Alþýðublaðið - 21.09.1976, Síða 1

Alþýðublaðið - 21.09.1976, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER Áskriftar- síminn er 14-900 I BLAÐINU I DAG 3LJUUC Þegar stytti upp % Ekki er hægt að segja, að sunnlendingar hafi notið sólar i of rikum mæli i sumar. En þeir njóta þess iika svo sannarlega þegar hún sýnir sig á himninum, eins og myndir ljósm. Alþ.bl. bera með sér. Bls.7 IQí 3CZD9 LC tacz SCUCIIIOT ÚTLðND Minnkandi kjötframleiðsla í Grænlandi Geysilegur samdráttur hefur orðið i kjöt- framleiðslu i Grænlandi og verður ekki um neinn útflutning á lambakjöti að ræða i ár. Bls.6 0 fS7r ’fln FRÉTTIR Reisa nýtt frystihús Á Drangsnesi er nú unnið af kappi við að reisa nýtt frystihús i stað þess sem brann. Er jafnvel talið að hægt verði aö hefja störf i þvi i byrjun febrúarmánaðar. Bls. 3 c= Í cc Di 0 ’cr Hver sér um dreifingu Alþýðublaðsins? Gamall Alþýðuflokksmaður ritar bréf i Hornið i dag. Kvartar hann undan slæ- legri dreifingu blaðsins, einkum eftir að það var tekið i fóstur hjá ihaldinu, eins og hann kemst að orði. Bls. 13 —Jjrr=^t=l5 JULJLZirbg—i' = <= 5 □í JLi. Laun opinberra starfsmanna Óánægja opinberra starfsmanna vegna rikjandi ástands i kjaramálum hefur magnast mjög á undanförnum vikum. Verðiekkert gert til að bæta ástandið, má búast við algerri upplausn i röðum þeirra. Bls.2 dZOCZHCZDi 'JL' T'CTT íCZTcJiQC: nCP' -» « Í acz Wl__IC—M_lao -----LCZJ^DL — _______________j nt1 —ic ze zi. SAMTOKIN VILJA SAMSTARF VIÐ ALÞYÐUFLOKKINN Á kjördæmisráðstefnu Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna i Vestfjarðakjördæmi, sem haldin var á Núpi i Dýrafirði nú um helgina, var gerð sam- þykkt um stöðu og hlutverk Sam- takanna, þar sem m.a. er talið rétt að ihuga á næsta landsfundi Samtakanna samstarf við Al- þýðuflokkinn fyrir næstu kosning- ar. Alþýðublaðið leitaði til Karvels Pálmasonar, formanns þing- flokks Samtakanna, og sagði hann að svohljóðandi samþykkt hafi verið gerð: Kjördæmisráðstefna SFV á Vestfjörðum haldin að Núpi 19. september 1976 minnir á það upp- runalega markmið Samtakanna að sameina alla lýðræðissinnaða jafnaðar- og samvinnumenn i ein- um flokki. Allt frá stofnun 1969 hefur þetta verið grundvallað i stefnuskrá Samtakanna. Með þessu grund- vallarsjónarmiði, sem samþykkt var á stofnfundi Samtakanna I nóvember 1969 var þvi slegið föstu að Samtökin ættu ekki að vera til langframa fimmti stjórn- málaflokkurinn i landinu, heldur tæki i baráttunni fyrir samein- ingu vinstri aflanna. Kjördæmisráðstefnan telur, að i ljósi þeirrar þróunar sem oröið hefur i islenzkum stjórnmálum á undanförnum árum standi Sam- tökin nú á timamótum varðandi starf sitt og hlutverk. Það hlýtur þvi að verða verkefni landsfundar Samtakanna i otkóber næstkom- andi að taka afstöðu til þess hvort halda beri áfram starfi samtak- anna eða leita nýrra leiða. Samtökin á Vestfjörðum itreka fyrri samþykktir sinar um nauð- syn sameiningar lýðræðissinn- aðra jafnaðarmanna i einum flokki og vilja fá úr þvi skorið hvort Alþýðuflokkurinn sem heild eða i einstökum kjördæmum er reiðubúinn til samstarfs við Sam- tökin fyrir næstu kosningar. Gylfi Þ. Gíslason: „Ég fagna þessari ályktun” Ég fagna ályktun þeirri sem kjördæmisráöstefna Samtakanna á Vestfjörð- um hefur gert, sagöi Gylfi Þ. Gíslason í gær, ef hún táknar það, sem ég tel að hún hljóti að tákna, að Samtökin muni ekki bjóða fram í næ; i kcsningum. SJÁ VIÐTAl Á BLS. 2 Alþýðuflokkurinn ákveður annað framboð: Magnús H. Magnússon í efsta sæti í Suðurlandskjördæmi Magnús H. Magnússon, fyrrum bæjarstj. i Vestmannaeyjum, verð- ur efsti maður á lista Alþýðuflokks- ins i Suðurlandskjördæmi við næstu Alþingiskosningar. Þetta var á- kveðið á fundi kjördæmisráðs Al- þýðuflokksins i Suðurlandskjör- dæmi, sem haldinn var i Vest- mannaeyjum á laugardag og sunnudag. Á fundinum var eftirfarandi til- laga samþykkt einum rómi: „Kjördæmisráð Alþýðuflokksins i Suðurlandskjördæmi skorar ein- róma á Magnús H. Magnússon, fyrrum bæjarstjóra i Vestmanna- eyjum að vera i kjöri fyrir Alþýðu- flokkinn i Suðurlandskjördæmi við næstu þingkosningar og skipa efsta sæti á lista flokksins. Jafnframt felur það stjórn kjör- dæmisráðsins, i samráöi við Magnús H. Magnússon, aö velja aðra menn á listann”. Magnús tilkynnti á fundinum að hann myndi verða við þessari á- skorun. A fundinum kom i ljós mikill einhugur allra fulltrúa i kjördæmisráðinu um þetta fram- boð. A fundinum voru samþykktar ályktanir um ýmis mál, og verða þær birtar i blaðinu siöar i vikunni. Kosningar. Kosið var i stjórn kjör- dæmisráðsins og þessir kjörnir: Aðalmenn: Þorbjörn Pálsson. Vestmannaeyjum, Einar Eliasson, Selfossi, og Guðmundur Ingvars- son, Hveragerði. Tilvara: Reynir Guðsteinsson, Vestmannaeyjum, Hjörtur Sveinbjörnsson, Stokks- eyri, og Margrét ólafsdóttir, Eyrarbakka. Kjördæmisráðið kaus einnig þrjá fulltrúa i flokksstjórn og tvo til vara. Þessir náðu kjöri: Aðal- menn: Reynir Guðsteinsson, Vest- mannaeyjum, Vigfús Jónsson, Eyrarbakka, og Hreinn Erlends- son, Selfossi. Til vara: Ragnar Guðjónsson, Hveragerði og Jó- hannes óskarsson, Vestmannaeyj- um. - SJA VIÐTAL Á BLS. 2

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.