Alþýðublaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 16
FÖSTUDAGUR 15.
OKTÓBER 1976
Könnun á notkun almenningsvagna
Hugað að bættu skipulagi
umferðar næstu 20 árin
Dagana 19. og 20. október fer
fram könnun á notkun almenn-
ingsvagna á höfuðborgar-
svæðinu Nær könnunin til
þriggja rekstraraðila SVR, SVK
og Landleiða. Þróunarstofnun
Reykjavikurborgar stendur
fyrir könnun þessari i samvinnu
við rekstraraðila
Tilgangur könnunarinnar er
að afla upplýsinga um ferðir al-
mennings með almennings-
vögnunum. Upplýsingar um
ferðamynstur með vögnunum
er nauðsynlegt til að bæta þjón-
ustu almenningsvagna með nú-
verandi vagnflota.
Þróunarstofnun Reykjavikur-
borgar vill einnig með könnun
þessari kanna notkun al-
menningsvagna i hinum ýmsu
hverfum .borgarinnar. Hvort
munur sé á notkun þeirra eftir
hverfum eða bæjarhlutum.
Upplýsingar um þetta eru mjög
mikilvægar við gerö áætlana
um þróun almenningsvagna-
kerfisins á höfuðborgarsvæöinu,
t.d. næstu 10 árin.
Notkun einkabila hefur fariö
vaxandi með hverju árinu.
Skipulagsnefnd Reykjavikur
um almenningsvagnaumferð
telur nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir hvernig umferð
verður i borginni næstu 20 árin,
og með það i huga hanna gatna-
gerð þannig að tekið sé tiilit til
einkabila og unnt sé að auka
notkun almenningsvagna.
A vissum timum koma svo-
nefndir álagstoppar i um-
ferðinni. Gott væri, ef hægt væri
að draga úr þeim toppum með
notkun almenningsvagna. Eftir
könnun þessa verður leitazt við
að bæta þjónustu almennings-
vagnanna eftir svörum notenda
vagnanna.
Könnun sem þessi var gerð
árið 1962 i Reykjavik, og náði
hún tii eigenda einkabila og al-
menningsvagna. í þeirrikönnun
svöruðu 74% eigenda einkabila,
og þótti það góð þátttaka.
A fundi með biaðamönnum hjá
Þróunarstofnun Reykjavikur-
borgar i gær kom fram að alltaf
er halli á rekstri almennings-
vagna. Til aö minnka þennan
rekstrarhalla þarf farþegaf jöldi
vagnanna að aukast um
helming miðað við það sem nú
er. Ef svo aftur á móti, farþega-
fjöldi ykist um helming, væri
ekki til nógur vagnafjöldi undir
allan þennan fjölda. Af þvileiðir
að rekstrarhalli yrði áfram á
vögnunum.
Með könnuninni um notkun
vagnanna ætti einnig að koma
fram, hvar mestur farþega-
fjöldi er, og samkvæmt þeim
upplýsingum myndu
rekstraraðilar reyna að bæta úr
skorti á biðskýlum og þess hátt-
ar þjónustu við notendur al-
menningsvagna.
Sem fyrr segir fer könnunin
fram þriðjudaginn 19. okt. og
miðvikudaginn 20. okt.
Könnunin fer þannig fram, að
hver farþegi, lOára og eldri, fær
afhentan spurnarseðil og blýant
með tilmælum um að svara 6
spurningum sem á seðlinum
eru. Spurt er um hvaöan og
hvert fólk er að fara, tilgang
ferðarinnar, aldur farþega og
hvort hann hafi skipt um vagn.
Farþegar eru siðan beðnir um
að afhenda seðilinn viö útgöngu-
dyr um leið og þeir stiga úr
vagninum. I hverjum vagni
verða tveir starfsmenn könnun-
arinnar, annar við inngöngudyr
en hinn við útgöngudyr.
Börn 5-10 ára fá afhentan
spurnarseðil, en þau eiga ekki
að fylla hann út, heldur aðeins
afhenda hann við útgöngudyr
eins og aðrir farþegar.
Ef farþegar eru i vafa um,
hvernig fylla beri út spurnar-
seðlana, geta þeir snúið sér til
starfsmanna könnunarinnar,
sem munu aðstoða farþega eftir
þvi sem tækifæri gefst.
Meðfylgjandi sýnishorn af út-
fylltum spurnarseðli sýnir,
hvernig farþegi sem býr i
Hraunbæ 299 en vinnur i Austur-
stræti 16, hefur fyllt út seöil
sinn. Hann tekur leið 10 niður á
Hiemm, en tekur þar t.d. leið 2
niður á Lækjartorg. Meðfylgj-
andi sýnishorn er þá fyllt út i
seinni vagninum.
—AB
Nagladekkin undir í
„Aðalvertiðin i nagladekkjum
cr að hefjast hjá okkur á morg-
un,” sagði Þorkell Kristins-
son, þegar blaðr.maður og ljós-
myndari Alþýðublaðsins litu inn á
Hjóbarðaverkstæðið Múla f gær.
Haustvertíðin er hafin
Þorkell rekur þetta fyrirtæki
sjálfur við annan mann, en það er
nafni hans Guðvarðarson. Auk
þess vinna þarna aukamenn þeg-
ar mikið er að gera, eða allt upp i
fimm menn.
Verkstæðið er reyndar ekki
mjög stórt og aðeins er hægt aö
taka inn einn bil i einu. Þó geta
þeir afgreitt, á einum degi, allt
upp i 40 bfia. „Þetta er erfið vinna
þegar mikið er að gera,” sagði
Þorkell Kristinsson. „Við vinnum
hérna alla daga vikunnar nema
sunnudaga og yfirleitt er unnið til
klukkan 8 á hverju kvöldi.”
Það er sem sagt i dag, 15. októ-
ber, sem menn geta farið að setja
nagladekkin undir. Auðvitað hafa
hjólbarðar hækkað f verði eins og
allt annað I þessu verðbólguþjóð-
félagi okkar. Þó sögöu þeir félag-
ar að dekkin hefðu ekki hækkað,
frá þvi i fyrra, meira en um 30%.
Hinsvegar hefði vinna hækkað
um u.þ.b. 50-60% frá þvi i fyrra.
Þá var öldin önnur í
fjósinu í Múla
Nagladekk undir fólksvagn,
þ .e. ný dekk, kosta nú 11.000.-
krónur, en sóluð nagladekk kosta
7.500.- krónur. Sumardekkin und-
ir sömu bila kosta hinsvegar
9.000.- krónur ný en 5.500.- krónur,
sóluð.
Að visu er hægt að fá dekk
negld þarna á verkstæðinu.
Þorkeil Guövarðsson sagði að það
færu um það bil 80 naglar undir
dekkið, en hver nagli kostar 19
krónur.
Það er óhætt að segja að nú sé
öldin önnur i fjósinu i Múla. Þetta
hús var byggt árið 1926 og þarna
voru kýr i góðu yfirlæti alit fram
dag
undir 1960. Um tima var þarna
rekin blikksmiðja og nú er þarna
hjólbarðaverkstæði, eins og áður
segir.
Svo er líka naglavertíð
á vorin
Þegar blaðamaöur og ljós-
myndari iitu þarna inn f gær var
reyndar ekki mikið um að vera,
enda átti vertiðin ekki að byrja
fyrr en i dag. Þeir nafnarnir
sögðu að verkefnin væru þau
helzt, að selja ný og sóluð dekk,
bæta og sjóða i dekk, affelga og
skipta um dekk. Auk þess væru
ýmiskonar lagfæringar, sem þeir
gerðu fyrir viðskiptavinina.
Þorkell Kristinsson sagði að aö-
staöan væri nægileg þegar litið
væri á verkefnin yfir allt árið. Að
visu væri nokkuð erfitt að athafna
sig á haustin, þ.e.a.s. eftir 15. okt-
óber og svo aftur á vorin, þegar
nagladekkin eru tekin undan i
kring um 1. mai. „Það eru svona
þrir mánuðir á ári, sem nóg er að
gera. Hina mánuðina er þetta litið
og þá lifir maður á afrakstri vor-
og haustvertiðanna sagði Þorkell
Kristinsson að lokum. —BJ
alþýðu
blaðiö
Heyrt: Að ekki muni’liða á
löngu þar til upp úr sjóði
meðal jarðvisindamanna
um afstöðuna tilástandsins
á Kröflusvæðinu. Mörgum
þeirra þykir súrt i broti, að
st jó rnm ála m önnunum
skuli nú hafa tekist að
koma allri ábyrgðinni af
framgangi verksins yfir á
visindamennina. Ljóst er,
að hópur jarðvisinda-
manna telur það mjög
áhættusamt að halda
áfram virkjun Kröflu og að
það brjóti i bága við allar
skynsamlegar niöurstöður.
o
Séð: t athugasemdum við
fjárlagafrum varpið:
„Fangamál, ýmis
kostnaöur. Þessi liður
hækkar um 17,5 milljónir
króna og kemur þannig
fram i einstökum viðfangs-
efnum: Bygging rikis-
fangelsa og vinnuhæla 15,7
milljónir (verður 30
milljónir), sjúkra-
kostnaður refsifanga 1,1
milljón, fangahjálp 490
þúsund krónur, geð-
lækninga- og sálfræðiþjón-
usta viö refsifanga 434 þús-
und krónur, en kostnaður
við námskeið fangavarða
lækkar um 210 þúsund
krónur.
o
Tekið eftir: Að fréttastofa
útvarpsins hafði það eftir
Timanum i gær, að dr.
Bragi Jósepsson hefði verið
skipaður i stöðu rann-
sóknarlögreglumanns við
sakadóm Reykjavikur.
Mun þetta vera i fyrsta
skipti að útvarpið skýrir
frá slikri stöðuveitingu, og
virðist i þessu sambandi
ekki vandað til heimildar.
o
Frétt: Að fjármálaráð-
herra sé nú að láta rann-
saka hvernig Dagblaðið
komst yfir upplýsingar úr
fjárlagafrumvarpinu áður
en það var formlega lagt
fram á Alþingi. Það þóttu
mikil tiðindi, þegar Dag-
blaðið birti upplýsingar úr
frumvarpinu áður en
helftin af þingmönnum
hafði séð það. Ráðherra vill
nú komast að þvi hvar
„lekinn” er I kerfinu.
o
Séð: i Hagtölummánaðar-
ins: Aö skuldir tslendinga
við útlönd i lok júni-
mánaðar s.l. námu 73,4
milljörðum króna eða
73.484 milljónum króna. í
árslok 1970 námu skuldirn-
ar 23,3 milljörðum.