Alþýðublaðið - 30.09.1976, Síða 14

Alþýðublaðið - 30.09.1976, Síða 14
14 FRÁ MORGNI Fimmtudagur 30. september 1976Ma%fd Fréttagetraun 1. Hver er maöurinn? 2. Hvaö kostar nýr Range Rover? 3. Hver er Þjóögarðsvöröur á Þingvöllum? 4. Þýzka söng- og leikkonan Gisela May skemmti sjónvarps- áheyrendum i gær. Fyrir hvaö er hún frægust? 5. Hvaö er langurþráður i einum kvensokkabuxum? 6. Hvaða liö varð Færeyja- meistari i knattspyrnu i ár? 7. Hvað heitir formaöur Sam- bands Alþýðuflokkskvenna? 8. Hvað er langt siðan Leðuriðjan Atson tók til starfa? 9. Hvað heitir formaður franska kommúnistaflokkssins? 10. Hvaða verktaki var með lægsta tilboðið i steypuvinnu vegna byggingar járnblendiverk- smiðjunnar við Grundartanga? fiátan Skýringarnar fiokkast ekki eftir láréttu og lóðréttu NEMA við tölustafina sem eru i reitum i gátunni sjálfri (6,7 og 9). Lá- réttu skýringarnar eru aðrar merktar bókstöfum, en lóðréttu tölustöfum. SVOR: 'J'H HoqQiaJH'Ot sibqojbim ssSjooo '6 J? 0k '8 jiHQpspunuiQno uijsijh í HL '9 'uni 6 'S stqaajH uinQpfj ? guiutnu 3o umiint juXj t uossipjia jmijjia t jjuptjiui í-l‘E Z UOSSJEJO mv 'I Velmegunin veldur of háum blóðþrýsingi Það færist nú mjög i vöxt að fólk þjáist af of háum blóðþrýstingi. Þessi þróun hefur valdið miklum áhyggj- um, enda getur sjúk- dómurinn dregið þung- an dilk á eftir sér, ef sá sem af honum þjáist kemst ekki undir lækn- ishendur í tæka tíð. Dauðalikur kvenna sem eru með sjúkdóm- inn eru tvöfalt fleiri en þeirra sem heilbrigðar eru. Hjá körlum eru likur á dauða þrefalt hjá þeim sem sjúkir eru miðað við hina heil- brigðu. Það er þvi vel þess virði að gefa sjúk- dóminum gætur 1 g um- fram allt að reyna að grafast fyrir um orsak- irnar. Eitt þekktasta tilfellið nefnist essential hypertension. Þetta tílfelli er mjög algengt, einkum þó i hinum þróaðri löndum, og virðist sjúklingum fjölga mjög eftir þvi sem á liður. En hverjar eru svo orsakirnar fyrirofháum blóðþrýstingi? Jú, það er viðurkennt að hvers kon- ar streita getur leitt til aukins blóðþrýstings. Streitan skapast svo af ýmsum þáttum sem auð- kenna hvert svokallað velmeg- unarþjóðfélag, svo sem spennu, sem skapast af of miklu vinnuá- lagi, hinum mikla flýti, sem fylgir velmeguninni og jafnvel umferðinni. Gagnlegur fyrr á timum. „Fyrr á timum” gat verið mjög þýðingamikið, að blóð- þrýstingurinn ykist hjá fólki, undir vissum kringumstæðum. Sérstaklega átti þetta við þá sem þurftu að beita afli, t.d. við véiðar og i bardögum, svo eitt- hvað sé nefnt. Þegar blóðþrýst- ingurinn hækkar, streymir auk- ið blóðmagn út i vöðvana, til heilans og hjartans, og gerir þessum liffærum kleift að auka starfsemi sina til muna. Þegar áreynsla liffæranna minnkar svo aftur, fer þrýstingur blóðs- ins aftur i eðlilegt horf. Hjá nútimamanninum er þessari likamsstarfsemi öðru visi háttað. Blóðþrýstingurinn eykst við ýmis tækifæri, en sú aukning er ekki nema til óþurft- ar hjá allflestum, þar sem kyrr- setufólk hefur enga vöðva sem geta nýttaukinn þrýsting blóðs- ins. Og það er einnig annað atr- iði, sem vert er að gefa gaum. Enginn veit hversu blóðþrýst- ingurinn lækkar aftur, þar sem ekki eru tilstaðar neinir vöðvar i áreynslu, sem minnka hann. Við þekkjum öll, fjölda að- stæðna, þar sem einhvers konar spenna, eða taugaálag valda og háum blóðþrýstingi, og þar við situr. Margir hafa óeðlilega há- an blóðþrýsting, aðeins hluta af deginum,einkum ef menn vinna taugastrekkjandi vinnu. Ákvæðisvinna er t.d. miklum mun hættulegri að þessu leyti, heldur en afgreiðsla i verzlun. Undir ykkur sjálfum komið. Sem sagt, hár blóðþrýstingur, sem einu sinni gat verið gagn- legur, er nú hættulegur þeim, sem af honum þjást. Fólk verður að læra, að lifa ekki við þær kringusmstæður, sem valda auðveldlega háum blóðþrýstingi. Þá er það fyrst og fremst vinnan sem ber að at- huga, þvi hún ein getur valdið alltof háum blóðþrýstingi. En menn verða einnig að hafa hugsuná, að koma þrýstingnum niður fyrir hættumörk. Er þá bezta ráðið, að stunda iþróttir, hjóla góðan spöl eða eitthvað þvi um lfkt. Ef vöðvarnir fá að starfa nægilega, er engin hættta á langvarandi lasleika vegna aukins blóðþrýstings. FRAMHALDSSAGAN Staðgengill sljörnunnar^^ eftir Ray Bentinck ann. Shirley hafði valið siðan þröngan kjól alsettan stjörnu- löguðum silfurpalliettum. Demantslokkar glitruðu i eyrum hennar, hún var með demants- hálsband og armband. A öðrum handleggnum bar hún skósiðan platinuminkapels Paulu. Hún rétti Max hann og hann lagði hann um axlir hennar — Hún er þér til sóma Paula, sagði hann. Paula hrukkaði ennið: — Skartgripirnir minir! Pelsinn minn! Neyddistu til að velja kjól, sem ég hef aldrei farið i? — Ég á að leika þig svo að ég valdi það bezta.sagði Shirley ró- lega og gekk út að Rolls Royce- inum. Hún sá, að Barney beið eftir að elta þau i öðrum bil... ef ráðizt yrði á þau, sagði Max. 1 bilnum fékk Shirley Max til að segja sér ævisögu sina, og nú skildi hún fyrst, hve metnaðar- gjarn hann var. Hún hafði ákafan hjartslátt, þegar hún heilsaði lávarði og lafði Tolbory, en eftir þvi sem leið á kvöldið varð auðveldara að brosa og glitra eins og Paula, og fljót- lega fann hún, að hún gat sagt allt, sem hún átti að segja erfið- leikalaust. Hún fann að henni tókst frábærlega vel, og Max var mjög elskulegur við hana. Þegar þau voru aðfara leit lafði Tolbury á hann og sagði: — Ég hef lesið i blöðunum, að þið frk. Langton farið að trúlofa ykkur, hættir unn- usta yður þá að leika? Max brosti til Shirley. — Þú verður að svara sjálf elskan! Ég vona að þú gerir það! Ég er svo eigingjarn, að ég vil ekki eiga þig með öðrum! Augnaráð hans hafði breytzt svo mjög að Shirley fékk ákafan hjartslátt. Hann taiaði eins og hvert einasta orð væri að- eins ætlað henni einni, og allt i einufórhúnaðvona,að þetta yrði hennar kvöld. Shirley yfirgaf lá- varðinn og konu hans ljómandi af hamingju, en þau voru ekki fyrr setzt inn, en Max hallaði sér aftur á bak og fékk sér sigarettu. — Guði sé lof, að þessu er lokið! Hann geispaði. — Var það ekki erfitt? Þú værð þrjár stjörnur fyrir leik þinn, og ég lika. Það munaði minnstu að þau heyrðu turildúfur kurra. Shriley stirðnaði. Þetta kvöld sem hafði skipt hana svo miklu máli, skipti hann engu. Snertingin á handlegg hennar, leiftrið í aug- um hans, bliðyrðin... allt tilheyrði hlutverkinu. Skyndilega gat hún ekki barizt lengur við tárin. Max sá það, og þegar hann sá tárin, sagði hann: — Shirley þó! Þú vissir að þetta var einn allsherjar skripaleikur! Vertu ekki svona vitlaus! Hún greip andann á lofti. — Þú hefur þó ekki trúað þessu ástarþvaðri? Hún færði sig út i horn og leit undan. Max sat samanbitinn og þögull. Eftir andartak tók hann um hönd hennar, en hún dró hana að sér. — Heyrðu nú shirley sagði hann bliðlega. — tmyndaðu þér ekki að þú sért ástfangin af mér. Þú átt eftir að reyna margt, áður en þú hittir þann eina rétta. — Ég vil ekki tala við þig! sagði hún með ekkasogum. — Þú verður að tala þetta úr þér! sagði hann. — Mér þætti mjög leitt að vita ef ég hefði gert þig óhamingjusama því að mér þykir vænt um þig, og ég vona, að þú sért vinur minn! Ég er ekki rómantiskur, Shirley. Það er ekki til neins að gráta út af mér. Lif mitt er helgað leiklistinni... — Það er helgað Paulu, hrópaði hún æst, — Hún getur hjálpað mér, og kannski ég hjálpi henni? sagði Max rólega. — Svo geturðu ekki búizt við þvi, að ég ræði samband okkar Paulu við þig hér og nú! lörvæntingu sinni þráði Shirley aö særa hann jafnmikið og hann hafði sært hana. — Það er vegna þess, að þú blygðast þin fyrir að ræða það! sagði hún illilega. — Það vita allir, hvernig hún er. Hún hefur átt i ótal ástarævin- týrum... svo mörgum að enginn maður með snefil af sómatilfinn- ingu myndi standa I biðröðinni til að njóta útþvældra ástaratiota hennar... — Nú er nóg komið! Rödd hans var isköld. — Þér er velkomið að láta reiðina bitna á mér, en sjáðu Paulu i friði. Þau þögðu það sem eftir var leiðarinnar. — Fyrirgefðu, Max tautaði hún, þegar billinn nam staðar við herrasetrið. Hann svaraði engu. Paula og Silverstein voru á fót-. um til að heyra, hvernig hefði gengið. Shirley fór beint upp til að losna við spurningarnar, og þar flýtti hún sér úr lánsklæðunum. Hún hataði allt, sem tilheyrði Paulu... sérstaklega Max. Shirley vissi, að Paula yrði reið, ef hún skilaði ekki fötunum og skart- gripunum strax, svo að hún fór i slopp og bar alla dýrðina inn i herbergið við hliðina. Hún var i þann veginn að fara þegar hún heyrði Paulu og Max koma. Þau námu staðar fyrir utan dyrnar. — Þú áttir ekki að fara með henni, Max, heyrði hún Paulu segja. — Ég vissi að þér myndi hund- leiðast! — Þetta var indælt boð, drafaði Max. — En ég vil ekki hafa að þú flækist með öðrum! Paula var hörkuleg. — Ég hef gefið þér allt... allt, sem þú vildir. Þú átt að vera hjá mér! — Það get ég lika,sagði Max ró- lega. — En við gátum ekki látið Shirley fara eina, og þar sem hún lék þig var minn staður við hlið hennar. Það varð smáþögn og Shirley bjóst við að þau væru að kyssast. Hún var dauðhrædd um, að þau kæmu bæði inn, en sem betur fór var Paula ein. — Hvað ertu eigin- lega að gera hér? spurði hún frekjulega. — Skila fötunum! svaraði Shirley rólega. — Vertu róleg... ég veðsetti ekki demantana þina! — Voru lávarðarnir og lafðirn- ar hrifin? — Það veit ég ekki! svaraði K0STAB0Ð á kjarapöllum KJÖT & FISKUR B reiðholti Siilli 71200 — 74201 >>* © íb^ PÚSTSENDUM TROLOFUNARHRINGA 3Iol).ínnrsi UnfBSon UmiS.iUcfli 30 á'lllll 19 209 I nun DUÍÍfi Síðumúla 23 /ími 64900 Heimiliseldavélar, 6 litir - 5 gerðir Yfir 40 ára reynsla Rafha við Óðinstorg Símar 25322 og 10322 Birgir Thorberg málarameistari simi 11463 önnumst alla málningarvinnu .— úti og inni — gerum upp gömul húsgögn ^

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.