Alþýðublaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 1
Timinn segir að dómsmálaráð- herra hafi skipað dr. Braga Jósepsson i starf rannsóknarlög- reglumanns við sakadóm Reykja- vikur. Hér hefur veitingavaldið bitið höfuðið af skömminni og orðið sér til ævarandi skammar. Sjá „tJr ýmsum áttum” bls. 8 I BLAÐINU I DAG ■mnw.mr- Sagt frá þingi BSRB 30. þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hefur lokið störfum. t opnu i dag er sagt nokkuð frá þinginu og þeim mikil- vægu störfum sem þar hafa verið til umræðu. I DAG Nagladekkin undir 1 gamla fjósinu i Múla er nú rekið hjól- barðaverkstæði. Alþýðublaðið leit þar inn i gær og spurðist fyrir um verö á nagla- dekkjum og ýmis konar þjónustu, sem þar er veitt. Sjá baksíðu. ~50i_ na Tillaga flutt á Alþingi um Vestfjarðarskip Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður, hefur nú flutt á Alþingi tillögu um rekstur sérstaks Vestfjarðarskips er annist flutninga milli Reykjavikur og vest- firzkra hafan. Sjá f rétt á bls. 2. íocl ^=>Q( Um Eykon Nú er runnin upp önnur öld með Eykon og fleiri syndagjöld Þeir orka ekki að aflifa hrút. Lesið skáldskap að ríorðan í horninu í dag. Ábyrgðarlaus og úr- ræðalaus ríkisstjórn Eftir tveggja ára setu i stjórnarstólum hafa þeir Geir Hallgrimsson, Ólafur Jó- hannesson og félagar þeirra komist að þeirri niðurstöðu, aö þeir telja ,,nú sér- staka ástæðu til að leita leiða til þess að ná hraða verðbólgunnar niður.” Hvað hefur rikisstjórnin verið að gera ? Sjábls.2 ARSAFMÆLI 200 MILNA i dag er eitt ár liðið siðan fisk- veiðilandhelgin var færð út i 200 miiur. Þessi mynd var tekin I stjórnstöð Landhelgisgæ/.lunnar á miðnætti aðfaranótt 15. október i fyrra þar sem Pétur Sigurðsson forstjóri var staddur þegar út- færslan tók gildi. Á bls. 3 er rætt við Pétur og Baldur Halldórsson stýrimann á Óðni. Framkvæmdastjórn SFV leggur niður störf UPPHAFF0RM LEGRA SLITA SAMTAKANNA? Framkvæmdastjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna hefur lagt niður störf og afboðað fyrirhugaðan landsfund. Þetta er annað stóra skrefið i þá átt að SFV sem stjórnmálasamtök, veröi lögð niöur og félagsmenn þeirra velji sinar eigin pólitisku leiðir. Framkvæmdastjórnin hef- ur jafnframt falið þingflokki samtakanna meöferð þeirra sam- eiginlegu verkefna, sem sinna þarf og visar sérmálum til með- ferðar hinna einstöku skipulags- eininga. Alþýðublaðinu barst i gær svo- hljóðandi fréttatilkynning frá fundi framkvæmdastjórnarinn- ar: ,,A fundi framkvæmda- stjórnar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna 12. október 1976 fluttu Ólafur Ragnar Grimsson, Karvel Pálmason og Magnús Torfi ólafsson eftirfarandi tillögu og var hún samþykkt einróma af öllum framkvæmdarstjórnarmönn- um: „Undanfarið hafa fariö fram innan Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna um- ræður um framtið islenzkrar vinstri hreyfingar. Meginkjarni umræönanna hefur falist i athugun á þeim leiðum sem færastar þykja til að vinna að upphaflegu mark- miði Samtakanna, þ.e. að stuðla að sameiningu vinstri aflanna i landinu. Framkvæmdastjórn Samtakanna hefur verið aðal- vettvangur þessara umræðna og hefur hún á fundi slnum 12. október 1976 komist einróma að eftirfarandi niðurstöðum: 1. Þótt. framkvæmdastjómin sé einhuga um mikilvægi hins upphaflega markmiðs, rikja skiptar skoðanir um leiðir til að vinna að þvi og ólikt mat á hverjar séu ákjósanlegastar. 2. Þessi þróun hefur það i för með sér að farsælast þykir, eins og nú er komiö, að hver eining Samtakanna — þing- flokkur, kjördæmasambönd, flokksfélög og einstaklingar — vinni að framgangi þessa markmiðs i næstu framtið á sinum starfsvettvangi og i samræmi við það sem hver aðili telur ákjósanlegast. 3. 1 samræmi viö fyrr- greindar niðurstöður telur framkvæmdastjórnin rétt að feia þingflokki meðferð þeirra sameiginlegu verkefna, sem sinna þarf, og visar sérmálum til meðferðar hinna einstöku skipulagseininga. 4. Til að auðvetda öllum hlutaðeigandi aðilum aðlögun að nýjum aðstæðum leggur framkvæmdastjórnin niður störf og afiýsir áður auglýst- um landsfundi.” Séra Tómas og séra Hjalti með flest atkvæði Um siðustu helgi fór fram prest- kosning i Dómkirkjusöfnuði Reykjavik. 1 framboði voru þeir séra Hjalti Guðmundsson og séra Hannes Guðmundsson. A kjörskrá voru 4576, atkvæði greiddu 1795. Séra Hjalti hlaut 1647 atkvæði, en séra Hannes 130. Auðir seðlar voru 13. ógildir 5. Kosning var ólögmæt. Sama dag var prestkosning i Háteigsprestakalli i Reykjavik. 1 framboði voru: séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, séra Magnús Guðjónsson og séra Tómas Sveins- son. A kjörskrá voru 5518, atkvæöi greiddu 3327, Séra Tómas hlaut 1304 atkvæði, séra Auður Eir 1018 og séra Magnús961 atkvæði. Auðir seðlar voru 38, ógildir 6. Kosning telst ólögmæt, en til þess að teljast lögmæt þarf einn umsækjenda að fá 50% atkvæða eða meira,—ARH Verkfalls- vopninu verður beitt! — Við vonum auövitað að rikis- valdið sýni skilning og stórbæti kjör okkar, en ef ekki þá er ein- faidlega ekki um annað að ræða en að beita verkfallsvopninu. Það verður gert, ef ekki fæst brcyling á okkar launutn. Svo mælti Kristján Thorlacius eftir að30. þingi BSRB lauk i gær. — Sjá viötal viö hann og myndir frá þinginu i opnu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.