Alþýðublaðið - 02.12.1976, Blaðsíða 14
Í4 LISTIR/MENNING
Fimmtudagur 2. desember 1976 igstsr
FIMM VERK A
FJÖLUM L.R.
Fimm verk eru nú á
fjölum hjá Leikfélagi
Reykjavikur, fjögur i
Iðnó og „Kjarnorka og
kvenhylli” i Austur-
bæjarbiói. Sýningar
leikhússins voru orðnar
64 þann 1. des. og
áhorfendur yfir 15 þús-
und i haust, en fáar
sýningar eru nú eftir
fram að jólafrii.
Æfingar standa nú yfir i Iðnó
á Makbeð, sem verður afmælis-
verkefni félagsins og væntan-
lega frumsýnt 11. janúar á 80
ára afmæli L.R. Er þar um aö
ræða viöamikið verkefni og
munu alls um 20 manns taka
þátt i sýningunni.
19. sýning á ungverska
gamanleiknum „Stórlaxar”
verður á föstudaginn og 20. i
næstu viku, en það eru seinustu
sýningarfyrir jól.Verkið fjallar
sem kunnugt er um tilþrif
peningamanna i léttum ádeilu-
tón. Myndin er úr bankastjóra-
veizlu (borsteinn Gunnarsson,
Margrét ólafsdóttir, Guðmund-
ur Pálsson).
42. jóla-
merki Fram-
tíðarinnar
Kvenfélagið Framtið-
in gefur út jólamerki
fyrir jólin nú, eins og
félagið hefur gert und-
anfarin ár, frá árinu
1934.
Ragnar Páll, ljós-
myndari, hefur að þessu
sinni teiknað jóla-
merkið, en ágóði af sölu
merkjanna rennur til
elliheimilanna eins og
undanfarin ár.
Merkið er selt i Fri-
merkjahúsinu, Lækjar-
götu 6A og Frimerkja-
miðstöðinni, Skóla-
vörðustig 21A og kostar
kr. 10. —AB
Málverka-
sýning
Fyrir nokkru opnaði Agnar
Agnarsson málverkasýningu aö
Grensásvegi 11, sýningarsal
Byggingaþjónustu Arkitekta-
félags Islands.
A sýningunni eru um 50
myndir aðallega i oliu og
aquarell. Opiö veröur frá 17-22
daglega fram til 12. desember.
Lokað verður dagana 30.
nóvember og 2. desember.
—AB
Almenna Bókafélagið, nýjar bækur:
Gjafir eru yður gefnar - Ekki fædd í gær
- Haustheimtur - Leikið við dauðann-Evrópa
Haustheimtur, smásagnasafn
eftir Guðmund Halldórsson frá
Bergstöðum.
Haustheimtur geymir 8 sögur,
mannlifsmyndir flestar úr
sveitinni eftir að fækka tók þar
um fólk og vélin er komin i stað-
inn fyrir manneskjurnar. Um
bókina segir á bókarkápu:
„Sögurnar i Haustheimtum eru,
eins og fyrri sögur Guömundar
Halldórsdónar, yljaðar samúð
ogskilningi höfundar, sem horf-
ir vökulum augum yfir sögu-
sviðin. Rik tilfinning fyrir sam-
lifi mannsins við náttúruna,
eftirsjá hans, tryggö hans og
vinátta, oft blandin kaldhæðni
kviðvænlegra örlaga, gefur frá-
sögninni sjaldgæfa dýpt, sem á
sér jafnt stað i stilnum og sögu-
efninu sjálfu.”
Haustheimtur er kilja 128 bls.
að stærö, prentuð í prentsmiðju
Arná Valdimarssonar.
Leikið við Dauöann.
Skáldsaga eftir banda-
rikjamanninn James Dickey.
Höfundurinn James Dickey er
vel þekkt bandariskt ljóðskáld,
sem sent hefur frá sér þessa
einu skáldsögu og metsölubók.
Hér er um að ræða spennandi
frásögn af ævintýralegu ferða-
lagi fjögurra vel metinna
borgarbúa niður eftir straum-
höröu stórfljóti I Bandarikjun-
um. Þeir lenda I ótrúlegum
erfiöleikum, bæði i baráttu við
hrottafengna kynvillinga, sem
leynzt hafa í skóginum, sem
fljótið fellur i gegnum, og viö
náttúruöflin, enda koma ekki
allir lifandi úr ferðinni.
Þýöandi bókarinnar er Björn
Jónsson.
Leikið við dauðann er 208 bis.
aö stærð, prentuð i prentsmiðju
Arna Valdimarssonar.
Ekki fæddur i gær
eftir Guðmund Gislason
Hagalin.
Út er komin hjá Almenna
bókafélaginu bókin Ekki fæddur
Igær—séð, heyrt, lesið og lifað,
— eftir Guömund G. Hagalin.
Eins og undirritillinn gefur til
kynna er þetta hluti af sjálfs-
ævisögu Hagalins, beint
framhald af Stóð ég úti I tungls-
ljósi.semkom út 1973. Hér segir
frá árunum 1920—24, en 3 ár
þessa tima var höf. ritstjóri á
Seyðisfirði , og siðan
póstafgreiðslumaður i Reykja-
vik, unz hann hélt ásamt
fjölskyldunni til Noregs haustiö
1924.
Hér kennir margra grasa eins
og venja er hjá Hagalin, eða
eins og segir á kápu:
„Ekki fæddur i gær er bók
lifsfjörs og bjartsýni. Hún lýsir
þroskuðum manni, sem varð-
veitt hefur bernsku hjartans
þrátt fyrir óvenjumargháttaða
lifsreynslu, verðandi skáldi,
sem er að gefa út sinar fyrstu
bækur.”
Auk þess er I bókinni lýst
mörgu fólki, sem verður á vegi
höfundar, þekktu og ekki
þekktu, og nýtur sin val I þeim
lýsingum hins glögga auga
Hagailns fyrir sérkennum
manna.
Af kunnu fólki sem hér kemur
við sögu má m.a. nefna Kristján
Kristjánsson lækni, Inga T.
Lárusson, Sigurður Nordal,
Stefán frá Hvitadal, Þórberg
Þórðarson, Pál Eggert óiason
o.m.fl.
Bókin er 264 bls. að stærð, sett
I Prentstofu G. Benediktssonar
og prentuö i Isafoldarprent-
smiðiu.
Gjafir eru yður gefnar
eftir Jóhannes Helga
sent frá sér bókina Gjafir eru
yður gefnar— greinasafn eftir
Jóhannes Helga. Er hér um aö
ræða 32 greinar og ritgerðir um
ýmis efni sem birzt hafa I blöö-
um og timaritum á tímabilinu
1957—75.
Kristján Karlsson ritar
formála fyrir safninu og segir
þar m.a. „Skáldsagnahöfund-
urinn Jóhannes Helgi hefir
skrifað margar greinar um
ýmisleg efni gegnum árin.Hann
hefur að vlsu ekki fengizt við
ritgerðir að staðaldri, heldur
oftar en hitt skrifað greinar aö
gefnu tilefni. Eitt viðfangsefni
gengur eins og rauður þráður i
gegnum margar greinar hans:
hagsmunir rithöfunda og ann-
arra listamanna I hinu Islenzka
samfélagi, sem virðist vilja list,
en ekki listamenn, nema til
hátíðabrigða..”
Og enn skrifar Kristján:
„Yfirleitt er still hans á rit-
gerðunum mælt mál, hann talar
ýmist beint til andstæðingsins
eða lesandans af hita og tilfinn-
ingu, svo að það er aldrei
pappírsbragð að máli hans.
Hinsvegar minnir still hans oft á
ræðumann, sem hefir að visu
samið ræðu sina heima, en
fleygt blöðunum, áöur en hann
kemur fram á sjónarsviðið...”
Hispursleysi og hreinskilni er
óhætt að segja einkenni þessara
greina.
Bókin er 148 bls. að stærð,
kilja af stærri gerð, sett i Prent-
smiðju Morgunblaðsins og
prentuð I Prentsmiðju Arna
Valdimarssonar.
Evrópa
Evrópa er handbók um
Evrópulönd, jaröfræði þeirra og
náttúru, atvinnuvegi og
mannlif. í bókinni eru skýr
landabréf Evrópulanda, þar
sem merktir eru helztu staðir
sem fólk spyr um, svo sem
borgir, vegir, járnbrautir, brýr,
fljót og meiri háttar fossar,
kirkjur, kastalar og aðrir
merkisstaðir, námur o.s.frv.
Auk þess er rúmur helmingur
bókarinnar annar fróðleikur um
þessi lönd, jarðfræðilega mótun
þeirra, gróður og veðurfar,
byggð og fólksfjölda, atvinnu-
hætti og framleiöslu, viðskipti
og efnahag, tungumál og
þjóðerni, samgöngu, lög,
stjórnarfar o.s.frv. Þá er sögu-
legur kafli um stórveldi I
Evrópu gegnum aldirnar og
drauminn um sameinaða
Evrópu, sem oftar en einu sinni
hefur kveikt i hermönnum og
stjórnmálamönnum.
Þessi fróðleikur er allur sett-
ur fram á sem gagnorðastan
hátt og i töflum, myndum og
sérkortum yfir margvislegustu
efni.
Bókin er þvi einkar handhæg
uppsláttarbók, enda eru siðast i
henni mjög nákvæmar skrár,
bæði nafnaskrár úr kortahluta.
og nöfn og atriðisorð úr inn-
gangshluta.
Til frekari glöggvunar um
efnið skulu talin hér upp atriöis-
orðin sem fylgja íslandi i
atriðisoröaskránni:
1) aðild að alþjóðasamtökum
2) deilur um fiskveiðilögsögu
3) fólksfjöldi
4) framleiðsla
5) jarðfræði
6) kosningar siðan 1945
7) kosningaréttur
8) landslag og staðhættir
9) óhað dómaraembætti
10) samgöngur
11) velmegun
12) verzlun
13) þjóðarframleiðsia
14) þjóðlifslýsing.
Tækni/Vísindi Árlegar sveiflur líffræðinnar 3.
Ikornarnir, sem lágu I dvala I
einangruðu herbergi slnu i há-
skólanum i Toronto, vöknuðu
skyndilega um miöjan april-
mánuð.
Innan fveggja klukkustunda
hækkaði likamshiti þeirra frá
1 gráðu til 37 gráða á celsius.
Þá hófu ikornarnir aö éta eins
og ekkert hefði i skorist.
, Þrátt fyrir að ytri aðstæöur i
gerfiumhverfi ikornanna væru
ekki i samræmi við raunveru-
X'
Aframhaldandi rannsóknir
leiddu i ljós aö ikornarnir
höfðu innibyggða liffræðilega
klukku, sem háð var árstiðun-
um.
leikann úti fyrir fór llkams
ástand þeirra algerlega eftir
árstíðasveiflum i náttúrunni.
Það var þvi ekki fyrr en i
október næsta haust að ikorn-
amiri einangrunarherberginu
i Toronto lögðust i dvala á
ný.