Alþýðublaðið - 02.12.1976, Blaðsíða 16
á miðunum. Allir
Allt friðsamlegt
Sem kunnugt er áttu allir
brezkir togarar aö vera komnir
út úr islenzkri landhelgi um
miönætti i nótt. Fylgst var meö
feröum togaranna i gærdag eins
og vani er. Um tiu leytið i gær-
kvöldi benti ekkert til aö til
vandræöa drægi, aö sögn starfs-
manna Landhelgisgæzlunnar.
I gærmorgun voru tólf togarar
að veiðum á miðunum en um
fimm leytið voru þeir komnir
niður i 10. 1 togarivarvið veiöar
fyrir vestan og niu við Suö-
Austurlandiö.
„Þeir eru allir ákveðnir i að
fara, sagöi Gunnar Ölafsson hjá
Landhelgisgæzlunni.
1 fréttum i gær kom fram að
einn brezkur togari myndi ekki
hlýða skipunum og fara út úr is-
lenzkri landhelgi, eins og ætlast
væri til. Skipstjóri togarans
vildi, aðspuröur, ekki kannast
við það, og sagði þetta einhvern
misskilning. Hann var lagður af
stað heimleiðis i gær með allt
sitt hafurtask. Bendir þvi allt til
að brottför brezku togaranna
verði meðfriðsamlegum hætti,
en þeirhöfðufresttilmiðnættis i
nótt.
Er blaðið fór i prentun var allt
með kyrrum kjörum og flestir
bretar horfnir heim á leið.
Svo bregðast
krosstré...........
Þvi má bæta hér við að
dráttarbáturinn Magni, eitt öfl-
ugasta skip Landhelgisgæzl-
unnar, sigldi aftan á skut Týs,
er Týr var nýkominn úr alls-
herjarviðgerð i Álaborg. óhapp
þetta átti sér stað i Reykjavikur
höfn, og olli Magni talsverðum
skemmdum á Tý.
Það á ekki af blessuðum varð-
skipunum okkar að ganga, ef
það .eru ekki Bretarnir þá eru
það íslendingarnir. —AB
brezkir togarar ákveðnir að fara
Sjávarútvegsráðu neytið:
VERNDAR VEIÐARFÆRI
SUÐURNESJAMANNA
Aö beiðni stjórnar Útvegs-
mannafélags Suöurnesja, hefur
sjávarútvegsráðuneytið gefið út
reglugerö um sérstakt linu- og
netasvæði út af Faxaflóa, i þeim
tilgangi að koma i veg fyrir
veiðarfæratjón linu- og netabáta
af völdum togbáta, en veruleg
aukning hefur orðið á linuútgerð
frá Suðurnesjum á þessu hausti.
Samkvæmt reglugerðinni eru
allar togveiðar bannaðar, tlma-
bilið 8. desember 1976 til 15. mai
1977 á svæði út af Faxaflóa, sem
markast af linu sem dregin er
réttvisandi vestur frá Sand-
gerðisvita i punkt 64 gr. 02’ 4 N og
23. gr. 42’ 0 V — þaðan i punkt 64
gr. 20’4 N og 23 gr. 42’ 0 og þaðan
réttvisandi austur.
Þess skal getið að sjávarút-
vegsráöuneytið gaf einnig á sið-
astliðnu hausti út reglugerð um
sérstakt linu- og netasvæði út af
Faxaflóa.
—GEK
VEIÐISVÆÐI FYRIR
LÍNU OG NET
LINA OG NET
TIL 15/5
FRIÐAÐA SVÆÐIÐ ÚT
TIL AUSTURS
AF KÖGRI STÆKKAÐ
Samkvæmt reglugerð sem
sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út hefur friðaða svæðið út af
Kögri verið stækkað til austurs og
takmarkast svæðið nú af loran-
linunni 46880. Eru þvi allar veiðar
bannaðar á þessu svæði innan
linu, sem dregin er milli eftirtal-
inna punkta:
a) 67p17’0 n 23°51’0 v
b) 67°21 ’5 n 22B03’0 V
c) 67*02’4 n 21®47’0 V
d) 6Í57’0 n 2á*21’0 V
Skyndilokun
Samkvæmt ábendingu eftirlits-
manna sjávarútvegsráðuneytis-
ins Gunnars Hjálmarssonar, sem
var um borð i m/b Ingólfi Arnars-
syni og að viðhöfðu samráði viö
dr. Sigfús Schopka var hiö lokaða
svæði stækkað til suðurs og aust-
urs á miðnætti 27. nóvember s.l.
Var lokunin tilkynnt i útvarp og
um talstöðvar og er þetta i
fyrsta skipti sem gripið er til
slikrar skyndilokunar samkvæmt
heimild i lögum 8.1. 1976 um veið-
ar i fiskveiðilandhelgi Islands,
sem gilditóku 1. júli siðastliðinn.
Frekari rannsóknir á svæðinu
leiddu til þess, að Hafrannsókn-
arstofnunin gerði tillögur til
sjávarútvegsráðuneytisins um að
felld yrði úr gildi stækkunin til
suðurs en stækkunin til austurs
yrði látin gilda áfram, enda hefði
komið i ljós að á þvi svæði var
mest magn af smáfiski og fjöldi
þorsks undir 55 cm viðast hvar
um og yfir 60%.
—GEK
Hungurverkfall framhaldsskólanema:
Neyta einungis vatns í tvo sólar-
hringa
Um helgina gengst
kjarabaráttunefnd náms-
manna fyrir hungurverk-
falli námsfólks í fram-
haldsskólum til að mót-
mæla þeim kjaraskerð-
ingarárásum, sem náms-
fólk telur sig hafa orðið
fyrir að undanförnu.
Hungurverkfallið verður
haldið i húsakynnum Kennara-
háskóla Islands, og hefst klukk-
an 19.00 á föstudag. Veröur öll-
um dyrum hússins lokað fljót-
lega eftir þann tima, og verður
engum hleypt inn nema fulltrú-
um fjölmiðla, svo og læknum.
Þátttakendur munu koma úr
öllum framhaldsskólum, bæði
listaskólum, háskólum, og verk-
menntunarskólum. Munu þeir
dveljast i Kennaraháskólanum i
tvo sólarhringa, eða þar til kl.
19.00 á sunnudag, og einskis
neyta nema vatns þann tima.
Fyrirhugað er að hafa nokkuð
fjölbreytta dagskrá, meðan á
hungurverkfallinu stendur, og
verða þar kvöldvökur,
skemmtifundir, starfandi um-
ræðuhópar um menntun og
námslán, umræðufundir og
fleira.
Siðdegis á sunnudag verður
siðan haldinn fundur(um náms-
lán og menntunarmal, og hafa
menntamálaráðherra, fjár-
málaráðherra og formanni
Lánasjóös islenskra náms-
manna verið send bréf, þar sem
þeim er boðið að sitja fundinn,
og jafnframt að láta i ljós skoð-
anir sinar á lánamálum náms-
manna.
Læknavakt verður til staðar i
húsinu bæði á laugardag og
sunnudag frá klukkan 9 að
morgni og fram eftir kvöldi.
Hyggst kjarabaráttunefnd
kanna fjölda þátttakenda á
næstu dögum og verða sendir
listar á viðkomandi skóla, þar
sem námsmenn geta tilkynnt
þátttöku sina i hungurverkfall-
inu.
—JSS.
FIMMTUDAGUR
2. DESEMBER 1976
alþýðu
blaöið
HEYRT,
SÉÐ OG
HLERAÐ
HEYRT: Að tveir starfs-
menn lista- og skemmti-
deildar sjónvarpsins hafi
farið i boðsferð til Sovét-
rikjanna á þarlenda
sjónvarpsmyndaviku
hyggist nú bera fram
kvörtun við sovézka
sendiráðið i Reykjavik.
Astæðan er sögð sú að
móttökur þeirra hafi
verið allt annað en veg-
legar, þeir hafi orðið að
sæta niðurlægjandi
framkomu ýmissa rúss-
neskra embættismanna
og jafnvel orðið að
svelta. Enginn mun hafa
kannast við að þeir ættu
að vera þarna i boði
stjórnvalda og komu þeir
heim án þess að förin
hefði nokkurn árangur,
nema siðurværi
o
HEYRT: Að ýmsir stór-
kaupmenn séu óánægðir
með frammistöðu tals-
manna stéttarinnar á
blaðamannafundi og i
sjónvarpsþætti vegna
upplýsinga verðlags-
stjóra á dögunum. Hafa
sumir sagt að frumhlaup
þetta hafi aðeins vakið
athygli á þvi hve von-
laust hafi verið að verja
„málstaðinn” og eina
skynsamlega leiðin að
þegja og láta eins og ekk-
ert væri. Dæmið um á-
lagninguna á leikföngum
hafa slegið vopnin ger-
samlega úr höndum
heildsala og sýnir aðeins
hvernig ástand rikti hér i
verölagsmálum ef á-
lagning væri gefin frjáls.
o
SÉÐ: Að Morgunblaðið
heldur nú uppi linnulaus-
um og skipulögðum
árásum á Samband is-
lenzkra samvinnufélaga.
Þetta er að undirlagi
Eykons, sem fór mjög
halloka i siðustu kosn-
ingum og missti fylgi til
Ólafs Jóhannessonar. Nú
telur Eykon vindáttina
breytta og er meðal
þeirra ihaldsforkólfa
sem telur rétt að lát-
slag standa og hæt
stjórnarsamstarfi v
Framsókn.
o
HEYRT: Að fyrirspurn
hafi verið gerð til Rikis-
skips hvers vegna ekki
séu boðin út innkaup á
siglingatækjabúnaði en
aðeins keypt af einum og
sama aðilanum. Sama
mun gilda um land-
helgisgæzluna, sem um
áratugi hefur skipt við
sama aðilann, þrátt fyrir
samkeppnisfær og jafn-
vel betri tæki annars
staðar frá og stöðuga
þróun i tækjabúnaði.