Alþýðublaðið - 23.06.1976, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 23.06.1976, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR alþýðU' AAiðvikudagur 23. júní 1976 blaolð Útgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnars- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. Aðsetur ritstjórnar er i Siöu- múla 11, simi 81866. Auglýsingar: 14906. Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftarverð: 1000 krónur á mánuði og 50 krónur I lausasölu. alþýÖU' blaðiö ítölskukosningarnar 1 og þriðja aflið | Kristilegir demókratar, sjálfstæðistlokkur (talíu, hafa haldið velli í kosningum þar í landi, sem fram fóru á sunnudag og mánudag. Þeir halda tæplega f jörutíu af hundraði atkvæða og tapa ekki tilfinnan- lega. Kommúnistar bæta nokkuð við sig, en þó ekki eins miklu og bjartsýnustu stuðningsmenn þeirra höfðu vonað. Það er f róðlegt að velta því fyrir sér, hvað hafi raunverulega gerzt á ítalíu. Það virðist Ijóst að fyrir allan meginþorra kjósenda hafa valkost- irnir eingöngu verið tveir: Kristilegir demó- kratar og kommúnistar. Þriðja aflinu hefur ger- samlega mistekizt að hasla sér völl. Sósialistar eru sundraðir, nýfasistar vaða þar uppi auk ýmissa enn smærri flokksbrota. Svo augljóslega er þriðja af lið ekki ýkja trú- verðugt. Itöisku kommúnist- arnir hafa að mörgu leyti haldið uppi svipaðri gagnrýni og mjög hefur færzt í vöxt að undan- förnu í Bandaríkjunum og ýmsum ríkjum Vestur- Evrópu. Línurnar eru þó um margt skýrari á ftalíu. Gagnrýni þeirra byggist á þvi að benda á óðaverðbólgu, braskið sem henni fylgir, þess vegna afleit kjör þeirra sem minna mega sín — og síðast en ekki sízt feiknarlega spillingu sem hef ur graf ið um sig víða í stjórnkerfi Kristilegra demókrata. Nú síðast er þess að minnast að sjálfur forsætisráðherra landsins, Aldo AAoro, hefur sterklega verið orðaður við mútumálin miklu, sem kennd eru við Lockheed-verksmiðj- urnar. Á löngum stjórnarferli hefur kerfið spillzt. Kristilegir demókratar byggja þó auðvitað völd sín á traustum grunni, og þar vegur kaþólska kirkjan — Páfagarður — þyngst á metunum. Kirkjan hefur kirfilega verið virkjuð þeim í hag Italskir kommúnistar, undir forustu Berl- inguers, hafa ráðizt gegn þessu valdakerfi, dug- leysi þess og spillingu. Kommúnistar hafa ekki komið nálægt landsstjórn á (talíu í rúm þjrátíu ár, en þeir hafa víða farið með sveitarst jórnir, reynt og tekist að gera kerfið þar virkara og heiðarlegra. Og þeir hafa reynt að leggja sín klass- ísku áhugamál til hiiðar, afneitað austurblokkinni, og styðja Efnahags- bandalag og meira að segja aðild að Atlants- hafsbandalaginu. Við þessar aðstæður m var eðlilegt að frétta- skýrendur þættust sjá H fram á hrun Kristilegra ■ demókrata og stórsigur H kommúnista. Byrinn ■ virtist allur vera þeirra. g| En nú hefur þetta ekki ■ gerzt, sigur þeirra er svo 83 lítill en ekki mikill, og Kristilegir demókratar hafa staðið í stað. Skýring þessa hlýtur að vera sú að á Italíu er þriðja aflið ótrúverðugt. Valdakerfið hefur á síðustu dögum fyrir kosningar ótæpilega róið á þau mið að kommún- . istum væri ekki treyst- andi, og fötin sem þeir nú klæddust væru einasta blekkingardula Rifjuð hafa verið upp fyrri orð og fyrri skoðanir forustu- manna þeirra, og á þvf hamrað að valdataka kommúnista hafi hvergi verið til góðs — og dæmin er að finna rétt utan við landamæri (talíu. Og þetta hefur tekizt — mikill meirihluti ítalskra kjósenda treystir ekki kommúnistum, þrátt fyrir þekkilegan mál- flutning Berlinguers sjálfs. Nú bíður mjög væntan- lega stjórnmálalegt öng- þveiti ítala. Og þeirra ógæfa er að verulegu leyti sú að spillt valda- kerfi hefur haldið sínu, vegna þess að kommúnistar — þótt mildir séu um sinn — hafa tekið forustu í and- ófi gegn því. ftalir töldu sig einasta hafa að velja milli spillingar og kommúnisma — og þeir völdu spillinguna. ísland nútímans á margt skylt með (talíu. En okkur verður að takast að byggja upp þriðja aflið sem verði hvort tveggja — trú- verðugt og heiðarlegt. Þetta þriðja af I verður til dæmis að spyrna gegn hinni óhóflegu erlendu skuldasöfnun — en verður samt að finna til þess aðra leið og reisnar- meiri en að selja eða leigja landið hernaðar- bandalögum. Þetta þriðja afl þarf að taka stjórn- kerfinu tak, ráðast gegn braski, óheiðarleika og misnotkun aðstöðu. Og gerist þetta, þá bíður okkar betri framtíð en nú virðist bíða vesa- lings Italíu. —VG Einar Olgeirsson um úrslit ítölsku kosningannna: MIKILL SIGUR Kommúnistaflokkur Italiu jók verulega við fylgi sitt i kosning- unum sem fram fóru sl. sunnudag og mánudag. Þó höfðu ýmsir gert ráð fyrir, að sigur þeirra yrði meiri en raun varð á. Flokk- urinn, undir forystu Enrico Berlinguer, hefur lagt mikla áherzlu á uppbyggingu á allri innri starfsemi sinni, en Berlinguer hefur verið aðalritari flokksins frá þvi á flokksþinginu 1970. Skipulag flokksins Umsvif og skipulag italska Kommúnistaflokksins koma meöal annars fram i umfangs- miklu starfisérstakrastarfshópa á vegum miöstjórnar flokksins. Sem dæmi um þessa starfsemi má nefna eftirfarandi starfs- hópa, sem hver um sig er aö vissu leyti einskonar stofnun innan flokkskerfisins: 1. Skipu- lagsmál, 2. Embættiskerfiö, 3. Flokksskólarnir, 4. Verkalýös- mál, 5. Endurbóta- og áætlunar- mál, 6. Landbúnaöur, 7. Milli- stéttir og samvinnumál, 8. Vandamál Suöur-ttaliu, 9. Útflytjendamál, 10. Blöö og áróöur, 11. Sjónvarp og fjöl- miölar, 12. Menningarmál, 13. Menntamál, 14. Menningar- og afþreyingarmái almennings, 15. Bæjar- og sveitarstjórnir, 16. Kvennastörf, 17. Alþjóðamál. En þaö er ekki einungis góöu innra skipulagi að þakka, aö flokkurinn hefur náð þeim árangri, sem raun ber vitni. Flokkurinn hefur einnig lagað stefnu sina i samræmi við þjóö- félagslegar aðstæður á Italíu þar sem ihaldsöflin hafa ráöið rikjum undanfarna þrjá ára- tugi. Undir verndarvæng Kristi- legra Demókrta hefur margs- konar spilling og óreiða þróast og efnahagsvandinn hefur stööugt fariö vaxandi. Kommúnistaflokkurinn hefur þvi tekið upp baráttu gegn þessari spillingu meö þeim árangri, að máttarstólpar gam- alla fordóma og ihaldssemi riða til falls. Engum dettur ihug að flokkur Kristilegra Demókrata, með Kathðlsku kirkjuna að baki, verði gjörsigraður á eini ndttu. En þaö sem nú er aö gerast á Italiu er visbending um þróun, sem getur einungis orðiö á einn veg og þaðer i átt til sósiaiisma. Einar Oigeirsson. bað er heldur enginn vati á þvi, að forystumenn Italskra Kommúnista hafa komiö langt til móts við andstæð öfl og rikjandi hugsunarhátt á ýmsum sviðum þjóðlifsins. Þeir hafa m.a. lýst þvi yfir að þeir séu fúsir til að mynda stjórn með Kristilegum Demókrötum og sætt sig við áframhaldandi veru landsins i NATÓ. Þá hafa þeir einnig lagt mikla áherzlu á samvinnu við aðra flokka og þó sérstaklega við sósialistaflokka og flokka jafnaðarmanna. Auk þess, sem hér hefur verið sagt, má einnig benda á, að flokkurinn hefur lýst þvi yfir að hann virði lýöræðíslegt stjórnar far og hefur sú stefnuyfirlýsing tvimælalaust haft mikil áhrif og aukið flokknum fylgi. Djörf og sterk stefna Alþýðublaðið náði tali af Einari Olgeirssyni og spurði hann álits á úrslitum kosning- anna á Italiu. Einar sagði, að það mætti ef til vill teljast lán að Kommúnistar og Sósialistar skyldu ekki hafa náð hreinum meirihluta i kosningunum. Enda hefði það verið stefna Italska Kommúnistaflokksins, að nauðsynlegt væri að mynda sterka rikisstjórn á breiðum grundvelli, til þess að ráða við þá efnahagsörðugleika, sem nú hrjáði landið. „Foringi ttalskra Kommúnista, Berlinguer, hefur mótað mjög djarfa og sterka stefnu, þá einu sem fær er til þess að ráða við þann ægilega efnahagsvanda, sem hrjáir þjóðina. Að Vfeu má búast við hörðum átökum hjá Kristi- legum Demókrötum út af sam- vinnu við Kommúnistana, en þar eru llka ýmsir áhrifamiklir leiðtogar sem hlynntir eru slikri stjornarmyndun,” sagði Einar Olgeirsson. Einar benti einnig á að flokk- urinn hefði alla tlð verið mjög sterkur og löngum markað sjálfstæða stefnu i málefnum Vestur-Evrópu. Meðan fasistar fóru með völd og aðrir flokkar voru bannaðir starfaði flokk- urinn leynilega með miklum og góðum árangri. Flokkurinn var þvi i góðri aðstöðu til átaka eftir strið og sérstaklega eftir Stalin og Krutchev, þegar Italski Kommúnistaflokkurinn fór að marka sina ákveðnu og sjálf- stæðu stefnu. bessi stefna, sem nefnd hefúr verið Söguleg málamiðlun, gengur út frá þvi, að ekki sé nóg að Kommúnistaflokkurinn og Sósialistaflokkurinn nái naumum meirihluta, heldur sé nauðsynlegt að koma á breiðu stjórnarsamstarfi þessara aðila og Kristilegra Demókrata. Skýringin á þessu er m .a. sú að flokkurinn óttast valdarán svipað þvi sem gerðist I Grikk- landi,eða i Chile. Aukþess telur flokkurinn heppilegt og jafnvel nauðsynlegt að mynda stjórn á breiðum grundvelli svo unnt reynist aö ráða við efnahags- vandann. Að lokum sagði Einar Olgeirsson að sigur flokksins i kosningunum á Italiu væri stór- kostlegur og áhrifa flokksins mundi án efa gæta i stjórn- málum Vestur-Evrópu á næstu árum. Einar sagðist einnig telja að stefna flokksins, hin sögulega málamiðlun, mundi án efa hafa sin áhrif á hugsunar- hátt stjórnmálamanna hér á landi. Það má þvi e.t.v. draga þá ályktun, að hinn gamal- reyndi leiðtogi íslenzkra Kommúnista, Einar Olgeirsson, sé hlynntari nýsköpunarstjórn heldur en hreinni vinstri stjórn. BJ ER ENGINN UNDRANDI? Þessi fréttaklausa úr Visi sem hér sézt er heldur óskemmtileg að sjá. Þar lýsir einn réttar- gæzlumaður þeirra varðhalds- fanga, sem viðriðnir voru Geir- finnsmálið þvi yfir að margt benti til þess aö fangarnir heföu getaö haft samband sin á milli. Jón Zoega er annar réttar- gæzlumaður tittnefndra fanga, sem hafa lýst þessu yfir á stutt- um tima. Segir Jón siðan: „Meðal annars virtust fangarnir stundum samræma framburð sinn eftir á. beir komu þá með sitthverja söguna annan daginn, en daginn eftir voru sögurnar eins.” Hljóðeinangrun i fangelsinu i Siðumúla er mjög léleg, m.a. heyrist allt sem sagt er á gang- inum inn I klefana, ef einhver hdstar heyrist það milli klefa, fangarnir geta talað saman gegnum loftræstikerfin og aö lokum má minnast á bréfa- viðskipti sem fram fóru á milli gæzluvarðhaldsfanga. Réttargæzlumenn spurðust oft fyrir um það meðan á varð- haldsvist Geirfinnsfanganna stóð, hvort þeir hefðu nokkra möguleika á þvi að hafa sam- band sin á milli, en þeir voru fullvissaðir um að svo væri ekki. Ekki eru þetta góðar fréttir, að fangar, sem verið er aö yfir- heyra, vegna gruns um þátttöku i morði, smygli og öðrum glæpamálum, geti talað sin á milli og samræmt sögur sinar. Ekki er verið að halda þvi fram, aö þeir hafi notfært sér ástandið en vist er, að þeir gátu það. Merkilegt er, að þrátt fyrir mjög áberandi galla á einangrun i fangelsinu, þá hafi réttargæzlumönnum fanganna verið sagt, að enginn möguleiki væri fyrir fangana að hafa sam- band sin á milli. Ekki er að vænta mikils árangurs úr svona yfirheyrslum og ekki varð hann mikill. Ekki er að furða þó að keraldið leki, þegar botninn... ATA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.