Alþýðublaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 14
14 FRÁ MORGNI
Þriðjudagur 12. október 1976 bSalfiT
FRÉTTA-
GETRAUN
1. Hvað hetir þessi maður?
2. Hvað heitir formaður toll-
varðafélagsins?
3. 1 hvaða stjórnmálaflokki er
Geir Gunnarsson?
4. Hve miklu námu viðskifti ís-
lands við Suður-Afriku fyrstu
átta mánuði þessa árs?
5. Hvað kostar fyrir fulloröoia að
fara i strætó?
6. Kirkjudagur óháða safnaðar-
ins var haldinn nú um helgina.
Hve oft hefur þessi dagur veriö
haldinn?
7. Hvað heitir útvarpssagan
sem nú er lesin?
8. Eftir mikið uppistand var
Slátursamlagi Skagfirðinga
veitt leyfi til sauðfjárslátrunar.
Hve margar kindur mega þeir
leggja aö velli á dag?
9. Lifeyrissjóðirnir stunda nú
mikil skuldabréfakaup. Hve
miklu hafa þeir eytt i þessu
skyni á þessu ári?
10. Alþingi var sett I gær. Klukk-
an hvað hófst setningin?
Gátan
Skýringarnar flokkast ekki
eftir láréttu og lóðréttu NEMA
við tölustafina sem eru i reitum
i gátunni sjálfri (6,7 og 9). Lá-
réttu skýringarnar eru aðrar
merktar bókstöfum, en lóðréttu
töiustöfum.
m % 3 H
A
B
C fri KÁ
D
1 s
E
F 3
I
Q
A: klettahöföi B: málC: timabil
D: þræðir E: spjald F: ofn G:
mátturinn 1: málmur 2: súpu-
skálin 3: forsk. 4: erá hreyfingu
5: gjálfraði 6 lá: skóli 6 ló:
goggur 7 lá: veiðarfæri 7 ló:
gera prestar 8: arkið 9 lá: útt 9
ló: sund 10: hvildi.
SVÖR:
z uewniM 01
•BU9J51 JIUOfl|IUl Sill ‘6
Sep p IHH'Tls OSE '8
JIIS9 jeifsXajg 'i
uinuuis s<: ‘9
jnuoji) OS 'S
EU0J5( lunuofuiui LL '1
nuiaeiepueqnQýdlV '£
•uoss3ne|Qno jnpunuiSjag 'z
•sueuijx ijpfis
-JJJ ‘UOSSUIJEjpcJ uui JE J9<I 'l
Takmarkið
er: reyklaust
land
KRABBAMEINSFÉLÖGIN
HEFJA ÚTGÁFU Á BLAÐI
FYRIR UNGLINGA
Krabbameinsfélögin
hafa hafið útgáfu á
blaði, fyrst og fremst
helguðu samtökum
ungs fólks gegn reyk-
ingum. Blaðið hefnist
Takmark, og er sent
öllum börnum fæddum
1963. Ætlunin er jafn-
framt að senda það
hverjum nýjum 12 ára
árgangi.
Efni Takmarks er
einkum frásagnir af
baráttunni gegn reyk-
ingum i skólum og ut-
an, ásamt ýmsum
gagnlegum upplýs-
ingum og fræðslu um
áhrif tóbaksnautnar.
A forsiðu Takmarks er grein
eftir Þorvarð Ornólfsson
ábyrgðarmann blaðsins, og ber
greinin yfirskriftina Takmarkið
er: Reyklaust land. Einnig er að
finna i blaðinu ýmsar fréttir um
hvernig hefur gengið i herferð-
inni gegn reykingum, sem ungt
skólafólk hóf fyrr á þessu ári. 1
blaðinu er efnt til verölauna-
Verðlaunasamkeppni um
varnaðarorð gegn reykingum
Takmark efnlr til samkeppnl um
stuttar, markvlssar málsgrelnar
sem sáu hssfar sem auglýslnga-
textl eða almenn „vlgorfl" I barótl-
unnl gegn reyfcingum og tyrlr réttl
þolrra sem reykja okkl.
Qæti t.d. fallst I þeim aðvórun um
skaösemi reykinga, hvatning til
baráttu gegn reyklngum, hvatning
til aö hætta aö reykja eöa byrja ekki
aö reykja eöa áminning til reyk-
ingamanna um rótt annarra til aö
anda aö sór loftl, ómegnuöu af
tóbaksreyk.
Hver þátttakandi má senda I
mesta lagi þrjár tillögur. Rétt til
þátttöku hafa allir nemendur ó
grunnskólastigi, hvar sem er á
landinu.
Krabbameinsfólag Reykjavíkur
veitir þrenn verölaun fyrir hnittn-
ustu tillögurnar aö matl sórstakrar
dómnefndar.
Verölaunin eru þessi:
1. verölaun: Segulbandstækl
(kassettutæki), Philips. Verö kr.
27.260.
2. verölaun: Vasatölva, Sinclair
300. Verökr. 15.100.
3. verölaun: Útvarpstækl, Phlllps.
Verö kr. 8.910.
Tillögur ber aö senda til TAK-
MARKS, Suöurgötu 24. Reykjavík
fyrlr 15. nóv. n.k. Tillögurnar skal
merkja meö dulnefni, en nafn og
heimilisfang sendanda. ásamt
fæöingarárl, skóla og bekk, fylgi (
lokuöu umslagi sem merkja skal
meö sama dulnefni.
samkeppni um varnarorð gegn
reykingum og eru veitt þrenn
verðlaun fyrir beztu orðin. Rett
til þátttöku hafa allir nemendur
á grunnskólastigi, hvar sem er á
landinu. Tillögur skal senda til
Takmarks, Suðurgötu 24, R.
fyrir 15 nóv, nk.
Sem vitni um áhuga nemenda
á grunnskólastigi, birtum við
hér með sýnishorn af kveðskap
eins 6. bekksins i Vogaskóla, og
Visurnar eru eftir Guömund
Atla Pálmason i 6. EE
Að reykja er bæöi rangt og ljótt
reykur heilsu eyðir,
Miklar fúlgur fljúga skjótt
fara vondar leiðir.
Þetta er verölaunasam- 1
keppnin sem Takmark efnir til.
Verðlaunin eru þrenn, segul-
bandstæki, vasatölva og út-
varpstæki. Vonast er eftir góöri
þátttöku, en rétt til þátttöku
hafa allir nemendur á grunn-
skólastigi, hvar sem er á land-
inu._________________—AIL,
Ast er...
... að hætta aðreykja
til þess að geta
lifað lengur saman
Kæri vinur, snöggur snú,
að snöru tóbaks gættu.
Ef þú reykir, rétt er nú (
að reykja ei meira, hættu,
AB
FRAMHALDSSAGAM
Staðgengill sijörnunnar
eftir Ray Bentinck
14. kafli
— Er Paula ekki stórkostleg?
Max kom til Shirley um daginn,
þegar hún var að horfa á upptök-
urnar. — Hver hefði trúað þvi, að
hún yrði svona hress eftir allt,
sem kom fyrir i gær?
Shirley svaraði engu, en sneri
sér til að fara. Max elti hana. —
Erum við hætt að talast við,
Shirley? spurði hann brosandi.
— Ekki eftir framkomu þina i
gær, sagði hún. — Þú tókst mál-
stað Paulu gegn mér og þakka
mér fyrir , að ég vakti heila nótt
yfir þér.
—-Fyrirgefðu, kjúklingur, sagði
hannr alvarlegur — Ég veit vel, að
ég var hranalegur viö þig, en ég
var með höfuöverk, og hafði haft
miklar áhyggjur af Paulu.
Shirley yppti öxlum og ætlaöi
að halda áfram, en hann tók um
handlegg hennar. — Vertu nú ekki
reið, baö hann með röddinní, sem
henni fannst ómótstæðileg. — Eg
er búinn aö biðjast afsökunar, og
ég er þér mjög þakklátur fyrir að
vaka yfir mér. Annars man ég
harla litið frá nóttunni. Var ég
erfiöur?
— Alls ekki, sagði hún hæðin. —
Þú kysstir mig bara og leitaðir á
mig!
Hann roðnaði mjög. — Ég man
alls ekki eftir þvi! sagði hann.
— Ég kæri mig heldur ekkert
um, að þú gerir það, svaraði hún.
Ég var næstum búin að gleyma
þvi sjálf. Maður sýnir sina réttu
skapgerö, þegar hann er sjúkur.
— Þetta hljómar óþægilega.
Hann leit á hana. — Þegar þú
minnist á það, man ég óljóst eítir
stúlku, sem hugsaði um mig. Ég
hef vist haldið, að það væri
Paula.
— Þaö hélztu nú ekki! hvæsti
Shirley.—Þú ávarpaðirmig meö
nafni og sofnaðir eftir að hafa
kysst hárlokk af mér.
— Jafnvel snertur af heilahrist-
ingi fær fólk greinilega til að taka
upp á furöulegustu hlutum, sagöi
hann. — Ég vona, að þú gleymir
þessu. Ég var auðsjáanlega ekki
með sjálfum mér.
— Ég bjóst við þvi! En Shirley
var sannfærð um, að hann hefði
ekki haldið, að hún væri Paula, og
hún var jafnsannfærö um, að
hann myndi allt, sem gerzt hafði
um nóttina. Einhverra ástæðna
vegna vildi hann neita þessum
ástriðuþrungna kossi, kannski
vegna þess, að hann blygöaöist
sin. — Ættiröu ekki aö fara til
hinna? spurði hún kuldalega. —
Þú ætlar aö vera við hlið Paulu
eftir þvi sem þú sagðir i dag. Hún
hló fyrirlitlega og gekk á brott,
hægtog drembilega, fegin yfir, aö
hún lét sig ekki...
Seinna var hún kölluð inn á
fund, en þar ásakaði Paula Sil-
verstein fyrir aö láta óvini hennar
standa vörð i stað þess að hand-
sama þá, og þaö endaði með þvi
að hálftima siðar kom glæsilegur
rannsóknarlögreglumaður á
staðinn, og Paula gaf honum
strax hýrt auga. Hann bar fram
margar spurningar og skrifaði
svörin hjá sér. Loks fékk hann
Paulu til aö lofa að koma á árshá-
tið lögreglunnar næsta kvöld.
Ágóðanum var varið til góögerða-
starfsemi og nafn hennar myndi
laða marga aö. Eftir að ákveðið
hafði verið að fá nokkra lögreglu-
þjóna til að dulbúast sem auka-
leikara, fór rannsóknalögreglu-
maðurinn, en þá sagði Paula, að
Shirley gæti farið fyrir sig. Hún
nennti ekki á „lögguball”. En Sil-
verstein tók af skariö. Paula átti
að fara, og hann ætlaöi sjálfur
með henni. Það kom Shirley mjög
á óvart, að Max sagði: — Það var
lika tími til kominn, að ég fengi
fri. Kannski ég bjóði Shirley út!
— Takk, en ég er upptekin,
sagði Shirley kuldalega.
15. kafli
„Þar fór pashann með eftir-
lætiskonuna, sagði Max brosandi,
þegar Silverstein og Paula voru
lögð af staö á dansleikinn. — Þau
tóku Rolls Royceinn, svo að ég
fékk lánaöan bil i þorpinu. Viö
getum komizt i bæinn, Shirley.
— Ég fer ekki fet! sagöi hún
stuttaralega. — Ég ætla aö lesa I
kvöid.
Max leit hlæjandi á hana. —
Komdu nú niður á jörð-
ina, Shirley. Mig langarsvo til aö
tala við þig. Ég hef dálitið merki-
legt að segja þér.
Hjarta hennar sleppti úr slagi,
þegar hún heyrði bliöutóninn i
rödd hans. — Um hvað? spurði
hún gætilega. Hann leit á hana. —
Þig.. mig.. framtiðina.
Shirley sagöi ekkert, en hún fór
upp og sótti kápuna sina. Max
beið eftir henni, þegar hún kom
niður. Hann fylgdi henni út, og
andartaki siðar óku þau út um
járnhliðið. Þau höfðu ekið
þegjandi i svona tiu minútur, þeg-
ar Shirley spurði loks: — Hvað
ætlaðirðu að segja mér, Max?
— Stórfréttir, Shirley.sagði hann
ákafur. — Silverstein sagði mér i
kvöld, að hann ætlaði að láta mig
fá aðalhlutverkiö í næstu kvik-
mynd... hún verður gerð eftir
leikritinu, sem við Paula sáum!
Fyrsta kvikmyndin er ekki tilbú-
in, en hann er svo hrifinn, að hann
býður mér fimm ára samning!
— Til hamingju, sagði Shirley,
sem hafði orðið fyrir vonbrigöum.
Hún hafði vonazt eftir öðru. — Ég
vissi, að þetta myndi gleöja þig.
Hann leit brosandi á hana. —
Þetta skiptir mig meginmáli. Ég
hef lagt mig allan fram, en ég
bjóst ekki við, að það rættist
fljótt. Nú stórgræði ég.
— Peningar eru ekki allt,
sagði Shirley hvasst.
—Það er næstum hægt að gera
KOSTABOÐ á kjarapöllum sx" P0STSENDUM TR0L0FUNARHRINGA
KJÖT & FISKUR
Breiðholti ^n^^^jolMimro tLtnsson L.iuaalitgi
Sillli 71200 — 74201 &um 19 209
DÚAA
Síðumúla 23
/ími 64900
OR a fj-h-n.
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
sími 11463
önnumst'alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn