Alþýðublaðið - 23.06.1976, Blaðsíða 16
PRÓFMÁL ALDARINNAR?
Áhugasamir áhorfendur fyigjast meö yfirheyrslum.
-------------------------------------------------------------------------
FYRSTA LAUNA-
JAFN RÉTTISMÁLIÐ
^________________-J
Sjö fyrrverandi þingritarar
hafa höfðað mál gegn Alþingi
vegna launamisréttis og er
málið nú fyrir Borgardómi
Reykjavikur. Ragnhildur Smith
er stefnandi i fyrsta málinu,
sem liggur fyrir og er það
höfðað gegn forsetum Alþingis
og f jármá1aráðherra.
Lögmaður Ragnhildar er Gunn-
laugur Þórðarson en lögmaður
stefnda er Þorsteinn Geirsson.
Setudómarar eru þau Már
Pétursson, Adda Bára Sigfils-
dóttir og Hákon Guðmundsson.
Forsaga þessa máls er á þá
leið að stefnandi hafði starfað
hjá Alþingi, sem þingritari,
undanfarin ár, i igripum
1966-1972, en sem fastur starfs-
maður frá 1. janúar 1973. Var
starfið einkum fólgið i þvi að
vélrita ræður þingmanna upp af
segulbandsspólum. Við
ráðningu var stefnanda tjáð að
starf hennar miðaðist við 13.
launaflokk, og þvi fengi hún
laun samsvarandi honum.
Eini karlmaðurinn
5 launaflokkum hærri
Það kom hins vegar á daginn
að stefndi, Alþingi, greiddi mun
hærri laun til karlmanns, sem
var þingritari og vann þvi sam-
bærilegt verk, eða samkvæmt
18. launaflokki. Þar sem stefn-
andi vildi ekki una við misrétti
þetta, hótaði hún, ásamt starfs-
systur sinni, aðhætta fyrirvara-
laust störfum, ef engin leið-
rétting fengist. Varð þetta til
þess, að Alþingi bauð þeim
bráðabirj^arsamkomulag og
hljóðaði það upp á hækkun um
tvolaunaflokka. Að þessu gengu
þingritararnir, og héldu áfram
störfum um tima.
Þegar ritararnir sáu fram á
að þetta yrði aldrei nema óveru-
leg leiðrétting á ranglæti þvi
sem þær töldu sig vera beittar,
ákváðu þær að hætta störfum,
hvað þær gerðu i april 1974.
Þegar hér var komið sögu,
hafði karlmaður sá, sem gegndi
störfum þingritara einnig
hækkað i launum ogvar hann þá
kominn i 21. launaflokk.
Ekkert svar
frá Alþingi
Þessu næst ritaði lögmaður
þingritaranna forsetum
Alþingis bréf, eftir beiðni
þeirra, þar sem hann tjáði þeim
að konurnar teldu sig eiga laun
inni hjá Alþingi vegna þess að
þeim hefðu ekki verið reiknuð
þau laun sem þær áttu rétt á
samanborið við karlmanninn.
Var farið fram á að þær fengju
þessi laun greidd, að öðrum
kosti yrði gripið til málshöfð-
unar. Þegar sýnt var að Alþingi
myndi ekki verða við þessum
tilmælum, var fjármála-
ráðherra og forsetum Alþingis
stefnt, einsog áður sagði, og eru
kröfur stefnanda á þessa leið:
„Steftiandi krefst þess aðal-
lega, að stefndu verði gert að
greiða 4/7 hluta mismunar
launa samkvæmt 13. og 18.
l.flokki frá 1. janúar 1973 tli 31.
janúar 1974 krónur 76.123.- og
4/7 hluta mismunar launa sam-
kvæmt 17. og 21. l.flokki 31.
janúar — 30. april 1974 krónur
21.162,- eða alls krónur 97.285,-,
auk 15% uppbóta krónur
14.600,-, eða alls krónur 111.865,’
auk þess eru gerðar vaxta-
kröfur.
Langdregnar yfirheyrslur í seinvirku kerfi
1 gær fór fram málflutningur i
máli Ragnhildar Smith gegn
forsetum Alþingis og fjármála-
ráðherra. Voru þar mættir lög-
menn stefhanda og stefndu,
ásamt setudómurum.
Að beiðni lögmanns stefnanda
var leitt fram vitni I málinu og
var það upptökustjóri Alþingis.
Stóöu vitnaleiðslur yfir I um það
bileina og hálfa klukkustund þá
hafði vitnið svarað alls fimm
spurningum, svörin verið bókuð
og lesin upp til staðfestingar.
Var áheyrendum þá sjáanlega
fariö aö lengja eftir að heyra
málflutning lögmanna, enda
lltinn fróðleik að hafa af vitna-
leiðslum.
Þvi næst tók til máls
lögmaður stefnanda, Gunn-
laugur Þórðarson. Rakti hann
gang mála, en vék siðan að jafn-
launaráði og þeim afskiptum,
sem það hafði af málinu. Sagöi
lögmaðurinn m.a. aö hann teldi
þá stofnun ekki standa undir
nafni, ef öll hennar störf væru á
eina lund. Hefði verið leitað á-
lits ráðsins á þessu máli, og það
Gunnlaugur Þóröarson
flytur mál þingritaranna.
hefði látið fara fram athugun á
þvi, hvort allir þingritararnir
ynnusams konar starf. Þaðhafi
hins vegar komið á daginn, að
ráðið hafi ekki séð sér fært að
taka vitnis burð 8 launþega
fram yfir ummæli yfirmanns og
kvaðst hann álita að slik stofnun
væri með öllu óþörf.
Þá benti lögmaðurinn á, að
störf þingritara Alþingis væru
alls ekki sambærileg við
venjuleg vélritunarstörf.
Upptökuskilyrði væru erfið og
upptakan oft óskýr, enda flyttu
þingmenn ekki ræður sinar,
með það i huga að þeir væru að
tala inn á segulband. Það bæri
þvi alls ekki að lita á störf þing-
ritara sem venjuleg skrifstofú-
störf, eða launa þau samkvæmt
þvi.
Að sfðustu vék Gunnlaugur að
þeim launamismun sem þama
heföi átt sér stað og taldi hann i
hæsta máta óréttlátan. Það væri
vitað að karlmaðurinn sem i
hlut ætti, hefði unnið ná-
kvæmlega siimu störf og kven-
fólkið. Að visu hefði skrifstofu-
stjóri Alþingis ekki viljað viður-
kenna þessa staðreynd, en sagt
að hann fylgdist gjörla með
störfum þessa fólks, og vissi þvi
hvernig þeim væri háttað. En
samkvæmt vitnisburði nú-
verandi starfsstúlku Alþingis,
sem unnið hefur þar um þriggja
mánaða skeið, hefði skrifstofu-
stjdri komið aðeins einu sinni
inn til starfsfólksins á þessum
tima.
Eins hefði verið bent á að laun
kvennanna væru lægri, heldur
en laun karlmannsins, þar sem
þær hefðu ekki getaö tekið að
sér aukavinnu sem skyldi.
Sannleikurinn væri hins vegar
sá, að kvenfólkið hefði aldrei
skorast undan að taka þá auka-
vinnu sem beðið var um, en
karlmaðurinn hefi nánast aldrei
komið nálægt slikum hlutum.
Þá væri það talandi dæmi um
það jafnrétti sem rikti á stað-
num, að konurnar þurftu að
nota stimpilklukku, þegar þær
færu I vinnu og úr, en karl-
maðurinn ekki. Þetta sýndi ef til
vill bezt hvernig málum væri
háttað, og þvi óþolandi órétti,
sem þær hefðu verið beittar á
vinnustað. —JSS.
Lokað á
laugardögum
Að gefnu tilefni vilja Kaup
mannasamtök tslands minna
á það, að verzlanir á Reykja-
vikursvæðinu verða lokaðar
næstu 10 laugardaga (Þ.e.a.s.
þar til I september), sam-
kvæmt samningi við
Verziunarmannaféiag
Reykjavikur.
Hins vegar er heimilt að
hafa verzlanir opnar til kl. 22 á
föstudagsk völdum , sam-
kvæmt samþykkt Reykja-
vikurborgar um iokunartima
verziana. —'AV.
BORANIR VIÐ KROFLU
HEFJAST í NÆSTU VIKU
Nú er unnið að þvi að gera
starfsáætlanir fyrir stóru borana
sem eru i eigu Orkustofnunar og
fleiri aðila.
Jötunn, sem verið hefur við
boranir við Laugaland I Eyja-
firði, mun ljúka störfum þar á
næstu dögum og er gert ráð fyrir
að hann verði fluttur austur að
Kröflu i næstu viku.
Þar er gert ráð fyrir að boraðar
veröi alls 4 holur I sumar og er á-
ætlað að þær verði um 2 þúsund
metrar aö dýpt hver.
Borinn Dofri, sem var við
boranir á Kröflusvæðinu I fyrra
sumar, er nú nýverið byrjaður að
bora holu i Mosfellssveit og ekki
hefur verið afráðið hvenær hann
lýkur þvi verki né heldur hvert
hann verur fluttur að þvi loknu.
Komið hefur til tals að senda
hann til Selfoss eða til Kröflu en
næg verkefni er að finna á báðum
stöðunum.
Það vekur nokkra athygli að nú
er I ráði að bora niður á það dýpi,
sem talið var um áramót vera
hættulega mikið og höfðu menn
þá i huga holuna, sem sleit af sér
öll bönd I fyrra.
MIÐVIKUDAGUR
23. JÚNÍ 1976
alþýðu
blaðið
HEYRT,
SÉÐ OG
HLERAÐ
Lesið: 1 tslendingiá Akur-
eyri, að samkvæmt
skoðanakönnun sem þar
var gerð sé nú þörf fyrir 750
pláss á dagvistunarstofn-
unum fyrir börn til við-
bótar við þau 200 dagvist-
unarpláss, sem bærinn rek-
ur nú.
Tekiö eftir: Aö meira að
segja Páli Heiðar Jónsson
hefur I vikulegum Visis-
greinum sinum tekið þátt i
þvi að narta og naga utan i
þá Hauk Guðmundsson og
Kristján Pétursson en Páll
hefur venjulegast haldið
sér utan og ofan við dæmi-
gerða flokksmennsku.
Gárungar segja að þetta sé
vegna þess að framsóknar-
mennska sé ekki pólitisk
skoðun heldur sáraástand.
Heyrt: Að einn þeirra tignu
gesta sem hingað til lands
munu koma I sumar séu
John Conaily, bandariski
stjórnmálamaðurinn sem
meðal annars var i bifreið-
inni með John F. Kennedy
þegar hann var myrtur i
Texas árið 1963. Vegna
fréttar blaðsins i dag um
laxveiði og gjaldeyrismál
þá má samt ætla að hinn
bandariski ráðamaður
verzli yfir borðið og ekki
undir það.
Heyrt: Að i bigerð sé að
endurvekja Stúdentaféiag
jafnaðarmanna, enda séu
stúdentar margir orðnir
þreyttir á þvi sem þeim
finnst vera staðnað starf
Verðandi og Vöku.
Lesið: t Dagblaðinu i gær
að nú hefur ólafur
Jóhannesson, dómsmála-
ráðherra bætzt i hóp þeirra
ráðherra sem taka undir
þau sjónarmið að við
ættum að hafa meiri fjár-
hagslegan ávinning af veru
varnarliðsins hér en viö
höfum haft til þessa. Þá
hafa fjórir ráðherrar lýst
sig fylgjandi þessum hug-
myndum, en tveir eru and-
vigir.
■■
Heyrt: Að megn óánægja
sé meðal margra starfs-
manna Rikisútvarpsins,
sem telji að yfirvinnubann
starfsmannafélagsins hafi
staðið nógu lengi, að öllum
sé ljóst að starfsfólkið vilji
bætt kjör, og að nú væri
skynsamíegra að láta
staöar numið.
Frétt: Aðeins einn hefur
sótt um stöðu bæjarstjóra á
Akureyri, en en eins og
kunnugt er hefur Bjarni
Einarsson sagt starfi sinu
lausu. Umsækjandinn er
Jón Sæmundur Sigurjóns-
son, ættaður frá Siglufirði,
en umsóknarfrestur a- til
15. júlí.