Alþýðublaðið - 17.11.1976, Side 7
bSa^fö1 Miðvikudagur 17. nóvember 1976
IÞRÚTTIR 7
Norðurlandamótið í badminton:
Sterkasta íþróttamót,
sem haldið hefur
verið hérlendis?
Það styttist óðum i það, að
Norðurlandamótið i badminton
hefjist. Mikið undirbúningsstarf
hefur verið unnið að undanförnu
og allt að verða tilbúið. Erlendu
keppendurnir koma svo á föstu-
daginn.
Hún er þrefaldur Norðurlanda-
meistari og hefur hún unnið ein-
liðaleikinn þrisvar i röð. Þrisvar
sinnum hefur hún leikið til úrslita
i hinni óopinberu heimsmeistara-
keppni, All England.
Flemming Delfs. Hann er
Evrópumeistari i einliðaleik.
55 keppendur
Alls verða keppendur 55 talsins,
12 frá Danmörku, 12 frá Sviþjóð, 7
frá Noregi, 4 frá Finnlandi og 20
frá Islandi.
Keppnin hefst klukkan 11 á
laugardaginn og verður leikið
fram að undanúrslitum þann dag-
inn. A sunnudaginn hefst keppni
klukkan 9. Þá verða leiknir und-
anúrslitaleikir og er áætlað að
þeim verði lokið upp úr hádegi.
Verður þá stutt hlé á keppni, eða
til klukkan tvö< en þá verða leikn-
ir úrslitaleikir.
Aögangur aöeins
krónur 1000
Selt verður inn á keppnina i
þrennu lagi, a laugardaginn,
sunnudagsmorguninn og á úrslit-
in eftir hádegi á sunnudag. Kostar
fimm hundruð krónur í hvert
skipti. Einnig verður hægt að
kaupa einn miða, sem gildir báða
dagana og mun hann kosta þús-
und krónur, svo óhætt er að full-
yrða, að verðinu er stillt mjög í
hóf.
Einvalalið
Danir og Sviar hafa einokað
Norðurlandamótin til þessa. Frá
upphafi hefur engin önnur þjóð
hlotið gullverðlaun, en fyrsta
Norðurlandamótið var haldið árið
1962.
Báðar þjóðirnar senda einvala-
lið að þessu sinni, allar sinar
skærustu stjörnur. Af frægum má
nefna:
Lenu Köppen. Hún er ein
fremsta einliðaleikskona i heimi.
Elo Hansen. Mikill sprellikarl
og „teknikasti” badmintonleikari
i heimi. Leikir hans eru oft hrein-
ar sýningar.
Svend Pri. Einn fremsti bad-
mintonmaður heimsins i dag.
Hefur þrisvar orðið heimsmeist-
ari, þrisvar Norðurlandameist-
ari. Þess má til gamans geta, að
ef hann „smassar”, og boltinn
hittir ekki i net spaða hans, held-
ur i trégrindina utan um netið,
brotnar spaði hans yfirleitt i mél,
slikur er höggkrafturinn.
Bengt Frömann og Thomas
Kihlström. Þeir komu á óvart i
siðustu heimsmeistarakeppni og
sigruðu i tviliðaleik. Þeir eru
einnig Norðurlandameistarar i
greininni.
Sture Johnsson. Fremsti bad-
mintonmaður Svia og núverandi
Norðurlandameistari i einmenn-
ing.
Ótal fleiri mætti telja, en fólki
er ráðlagt að koma sjálft og sjá
þessa snillinga.
Þess má geta aðsjálfsagt hefur
aldrei verið haldið sterkara mót á
Islandi. Hér mætast þrir heims-
meistarar, Norðurlandameistar-
ar, Evrópumeistarar, Danmerk-
ur-, Sviþjóðar-, Finnlands-, Nor-
egs- og tslandsmeisharar svo tug-
um skiptir.
Enginn islenzkur badminton-
unnandi ætti að láta þetta ein-
staka tækifæri ganga sér úr greip-
um, ennfremur ættu þeir, sem lit-
ið vit hafa á iþróttinni að ko ma og
kynna sér hana. Um helgina geta
menn séð, lært, hrifizt og glaðzt
yfir þvi bezta, sem gerist i bad-
mintonheiminum.
—ATA
tsleuzkuþátttakendurnir á Norðurlandamótinu, sem fram fer um helg-
ina. Lengst til hægri er Friðleifur Stefansson, en hann hefur iátið þau
orð falla, aö ef hann verður Norðurlandameistari, mun hann raka af
sér skeggið, svo það er til nokkurs að vinna.
Andstæðingar FH í Evrópukeppninni annað kvöld:
Bezta handboltalið
Póllands í fimm ár
A morgun munu FH-ingar
leika fyrri leik sinn i Evrópu-
keppni meistaraliða, i annarri
umferð. Andstæðingar þeirra
eru ekki af lakari gerðinni, eða
pólska liðið WSK Slask.
Frekar litið er vitað um Slask,
nema hvað liðið er efst i Pól-
landi um þessar mundir, með 23
stig eftir 12 umferðir. Að sögn
landsliðsþjálfarans okkar, sem
er Pólverji, hefur Slask verið
bezta liðið i Póllandi i fimm ár.
Til samanburðar má geta þess,
að Slask og Mai frá Moskvu,
sem lék við Valsmenn, léku einn
leik i Odessa fyrir skemmstu.
Mai vann þann leik með eins
marks mun.
1 Slask eru þrir landsliðs-
menn, þeirra á meðal Klempell,
risavaxinn sóknarmaður, sem
skorar að meðaltali tiu mörk i
leik i deildarkeppninni.
Markvörður liðsins er jafn-
framt þjálfari þess og heitir
Kowalezyk. Janus landsliðs-
þjálfari telur, að hann sé næst
bezti markvörður Pólverja, en
hann gefur ekki kost á sér i
landsliðið. 1 liðinu eru ennfrem-
ur tveir fyrrverandi landsliðs-
menn.
Er Janus var spurður að þvi,
hvort leikmenn Slask væru at-
vinnumenn i handbolta, sagði
hann, að þeir væru hermenn,
sem ekki stunduðu hermennsku.
Léttur og skemmtilegur
handknattleikur
Eftir þvi, sem við höfum
kynnzt af pólskum handknatt-
leik, vitum við, að hann er yfir-
leitt léttur og skemmtilegur.
Það er einnig vitað, að Slask
leikur fastan varnarleik, svo aö
jafnvel má búast við stymping-
um annað kvöld.
Er Janus, landsliðsþjálfari
var spurður að, hvort liðið hann
teldi sigurstranglegra i leiknum
annað kvöld, sagði hann, að
sjálfsagt væri Slask sterkara en
FH, en sennilega yrði litill
markamunur i leiknum hér
heima.
FH-ingar buðu Pólverjunum
að leika báða leikina hér heima,
en þeir afþökkuðu það boð,
höfðu heyrt um frammistöðu
FH i Evrópukeppninni.
Auðunn óskarsson
meö á ný.
Þess má geta, að Sæmundur
Stefánssön meiddist nýlega og
getur ekki tekið þátt i leiknum
annað kvöld. Auðunn Óskars-
son, sá gamalreyndi handfcnatt-
leiksmaður, féllst á það að taka
stöðu hahs i leiknum, en Auðunn
er í góðu formi um þessar
mundir. Auðunn hefur verið frá
keppni i meistaraflokki i rúmt
ár, en annað kvöld mun hann
leika sinn 250. leik með FH.
Dómarar verða danskir,
Thomasen og Wöhlk.
Forsala aðgöngumiða verður
' i Iþróttahúsinu i Hafnarfirði i
dag frá klukkan 17-21. Menn eru
hvattir til að notfæra sér forsöl-
una til að forðast biðröð við
Laugardalshöllina annað kvöld,
þvi vafalaust munu margir ætla
sér að sjá þennan spennandi
leik.
—ATA
W J!5t XJrtj • jStEa 1 i á \ P
A H-F X 49 t.: \4/f 1J Æ fé •,
Stofnendur Knattspyrnufélagsins Hauka.
Fremriröð fr. v.: Jón Halldórsson, Þórður Guðbjörnsson, Bjarni Sveinsson, Magnús Kjartansson, Karl
Auðunsson fyrsti formaöur fél.
Aftari röð fr. v.: Sófus Bertelsen, Sigurgeir Guðmundsson, Jens Sveinsson, Hallgrimur Steinsson, Jó-
hannes Einarsson, Helgi Vilhjálmsson, Geir Jóelsson. A myndina vantar Óskar A. Gfslason.
Haukar með veg-
legt afmælisrit
Knattspyrnufélagið Haukar i
Hafnarfirði hefur nýlega gefið út
veglegt afmælisrit, en félagið er
45 ára á þessu ári. Það er þvi vel
við hæfi, að hið langþráða mark
Haukanna, að koma sér upp eigin
iþróttahúsi, er nú i sjónmáli.
Félagsheimilið hefur verið tekið i
notkun og skammt i það, að i-
þróttahúsið verði tekið til al-
mennrar notkunar.
Samvinnutryggingar sigruðu í
firmakeppni Bridgefélags Borgarness
Upphafið að stofnun knatt-
spyrnufélagsins Hauka var það,
að þrettán dregnir komu saman i
húsi KFUM i Hafnarfirði þann 12.
april 1931, til að stofna iþrótta-
félag. KFUM-mennirnir Jóei Ing-
varsson og Friðrik Friðriksson
aðstoðuðu drengina dyggilega.
Nýlokið er firmakeppni
Bridgefélags Borgarness, en
hún er einmenningskeppni og
jafnframt einmenningsmeist-
aramót félagsins.
Bridgefélag Borgarness á nú
25 ára afmæli og er ætlunin að
efla starfsemi þess mjög og
minnast á ýmsan annan hátt
þessara timamóta.
Það kom sér þvi ákaflega vel,
að hvorki meira né minna en 54
fyrirtæki og einstaklingar
styrktu nú félagið með þátttöku
i firmakeppninni og kann félag-
ið þeim öllum sérstakar þakkir.
Hér var um þriggja kvölda út-
sláttarkeppni að ræða og voru 26
firmu i úrslitum. Keppt var um
veglegan farandbikar.
Orslit urðu sem hér segir:
1. Samvinnutryggingar —
Unnsteinn Arason, 62 st.
2-3. Agúst Guðmundsson —
Jórunn Bachmann, 60 st.
2-3. Otibú K.B. —
Jenni ólason, 60 st.
4-5. Verkfræðist.Sig.Thorodd-
sen
Guðjón Karlsson, 56 st.
4-5. Steinar og Jóhann —
Guðmundur Arason, 56 st.
6. Vinnustofa Þóris —
Jón Einarsson, 54 st.
7. Loftorka s.f. —
Magnús Þórðarson, 53 st.
t keppninni um einmennings-
meistaratitil félagsins réði
samanlagður árangur allra
þriggja kvöldanna úrslitum og
urðu þau þessi:
1. OrnSigurbergsson 170 st.
2. Jenni Ólason 161 st.
3. Jón Einarsson 160 st.
4. Jórunn Bachmann 158 st.
5. Haraldur Jóhanness. 157 st.
6. GuðjónKarlsson 155 st.
7. Unnsteinn Arason 155 st.
Næsti þáttur i vetrarstarfi
Bridgefélags Borgarness er tvi-
menningsmeistaramót félags-
ins og stendur það væntanlega
fram yfir áramót.
Núverandi formaður félags-
ins er Guðjón Pálsson.
Fyrsti iþróttavöllurinn var
formlega tekin i notkun 7. Júli
1931.
Fuglaheiti voru greinilega i
miklu uppáhaldi hjá Hafnfirðing-
unum i þá daga, þvi þau nöfn,
sem helzt komu til greina voru
öminn Ernir og Haukar.
Fyrsti aðalfundur félagsins var
haldinn i KFUM-húsinu þann 6.
september '31 i sjöundu grein
laga félagsins, sem samþykkt
voru á fundi þessum segir: Leik-
svæði félagsins er heilög grund,
þar sem ekkert ósiðlegt i oröum
og athæfi má eiga sér stað.
—ATA