem
áður var.
3CH3'
l
,acz
’Ol
:c=3^Q
Ritskoðun á
Reykjavíkurflugvelli
t Horninu i dag er sárlega kvartað undan
þvi að ekki skuli hægt að fá blaöiö Samúel
á flugbarnum á Reykjavikurflugvelli. Er
þvi haldið fram að kona sú, sem gerir inn-
kaup á blöðum fyrir farþega sé hlutdræg i
vali sinu á lesefni.
=na
=C3C
Kosningarnar á Italíu
Sigur Italska Kommúnistaflokksins bygg-
ist á þvi að flokkurinn lagði til atlögu við
spillt valdakerfi spillingu og algert dug-
leysi stjórnvalda i efnahagsmálum. Þó
dugði þetta ekki til. Við Islendingar
getum mikiðlært af niðurstöðum kosning-
anna.
J^=SL JI_l L. _J LJ'ÍSOLJOl
—1 --------------
PPC3CT OC3Q _____ __..
3
’Ot
70=3
AF HVERJU ERU
GJALDEYRIS-
TEKJUR AF LAX-
VEIÐI A HULDU?
Hinn 3. júni sl. birtist frétt i
Alþýöublaðinu, þar sem greint
var frá gjaldeyristekjum okkar
tslendinga vegna leigu á lax-
veiðiám til útlendinga. A siðasta
ári voru þessar tekjur hundrað
milljón krónur. Alþýðublaðið
hefur rætt við nokkra menn sem
alimikið þekkja til laxveiða hér
á landi og spurt þá álits á þeirri
fullyrðingu, að gjaldeyrissvindl
eigi sér staö i sambandi við
leigu á iaxveiðiám til út-
lendinga.
Að sjálfsögðu hafa menn
ýmsar skoðanir á þessu máli og
flestir vilja ekkert láta hafa
eftir sér Það virðist þó vera
nokkuð almenn skoðun manna,
að þessar hundrað milljónir,
sem við fengum i gjaldeyri fyrir
laxveiðileyfi i fyrra séu aðeins
brot af þeim gjaldeyri sem út-
lendingar greiddu á þvi ári fyrir
að fá að stunda þetta vinsæla
sport i islenzkum veiðiám.
I frásögn blaðsins af þessu
máli, sem að framan getur,
sagði Sigurður Jóhannesson, að
þeir hjá Gjaldeyriseftirlitinu
hefðu nokkuðgóða aðstöðu til að
fylgjast með þessum gjald-
eyristekjum. Þegar þeim hefði
þótt of litill gjaldeyrir koma frá
tilteknum leigusölum hefðu þeir
gert athugasemd við það og
hefði þannig verið hægt að koma
i veg fyrir gjaldeyrissvik.
Ekki virðast allir jafn trúaðir
á kerfispottinn i þessu efni og
gruna að þar séu ýmis göt á og
ef til vill sum þeirra, sem kunna
að leka meira en góðu hófi
gegnir.
Það virðist orðin nokkuð land-
læg hugsun á íslandi, að svindl
sé eitthvað sem allur almenn-
ingur sé orðinn þátttakandi i, á
einn eða annan hátt. Þegar svo
er komið er ekki óeðlilegt að
tortryggni gæti einnig i garö
þeirra embættismanna og
starfsmanna, sem fara með
eftirlit þessara mála fyrir hönd
hins opinbera.
Oft hefur verið rætt um sam-
tryggingarkerfi stjórnmála-
flokkanna og stjórnmálamanna
i sambandi við allskyns
„hagræðingu á lögum og reglu-
gerðum”. Spurningin er einnig
sú hvort þetta tryggingakerfi
spillingarinnar sé ekki einnig
komið inn fyrir dyr embættis
mannakerfisins.
Ekki hafa aðrir fjölmiölar.
séð ástæðu til að andmæla
þeirri staðhæfingu blaðsins
fyrir rúmum hálfum mánuði,
að störkostleg fjármálasvik
þróist i skjóli þagnarskyld
unnar. —BJ
Mesta ánægjan
- og minnstu
til kostað___
Það verða ekki öll gæði lífsins keypt fyrir peninga, ekki
einu sinni skattsvikna. Mörg hver mesta ánægjan fæst
fyrir ekki neitt, nema áhugann og einlægan vilja til að
njóta ánægjunnar, líkt og þetta silungsveiðifólk, sem
hefur brugðið sér í blíðviðrinu út fyrir borgina, með ó-
dýran veiðibúnað. Myndina tók DG.