Alþýðublaðið - 21.09.1976, Side 6

Alþýðublaðið - 21.09.1976, Side 6
6 ÚTLðND Þriðjudagur 21. september 1976 STJÓRN CEAUSESCUS í RÚMENÍU TEKUR NÚ FASTAR í TAUMANA Nýlega voru forstjóri og yfirverkfræðingur i rúmensku fyrirtæki dæmdir til dauða fyrir að hafa látið útlend- ingum i té leynilegar upplýsingar um efna- hagsmál Rúmeníu. Beiðni um náðun var þegar i stað visað á bug. Talið er, að þessar upplýsingar hafi verið afhentar Bandarikja- mönnum eða Vestur- Þjóðverjum, en þessar tvær þjóðir eru mikil- vægustu viðskipta- þjóðir Rúmeniu. — Fyrir þremur árum gerðist svipaður at- burður, þegar rúm- enskur starfsmaður i viðskiptalifinu var dæmdur til dauða fyrir ,, efnahagsnjósnir”. Dauðarefsingu hefur verið beitt i Sovétrikjunum, þegar komist hefur upp um stórfelldsvikog spillingu, en þó eru aftökur fyrir afbrnt tengd efnahagslifi ekki algengar i 1 Austur-Evrópu og þykja heldur hroðalegar. Þessir siðustu atburðir i Rúmeniu sanna betur en áöur hörku rúmensku stjórnarinnar. Lög um rikisleyndarmál voru hert að mun fyrir tveimur árum. tltlendingar fá ekki leyfi til að búa i einkahúsnæði, þeir verða að gista i hótelum rikis- ins. Allar hömlur eru nú að verða svo strangar að þær eru alvar- legar hindranir i vegi efnahags- legrar samvinnu i Rúmeniu og vesturlanda. Rúmenia hefur verið eina landið i Austur- Evrópu, sem hefur heimilað vestræna fjárfestingu i fyrir- tækjum, sem eru rekin i sam- vinnu Rúmena og útlendinga. Arangurinn hefur þó orðið harla litill, og ein ástæðan er sú, að útlendingarnir fá ekki aðgang að nauðsynlegum upplýsingum. Dauðadómarnir fyrrnefndu munu heldur ekki hafa hvetjandi áhrif á þessi viðskipti hvorki heima fyrir né erlendis. A sama tima og þetta gerist er stöðugt þrengt að ibúum landsins á sviði menningar- mála, eða allt siðan að Ceausescu, forseti Rúmeniu, kom heim frá Kina 1971. A fjöl- mennri menningarráð- stefnu i júni s.l. var skýrt frá nýjum hugmyndafræðilegum mistökum. Afleiðingin var sú, að leiðtogar kommúnista- flokksins skipuðu hugmynda- fræðinefnd eftir ráðstefnuna, og erverkefni hennar að samræma starf og efla eftirlit með menningarlifi og fræðslustarfi. Oddamaður nefndarinnar er sj- álfur Ceausescu, forseti, sem nú virðist hafa náð völdum á flestum veigamestum þáttum þjóðmála. Aðal-tilgangur hinnar nýju stefnu skal vera sá, að búa til nýja tegund sósialista, nýtt fólk, sem á að starfa i mjög svo „þróuðu” samfélagi. Ceausescu á nú að verða aðal-hugmynda- fræðingurinn, sjálfstæður marxistiskur hugmynda- fræðingur, og eiga skoðanir hans að lýsa leiðina að þvi marki, að skapa nýtt fólk, nýja þjóð, þar sem margir sjá Maó, formann að tjaldabaki. A fyrrnefndri menningarráð- stefnu stóð hver ræðumaðurinn upp á fætur öðrum til að hylla Ceausescu sem hugsuð og hug- myndafræðing. Hugmynda- fræðingurinn Dumitru Popescu lýsti einlægri aðdáun sinni á miklum skilningi og hugmynda- auðgi leiðtogans, og kvaðst vera stoitur yfir þætti þessa manns (Ceausescu) i endurnýjun max- ismans og frekari þróun. Ný fimm ára áætlun rúmensku þjóðarinnar hefur verið rækilega kynnt. Neyt- endur eiga að fá 55% meira kjöt, 180% meira af fiski og 100% meira af ávöxtum. Þessar háu tölur leysa ekki raunveruleg vandamál þjóðarinnar og Nicolai Ceausescu, sem er með öll lykilembætti á sinni hendi, á nú aö setjast á stail i Rúmeníu sem sjálfstæður marxistfskur kenni- maður. V ' vandamál afkastalitils land- búnaðar. Tölurnar þykja með ó- likindum háar, en neytendur geta þó lifað i þeirri von að þjóðin sé á réttri leið á þessu sviði. Hins vegar er litil von um að bragðgóðir ávextir verði á boðstólum á andlega sviðinu. (Dag Halvorsen-þýtt og endur- sagt). Samdráttur í kjötfram- leiðslunni á Grænlandi - fslenskt lambakjöt á borðum þar f landi I ár mun ekkert grænlenzkt lambakjöt i heilum skrokkum verða á markaði i Grænlandi. öll fram- leiðsla á sauðfjárkjöti á að fara i vinnslu i kjöt- iðnaðarstöðinni i Nars- sak. Þetta upplýsir for- stjóri kjötiðnaðar- stöðvarinnar i Nassak, Ingv. Hóegh, i blaðinu Grænlandspósturinn fyrir skömmu. í ár mun aðeins um 4000 lömbum og fullorðnu fé slátrað, á móti 10-11.000 i fyrra. Að auki er svo það fé sem bændur slátra sjálfir heima. Venjulega hefur slátrun á vegum kjötiðnaðarstöövarinnar hafizt um miðjan ágúst, en i ár hefst hún ekki fyrr en i lok sept- ember. Nú mun öll framleiðslan verða seld i Grænlandi og verð- ur þvi ekki um að ræða neinn út- flutning á grænlenzku lamba- kjöti i ár, likt og verið hefur sið- ustu árin. Hins vegar hefur ver- iðtalað um innflutning á lamba- kjöti i heilum skrokkum frá Is- landi og Nýja-Sjálandi. Það mun væntanlega verða ódýrara en innlenda framleiöslan, ekki sizt eftir nýlegan samning fjár- bænda og kjötkaupenda, sem orsakaði 10% hækkun slátur- verðs. Það verður ekkert grænlenzkt lambakjöt flutt út i ár. Harður vetur þar um slóðir hefur leitt af sér mik- inn samdrátt í framleiðslunni, og I stað þess hefur verið talað um innflutning á lambakjöti I heilum skrokkum frá islandi og Nýja-Sjálandi. Samdráttur i kjötframleiöslu Grænlendinga stafar af afar hörðum vetri i ár. Hundruð kinda bókstaflega týndust i fanndyngjunni og fóðuröflun hefur verið erfiðleikum bundin. tJtfJutningur á ísl. kjöti til Grænlands ekki nýtilkominn Vegna fréttar Grænlands- póstsins um útflutning á is- lenzku lambakjöti til Græn- lands, sneri Alþýðublaðið sér til Skúla Ólafssonar deildarstjóra búvörudeildar SÍS, og spurði um sannleiksgildi hennar. Skúli sagði, að sala á lamba- kjöti á markaðinn i Grænlandi væri ekki nýtilkomin, heldur hefði Samband islenzkra sam- vinnufélaga haft slik viðskipti við Grænlandsverzlunina i Dan- mörku við og við siðustu 10 ár. Gegnum hana hefði verið selt isl. lambakjöt á Grænlands- markað þegar innlenda kjöt- framleiðslan á Grænlandi hefði ekki annað eftirspurn. Sagði Skúli að nú i september og októ- ber færu 70-80 tonn af lamba- kjöti frá íslandi áleiðis til Græn- lands. Væri það svipað magn og hefði farið árlega, þegar kjöt hefði á annað borð veriö selt til Grænlands. Aukinn heildarútflutn- ingur dilkakjöts frá ís- landi Skúli ólafsson sagði, að i ár væri áætlað að flytja út um 5000 tonn af isl. dilkakjöti á markað erlendis. Langmest af þessu kjöti fer á markað á Norður- löndum, enda eru engir inn- flutningstollar lagöir á þar, nema i Danmörku. Til Noregs er á ætlaö að fa ri um 3000 tonn af kjöti, um 650 tonn til Sviþjóðar, 300 tonn til Danmerkur og 600 tonn til Færeyja. Sagði Skúli aö færeyski markaðurinn væri traustur og vaxandi, enda dræg- ist innlend kjötframleiðsla heldur saman. —ARH

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.