Alþýðublaðið - 12.10.1976, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 12.10.1976, Qupperneq 16
Vinnumálalöggjöfin mætir andstöðu Við upphaf nýs lög- gjafarþings eru farin að berast mótmæli gegn frumvarpi þvi að nýrri vinnumálalög- gjöf, sem rikisstjórnin hefur lagt fram. Félag nema i byggingariön, sem hélt fund hinn 30. sept. s.l. samþykkti eftirfarandi: „Félag nema i byggingariðn mótmælir harölega frumvarpi að nýrri vinnulöggjöf, sem nú nýlega hefur komiö fram. Frumvarp þetta mun ef aö lögum veröur, stórlega rýra réttarstööu verkalýöshreyfing- arinnar og skerða samnings- og verkfallsrétt hennar. Bent skal á að frumvarp þetta er samiö án nokkurs samráös við A.S.I. en hinsvegar viröist Félagsmálaráöuneytiö vera oröiö einskonar afgreiöslustofn- un fyrir Vinnuveitendasam- bandiö. Gera má ráö fyrir aö stjórn- völd reyni aö fá frumvarpiö samþykkt strax á fyrstu vikum þingsins og koma þannig 1 veg fyrirað A.S.t. þingiö geti fjallað um það. Félag nema i byggingariön hvetur verkalýöshreyfinguna til að standa vörö um sjálfsögö réttindi sin og mótmæla harö- lega sliku gerræöi.” Rauðsokkar vilja rót- tæk mótmæli Þá hefur blaöinu einnig borizt svohljóöandi samþykkt: „Starfshópur Rauðsokka- hreyfingarinnar um verkalýös- mál, skorar á miöstjórn ASI og verkalýösfélögin aö mæta af fullri.hörku og meö róttækum aðgerðum tillögu rikisstjórnar- innar aö nýrri vinnumálalög- gjöf. I henni felst stórfelld skeröing á réttindum verka- lýösins og verkalýðsfélaganna. Starfshópurinn lýsir yfir full- um stuðningi við þær aögeröir er beinast gegn þessari nýju árás rikisvaldsins á réttindi verkafólks og Rauðsokkar eru reiðubUnar til samstarfs um gagnaðgerðir.” Meinatæknar reiðu- búnir Meinatæknar hafa á aöalfundi sinum, sem haldinn var 5. þessa mánaöar, samþykkt svohljóö- andi yfirlysingu: „M.T.I. vill lýsa yfir megnri óánægju meö úrskurö kjara- nefndar, sem féll siöastliöiö sumar. Eins og málum er nú háttað í þjóöfélaginu er augljóst að ekki er möguleiki fyrir meg- inþorra opinberra starfsmanna að framfleyta sér á þeim laun- um, sem þeim var þar Uthlutað. Meinatæknar lýsa ennfremur yfir fullum stuöningi viö þær mótmælaaögeröir, sem nú fara fram hjá ýmsum launþegum hins opinbera til að knýja fram leiðréttingu sinna mála og eru jafnframt reiöubúnir til hliö- stæðra aögerða.” Hvetja til órofa sam- stöðu Almennur fundur i Vélstjóra- félagi Suöurnesja, haldinn 10. október 1976, telur einsýnt aö með þeirri breytingu á vinnu- löggjöfinni sem stefnt er aö yröi réttur launþega til þess aö fylgja eftir kröfum sinum i kjaramálabaráttunni stórlega skertur. Hvetur fundurinn til órofa samstööu allra launþega til aö koma i veg fyrir áform vinnuveitenda og afturhaldsins i landinu. —RS HÁLKA Á FJALLVEGUM — norðanlands og austan Alþýðublaðið hafði samband við Arnkel Helgason hjá Vegagerð rikisins og bað hann að skýra frá ástandi vega þessa dagana. Sagði Arnkell að ástand vega væri viðast hvar með eðlilegu móti, en bætti þvi við að nú væri farið að gæta hálku á næstu fjallveg- um norðan lands og austan, hvergi væri þó verulegur snjór til fyrir- stöðu. Um ástand þjóðvega álmennt sagði hann, að undir haustið, vildi bera talsvert á vatnsholum i vegum, en þaö væri kannski engin breyting frá þvi sem verið hefur hér á Suöurlandi i sumar, þar sem veriö hafa eilifar rigningar. Noröanlands hafa veg- ir batnað mikiö eftir aö þurrka- timabilinu lauk og hægt var að hefla þá á nýjan leik, en erfitt hef- ur reynzt að hefla vegi fyrir norö- an vegna þurrka, strax og tiö leyföi var farin yfirferö yfir alla vegi þar. Þá má geta þess, aö snjóruön- ingar á Holtavöröuheiöi verði meö svipuöu sniði á vetri kom- anda og veriö hefur undanfarna vetur og hefur snjómokstursregl- um ekki veriö breytt, verður heiö- in rudd tvisvar i viku þegar meö þarf, á þriðjudögum og föstudög- um. —GEK Tölvu- útdráttur hjá happ- drættum — hefst upp úr næstu mán- aðamótum öll stærstu happdrættin hér á iandi stefna nú að þvi aö taka tölvu i þjónustu sina viö útdrátt vinninga. Undirbún- ingi að tölvudrætti i Happ- drætti Háskólans er lokiö og ef að fer sem horfir verður dreg- ið þar með þessum hætti 1 okt- óber, en gert er ráö fyrir að I nóvember verði sama aöferö tekin upp hjá hinum happ- drættunum tveimur. Til þess aö unnt sé að nota tölvu I þessu skyni verður aö útbúa forrit eöa prógramm sem tölvan vinnur eftir. Gerö þessa forrits fór fram undir eftirliti stjórnskipaðra eftir- litsmanna og sérfræöinga þeirra. Þaö er tölva reiknistofnunar Háskólans sem fær þaö hlut- verkað dreifa peningum niður á þátttakendur happdrætt- anna. Tölvuvinnsla sem þessi hefur lengi veriö viö lýöi hjá happdrættum erlendis og er núsvokomiöað mjög erfitt er aö útvega gögn til aö fram- kvæma Utdrátt vinninga meö eldri aöferöum. ES Sjálfkjörið í Snót og í Bolungarvík Verkalýðs og sjómannafélag Bolungavikur: Einn listi kom fram til kjörs fulltrúa á Alþýðu- sambandsþing, listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs. FulltrUar félagsins eru þvi sjálfkjörnir, en þeir eru: Karvel Pálmason og Vagn Hrólfsson. Verkakvennafélagið Snót, Vestmannaeyjum: Listi stjórnar og trúnaöarmannaráös var sjálf- kjörinn i Snót. Listann skipa : Vil- borg Sigurðardóttir, Jóhanna Friöriksdóttir og Anna Erlends- dóttir. Skátar í Kópavogi kaupa gúmmíbát Hjálparsveit skáta i Kópavogi festi nýverið kaup á gúmmi- björgunarbáti, til taks fyrir lög- regluna ef á þarf aö halda. Meö kaupunum er bætt úr brýnni þörf, þar sem umferö smábátá viö innanveröan Skerjafjörö hefur aukizt stórlega hin siöari ár. Hjálparsveitina skipa nú um 40 félagar á svokölluðum út- köllunarlista. A sveitin tvo jeppa, innréttaöa sem sjúkra- bila, auk fjallabils til fóiksflutn- inga. Sveitin hefur i gegnum árin veitt margvislega aðstoð, en ánægjulegasti atburöur i sögu hennar, gerðist vafalaust sl. ár, er félagar Hjálparsveitarinnar fundu litinn dreng heilan á húfi, eftir að hafa verið týndur i nokkurn tima i Kjarrhólma. Telja félagsmenn það vera beztu uppskeruna af starfi sveitarinnar. AB Lögregluþjónar og hjálparsveitarmenn við æfingu á nýja björgunarbátnum. ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTOBER 1976 alþýðu blaöiö Lesið: I Þjóðólfi: „Héraös læknirinn á Selfossi vittur. — Almennur hreppsfundur haidinn aö Þingborg, Hraungerðishreppi, þann II. júni 1976, átelur harö- lega það sleifarlag, sem rikir i iæknisþjónustu Self osslæ knishéraös. ” o Séð: I Hagtiöindum: Aö fyrstu átta mánuöi ársins fluttu Islendingar inn fisk og unniö fiskmeti fyrir 20,2 milljónir króna. (Hver hefði trúaö þvi, aö Islend- ingar flyttu fisk til lands- ins). Þá voru fluttar inn drykkjarvörur fyrir 244 milljónir króna, lyfja- og lækningavörur fyrir 631,4 milljónir, sprengiefni og vörur til flugelda fyrir 52 milljónir og húsgögn fyrir 272 milljónir króna. o Frétt: Aö starf Krabba- meinsfélagsins meðal skólabarna til aö sporna gegn reykingum, hafi borib rikulegan ávöxt. I ýmsum skólum hefur orðið algjör breyting á afstööu barna til reykinga, og nú verði þeir fremur Utundan en hitt, sem reykja. o Frétt: Að á næstunni megi búast við nokkrum deilum og jafnvel átökum i þing- flokki Sjálfstæöisflokksins vegna afstööu einstakra þingmanna til stjórnar- samstarfsins. Vitaö er, að allmargir þingmenn eru mjög óánægðir með störf rikisstjórnarinnar og vildu helzt að stjórnarsamstarfiö yrði rofið og efnt til nýrra kosninga. o Frétt: AÐ ræöur þeirra Kristjáns Thorlaciusar, formanns BSRB, og Björns Jónssonar, forseta ASI, á þingi BSRB, sem hófst i gærmorgun, bendi til þess, aö þessi samtök hyggi á mun nánara samstarf en verið hefur I þeim átökum um kjaramálin, sem fram- undan eru. —BJ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.