Alþýðublaðið - 21.10.1976, Síða 4

Alþýðublaðið - 21.10.1976, Síða 4
4 ÚTLOND Fimmtudagur 21. október 1976 Sendiráðsmönnum vísað úr landi í Danmörku vegna fíkniefnasölu Sendiráö Norður-Kóreu á Norð- urlöndum hafa verið mjög i brennidepli siðustu daga, vegna ásakana lögregluyfirvalda i Dan- mörku og Noregi um að sendi- ráðsmenn stunduðu vafasama iðju i þessum löndum — smygl. Þann 12. október handtók lög- reglan i Kaupmannahöfn 4 menn sem höfðu undir höndum 147 kg af hassi. Var búið um hassið i þrem- ur pappakössum og þremur ferðatöskum og var verið aö flytja farminn úr sendiráðsbíl yf- ir i Volvo þegar lögreglan birtist. Volvoinn gekk þó úr greipum lög- reglunnar i það skiptið, en eftir æsandi eltingaleik um götur Kaupmannahafnar náðist að stöðva hann. 1 bilnum voru, auk hassbirgðanna, 2 Danir og 2 Sýr- lendingar. Þessar handtökur fylgdu i kjöl- far þriggja mánaða vaktar við sendiráð Norður-Kóreu. Vaktina stóðu bæði menn úr rannsóknar- lögreglunni i Kaupmannahöfn og úr ffkniefnadeildinni. Þeir sem vaktina stóðu urðu vitni að eigendaskiptum á mörg- um stórum og miklum pappa- kössum á þriggja mánaða gæzlu- timanum. Enginn veit með vissu, hvort i kössunum voru sigarettur, áfengi, fikniefni, eða eitthvað annað. Danmörk er eitt fárra landa i Vesturheimi sem veitt hefur sendiráði frá Norður-Kóreu diplómatiska friðhelgi. Vegna þessa hefur verið erfitt um vik að rannsaka mál þetta. Lögreglan beið þvi eftir tækifæri til þess að láta til skarar skriða. Það tæki- færi fékk hún 12. október. Fleiri handtökur Skömmu eftir handtöku fjór- menninganna, var svo handtek- inn 31 árs gamall maður, sem eft- irlýstur hefur verið af Interpol siðustu árin. Einnig var handtek- Sendiráðs Norður-Kóreu hef ur verið vandlega gætt upp á siðkastið. Myndin er tek- in framan við sendiráðsbygginguna á dögunum. Benzinn er í eigu sendiráðsins. Heróínsmygl líka? Yfirmaður fikniefnadeildarinn- ar i Kaupmannahöfn hefur látið svo um mælt, að sendiráð Norður- Kóreu hafi einnig verið miðstöð heróindreifingar um nokkurt skeið. Hann sagði jafnframt, að ekkert væri hægt að sanna eða af- sanna um það mál, fyrr en eftir yfirheyrslur og rannsóknir i mál- inu. Heróin er mjög hættulegt og dýrt eiturefni. Til dæmis um verð á þvi má taka, að heróintegund sem gengur undir nafninu ,,syk- ur” er seld i Danmörku á allt að 30 þúsund krónur isl. hvert gramm. Heróin nr. 4, sem inni- heldur 95% hrein heróin, selst á hvorki meira né minna en 250-300 þúsund krónur hvert gramm. Hins vegar er hvert gr. af heróini nr. 4 mun notadrýgra en af nr. 3, þar sem það má þynna 10-12 sinn- um. ARH Sendiráðsmönnunum, sem visað var frá Danmörku, voru ambassadorinn sjálfur, 3. ritari sendiráðsins og 2 starfsmenn aðrir. Hér má sjá tvo hinna brottvísuðu á aðaljárnbrautarstöðinni i Kaupmannahöfn á leið heim. ■inn Libani, sem talinn er tengdur máliriu. Eina raunverulega sönnun lög- reglunnar fyrir sekt sendiráðs- manna i málinu, er uppljóstrun á smygli hasskilóanna 147, smygl á einni milljón sigaretta og um 400 flaskna af áfengi. Enginn á von á þvi að þetta sé hið eina. A þeirri skoðun er lögreglan einnig. Eftir þvi sem næst verður kom- izt, er „verðmæti” alls þessa góss áætlað um 3 milljónir króna, mið- að við verðskrár undirheim- anna i Danmörku. Vafalaust hefði verið hægt að fá mun meira fyrir sama magn i mörgum öðr- um löndum.- „Bissnessmenn” í biðröðum við Kremlarhlið „Til hvers eru vestræn fyrir- tæki að hjálpa Sovétrikjunum að byggja verksmiðjur og oliu- leiöslur? Til hvers eruRússar að hjálpa auðvaldslöndunum að ráða bót á orkuskorti og at- vinnuleysi? Þeir sem spyrja þessara spurninga eru með þvi að flækja málin og hindra að þeir öðlist nokkurn tima skiln- ing á eðli efnahagssamskipta austurs og vesturs.” Þannig hljóðar upphaf pistils frp-fréttastofunni Novosty, þar sem skýrð er efnahagssam- vinna Sovétrfkjanna og „auð- valdsheimsins i vestri”. Sifeilt berast fréttir af auðhringum margra landa, þar sem þeir setja upp hverja verksmiðjuna á fætur annarri i Sovétrikjun- um. Á móti fá Sovétmenn ýmiss konar „fyrirgreiöslu” á Vestur- löndum, svo sem bankaián og fleira. En eins og APN segir, þá skal enginn halda, að hagsmun- ir hvers aðila séu ekki gagn- kvæmir, „þótt hver hugsi um sig”, „Þvert á móti. Án gagn- kvæmra hagsmuna væri ekki um neitt samstarf að ræða. Ef þessi einföldu grundvallaratriöi eru höfö I huga kemur i ljós aö þaö er ekkert dularfullt við samskipti Sovétrikjanna við Vesturlönd. Hröð aukning þess- ara samskipta stafar af þvi að báðir aðilar hafa áhuga á þeim”. 10% innflutt Velta utanrikisviðskipta Sovétrikjanna var á siðasta ári u.þ.b. 51 milljarður rúblna. 10% ailrar vöru sem finnanleg er I verzlunum I Sovét er innflutt og 15% af tækjum og vélum í fyrir- tækjum er framieidd i útlönd- um. Viðskipti og verzlun við vestræn lönd fer vaxandi og hef- ur þrefaldast siðustu 5 árin. „Þetta fyrirbæri á sér eðliiega útskýringu”, segja Sovétmenn, „spennuslökun á alþjóðavett- vangi hefur valdið þvi að hluti þeirra miklu möguieika sem fyrir hendi eru á aiþjóðeglu samstarfi, er nú kominn til framkvæmda”. „Viðskiptamenn á Vestur- iöndum sannfærast um það I verki að enginn er að biðja þá um að hjálpa boisévikkum sjálf- um sér i óhag. Þeir hafa séð að það borgar sig að selja Sovét- mönnum vélar i bilaverksmiðj- ur og efnaverksmiðjur, leiðslur, einkaleyfi o.s.frv. Þeir hafa uppgötvað að Sovétmönnum er ' aivara, að þeir biðja ekki um hjáip, heidur bjóða til sam- starfs”. Hvers vegna gera Vesturlönd viðskiptasamninga við Sovét- rikin? APN hefur skýringu á reiðum höndum: „Sovétríkin ganga til móts við hagsmuni þeirra með þvi að gera samninga um samstarf á viðum sviðum og langt fram i timann. Slikur samningur er trygging fyrir stöðugri atvinnu, hann veitir möguleika á tækni- framförum og á þvi að leita sér að nýjum mörkuðum I ró og næði”. FtAT með stóra verksmiðju i Sovét FfAT reisti á sihum tima mikla verksmiðju í Sovétrikjun- um, sem nú framleiðir um 660 þús. bila á ári. Segir APN þetta hafa verið FIAT til „mikils á- litsauka, unnizt hafi timi til mikiila framfara I tækninni, þúsundir manna hafiatvinnu og vandamál umframf ramleiðsl- unnar” hafi verið leyst að veru- legu leyti vegna þessa. „Nú á dögum vekja samning- ar á borð við FÍAT-samningana ekki lengur undrun. Þaö hefur m.a.s. myndast hörð samkeppni um stóra samninga við Sovét- rikin. Tugir vestrænna fyrir- tækja og banka eru að opna full- trúaskrifstofur I Sovétrikjunum með það fyrir augum að stofna til beinna sambanda og til þess að fá nánari vitneskju um sölu- möguleika.” Arið 1975 voru viðskipti Sovét- rikjanna við nokkur iönd á þessa leið: við V-Þýzkaland námu þau 2.8 milljörðum rúblna, við Japan 1.9, við Finn- land 1.7, við Bandarikin 1.6, við ttaliu 1.4, við Frakkland 1.2 og við Bretland 0.96 milljörðum rúblna. „Augljóst er að viöskipti Sovétrikjanna við þessi lönd eru ekki i samræmi við efnahags- lega möguleika þeirra. Sem dæmi má nefna að Finnland nýtir mikiu betur möguleikana á samstarfi sem báðum aðilum er i hag, en önnur miklu stærri og voldugri riki. Engar raun- verulegar ástæður koma þó I veg fyrir að stóru rikin færi sér þetta samstarf i nyt, eins og ljóst má vera af þeirri reynslu sem þegar hefur fengizt.” —ARH ÞINGMENN Framhald af bls. 3. hefði verið látin biða. Það væri stefnan nú og hefði verið að svelta allan rekstur frystihúsa i Reykja- vik. Slikt gæti ekki haldið áfram. Það hlyti að koma að þvi að upp- byggingin hæfist hér i borginni. Arni sagði að aðstaða fyrir fólkið væri fyrir neðan allar hellur og þegar húsin hefðu verið byggð á sinum tima hefðu kröf- umar verið nánast engar um mannsæmandi aðstöðu fyrir verkafólkið. Þá benti hann á að þingmenn Reykjavikur fylgdust minna með atvinnurekstri höfuð- borgarinnar heldur en þingmenn landsbyggðarinnar gerðu í sínum kjördæmum. Hann sagðist ekki vera sammála þvi að stóru skut- togarnir hefðu verið slæm fjár- festing. Sú aðstaða gæti skapast að þeir yrðu mjög heppilegir. Að lokum vék Arni að karfa- verðinu. Sagði hann að við værum að gefa Rússum karfann fyrir 1100 dollara tonnið á sama tlma sem Bandarikjamenn greiða 1500 til 2000 dollara fyrir tonnið. Guðlaugur Tryggvi Karlsson benti á að sjávarútvegurinn væri undirstöðuatvinnuvegur, sem skapaði mikla atvinnu og gjald- eyri. Það væri ekki aðeins at- vinnan sem sjómennirnir fengju, heldur bæri einnig að lita á þessi mál i stærra samhengi, þar sem væri iðnaður og verzlun. I kring um allt þetta vinnur mikill fjöldi fólks. Guðlaugur sagði, að Reykjavik hefði greinilega orðið undir i upp- byggingu sjávarútvegsins. Þar þyrfti að vinna betur að en gert hefði verið til þessa. Tryggvi Þórhallsson taldi að algerlega skorti heildar skipu- lagningu á frystiiðnaðinum og fiskvinnslu i heild. Lánamálin væru eitt af stóru vandamálun- um, sem fiskiðnaðurinn og út- gerðin hefðu átt við að striða. Þá ræddi Tryggvi um verð- bólguna og áhrif hennar á allt at- vinnulif i landinu. „Það er verið að ausa fjármagni i mikinn f jölda illa rekinna fiskvinnslufyrir- tækja. Það er ekki aðeins verið að gera út á sjó. Það skulu menn hafa I huga. Það er einnig verið að gera út á verðbólguna og svo náttúrulega á bankana”. Umræðum lauk nokkru fyrir kvöldmat. Sagt verður frá um- ræðum sem fram fóru á sunnu- dagsfundinum.en þar voru iðn- aðarmálin rædd sérstaklega. -BJ. Aukin nýtíng vatns orkunnar MOSKVU (APN) — Vatnsorkan mun fá aukinn hlut i heildarorku- öfluninni á næstu fimm árum eða fram til 1980. A þessu timabili mun heildarafkastageta sovézkra vatnsorkuvera aukast um 15-16 milljónkw. Bygging stórra vatns- orkuvera i samræmi við þá stefnu, sem mörkuð var á 25. flokksþingi KFS, skapar mögu- leika til þess að leysa ýmis vandamál i samhengi: Rafvæðingu, vatnsöflun tilhanda iðnaði og til heimilisnotkunar, áveituvandamál, siglingar um fljót og vandamál i sambandi við fiskirækt. Þannig mun Bogutjanvatns- orkuverið (4 milljón kw), sem reist er við fljótið Angara i Siberiu, ekkfaðeins leggja stóru iðnaðarsvæði, sem byggir á timbur- og kola- og bauxitvinnslu, til rafmagn, heldur mun það og bæta skilyrði til siglinga um fljótið. Sajano-Sjusjenskaja- vatnsorkuverið (6.4 miljónir kw) mun leggja 120 stórum siber- iskum iðnfyrirtækjum til raforku. Uppistöðulónin við Nurek-, Tjarvak- og Toktogulorkuverin munu skapa möguleika til áveitu á yfir 10.000 ferkilómetra land- búnaöarlands. Og þegar orku- verin við Tjeboksari við Volgu og við Neðra-Kama taka til starfa, veröur jafnframt lokið viö að dýpka siglingaleiðina milli Norður- og Suöur-Evrópu, sem þá verður geng stórum flutninga- skipum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.