Alþýðublaðið - 30.09.1976, Síða 15

Alþýðublaðið - 30.09.1976, Síða 15
immtudagur 30. september 1976 ...TILKWðLPS 15 Útvarp „VIÐ ELDINN” leikrit eftir Þorvarð Helgason Fimmtudaginn 30. september kl. 20.25 verður flutt leikritið ,/Við eldinn' eftir Þor- varð Helgason. Höfund- urinn er jafnframt leik- stjóri. Stærstu hlutverkin leika þeir Róbert Arn- finnsson og Flosi ólafs- son, en alls eru tólf hlut- verk í leiknum. Leikurinn á að gerast meðal hirðingjaþjóðar fyrir mörgum öldum. Gamall förumaður kem- ur i áningarstað og fær að setj- ast við eldinn. Hann hefur frá mörgu að segja. Konungur landsins er voldugur, en harður og miskunnarlaus. Dag nokkurn fær hann gest i heimsókn, sem er óhræddur við að sýna honum hann eins og hann er, bak við ,, grimu'1 tignar og valda. Þorvarður Helgason stundaði nám i leikhúsfræðum og fleiri greinum i Vinarborg, og var auk þess einn vetur á Signubökkum. A seinni hluta námsferils sins sótti hann einnig leiklistarskóla og lauk prófi (diplóm) i leik- stjórn o.fl. Þorvarður var einn af stofnendum leikfélagsins Grimu skömmu eftir 1960 og starfaði jafnframt sem skrif- stofumaður i Reykjavik. Siðar vann hann að ritgerð erlendis Róbert Arnfinnsson fer með annað aðalhlutverkið i leikriti kvöldsins. um Paul Claudel, þekktan diplómat og höfuðleikritasmið franskrar kaþólsku við upphaf aldarinnar. Eftir Þorvarð hafa komið út tvær skáldsögur, ’Eftirleit’ 1970 og ’Nýlendusaga’ 1975. Útvarpið hefur áður flutt tvö leikrita hans, ’Afmælisdag’ 1969 og ’Sigur’ 1970, en það leikritvarsýnt i sjónvarpinu s.l. vor. Shirley fýlulega. — Þau vildu sjá harðsoðna kvikmyndageddu, svo að þau hafa kannski orðið fyrir vonbrigðum! Það gerðist ekkert sérstakt. Næst geturðu hætt á að fara með vini þinum... Paula Ieit glettnislega á hana. — Fór vinur minn I taugarnar á þér? spurði hún hlæjandi. — Það vill svo til að Max vill heldur harðsoðin en linsoðin egg! Shirley opnaði munninn en lokaði honum aftur af ótta við það, sem hún kynni að segja... 9. kafli Þrátt fyrir rifrildið I bilnum var Max kurteis og vingjarnlegur að venju næstu daga, en Shirley tók eftir breytingu hjá honum. Hann var hættur að striða henni, og hann forðaðist hana eins og hann gat, en helgaði sig Paulu. Rigning kom I veg fyrir myndatöku utan- hússí nokkra daga, og menn voru orðnir órólegir. Paula ákvað aö fara til ibúöar sinnar I London og skipaði Shirley að koma með.— En ég hélt, að þú værir hrædd við að fara héðan, Paula... sagði Shirley undrandi. — Ég verð að fara hrökk upp úr Paulu. Hún vildi ekki útskýra neitt, en hún var mjög óróleg og það kom Shir- ley á óvart og geröi hana lika órólega. Barney ók mjög hratt að skipun Paulu, Shirley sá hraöamælinn komast upp i 140 og hún bjóst við aö svo hratt væri ekið, til að koma i veg fyrir eftirför. Paula sat niðursokkin I hugsanir sinar, og Shirley braut heilann aftur um hvaða leyndarmáli hún byggi ýfir Það reyndi enginn maður ao myrða konu með köldu blóði, nema hún hefði brotið mikið af sér gegn honum. Loks námu þær staðar við ibúðarhúsið I Park Lane. Þær tóku lyftuna upp og það fór hrollur um Shirley þegar þær fóru fram hjá f jórðu hæð, og henni fannst að þær hefðu aldrei átt að fara án Max. Shirley var orðin svo taugaóstyrk að hún varð að taka á honum stóra sinum til að fara inn, en Paula var hin ró- legasta. — Farðu inn i svefnher- bergið og biddu þar! skipaði Paula. — Ég þarf að hringja. Shirley fór inn. Hún vonaöist til að heyra, hvað sagt væri en það gat hún ekki. Fáeinum minútum siðar opnaði Paula. — Ég verð að fara út, sagði hún stutt i spuna. — Ég kem seinna og sæki þig. Shirley var ekki um að vera ein i ibúðinni. — Ég get farið i búðir á meðan... sagði hún hikandi. — Nei, alls ekki! sagði Paula ákveöin. — Þú átt að biða hér, ef einhver kemur! Shirley rann kalt vatn milli skinns og hörunds. — Attu... áttu við Luke? — Auðvitað ekki, fiflið þitt! sagði Paula skerandi röddu. — Vogaðu þér ekki að nefna Luke á nafn, ef þú vilt halda stöðunni. Ég hringdi i einn blaðafulltrúa minn út af sérstakri grein, og hann kemur kannski. Ef hann kemur geturðu sagt honum að ég komi innan klukkustundar. Hún tók pelsinn upp. — Hvert ætlarðu? spuröi Shir- ley móð, en stjarnan leit aðeins kuldalega á hana og strunsaði út. Shirley sá stóra Rolls Royce-inn aka á brott, þegar hún horfði út um gluggann og hún varö afar hrædd. Hún æddi eirðarlaus um ibúðina leit hvað eftir annaö á klukkuna og vonaði, að tíminn liöi hraðar. All i einu var hringt. Hún kipptist við, en svo róaðist hún. Það væri betra aö tala viö blaða- fulltrúa Paulu, en hanga hér ein, hugsaðihún.Enþegarhún opnaði Bióin MSKÓLABÍÓ simi 22140. Einu sinni er ekki nóg Once is not enough JácqueíÍ^Susann’s boldjl|ftlseller that expIQ^platIIthe avenues and darRefpileys of love. Snilldarlega leikin amerisk lit- mynd i Panavision er fjallar um hin eillfu vandamál, ástir og auð og allskyns erfiðleika. Myndin er gerð eftir samnefndri metsölubók Jacqueline Susan. Aðalhlutverk: Kirk Douglas, Alexis Smith, Brenda Vaccar- Debora Raffin. ÍSLENZKUR TEXTI Sýnd kl. 5 og 9. Leikhúsdn í&MÓflLEIKHÚS)fi. SÓLARFERÐ 6. sýning i kvöld kl. 20 laugardag kl. 20 sunnudag kl. 20 tMYNDUNARVEIKIN föstudag kl. 20. LITLI PRINSINN sunnudag kl. 15. Miðasala lá, 15-20. LEIKFÉLAG JtJ Jál REYKJAVÍKUR " SKJALDHAMRAR I kvöld kl. 20,30. sunnudag kl. 20,30. STÓRLAXAR 6. sýn. föstudag kl. 20,30. Græn kort gilda. SAUMASTOFAN laugardag kl. 20,30. þriðjudag kl. 20,30. Miöasalan i Iðnó frá kl. 14-20,30. Simi 1-66-20. ■1 SIMAR. 11798 OG 19533. Föstudagur 1. okt. kl. 20.00 Þórsmörk i haustlitum. Gengið inn aö Ljósá og inn með Markarfljóti. Fararstjórar: Böðvar Péturs- son og Finnur Fróðason. Farmiðasala og nánari upp- lýsingar á skrifstofunni. Laugardagur 2. okt. kl. 13.00 Þingvellir :haustlitir. Gengið um sögustaði. Þingið-Búð'artóftir-Lög- berg-Spöngin. Farið að Tindron og nýja Gjá- bakkaveginn. Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. Verö kr. 1200 gr. v/bflinn. smmtuBfó Simi 18936. Emmanuelle II Heimsfræg ný frönsk kvikmynd I litum. Mynd þessi er allsstaðar sýnd við metaðsókn um þessar mundir I Evrópu og viða. Aðalhlutverk: Sylvia Kristel, Un- berto Orsini, Cathaerine Rivet. Enskt tal, ÍSLENZKUR TEXTI. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Nafnskirteini. Miðasala frá kl. 5. Hækkað verð. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Wm---------------- ■ ' I**-1' IJ ÚII ' 9 11J Þokkaleg þrenning DIRTY WIARY CRAZY I.ARRY ÍSLENZKUR TEXTI. Ofsaspennandi ný kappaksturs- mynd um 3 ungmenni á flótta undan lögreglunni. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. laugarasbIö ~ Ahrifamikil, ný brezk kvikmynd með Óskarsverðlaunaleikkonunni Glenda Jackson i aðalhlutverki ásamt Michael Caine og Helmuth Berger. Leikstjóri: Joseph Losey. tSLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Barizt unz yfir lýkur Sýnd kl. 11,10. UtFmRBÍO Siirú, 16444 STELA RODDY Bráöskemmtileg og hrollvekjandi ný bandarisk litmynd um furðu- fuglinn Arnold, sem steindauður lætur blóðið frjósa i æðum og hláturinn duna. ISLENZKUR TEXTI Bönnuð innan 16 ára.. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. TÓMABÍÓ Sími31182 Enn heiti ég Trinity My name is still Trinity Skemmtileg itölsk mynd með ensku tali. Þessi mynd er önnur myndin I hinum vinsæla Trinity myndaflokki. Aðalhlutverk: Bud Spencer, Terence Hiii. Endursýnd kl. 5, 7 og 9.15. /ovege me/rioh Ensk úrvalsmynd, snilídarlega gerð og vel leikin. Leikstjóri: Ken Russel. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sími50249 Svarta gullið Oklahoma tSLENZKUR TEXTI. Afar spennandi og skemmtileg og mjög vel gerö og leikin ný ame- risk verölaunakvikmynd I litum. Leikstjóri: Stantey Kramer. Aðalhlutverk: George C. Scott, Fay Dunaway, John Mills, Jack Palance. lljlSÚHS llF Auglýsingasím i Grensásvegi 7 Simi 82655. Alþýðu blaðsins 14906 Hafnarfjarðar Apótek Afgreiðslutimi: Virka daga kl. 9-18.30 'Laúgardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Upplýsingpsimi 51600.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.