Alþýðublaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 6
6 ÚTLOND Þriðjudagur 12. október 1976 Niðurstaða rannsóknar, er náði til 200 þúsundskólabarna íNoregi: -fr Til að verjosf benzínmengun Samband norskra flutninga- verkamanna hefur krafizt þess, aö starfsmenn viö oliu- stöðvar og þeir, semaka ollu- bilum, veröi verndaöir gegn hættulegum benzingufum. Þessi krafa var þegar tekin til greina, og hefur norska oliufé- lagið, Noroi, sent öilum starfs- mönnum lofthreinsigrimur, þ.e.starfsmönnum, sem vinna verk þar sem benzinmengun getur oröiö of mikil. A mynd- inni er starfsmaöur meö eina siika grimu. „Það eru foreldrarnir, sem eiga stóran þátt i þvi að ákveða reykinga- venjur barna sinna og um leið heilsufar næstu kynslóðar. Það hefur verið sannað með margvislegum rannsóknum að reykingar auka hættu á lungna- krabba, hjartasjúkdómum og fleiri kvillum. Hér i Noregi deyja fleiri á ári hverju af völdum lungnakrabba en farast i bifreiðaslysum”. Þetta voru orð Kjell Bjartveit, formanns stjórnskipaðrar nefndar, sem berst gegn reykingum. Rannsóknin leiddi einnig i ljós, að öflugt fræðslustarf um reykingar og áhrif þeirra hefur veruleg áhrif á börn i yngri aldursflokkum. koma frá heimilum þar sem þeim er bannað að reykja. Stúlkur og piltar, sem hafa fengið leyfi til að reykja, nota 7-8 sigaréttur á dag, en þau sem ekki hafa heimild, nota 4-5 sigarettur. Vinir og systkini hafa einnig áhrif. Við þessa rannsókn kom i ljós, að vinir og systkini hafa veruleg áhrif á reykingavenjur barna og unglinga. Rannsóknin sýnir, að 37,2% reyktu daglega, þegar vinirnir gerðu það, en aðeins 1,7% reyktu, þegar vinirnir gerðu það ekki. Sama gildir um systkini. Hann sagði þetta á fundi með blaðamönnum þar sem skýrt var frá niðurstöðu rannsóknar á reykingum barna i grunn- skólum. Þessi rannsókn náði til liðlega 200 þúsund ungmenna. - Það kemur skýrt fram, að afstaða foreldra til reykinga mótar m jög venjur barna i þeim efnum. Það virðast hafa veruleg áhrif hvort foreldrar leyfa börnum sinum að reykja eða ekki. Það vekur einnig mikla at- hygli, að hvort sem foreldrar reykja eða ekki, hefur það gifurleg áhrif ef foreldrar banna börnum sinum að reykja og reyna að koma i veg fyrir reyk- ingar þeirra. 72% reykja daglega t hópi barna, sem koma frá heimilum þar sem báðir for- Þetta kanadiska áróðursspjald gegn reykingum segir betur en nokkur orð fá lýst hvaða áhrif reykingar foreldra hafa á börnin. eldrar reykja og hafa gefið börnum sinum heimild til að reykja, eru reykingar orðinn ávani hjá 72% barna i 9. bekk. Hjá samanburðarhópi barna, sem eiga foreldra, er ekki reykja og hafa bannað börnum sinum að reykja, er talan 10 af hundraði. Ef foreldrar banna börnum sinum að reykja, þótt þeir reyki sjálfir, er litið um tóbaksnotkun i 9. bekk. Minnst reykja þau börn, sem koma frá heimilum, þar sem ekki er reykt og þeim er bannað að reykja. Tóbaks- notkun barna, sem á annað borð reykja, er minni hjá þeim, sem ☆ Foreldrar móta reyk- ingavenjur barna sinna ☆ TU-144 farþegaflugvélin fer með 2500 kílómetra hraða Sovézka farþegaflugvélin TU- 144, sem flýgur hraöar en hljöö- iö, hefur vakiö mikla athygli flugvélasmiða um heim ailan. Flugvélin er 65 metra löng, vænghafið 28 metrar og flötur vængjanna er 507 fermetrar. Eftir að flugvélin er komin á loft breytist útlit hennar, Vængirnir, sem eru á festingum framarlega á flugvélarskrokkn- um, eða fram viö flugstjórnar- klefann, eru dregnir aö belg vélarinnar. A þennan hátt má auka ..klifur” vélarinnar um 40% og draga úr lendingarhraða meö þvi að stækka vængina. Flughraði vélarinnar getur veriö mjög mismunandi. Viö lendingu og flugtak frá 260 upp f 350 kilómetrar á klukkustund, og 2500 kilómetrar á klukku- stund eftir aö vélin hefur brotist i gegnum hljóömúrinn. Þar eö hægt er aö draga mjög úr lendingarhraöa vélarinnar get- ur hún lent á öllum venjulegum flugvöllum. Dagstjörnur koma i ljós TU-144 getur flogið I allt aö 20 þúsund metra hæö (60 þúsund fet, en venjuleg flughæð far- þegaþotu er um 30 þúsund fet). Farþegar vélarinnar geta þvi séö dagstjörnur, en þær hafa ekki borið fyrir augu annarra en reynsluflugmanna og geimfara, sem komast i þessa hæö. Flugvélin verður fyrir gifur- legu álagi á meöan á flugferö- inni stendur. Sem dæmi má nefna, að þegar hún er i mestri flughæð er frostiö úti um 60 stig, en i þann mund er hún þeytist i gegnum hljóömúrinn verður hitinn af núningi 150 stig. t flugvélinni eru margbrotin og fiókin tæki sem auka mjög allt öryggi fiugsins. Flugáætlun vélarinnar er sett i tölvu, sem siöan stjórnar ferö vélarinnar, leiöréttir stefnu hennar, hæö og flughraöa meö nokkurra sek- úndna millibili. Leiöslur, sem tengja tölvuna við stjórntæki vélarinnar eru 3300 kilómetra langar. Þaö tekur flugvélina 1 klukkustund og 59 mlnútur aö fljúga frá Moskvu til Alma-Ata. A þessari flugleiö flýgur vélin f 1 klukkustund og 22 minútur hraðar en hljóöið. Til saman- burðar má geta þess, aö önnur sovézk flugvél, sem mikiö er notuð tii farþegaflutninga TU- 154, fer sömu leiö á 5 klukku- stundum og55 minútumog IL-18 er 7 klukkustundir og 5 minútur aö fara þessa vegalengd. — Tal- iö er, aö þessi flugvél taki 144 farþega i sæti. (Frá A-Pressen) TU-144 á flugi skömmu eftir flugtak. ☆ Mynd og texti úr Lögberg-Heimskringlu SÖGULEG HEIMILD UM EINSTÆÐAN HÁTfÐARDAG p'ORSETI íslendingadagsins, Ted Arnason, lýsti þvi yfir á íslend- lingadaginn, að hann hefði í fórum sínum góða gjöf frá Ríkisútvarpi Jíslands kvikmynd sem varðveitir kafla úr sögu aldarafmælis íslenska [landnómsins á Gimli 1975. Útvarpsstjóri Ríkisúivarpsins, Andrés Björnsson, afhenti gjöfina með efiirfarandi orðum: . Ríkisútvarpinu er sérstök ánægja að afhenda íslendingadags- nefnd að gjof kvikmynd þó, sem islenska sjónvarpið lél taka á ís- lendingadegi 1975 ó 1Ö0 óra afmælishátíð íslendingabyggðar að Gimli við Winnipegvain. Biður Ríkisútvarpið þig að veita kvikmynd þessari viðtöku í minningarskyni og sem viðurkenningu fyrir stuðning við gerð henn- ar. Megi hún varðveitast hjó íslendingum vestanhafs sem söguleg heimild um einstæðan og glæsilegan hátiðardag.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.