Alþýðublaðið - 21.10.1976, Qupperneq 14
14 LISTIR MENNING
Fimmtudagur 21. október 1976
alþýöu
blaöiö
Alþýðuleikhúsið sýnir:
Skollaleik
- nýtt íslenzkt leikrit eftir Böðvar Guðmundsson
Alþýðuleikhúsið frum-
sýndi nýtt islenzkt leik-
rit á Borgarfirði eystra
sunnudaginn 17.
október. Leikritið heitir
„Skollaleikur” og er eft-
ir Böðvar Guðmunds-
son, tónlist er eftir Jón
Hlöðver Áskelsson en
leikmynd, búninga og
grlmur gerði Messiana
Tómasdóttir. Leikstjóri
er Þórhildur Þorleifs-
dóttir. Hlutverk i leikrit-
inu eru 25 talsins og
leika þau Arnar Jóns-
son, Evert Ingólfsson,
Jón Júliusson, Kristin Á.
ólafsdóttir og Þráinn
Karlsson.
Skollaleikur gerist i Hamborg
og á Islandi á 17. öld. Leikritið er
byggt á sögulegum grunni þótt
frjálslega sé farið með atburði og
A söngæfingu hjá Alþýðuleikhúsinu: Frá vinstri: Þráinn Karlsson.
Jón Júllusson, Kristln ólafsdóttir, Evert Ingólfsson, Jón Hlööver
Askelsson og Arnar Jónsson.
A æfingu á skollaleik. Frá vinstri: Arnar Jónsson, Jón Júllusson, Þráinn Karlsson og Evert Ingólfs^on.
persónur. Það greinirfrá þýzkum
kaupmannssyni, Lars Mattheus-
syni sem gerist bartskeri og fylgi-
konu hans. Matthildi. Þau flýja til
Islands undan galdraofsóknum og
ofbeldi auk þess sem þau ætla að
lækna tslendinga af sárasótt.'Als-
landi kynnast þau auk sjúklinga
fyrirmönnum landsins, hinum
brennuglaða Þorleifi Kortssyni,
Runólfi biskupi lærða og Gisla
lögmanni visa á Hliðarenda. Þau
komast aö raun um að einnig á ís-
landi hefur galdratrúin fengið byr
undir báða vængi.
Þótt vettvangur Skollaleiks sé
fjarri okkar timum er efni hans
ætlað að skirskota til liðandi
stundar. 1 leikritinu er komið inn i
ýmis þau mál sem mjög eru á
vörum fólks i dag, jafnt hér á
landi sem annars staðar, svo sem
mútuþægni, misbeitingu valds,
ofsóknir og lagaflækjur.
Rétt er að taka fram að leikritið
er varla við hæfi barna.
Frumsýning var sem fyrr segir
á Borgarfirði sunnudaginn 17.
október en siðan verður sýnt út
vikuna á eftirtöldum stöðum i
þessari röð: Seyðisfirði, Nes-
kaupstað, Eskifirði, Stöðvarfirði,
Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði
laugardaginn 23. október. Að leik-
ferð um Austurland lokinni verð-
ur sýnt á Akureyri, en siðan hald-
ið til Reykjavikur og Skollaleikur
sýndur þar ásamt 1. verkefni Al-
þýðuleikhússins, Krummagulli.
Viltu
betri
verða
verkstjóri?
Námskeið fyrir verkstjóra í starfi
í vetur er ráögert að
halda þrjú almenn verk-
stjóranámskeiö á vegum
verkstjórafræöslunnar.
Námskeiöaf þessu tagi eru
almenn og höfða til sér-
hvers verkstjóra í starfi, ó-
háð því hvaða atvinnu
hann stundar. Fyrsta nám-
skeiðið hefst 1. nóvember,
en hvert námskeið stendur
yfir í fjórar vikur.
Almennu fjögurra vikna nám-
skeiðin eru haldin i tvennu lagi.
Tveggja vikna námskeið i hvort
sinn, meö u.þ.b. tveggja mánaöa
hléi á milli. Fyrri hlutinn er eink-
VIPPU - BltSKURSHURBItí
um helgaður hinum mannlega
þætti verkstjórnarinnar, verk-
stjórn og vinnusálfræöi. Farið er
yfir allt sem auðvelda mætti
mannleg samskipti á vinnustað.
Seinni hlutann er mestum tima
varið i námsefnin, vinnurann-
sóknir, vinnueinföidun og skipu-
lagstækni. Kynntar eru merkustu
aðferðir til að auka hagræðingu i
fyrirtækjum. Fjallað er nokkuð
um rekstrarhagfræöi, og farið yf-
ir helztu atriði i atvinnuheilsu-
fræði.
Eldvarnir og heimsókn i
slökkvistöð eru fastur liður á
hverju námskeiði.
Verkstjóranámskeið sem þessi
hafa verið starfrækt I fjórtán ár.
Tæplega 1000 manns hafa á þeim
tima notið verkstjórnarfræöslu á
þennan hátt.
Formaður stjrnar verkstjórn-
arfræðslunnar er Dolf J.E. Peter-
sen, verkstjóri. Aðrir í stjórn eru
Magnús Gústafsson fram-
kvæmdastjóri og Þórir Jónsson
framkvæmdastjóri. Daglegan
rekstur Verkstjórnarfræðslunnar
annast Iönþróunarstofnun Is-
lands, Skipholti 37.
—AB
Starfsemi ungtemplara
„Trölli á kreik á ný"
„Ungtemplarafélagið Trölli hóf
starfsemi sina i Félagsheimili
Bústaöakirkju miðvikudagskvöld
13. okt. si.
Ferðalög og dans munu eins og
I öðrum ungtemplarafélögum,
verða stór þáttur starfsins, en
fundir þess munu mótast af þeim
hugmyndum, sem væntanlegir
félagar koma til mað að búa yfir.
Eldri félagar verða þeim yngri
ti aðstoðar og leiðbeiningar.
Trölli, sem er opið öllum ung-
lingum 13-15 ára, hvetur þá sem
áhuga hafa á að starfa með sér i
vetur að mæta á miðvikudags-
kvöld.”
„Diskótek ungtemplara"
,,í framhaldi af fyrri reynslu
hafa islenzkir ungtemplarar
ákveðið aö gangast fyrir diskó-
tekum i Templarahöllinni, fyrir
unglinga 13 ára og eldri, á föstu-
dagskvöldum i vetur.
Tækjabúnaður og plötuúrval
hefur verið stórbætt frá þvi áöur.
Þegar hafa verið haldin þrjú
diskótek, þar sem um 200
unglingar hafa komiö saman i
hvert sinn.
Geta ber þess sérstaklega, að
engin vandamál af neinu tagi
hafa komiö upp, hvorki innan
húss né utan.”
2. STARFSARIÐ
Alþýðuleikhúsið er að
hefja annað leikár sitt.Það
hóf starfsemi sína eftir
síðustu áramót með
æfingum á nýju, íslenzku
verki, Krummagulli. Það
var frumsýnt á Neskaup-
stað sunnudaginn 28. marz
og síðan var það sýnt víða
um land fram til 5. júní.
Sýningar urðu alls 53.
Nú í haust var svo hafizt
handa með að æfa annað
nýtt, íslenzkt leikrit sem
hefur hlotið nafnið Skolla-
leikur. Þórhildur Þorleifs-
dóttir hef ur sett það á svið,
tónlist er eftir Jón Hlöðver
Áskelsson og Messíana
Tómasdóttir hefur hannað
leikmynd og búninga og
gert grimur. Höfundur
leikritsins er Böðvar
Guðmundsson.
Leikritið Skollaleikur er
byggt á hálfsögulegum
grunni. Það er látið gerast
á miðri 17. öld og fjallar
um galdraof sóknir og
valdbeitingu á þeim tíma,
þótt því sé ætlað að höfða
til ofbeldisaðgerða sem
víða tíðkast enn í dag.
Skollaleikur var frum-
sýndur á Austfjörðum um
miðjan október og verður
sýndur þar framundir
mánaðamót. Þá verður
haldið til Akureyrar og
dvalið þar i viku við endur-
æfingar á Krummagulli.
Síðan er áætlað að halda
með bæði leikritin tii
Reykjavíkur og verður
fyrsta sýning þar í Lindar-
bæ 3. nóvember. Skolla-
leikur og Krummagull
verða svo sýnd þar út
nóvember bæði opin-
berlega og í skólum.
( fyrra voru fastráðnir
fjórir leikarar að Alþýðu-
húsinu. Þær breytingar
hafa nú orðið á starfsliði
þessað Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikur í Krumma-
gulli í stað Maríu Árna-
dóttur sem dvelur nú
erlendis. Auk Þórhildar
hafa þeir Evert Ingólfsson
og Jón Júliusson verið
ráðnir að Alþýðu-
leikhúsinu. Arnar Jónsson,
Kristin Ölafsdóttir og
Þráinn Karlsson starf a þar
áfram, þannig að nú eru
sex leikarar starfandi við
leikhúsið.
X-k«rasr
Lagefstærðir miðað við jnúrop:
ÍJæð;210 sm x breidcl: 240 sm
2W) - x - 270 sm
Aflrar sticrðir. smiSaðar eftir beiðnt
GLUÍ4AS miðjan
Siðumúla 20, slmi 38220 _J
Skrifstofa félags ein-
stæöra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3-7 e.h.,
þriðjudaga miðvikudaga ol föstu-
daga kl. 1-5 Simi 11822. A fimmtu-
dögum kl. 3-5 er lögfræöingur
FEF til viðtals á skrifstofunni
fyrir félagsmenn.
Tækni/Vísindi
I þessari viku: Nýting sólarorku 3.
Dagur
SOLARORKU
1. Það var árið 1968 að
amerikumaðurinn Peter
Galser kom tram með þá
hugmynd að breyta sólar-
oj;kunni í örbylgjugeisla.
Geimferðastofnun Banda-
rikjanna, Nasa, hefur þróað
þessa hugmynd og gert hana
Jið veruleika.
2. Hugmynd Glasers var sú
að gerfihnettir á braut um
jörðu breyttu sólarorkunni i
örbylgjugeisla og sendu
hann áfram til jaröar.
<"SAFNARÍ
. SÓLARORKU
BREYTT I
UoRBYLGJUR
ORBYLGJUR
742-3
3. Sem fyrr segir eiga ör-
bylgjurnar greiða leið I gegn
um skýin tii jaröstööva, sem
breyta þeim i raforku.
4. Kerfi gerfihnatta á braut
um jörðu gæti séð fyrir raf-
orku alla 24 tima sólar-
hringsins.