Alþýðublaðið - 05.10.1976, Page 3
FRETTIR 3
Iðnaðarráðuneytíð felldi niður fjárveitingu:
HITAVEITAN
í NÝTT
HÚSNÆÐI
Föstudaginn 1. október tók
Hitaveita Reykjavikur viö þvi
húsi, sem hún lét reisa viö
Grensásveg.
Skrifað var undir verksamn-
inga 9. september 1975. Bygg-
ingaráætlun hefur staðist full-
komlega, og segja má, að fram-
kvæmdirnar hafi verið einum
mánuði á undan áætl-
un. Upphafleg kostnaðar-
áætlun hljóöaðiupp á 69 milljón-
ir, en vegna verðhækkana og
ýmissa breytinga, mun kostn-
aður við bygginguna vera 80
milljónir.
Allurfrágangur á húsinu er til
mikillar fyrirmyndar og eru
forráðamenn Hitaveitunnar
hæstánægðir með alla vinnu.
Það var byggingaverktaka-
félagið Siguröur & Július h.f.,
sem sá um byggingarfram-
kvæmdir.
Jóhannes Zoéga, Hitaveitu-
stjóri, tók við húsinu, fyrir hönd
Hitaveitunnar. Hann sagði, að i
húsinu myndu vinna og hafa að-
stöðu, um 50 manns, en alls
vinna 75 manns við Hitaveituna.
Þarna munu vera til húsa við-
gerðarflokkar Hitaveitunnar,
geymsla fyrir vélar, verkfæri og
efni, verkstæði, matsalur og
fleira.
Jóhannes Zoega, Hitaveitustjóri, og Sigurður Sigurjóns-
son, framkvæmdarstjóri verk takafyrirtækisins Sigurður &
Július h.f.
Rafvirkjar og rafverktakar
hafa undanfarið haldiö mjög
mörg námskeið viðsvegar um
landið, til endurmenntunar raf-
iðnaðarmönnum. Námskeið þessi
eru haldin um hverja helgi og
sums staðar fleiri en eitt um
hverja heigi. Iðnaðarráðuneytið
hefur styrkt námskeiðahald
þetta með fjárframlagi, en hefur
nú skyndilega skorið fjárveitingu
sina niður um 1.200.000 krónur
semhefur þær afleiðingar að fella
þarf niður þau námskeið sem
fyrirhuguð voru til áramóta. Það
eru námskeið i Vestmannaeyjum,
Reykjavik, á Selfossi, Akranesi,
Akureyri, Egilstöðum, ísafirði og
i Keflavik. Sums staðar höfðu
verið ráðgerð fleiri en eitt náms-
skeiö.
o
Að sögn starfsmanns Félags isl.
rafvirkja kemur sér
þetta mjög illa fyrir rafiðnaðar-
menn. Þróun i rafiðnaði er mjög
ör, og þvi mjög nauðsynlegt fyrir
iðnaðarmenn og verktaka að
halda þekkingu sinni við. Með
þessum niðurskurði komist færri
menn i endurmenntunina og það
sé afleitt. Sifellt fleiri verksmiðj-
ur séu reistar hér á landi i alls
konar iðnaði og það sé nauðsyn-
legt að rafiðnaðarmenn hér á
landi séu i standi til að veita þá
þjónustu sem nauðsynleg er.
Námskeið þau sem hér um ræð-
ireru dönsk að uppruna og leigja
rafvirkjafélagið og rafverktakar
þau. Framlag hins opinbera
greiddi hluta af kostnaði, en auk
þess greiddu þátttakendúr nám-
skeiðsgjald. Sagði starfsmaður-
inn, að þessi námskeið væru
skipulögð fyrir árið i einu og þess
vegna hábölvað þegar svona færi.
-hm.
hillusamstæðan
er komin
Meira hillusamstæöan býður upp
á meiri möguleika, en þig grun-
ar.
Fáanleg í palisander og hnotu.
nusgagnave
Reykja\íkur
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 11940 .
PRENTARAR
MÓTMÆLA
Fulltrúaráðsfundur • Hins
islenzka prentarafélags, lýsir yfir
fyllsta stuðningi við aðgerðir
ASB, vegna lokunar mjólkurbúða
Mjólkursamsölunnar.
Telur HÍP lokun mjólkurbúð-
anna aðailega neikvæða hvað
varðar tvö atriði.
a) 1 eldri hverfum borgarinnar
verður erfiðara að nálgast mjólk-
ina vegna þess, að matvöruverzl-
anir þar hafa langflestar ekki að-
stöðu til mjólkursölu og fækkar
þess vegna mjólkursölustöðum.
b) Atvinnuástand er ekki það
gott i borginni, að konur sem
starfað hafa við mjólkursölu, geti
með góðu móti fengið vinnu við
önnur störf og loforð kaupmanna
þar um eru ekki fullnægjandi enn
sem komið er.
Lokun mjólkurbúðanna leiðir
þvi bæði til aukins atvinnuleysis
og fjölda borgarbúa verður gert
erfiðara að nálgast pá vöru sem
seld hefur verið í verzlunum
Mjólkursamsölunnar. Er fyllsta
ástæða að hætta við framkvæmd
lokunarinnar.
SJALFKJORIÐ
í SÓKN
Frestur til aö skila framboðs-
listum til kjörs fulltrúa til Al-
þýðusambandsþings hjá Starfs-
stúlknafélaginu Sókn rann út á
hádegi i gær. Aðeins einn listi
kom fram, listi stjórnar og trún-
aðarmannaráðs.
ísland —
Noregur
í dag leika unglingalandslið Is-
lands og Noregs, 16-18 ára, fyrri
leik sinn i Evrópu keppni ung-
linga i knattspyrnu og fer leikur-
inn fram á Laugardalsvellinum.
tslenzka liðið er skipað eftir-
töldum leikmönnum:
Markverðir:
Rúnar Sverrisson, Þrótti
Guðmundur Baldursson, Fram.
Aðrir leikmenn:
Guðmundur Kjartansson, Val,
Börkur Ingvason, KR, Ottó
Hreinsson, Þrótti, Sverrir
Einarsson, Þrótti, Úlfar Hróars-
son, Val, Rafn Rafnsson, Fram,
Sigurður Björgvinsson, tBK, Þór-
ir Sigfússon, tBK, Hilmar
Hilmarsson, Val, Einar ólafsson,
tBK, Jón Orri Guðmundsson,
UBK, Pétur Pétursson, 1A,
Magnús Jónsson, KR, Helgi
Helgason, Völsungi.
Fulltrúar Sóknar á þing ASt i
haust eru þvi sjálfkjörnir og fara
nöfn þeirra hér á eftir: Aðalheið-
ur Bjarnfreðsdóttir, Ester Jóns-
dóttir, Dagmar Karlsdóttir, Guð-
rún Bergsdóttir, Halldóra Sveins-
dóttir, Maria Jóhannesdóttir, Sig-
riður Jónasdóttir, Bjarney
Guðmundsdóttir, Elin Jónsdóttir,
Margrét Auðunsdóttir, Guðný
Sigurðardóttir og Eygerður
Bjarnfreðsdóttir. __jjj
menn
Félag járniðnaðarmanna hélt
félgasfund 28. sept. sl., og voru þá
eftirfarandi ályktanir samþykkt-
arsamhljóða:
,, Félagsfundur i Félagi járn-
iðnaðarmanna, haldinn 28. sept-
ember 1976, mótmælir setningu
bráðabirgðalaga sem binda kjör
islenzkra sjómanna og hindra
frjálsa samningagerð sjóm'anna-
félaganna.
Félagsfundur lýsir fyllsta
stuðningi við baráttu sjómanna
gegn lagabindingu launakjara
þeirra”.
Hænsnabúið 6 Ásmundarstöðum:
Fjörefni fyrir
20% Reykvíkinga
Það safnaðist heldur stærri
lager hjá mörgum eggjafram-
leiðendum isumar en veriðhefur
siðustu árin, sagði Gunnar Jó-
hannsson á Ásmundarstöðum i
Rangárvallasýslu i viðtali
nýlega.
— En auðvitað er erfittað segja
um það enn sem komið er, hvort
offramleiðsla verður á eggjum i
ár, enda hafa jólin venjulega hirt
upp allar birgðir sem safnazt
hafa. Það verður þvi ekki fyrr en
eftir áramótin sem sést hvort af-
gangur muni verða af eggjafram-
leiðslu ársins.
Gunnar sagði, að Asmundar-
staðabúið framleiddi nú egg sem
svaraði a.m.k. 20% allrar
eggjasölu á Reykjavikursvæðinu.
Væru i dag um 35.000 fuglar i
varpi i búinu og afrakstur dagsins
væri þetta 15-17.000 egg. Hann
sagði að búið annaði tæplega
eftirspurn i höfuðborginni og
hefði svo verið allt þetta ár. Tals-
vert verðfall var á eggjum i
sumar, þannig að dæmi voru til
þess að útsöluverð i sumum
verzlunum i Reykjavik var lægra
en skráð heildsöluverð. Stafaði
þetta af undirboði vissra aðila á
eggjamarkaðnum. Nú hefur það
ástand lagazt og verðið er að
rétta við á ný.
— Ég er þvi ekki svartsýnn á
framtiðina, sagði Gunnar
Jóhannsson að lokum.
—ARH
BRAÐABIRGÐALOGUM 0G
BREYTINGARTILLÖGUM
Þá samþykkti fundurinn eftir-
farandi vegna tillögu félagsmála-
ráðuneytisins um breytingar á
lögum um stéttarfélög og vinnu-
deilur:
,,’Félagsfundur i Félagi járn-
iðnaðarmanna, haldinn 28. sept-
ember ’76, hefur f jallað um breyt-
ingartiliögur á lögum um stéttar-
félög og vinnudeilur, sem kynntar
hafa verið verkalýðsfélögum. Fé-
lagsfundurinn litur svo á að i öll-
um höfuðatriðum miði breyt-
ingartillögurnar að þvi að skerða
réttarstöðu verkalýðshreyfingar-
Þvi mótmælir félagsfundurinn
þessum breytingum á núverandi
lögum um stéttarfélög og vinnu-
deilur og skorar á öll verkalýðsfé-
lög i landinu að sameinast i
öflugri andstöðu við breytingar-
tillögurnar
Félagsfundurinn telur það ögr-
un við verkalýðshreyfinguna ef
frumvarp með fyrirhuguðum
breytingum verður lagt fyrir al-
þingi-. -hm.
MEIRA
Rafiðnaðarmenn urðu að
hætta við námskeiðahald