Alþýðublaðið - 15.10.1976, Page 6
Föstudagur 15. október 1976 SSSS1
BRÝNT AÐ BÆTA
ATVINNUASTAND
FATLAÐRA
Um siðustu helgi var haldið i
Reykjavik landsþing
Sjálfbjargar, Landssambands
fatlaðra. Þingið sóttu 57
fulltrúar frá 11 deildar-
félögum,en alls eru deildarfélög
Sjálfsbjargar 13. Þingforsetar
voru þeir Sigursveinn D.
Kristinsson og Sigurður
Guðmundsson. Avörp fluttu þeir
Haukur Þórðarson yfirlæknir á
Reykjalundi og Karl Brant
endurhæfingarfulltrúi. A
þinginu voru rædd brýnustu
hagsmunarhál fatlaðra, svo sem
tryggingamál, farartækjamál
og félagsmál. í ályktun
þingsins um atvinnumál kemur
fram, að fötluðu fólki hafi
reynst erfitt að fá atvinnu við
sitt hæfi og hafi það þvi neyðst
til að eyða ævinni atvinnulaust
heima eða á sérstökum
stofnunum. Leggur þingið
áherzlu á að leysa þurfi
atvinnumái þessa hóps hið
bráðasta.
Þá er þvi beint til rfkis og
sveitarfélaga, að þau taki upp
samþykkt borgarráðs
Reykjavikur frá 18/3 1976, um
um skipulagða, sérhæfða vinnu-
miðlun fyrir öryrkja, þar sem
mikið skorti á að fólk með
skerta vinnugetu geti fengið
störf við sitt hæfi.
Einnig er itrekað til
Arkitektafélags Islands, aö viö
hönnun þjónustubygginga, sé
gert ráð fyrir að fa^lað fólk eigi
greiðan aðgang aö.
Þá segir i lok ályktunar um
atvinnumál, að þeim hópi
fatlaðs fólks, sem ekki getur
fengið atvinnu á almennum
vinnumarkaði þurfi að skapa
skilyrði til vinnu á vernduðum
vinnustöðum. Er lögö áherzla á
að vinnustofa landssambands
fatlaðra verði veitt nauðsynleg
fjármagnsfyrirgreiðsla tii þess
aðhún getihafiðstörfsem fyrst.
Félagsmál.
í ályktun um féiagsmál er
drepið á mörg atriði, sem
samtök fatlaöra vilja vekja
athygli á og fá framgengt. Hvatt
er til þess að haldið sé áfram að
styrkja fólk til náms I sjúkra
þjálfun og öðrum greinum er
varða endurhæfingu, enda njóti
landssambandið starfskrafta
. þess að námi loknu, eftir
samkomulagi.
Þá er skoraö á framkvæmda-
stjórn að útvega jarönæði undir
sumarbúðir fyrir félagsmenn,
rætt um þörf á sérstakri ferða-
þjónustu fyrir fatlaða, sem ekki
geta notað
almenningsfarartæki, rætt um
nauðsyn á þvi að hefja dans-
kennslu fyrir fatlaða, og fleira
er þarna nefnt sem varðar
félagslif félagsmanna. í lok
ályktunarinnar er þvi beint til
sanstarfsnefndar samtaka
hjólastólar og burðarsetur séu á
öllum flugvöllum, söfnum,
sundstöðum og stórverzlunum
og hliðstæðum stöðum. Einnig
að framfylgt verði heimild I
lögum um niöurfellingu afnota-
gjalda af sima til tekjulausra
elli- og örorkulffeyrisþega.
Tryggingamál.
Þingiö ályktaði, að
örorkulifeyrir einstaklinga að
viðbættri tekjutryggingu skuli
ekki vera lægri en svarar til 80%
af almennu dagvinnukaupi, og
að örorkulifeyrir einstaklinga
án tekjutryggingar verði ekki
lægri en sem svarar 40% af
almennu dagvinnukaupi. Þá er
þeirri áskorun beint til
Heilbrigðis- og Tryggingar-
málaráðuneytis, að sjúkra-
tryggingar greiði að fullu
læknishjálp lifeyrisþega, sem
dvelja i heimahúsum. Einnig að
tryggingakerfið verði gert
sveigjanlegra en veriö hefur,
þannig að til dæmis opnist
möguleikarfyrir lifeyrisþega að
fá lán hjá Tryggingastofnun
rikisins til lagfæringa eba kaupa
á eigin húsnæöi.
Þá bendir þingið á þá
herfilegu afturför aö
lifeyrisþegar þurfi að greiöa
sjúkratryggingagjöld, og telur
að bráðabirgðalög nr. 95/1976 séu
mistök, sem beri að leiðrétta.
—ARH
BILL ER FOTLUÐUM NAUÐSYN EN
HANN ER DÝR AÐ KAUPA OG REKA
Sjálfsbjörg, samband
lamaðra og fatlaðra, segir i
ályktun um farartækjamál frá
landsþingi sinu, að þær gifur-
legu veröhækkanir á bifreiðum
sem orðið hafa siðan 1971, eða
um 400-500%, geri tekjulitlum
ororkulifeyrisþegum ókleift að
eignast eða endumýja bifreið.
Bent er á, að á hinum Norður-
löndúnum sé fötluðum gert
miklu auðveldara að eignast
bifreið, svo sem með hærri
vaxtalausum lánum og styrkj-
um. Þá er einnig bent á hina
miklu hækkun sem orðið hefur á
rekstri bifreiðar á sama tima-
bili.
í ályktuninni er þess farið á
leit viö stjórnvöld, að þau
úthluti eftirgjöf
aðflutningsgjalda af fimm
hundruð bifreiöum til öryrkja á
næsta ári. Af bifreiðum sem
fara til öryrkja sem ekki
komast feröa sinna án
farartækis, veröi aöflutnings-
gjald fellt niður að fullu. Einnig
að öryrkjar hafi frjálst val
bifreiðategunda, en ekki að
niðurfelling gjaldanna sé bundið
viö ákveðnar tegundir. öll þau
hjálpartæki semfatlaðir þurfa á
að halda i bifreiöum sinum, svo
sem sjálfskipting, vökvastýri,
aflhemlar, talstöövar og fjar-
stýrður rafbúnaður til aö opna
óg loka bilskúrshurðum, verði
greidd. Er lögð sérstök áherzla
á mikilvægi þess að fatlaðir hafi
i ökutækjum sinum talstöðvar,
vegna öryggis sem þær veita.
Þá er lagt til að Tryggingastofn-
un veiti lifeyrisþegum vaxta-
laus lán til bifreiðakaupa,
a.m.k. sem svarar til helmings
andvirðis þeirra. Að séð sé til
þess aö öryrkjar sem þurfa á
ökuréttindum að halda vegna
atvinnu, njóti ókeypis öku-
kennslu. Þvi er beint til skatta-
yfirvalda, að rekstrarkostnaður
og afskriftir bifreiða fatlaðra
veröi frádráttarbær til skatts.
—ARH
FÓSTBRÆÐUR VERÐA MEÐ
SÖNG, GRÍN 0G
Karlakórinn Fóst- styrktarfélaga sina á
bræður gengst fyrir föstudags og laugar-
skemmtikvöldum fyrir dagskvöldum i október
Eini grindvíski myndlistar-
maðurinn sýnir á heimaslóðum
Vilhjálmur Bergsson, list-
málari, opnar málverkasýningu I
samkomuhúsinu Festi, Grinda-
vik. Sýningin er haldin i boði
Grindavikurdeildar Norræna
félagsins og bæjarstjórnarinnar
og verður opin föstudagskvöld frá
kl. 8 - i: og laugardag og sunnu-
dag frá klukkan 2 11 siödegis.
A sýningunni eru 16 olíu-
málverk, máluð á siðastliðnum
þrem árum. Þetta er sölusýning
og verö myndanna er frá 65 upp
i 198 þúsund krónur. Aðgangur
aö sýningunni er hins vegar
ókeypis. Vilhjálmur er fæddur
og uppalinn í Grindavik og mun
vera eini Grindvfkingurinn sem
gerthefur málaralist aö atvinnu
GAMAN
og byrjun nóvember-
mánaðar. Skemmtan-
imar verða haldnar i
sinni. Hann stundaöi á sinum
tima nám i Kaupmannahöfn og
París og hefur haldið allmargar
einkasýningar í Reykjavik og
Kaupmannahöfn og tekiö þátt i
fjölda samsýninga heima og
viða erlendis. Þetta er I fyrsta
skipti sem hann sýnir verk sfn
opinberlega I Grindavik.
félagsheimili kórsins að
Langholtsvegi 109-111,
og hefjast kl. 20.30 öll
kvöldin.
Margt verður til skemmtunar.
Kórinn syngur létt lög, undir
stjórn Jónasar Ingimundarson-
ar, sem einnig leikur undir á pi-
anó. Þá syngur blandaður kór
fóstbræðra og eiginkvenna
þeirra. Eiginkonur munu flytja
skemmtidagskrá um stöðu kon-
unnar i hinum ýmsu löndum.
Omar Ragnarsson skemmtir og
sitthvað fleira. Skemmtuninni
iýkur siðan með þvi aö stiginn
verður dans.
Afhending miöa á þessar
skemmtanir fer fram i Fóst-
bræðraheimilinu alla fimmtu-
daga frá kl. 18520, og föstudaga og
laugardaga frá kl. 19.00. Nánari
upplýsingar er aðfá isima 85206 á
ofangreindum timum I Fóst-
bræðraheimilinu.
—AB
Ein eiginkvenna fóstbræöra I
hlutverki sfnu ileikþætti uni stööu
konunnar f hinum ýmsu löndum.