Alþýðublaðið - 17.11.1976, Page 14
14 LISTIR/MENNING
Miðvikudagur 17. nóvember 1976
Vetrar-
mót
Skákfélagsins
Mjölnis
Tefldar hafa verið 3 umferðir i
Vetrarmóti Mjölnis. Mótinu er
skipt i 9 riðla og eru keppendur i
þeim alls 93. í fjórum sterkustu
riðlunum er teflt á mánudags-
kvöldum i Fellahelli, en á laugar-
dögum i hinum.
A-riðil skipa eftirtaldir: Ingi R.
Jóhannsson, Ingvar Asmundsson,
Björgvin Viglundsson, Jónas Þor-
valdsson, Þórir Ólafsson, Bragi
Halldórsson, Asgeir Þ. Arnason,
Haraldur Haraldsson, Ami B.
Jónasson og Guðlaug Þorsteins-
dóttir. Guðlaug vann sér rétt til
þátttöku með sígri i B-riðli i
fyrra.
Meðal keppenda i B-riðlinú eru
Bjarni Magnússon, Benedikt
Jónasson, Bragi Björnsson og
fleiri kunnir meistarar.
1 þessari viku er sovézki stór-
meistarinn Taimanov væntanleg-
ur, en hann mun dvelja hér næstu
sex mánuði að minnsta kosti og
þjálfa skákmenn á vegum félags-
ins eins og kunnugt er. Kostnaður
vegna dvalar hans verður all
verulegur og er sifellt unnið að
fjáröflun og leitað leiða til úr-
lausnar i þeim efnum. Meðal ann-
ars verður á næstunni gefið út
skákblað, en i það rita margir á-
gætir skákmenn, efnt verður til
happdrættis og haldin verða
hraðmót.
A fimmtudagskvöldum kl. 20 er
Mjölnir með ,,15-minútna” mót i
Skákstofunni við Hagamel, en
slik mót þykja mjög vinsæl, og er
þátttaka yfirleitt góð.
Rauði krossinn heldur
Námskeiðið verður haldið i
kennslusal RKl að Nóatúni 21 i
Reykjavik og verður þátttaka
takmörkuð við 15manns. Einkum
er þess vænzt að þeir noti sér
þetta tækifæri, sem ekkihafa sótt
námskeið af þessu tagi fyrr. Sér-
fræðingur frá Norska Rauða
Krossinum hefur gert áætlun
fyrir námskeiöið og verður hann
kennurum til aðstoöar i þvi. Aðrir
kennarar verða islenzkir.
Margar af deildum Rauða
Krossins hafa haft það sem sér-
verkéfniað kaupa og jafnvel reka
sjúkrabifreiðir. Vegna þessa
hefur RKl efnt til nokkurra nám-
skeiða fyrir sjúkraflutningamenn
á undanförnum árum, m.a. i
Reykjavik, á Akureyri og Eski-
firði. Á þessum námskeiðum hef-
ur aðallega verið fjallað um ýms-
ar hliðar sjúkraflutninga og
slysahjálpar. Þá hafa þátttak-
endur rætt margvisleg vandamái
sem upp koma, svo sem fjarskipti
og vetrarakstur. A námskeiðinu
26.-28. nóvember verður svipað
efni tekið fyrir, en aðstoð norska
sérfræðingsins mun gefa tækifæri
til að kynnast ýmsum tækninýj-
ungum á sviði sjúkraflutninga.
Nýjar bækur:
■ ■
Jfe-, m ■
...
.: ■
;<v * í ^ 1
" X v ' -í'v '
í v ; ' ’ " , ?‘ '
'ffi
HJARTA
MITT
HRÓPAR
Á ÞIG
Hörpuútgáfan á Akranesi hef-
ur sent frá sér nýja bók eftir
danska rithöfundinn Erling
Poulsen. Þessi bók hefur verið
gefin út viða um lönd og þykir
ein af allra mest spennandi bók-
um þessa vinsæla höfundar.
Hún hefur verið endurprentuð
mörgum sinnum i Danmörku og
alltaf selzt upp.
Sagan gerist að hluta i Aga-
dir, þar sem jarðskjálftar og
flóðbylgja orsökuðu miklar
hörmungar 29. febrúar 1960. Ast
og dularfullir atburðir fylla sið-
ur bókarinnar.
Islenzkir lesendur þekkja
bækur Erling Poulsen, þvi að
nokkrar þeirra hafa áður komið
út á islenzku. Bók þessi er hin
fyrsta i nýjum bókaflokki
Hörpuútgáfunnar.
Skúli Jensson þýddi bókina.
Prentverk Akraness hf. hefur
annazt prentun og bókband.
Káputeikningu gerði Hilmar Þ.
Helgason.
Maggi
Mýslingur
eftir Richard Scarry
i þýðingu Lofts Guðmundsson-
ar.
Litil bók handa litlum börnum
með stórum myndum og stutt-
um sögum.
Bókaútgáfan örn og Oriygur
hefur gefið út fallega litmynda-
bók eftir hinn heimskunna
barnabókahöfund Richard
Scarry. Nefnist hún Maggi Mýs-
lingur og er þýdd af Lofti Guð-
mundssyni. t bókinni eru 11
stuttar sögur með stórum lit-
myndu,. Sögurnar heita: 1
sveitinni, Láttu Uglu mömmu
kenna þér að telja, Dóri á drátt-
arbátnum, Göltur bóndi, Arstið-
irnar fjórar, Sorgbitni hestur-
inn, Brúðuhúsið hennar Helgu
litlu, Kurteisi hvolpurinn, Keli
kettlingur á fiskveiðum, Grisinn
sem var óánægður með rófina á
sér og Kalli kanina.
FLETTI-
MYNDA-
BÆKUR
fyrir yngstu börnin.
Bókaútgáfan örn og örlygur
hefur gefið út tvær nýjar Fletti-
myndabækursem ætlaðar eru 3-
7 ára börnum. 1 fyrra komu út
tvær fyrstu Flettimyndabæk-
urnar og seldust þær strax upp.
Þær sem nú eru nýútkomnar
heita: Á STRÖNDINNI og í
DÝRAGARÐINUM, en báðar
bera þæryfirskriftina SKOÐUM
MYNDIR SEGJUM SÖGUR.
1 bókunum er enginn lesmáls-
texti þvi börnunum er ætlað að
semja sögurnar sjálfum. Lítil
börn hafa yndi af að semja og
segja sögur, og þau vilja láta
hlutina hreyfast,svo að eitthvað
gerist. I hvorri bók eru 24 lit-
myndaspjöld, sem hægt er að
fletta og raða saman i sögu-
myndir á 2400 vegu. Myndirnar
eru gæddar lifi og fjölbreytni.
Þar eru dýr og fuglar, tré og
blóm, skúraský, sólskin og sjór.
Bækurnar Skoðum myndir
segjum sögur veita börnunum
ómældar ánægjustundir og
þroska jafnframt skynjun
þeirra, auka orðaforða og þjálfa
athygli, hugmyndaflug og mál-
beitingu.
MINNING
FRÚ ELÍNBORG LARUSDÓTTIR
rithöfundur andaðist 5. nóv. s.l.
og var jarðsungin frá Hall-
grimskirkju 12. þ.m. á 85 ára
afmælisdegi sinum. Þar er
gengin merk kona Gg lim margt
mikilhæf. Hún er og verður
þjóðkunn, sem einn afkasta-
mesti rithöfundur okkar. 1 verk-
um sinum lýsir hún aidar-
háttum i islenzku þjóðlifi og þá
ekki hvað sizt þeim mannanna
börnum sem voru umkomulaus
og snauð, fólki, sem ekki féll inn
i „kerfi” sins tima.
Jafnframt varhini bókum sín-
um ótrauður boðberi sinnar
trúar um framhaldslif eftir
dauðann og ýmissa dulrænna
fyrirbrigða. Allt þetta þekkja
hennar mörgu lesendur, og þarf
ekki að ræða það nánar.
En frú Elinborg kom viðar
við. Hún var vei verki farin i öll-
um algengum störfum og hag-
leikskona við handavinnu. Hún
var fram til siðasta stjórnsöm
og hagsýn húsmóðir og kunni
vel að taka á móti gestum.
1 Þó heimili henna,- og sr. Ingi-
mars Jónssonar, hins gáfaða og
vinsæla manns, væri lengst af
umsvifamikið, þá gaf frú Elin-
borg sér lika tima tii að
sinna félagsstörfum. Það er
einmitt á þvi sviði sem ég vil
ekki láta hjá liða að tjá henni
þakkir minar og margra ann-
arra. I mörg ár var hún gjald-
keri i stjórn Kvenfélags Alþýðu-
flokksins i Reykjavik og þvi
starfi gegndi hún af þeirri kost-
gæfni sem henni var lagin. í öllu
lét hún sér annt um hag og heill
félagsins, og órofa tryggð hélt
hún við nánustu samstarfskonur
sinar. Þvi þótti okkur vænt um
hana. Nú þrátt fyrir háan aldur
hennar og vanheilsu, finnst okk-
ur skarð fyrir skildi við fráfall
hennar.
Ég vona einlæglega, að frú
Elinborg verði að trú sinni um
lif eftir hérvistar dauða. Sé sú
raunin á, efa ég ekki, að i þvi
nýja lifi verður hún sett til mik-
illa starfa.
Soffia Ingvarsdóttir.
Tækni/Vísindi í þessari viku: Lækning með rafsegulbylgjum 2. ■. c\a- _ á „w\\\ 1 7aa-2 r x ÆSH
Nýtizku rafsegullækningar
byggjast á útvarpsbylgjum,
sem sendar eru út á lengri
bylgjum geislasviðsins.
V08
: ^
Mri
Geislunin er ekki stöðug,
heldur er visst geislamagn
sent út með ákveðnu millibili.
Virk geislun getur varað frá
0.5% og allt upp i 3.9% þess
tima sem geislatækið er i
notkun.
Sú aðferð, s,em hér hefur verið
lýst kemur i veg fyrir að vef-
urinn sem lækna á ofhitni, likt
og myndi ske ef notuð væri
stöðug geislun á styttri bylgju-
lefngdum.
Læknar viðs vegar um heim *
hafa miklað ágæti þessarar
aðferðar og sagt hana gefa
góðan árangur, jafnvel þótt
þeir séu ekki vissir um hvað i
raun á sér stað-