Alþýðublaðið - 02.12.1976, Síða 8
Fimmtudagur 2. desember 1976 'i.bSaSið1*-
8 VEBKALYÐSIWIAL
OG BLÁSI SVO
TIL SÓKNAR GEGN
AUÐVALDI
,,Ég legg áherzlu á aö þessir
flokkar láti af þingræöislegum
tálsýnum sínum,, sagöi Jósep
Kristjánsson frá Verkalýösfélagi
Kaufarhafnar.
Jósep Kristjánsson, annar af
tveim fulltrúum verkamanna á
Raufarhöfn, sagöi eftirfarandi
þegar blaðamaöur Alþýöublaðs-
ins vék að honum nokkrum
spurningum i gær:
,,Ég kem hingað til að vinna að
samfylkingu verkalýðsflokkanna
til eflingar baráttu fyrir bættri
stöðu verkalýðsins. Ég ,legg
áherzlu á að þessir flokkar lati af
þingræðislegum tálsýnum sínum
og geri sér grein fyrir þvi, að það
er hin virka fjöldabarátta, sem
árangur kjarabaráttunnar
markastaf. Þess vegna vinni þeir
saman á lýðræðislegan hátt að
þvi að efla virkni verkalýðs-
stéttarinnar i félögum sinum og
blási svo til sóknar gegn auðvald-
inu.”
Þetta voru orð Jóseps
Kristjánssonar á ASl þingi i gær.
,,Þurfu
meira
Pétur Sigurðsson, fulltrúi Sjó-
mannafélagsins og alþingismað-
ur sagði á Alþýðusambandsþingi i
gærmorgun, að hann ætlaði sér
ekki, sem fulltrúi Sjómanna-
félagsins, að fara að halda uppi
vörn fyrir rikisstjórnina.
Af þvi mátti skilja að þingmað-
urinn Pétur Sigurðsson yrði að
hafa hljótt um sig meðan Pétur
Sigurðsson, fulltrúi sjómanna,
m að taka
af hverjum"
flytti mál sitt á ASl þingi.'
„Við Sjálfstæðismenn sem hér
erum.erum allir meira og minna
til vinstri.” Við þetta varð nokkur
hlátur i salnum og þótti sumum
erindið það merkilegt, að nauð-
synlegt væri að biðja Pétur að
endurtaka það, sem hann og
gerði.
En Pétur Sigurðsson lætur ekki
setja sig út af laginu. Alþingis-
maðurinn og stuðningsmaður
rikisstjórnarinnar hrópaði út yfir
salinn: „Við þurfum að taka
meira af hverjum manni heldur
en aðrar þjóðir. Við erum fámenn
þjóð og við þurfum að byggja
vegi, reisa sjúkrahús og fleira.
Það er þessvegna út i hött að
bera saman tekjur fólks i þessu
landi og i öðrum löndum.” Þannig
mæltist Pétri Sigurðssyni i gær.
„Ætla ekki, sem fulltrúi Sjd-
mannafélagsins, að halda uppi
vörnum fyrir rikisstjórnina,"
sagði Pétur Sigurðsson
Halldor Hafsteinsson sagöi aö
augljóst væri aö Framsóknar-
menn ætluðu aö standa viö hliöina
á ihaldinu
„Ekki skynsamlegt
að neyta aflsmunar"
Halldór Hafsteinsson fulltrúi
Félags bílamálara á þinginu
sagði að sér virtist augljóst að
þeir framsóknarmenn sem þingið
sætu ætluðu sér að standa fast Við
hliðina á ihaldinu.
„Það er ekki annað að sjá en að
þessir menn komi hér fram sem
stuðningsmenn rikisstjórnarinn-
ar”, sagði Halldór.
„Hinsvegar er ég þeirrar/sk
unar að vinstrimenn eigi alls ekki
að neyta aflsmunar til þess að
hrekja þessa menn út úr mið-
stjórninni,” sagði Hafsteinn.
Bentihann á að þetta væru full-
trúar fjölmennra hópa láglauna-
fólks og þeirra rödd yrði að fá að
heyrast. Á hinn bóginn taldi hann
að fulltrúar rikisstjórnarinnar
Jjefðu verið of sterkir innan mið-
stjórnarinnar og þvi væri nauð-
syniegtað gera nokkra breytingu
þar á.
Halldór sagði að kjaramálin og
stefnuskráin væru stærstu og
mikilvægustu mál þingsins. Hann
taldi stefnuskrána vera of al-
menna og taka ekki nægilega af -
gerandiafstöðu i einstökum mál-
úm, svo sem i herstöðvamálinu,
hei lbrigðismálum og lifeyris-
sjóðamálinu.
Benedikt Davfösson formaöur Sambands byggingamanna og Snorri
Jónsson, framkvæmdastjóri og varaforseti ASt ræöast viö á þinginu I
gær.
Fimmtudagur 2. desember 1976
WEBKALÝÐSIWIAL 9
F ALÞYÐUSAMBANDSÞINGi
Hermann Guömundsson, formaö-
ur lllifar og fyrrverandi forseti
ASt.
SÚ
sókn þarf að byrja
strax í dag
Hermann Guðmundsson, for-
maður Hlifar i Hafnarfirði og
fyrrverandi forseti Alþýðusam-
bandsins flutti ræðu á þinginu i
gær. Hann tók undir frá stefnu-
yfirlýsingu Björns Jónssonar við
setningu þingsins á mánudag, að
varnarstriðinu væri lokið og sókn
hafin.
Siðan sagði Hermann: ,,En sú
sókn þarf að byrja strax, strax að
loknu þessu þingi.” Hermann
sagðist tala fyrir munn hafn-
firzkra verkamanna þegar hann
sagði að verkamenn mundu ekki
’biða lengur.
Hann vék að verðbólguþróun
siðustu ára, gengissigum og
gengisfellingum, sem væru eitt og
hið sama. Nú væri svo komið að
þeir sem lægst hefðu launin lifðu
ekki af tekjum sinum „það erkjör
þessa fólks sem verður að bæta,”
sagði Hermann Guðmundsson.
,,Það er undiralda
hér á þinginu"
sagði Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja
Fulltrúar Vestmannaeyinga
eru ellefu á Alþýðusambands-
þingi að þessu sinni. Verkalýðs-
félag Vestmannaeyja er með tvo
fulltrúa, Verkakvennafélagið
Snót þriá fulltrúa, Sjómanna-
félagið Jötunn er með tvo fulltrúa
og siðan koma fjögur önnur félög
með einn fulltrúa hvert:
Verzlunarmannafélag Vest-
mannaeyja, Sveinafélag Járn-
iðnaðarmanna, Félag rafiðnaðar-
manna og Félag byggingar-
iðnaðarmanna.
Það var Jón Kjartansson, for-
maður Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja, sem fór eitthvað illa i
finu taugarnar á Pétri Sigurðs-
syni, fulltrúa Sjómannafélags
Reykjavikur, á fundi i gærmorg-
un.
Jón Kjartansson gerði þar
grein fyrir sérstakri ályktun sem
félag hans hefur gert um frum-
varp til laga um stéttarfélög og
vinnudeilur. t upphafi þessarar
ályktunar Segir á þessa leið:
„Vinnulöggjöfin hefur ávallt
veriö tæki auðstéttarinnar til að
takmarka stéttarbaráttu verka-
fólks og draga úr áhrifamætti
verkfallsvopnsins, hins eina
vopns er alþýðan hefur sér til
varnar, gegn linnulausum árás-
Jón Kjartansson vill losna viö
Sjálfstæöismennina úr miöstjórn-
inni
um auðstéttarinnar og óvinveitts
rikisvalds á kjör hennar.”
Siðan segir i ályktun þeirra
Vestmannaeyinganna:
„1 skjóli meirihluta afturhalds-
aflanna á Alþingi, hugsar auð-
stéttin sér enn til hreyfings.
Frumvarptillaga um nýja vinnu-
löggjöf verður lagt fram á þingi á
komandi vetri og er i þvf að finna
aukna skerðingu á öllum sviðum
baráttu alþýðunnar fyrir bættum
kjörum.”
Siðan er skorað á miðst jórn ASl
að beita öllu afli til að hrinda á
bak aftur þeirri „fólskulegu árás
á verkalýðsstéttina”, sem frum-
varpið um vinulöggjöf er.
Nánar verður greint frá þessari
ályktun siðar.
PéturSigurðsson tók til máls og
deildi hart á ræðu Jóns Kjartans-
sonar og ályktun þá um stéttar-
félög og vinnudeilur, sem hann
kynnti.
,,Ég hef aldrei lesið aðra eins
vitleysu og það sem Jón
Kjartansson hefur lagt hér
fram,” sagði Pétur Sigurðsson.
Þegar Jón Kjartansson var
spurður álits um þessi orð Péturs
sagði hann: „Ég tek þetta sem
mikið hrós þégar það kemur frá
Pétri Sigurðssyni.”
Þá var Jón Kjartansson spurð-
ur um þingið og störf þess al-
mennt. Jón sagði að láglauna-
félögin væru upp til hópa mjög ó-
ánægð. Fulltrúar þessara félaga
vilja þrýsta á um hreina vinstri
samvinnu. „Við viljúm losna við
Sjálfstæðismennina,” sagði Jón.
Blm.: — Hvað um Fram-
sóknarmennina?
JK.: „Framsóknarflokkurinn
er miðjuflokkur og þar skiptast
menn algerlega i tvö horn. Hins-
vegar er ég þeirrar skoðunar að
flestir Framsóknarmenn sem hér
eru á þinginu séu góðir sam-
vinnnumenn og vinstrisinnar.”
„Það er undiralda hérna á
þinginu. Okkur finnst hlutur lág-
launafólksins of litill i stjórn Al-
þýðusambandsins. Þvi þarf að
breyta,” sagði Jón Kjartansson
formaöur Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja.
„Ég held þaö væri skynsamlegt
aö hyggja að einhverjum breyt-
ingum,” sagöi Jón Ilelgason, for-
maður Einingar á Akureyri.
Ýmsar blikur
Jón Helgason, formaður
Einingar á Akureyri sagði að
nauðsynlegt væri að fá stefnu-
skrána bæðði fyrir miðstjórnina
og ekki siður fyrir aðildarfélögin
út um allt land.
Sagði Jón að stefnuskráin og
umræður um hana mörkuðu viss
timabót i sögu Alþýðusam-
bandsins og ef til vill gerðu ekki
allir sér fyllilega ljóst hversu-
mikilvægt spor hér væri verið að
stiga.
„Kjaramálin eru samt sem
áður stærsta mál þingsins,” sagði
Jón Helgason. „Þau eru mál mál-
anna nú eins og hingað til.”
Jón sagði að leggja þyrfti meiri
áherzlu á samvinnu innan sam-
bandanna. „Félögin innan Verka-
mannasambandsins hafa til
dæmis ekki verið nægilega sam-
stillt.”
Blm.: — Er eitthvað sérstakt
að gerast hérna hjá ykkur i sam-
bandi við kosningu miðstjórnar?
JH.: „Þessa stundina er ekki
hægt að segja neitt um það, en þvi
er ekki að leyna, að það eru ýms-
ar blikur á lofti.”
Blm.: — Er hægt að búast við
einhverjum breytingum?
JH.: „Ég held það væri skyn-
samlegt að hyggja að einhverjum
breytingum.” Þannig mælti Jón
Helgason þegar blaðam. ræddi
við hann um hádegisbil i gær.