Alþýðublaðið - 05.10.1976, Qupperneq 10
10
Símaskráin 1977
Símnotendur í Reykjavík,
Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garða-
og Bessastaðahreppi og
Hafnarfirði
Vegna útgáfu nýrrar simaskrár er nau5-
synlegt að senda skriflega breytingar, ef
einhverjar eru, fyrir 1. nóv. n.k. til Skrif-
stofu simaskrárinnar, Landssimahúsinu
við Austurvöll.
Nauðsynlegt er að viðkomandi rétthafi
simanúmers tilkynni skriflega um
breytingar, ef einhverjar eru. Athugið að
skrifa greinilega.
AthygJi skal nánar vakin á auglýsingu um
breytingar i simaskrána á baksiðu kápu
simaskrár 1976, innanverðri.
Atvinnu- og viðskiptaskráin verður
prentuð i gulum lit og geta simnotendur
birt smáauglýsingar þar, sem eru ódyrari
en auglýsingar i nafnaská, enda tak-
markaður fjöldi auglýsinga sem hægt er
að birta i nafnaskránni.
Nánari upplýsingar i simum 22356 og 26000
og á skrifstofu simaskrárinnar.
Ritstjóri simaskrárinnar
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
VÍFILSSTAÐASPÍ TALI.
VINNUMAÐUR óskast til starfa á
spitalanum nú þegar. Þarf að vera
vanur almennum bústörfum og
byggingarvinnu. Litið húsnæði á
staðnum gæti fylgt.
Nánari upplýsingar veitir
umsjónarmaður simi 42800.
Reykjavík 4. okt. 1976.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765
ÍÞRðTTIR
Þriðjudagur 5. október 1976
Valur, Fram, Haukar og
IR sigruðu í fyrstu leikjum
Islandsmótsins
Islandsmótið i handknattleik
hófst um helgina. Voru þá leiknir
fjórir leikir i 1. deild karla. Tveir
voru i Laugardalshöllinni og tveir
i Hafnarfirði.
Valur—Þróttur: 21-16
bróttarar byrjuóu leikinn vel,
skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Þeir
komust siðan i 6-3, en þá fóru
Valsmenn að taka viö sér. Jóhann
Ingi Gunnarsson kom inná og
keyrði upp hraðann i sókninni. í
hálfleik var staðan 7-7.
1 upphafi siðari hálfleiks var
leikurinn i jafnvægi, en þá virtist
úthald Þróttaranna bregðast.
Þetta notfærðu Valsmenn sér út i
æsar, enda i afbragðs formi.
Mestur varð munurinn 6 mörk en
lokastaöan var 21-16, Val i hag.
Þróttararnir leika á stundum
prýðis handknattleik, en þeir
verða að bæta úthaldiö. Flest
mörk þeirra gerðu: Halldór
Bragason og Konráð Jónsson, 5
hvor.
Valsmenn gerðu margt fallegt i
þessum leik og eiga örugglega
eftir að blanda sér i toppbar-
áttuna i vetur. Flest mörk: Þor-
björn Guðmundsson og Jón
Karlsson, 6 hvor.
Fram—Grótta: 25-21.
Framarar sigruðu Gróttumenn
heldur auðveldlega á sunnu-
daginn. Þeir kafsigldu þá i fyrri
hálfleik, höfbu sjö marka forystu,
16-19, og slöppuðu siöan af i siöari
hálfleik.
Ekki verður með sanni sagt, að
leikurinn hafi verið skemmti-
legur á að horfa, og markatalan
bendir til, að vörnin og mark-
varzlan hafi ekki verið upp á það
bezta.
Eftir að hafa náð sjö marka for-
skoti i fyrri hálfleik, virtust
Framarar halda, að leikurinn
væri búinn. Engin ógnun var i
sókn þeirra langtimum saman, og
náöu Gróttumenn að saxa aðeins
á forskotið á þessum kafla, komu
þvi niður i þrjú mörk, 20-17. Þá
tóku Framarar smá kipp og
skoruðu fjögur mörk gegn engu
og lauk leiknum með sigri Fram,
25-21.
Flest mörk Gróttu skoruðu:
Arni Indriöason, 7, Björn
Pétursson og Þór Ottesen 5 hvor.
Mörk Framara: Pálmi
Pálmason, 8, Arnar Guðlaugsson
og Guðmundur Sveinsson 3 hvor.
Haukar—Vikingur: 23-
21
Vikingar, með alla sina góðu
leikmenn, virðat ekki eiga auð-
velt að ná saman. A sunnudaginn
töpuðu þeir fyrir Haukum, með
23-21.
Leikurinn var nokkuð jafn i
upphafi fyrri hálfleiks. Haukar
tóku forystuna með marki Arnórs
Guðmundssonar, en þetta mark
var jafnframt fyrsta mark
Islandsmótsins. Leikurinn var
jafn upp i 5-5, en þá skoruðu
Haukarnir þrjú mörk i röð. 1 hálf-
leik var staðan 11-9, Haukum i vil.
Skömmu fyrir leikslok var
staðan 21-18, Haukum i vil, en þá
skoruðu 'VIkingar þrjú mörk og
jöfnuðu.
Var nú spennan i hámarki, en
Haukarnir léku skynsamiega og
skoruðu tvö siðustu mörk leiks-
ins. Leikurinn var allskemmti-
legur og margt fallegt sást i
leiknum.
Flest mörk Vikings skoruðu:
Þorbergur Aðalsteinsson, 8,
Ólafur Einarsson, 4.
Flest mörk Haukanna: Hörður
Sigmarsson, 9, Frosti Sæ-
mundsson, 5.
ÍR—FH: 20-19
Leikur IR og FH var sannar-
lega undarlegur. IR-ingar kaf-
sigldu FH-inga I fyrri hálfleik og i
leikhléi var staðan 17-6. I siðari
hálfleiknum skoruðu IR-ingar
ekki nema þrjú mörk, en þau
nægðu samt til sigurs.
I fyrri hálfleiknum var ekki heil
brú I leik FH-inga, en allt, sem
IR-ingar gerðu heppnaðist. Þetta
snerist svo algerlega við I seinni
hálfleik. FH-ingar mættu
ákveðnir til leiks, og tveimur
minútum fyrir leikslok tókst þeim
að jafna, 19-19. Siðasta mark
leiksins skoruðu svo IR-ingar og
tryggðu sér sigurinn i þessum
undarlega leik.
Það má geta þess, að eftir
leikinn voru mikil skrilslæti, og
áttu þar leikmenn FH og áhorf-
endur hlut að máli. Slika fram-
komu á alls ekki að liöa og væri
athugandi að setja liðið i heima-
leikjabann.
Flest mörk FH-inga: Geir Hall-
steinsson, 7, Viðar Simonarson, 6.
Flest mörk IR-inga: Brynjólfur
Markússon, 6, Viihjálmur Sigur-
geirsson, 4. —ATA/PB
Fjölmennasta
Islandsmótið
tslandsmót það i handknatt-
leik, sem hófst um helgina, er
langfjölmennasta mót, sem
haldið hefur verið á vegum HSÍ.
A mótinu eru aldursflokkarnir
10. Það eru 6 aldursflokkar
kvenna. t meistaraflokki karla
er liðunum skipt i 3 deildir. 1
fyrstu deild eru 8 lið, I annarri
deild einnig 8 lið en 11 lið I 3.
deild. I meistaraflokki kvenna
er liðunum skipt I 2 deildir, 8 lið
og 1. deild og 9 lið i annarri
deild.
Um 30 félög og Iþróttabanda-
lög viðs vegar af að landinu
senda 129 karlaflokka og 63
kvennaflokka til keppni í
tslandsmótinu. Leikir verða alls
673 og væglega áætiuð tala
keppenda er 3800.
Fjöldi leiðbeinenda á mótinu
er áætlaður nær 500, og dóm-
arar, sem dæma á landsmótum
i vetur verða nálægt 300.
Þessir kappleikir fara fram i
átta húsum á jafnmörgum
stöðum á landinu, en þeir eru:
Akranes, Reykjavik, Sel-
tjarnarnes, Garðabær, Hafnar-
fjörður, Njarðvik, Vestmanna-
eyjar og Akureyri. —ATA
10 kvennalandsleikir og
15 karlalandsleikir í vetur
Fréttabréf Handknattleiks-
sambands tslands er nýkomið út.
Þar er að finna ýmsan fróðleik
um handknattleiksvertiðina, sem
nýbyrjuð er.
Landsleikir
8-10 landsleikir fyrir A-lið verða
leiknir á þessu keppnisári. Fysta
verkefnið er Norðurlandameist-
aramótið, sem haldið verður i
Sviþjóð dagana 12.-24. nóvember.
I febrúarmánuði fáum við svo
heimsókn Færeyinga, Hollend-
inga og annað hvort Kanada-
manna eða Bandarikjamanna.
Verður þetta 4 landa keppni og fer
fram dagana 18.-20. febrúar.
Dagana 16. og 17. april verða
háðir 2 landsleikir við V-Þjóð-
verja hér heima.
Karlaliðið mun einnig hafa næg
verkefni. A þessu keppnisári
verða leiknir 10-15 landsleikir
heima og að heiman, siðan hefst
b-keppni Heimsmeistarakeppn-
innar. Hún fer fram i Austurriki
dagana 25. febrúar til 6. marz. 1
riðli með Islendingum i b-keppn-
inni eru A-Þýzkaland og efsta
liðið úr c-keppninni, en sú keppni
fer fram i nóvember.
Þeir landsleikir, sem þegar er
búið að ákveða, eru:
Danmörk — Island 12. des. i Dan-
mörku.
Island — Tékkósióvakia 27. og 28.
jan. hér heima.
Pólland — tsland
A-Þýzkaland — tsland
Rússland — Island
Þetta er 41anda keppni, sem fram
fer i A-Þýzkalandi dagana 14.-16.
desember n.k.
ísland —Pólland 22. og 23. janúar
hér heima.
Island — Pólland V-Þýzkaland 5.
og 6. febrúar hér heima.
Landsliðsþjálfarinn
Sem kunnugt er hefur verið
ráðinn sérstakur landsliðsþjálf-
ari, og mun hann þjálfa öll is-
lenzku handknattleikslandsliðin.
Hann heitir Janus Cerwinski og
er pólskur.
15. september kom hann i sólar
hringsheimsókn til viðræðna við
stjórnarmenn HSI. Hann er
væntanlegur alkominn til starfa
15. október.
Evrópukeppnin
Islenzk lið taka þátt I Evrópu-
keppni meistaraliða bæði i karla-
og kvennaflokki.
1 kvennaflokki eru 19 þátttöku-
þjóðir og eru Framstúlkurnar
fulltrúar tslands. Aðeins verða
leiknir 3 ieikir I fyrstu umferð og
situr Fram yfir i Jjeirri umferð.
I karlaflokki eru 25 þátttöku-
þjóðir og verður FH þátttakandi
Islands. I fyrstu umferð leikur
FH gegn færeyska liðinu Vest-
manna Itrottarfelag. Fyrri leik-
urinn fer fram hér heima þann 9.
október n.k. Dómarar verða
norskir.
I Evrópukeppni bikarhafa fer
engin keppni fram i kvennaflokki,
þar sem ekki var nægileg þátt-
taka.
1 karlaflokki eru 26 þátttöku-
þjóðir og er Valur islenzki þátt-
takandinn. Mótherjar Valsmanna
i fyrstu umferð verða Red Boys
Differdange frá Luxemborg.
Leikirnir verða báðir háðir hér
heima og fara fram dagana 23. og
24. október. Dómarar verða frá
Danmörku.
Dómarar til Noregs
og Sviþjóðar
Beiðni hefur borizt frá Norska
handknattleikssambandinu um
að Islenzkir dómarar dæmi
landsleiki i Noregi 9. og 10.
október n.k. og i Sviþjóð 12.
október. Hér er um að ræða 2
karlalandsleiki, Noregur—Dan-
mörk, og 1 kvennalandsleik,
Sviþjóð—Pólland.
Dómaranefnd HSÍ hefur
ákveðið að Hannes Þ. Sigurðs-
son og Kari Jóhannsson dæmi
þessa leiki.