Alþýðublaðið - 21.01.1977, Síða 11
£!£$&** Föstudagur 21. janúar 1977.
ÚTLðNDll
LÍKUR A AD MIKILL HLUTIJAPANSKA FISKI-
FLOTANS FARI í BROTAJARN OG ELDSNEYTI
„Kolumbus fann Ameriku, en við höfum fundið
fengsælustu fiskimið veraldarinnar”, er haft eftir
japönskum framámanni. „Forfeður okkar hættu
lifinu til að leita fiskjar á ókunnum og hættuleg-
um hafslóðum. Það er hvorki sanngirni né vit i,
að svipta okkur möguleikum til að fiska á miðum,
sem við fiindum fyrstir og höfum siðan hagnýtt”.
Þrátt fyrir þessa „röksemda-
færslu” eru fremur litlar llkur
til að risaveldin verði sérlega
tagltæk I fiskimálavanda
Japana. Sovétrikin missa um
60% af aflamagni sinu á kom-
andi yfirráðasvæðum annarra
landa eftir að 200 milna lögsag-
an tekur gildi almennt. Þau
verða þvi að freista að bæta sér
það upp með þvi að gjörnýta
miðin við austurströnd Siberiu
og í Beringshafinu.
Hvað viðvikur Bandarikjun-
um er vert að geta þess, að það
munu verða yfirvöld hinna ein-
stöku fylkja, sem taka ákvarð-
anir um fiskveiðiheimildir til
erlendra eftir að þeirra eigin
þegnar hafa fengið sinn kvóta.
Þar kemur alrikisstjórnin ekki
til að fjalla um.
Margt bendir til, að heimildir
Sovétmanna til Japana tak-
markist við 200 þús. tonna afla.
En það er álika afli og Rússar
hafa hirt úr Japanshafi fram að
þessu og allt upp að þriggja
milna landhelgismörkum, sem
enn gijda i Jaðan, Japönum til
sárrar hrellingar.
Þetta hefur i för með sér, að
stóru fiskihafnarborgirnar á
Hokkaido verða að draugaborg-
um. Kushiro, sem hefur á að
skipa 245 verksmiðjum i fiskiðn-
aði og hefur fram til þessa feng-
ið til vinnslu árlega um 850
þúsund tonn af fiski, missir
sennilega um 70% af þessum
afla.
Landhelgisstrið við Rússa er
fyrirfram dauðadæmt, og á
nokkrum árum hafa Rússar
tekið rösklega 1800 fiskibáta,
japanska og um 20 þúsund
japanskir fiskimenn hafa verið
settir timabundið i rússneskar
fangabúðir!
Krafa fiskimanna á norðlæg-
ari eyjum Japans er, að rikis-
stjórnin færi tafarlaust út fisk-
veiðilögsöguna i 200 milur! En
af skiljanlegum ástæðum er
stjórnin ekki sérlega fikin i það
eins og nú standa sakir.
Fangaráðið virðist vera að
kaupa með allskonar efnahags-
legri hjálp, fiskveiðiréttindi i
ýmsum vanþróuðum rikjum.
Þrjár sendinefndir eru nú á ferð
og flugi milli um 40 slikra rikja i
þessum erindagerðum. Þar eru
stóru fiskveiðihringarnir að
verki. Talsmenn þeirra láta I
ljós þá skoðun, að hagkvæmir
samningar fyrir Japan mun
nást á þessum grundvelli.
Fjölþjóða fiskveiðihringar
okkar munu hirða meginhlut-
ann af þvi, sem útfærsla fisk-
veiðilögsögu þróunarlandanna
færir þeim, segja Japanir og
þetta mun þýða, að fiskveiöa-
veldi okkar stækkar!
Tiu stærstu fiskveiðifélög
Japana hafa haft I slnum hönd-
um 75% af heildarafla landsins,
en um 200 þúsund hinna smærri
hafa aðeins haft um 15%.
Úthafsveiðin hefur gefið æfin-
týralegan hagnað og hefur
skapað sterka auðstétt fiski-
manna á sama tima og kjör
grunnsævaríiskimanna við
strendurnar hafa sifellt orðið
lakari. Fjöldi báta- og skipaeig-
enda hafa neyðzt til að selja at-
vinnutæki sin, unga fólkið héfur
dustað ryk átthaganna af fótum
sér og flutt burtu úr smástöðun-
um.
Vekja má athygli á, að hlut-
deild fiskveiða I rikisaðstoð er
aðeins fimmtungur þess, sem
landbúnaðurinn fær.
Othafsveiðarnar hafa svo leitt
til þess, að vanrækt hefur verið
að leggja nokkra verulega rækt
með stórhættu fyrir nálæg lifrlki
náttúrunnar.
Afrennsli frá verksmiðjunum
hafa raunar breytt Kyrrahafs-
ströndinni i allsherjar safnfor
og matfiskur, sem Japanar
neyta nú frá Afriku ströndum
eða frá ströndum Mexikó i stað-
inn fyrir að áður var hann
veiddur á heimamiðum.
HDÍiSHU
o r.'.jés 2ro
Main fiCEds ———•
Proj»ctf?c( *» --—>—
Mair. Sa'J.vyays----------
A svæðisem nú mun falla undir rússneska fiskveiðilögsögu, veiddu
Japanir 1,8 milljón tonna á liðnu ári.
við grunnsævisútgerð við
strendurnar. Hér við bætist, að
iðnaðurinn hefur hremmt til sin
og fyrir starfsemi sina mörg
áður mikilvæg strandsvæði.
Talið er að þurrkaðir hafi verið
upp 100 þúsund hektarar undir
allskyns verksmiðjurekstur
Nýr fiskur mun verða
„lúxusmatur” i Japan.
En hvað er helzt til ráða?
Ekkert annað en sársaukafullur
uppskurður getur bjargað okk-
ur, segir i Ashi Shimbun
fiskimálablaði þeirra. Þar er
viðurkennt, að útfærsla i 200
milna fiskveiðilögsögu hafi i
för með sér hrun hins stórbrotna
verksmiðjukerfis i fiskiðnaði.
Þá verður ekki lengur kostur
ævintýralegra uppgripa og stór
hluti fiskiflotans mun hljóta
sömu örlög og hvalveiðiflotinn
áður — fara I brotajárn og elds-
neyti —ef ekki finnast ný feng-
sæl mið.
Fiskiðnaðurinn verður að
draga stórlega saman seglin og
endurskipuleggjast. Það verða
aðeins tiltölulega fá af hinum 18
þúsund úthafsveiðiskipum, sem
fá verkefni á heimaslóðum.
Þetta mun þýða gifurlega
verðhækkuná fiski og fiskiðnaö-
arvörum og fjöldi tegunda mun
hverfa af markaðnum. Auðvitað
bitnar þetta harðast á láglauna-
fólkinu! Það verða bara rikis-
bubbarnir, sem hafa efni á að
kaupa fisk, fátæklingarnir
verða að láta sér nægja niður-
suðuvörur er haft eftir einum
verkalýðsleiðtoga!
Einna erfiðast verður að
breyta matarvenjum fólks og
sætta það við að borða fiskteg-
undir, sem fram til þessa hafa
aðeins verið notaðar sem
skepnufóður eöa jafnvel til
áburöar. Hér kann allskyns
niðursuða að verða áhrifarik-
ust, einnig geta skapað tals-
verða atvinnu.
Timi sóunar er liðinn, segir
einn af talsmönnum Japana. Nú
þegar verðum við að flytja inn
allt að þriðjung af matvælum
okkar. Ef við eigum að neyta
ástralsks kjöts I stað fisksins
kostar það okkur 14 milljaröa i
erlendum gjaldeyri og við höf-
um alls ekki efni á þvi að verða
einnig háðir öðrum þjóðum um
fisk.
Þjóðhagsfræðingar I Tokyo
eru sammála um, að þýðingar-
mesta skrefið I þessum vanda,
sé að endurreisa fiskveiðar á
heimamiðum. ,,En það verður
ekki hrist fram úr erminni”,
segja þeir.
Fasteignaverð f
Danmörku hefur
hækkað um 85%
Fæðingatala lækk-
ar ört í Danmörku
síðan 1973
Eignamarkaðurinn I Dan-
mörku hefur verið i örri þróun
undanfarið, bæði hvað snertir
stærð og verðlag segir I danska
blaðinu Pólitikken. Er bent á að
verðið á húseignum á almennum
markaði hafi hækkað um hvorki
meira né minna en 85% siðan
1973.
Tölur þessar eru sóttar i opin-
bert yfirlit á fyrri hluta siðasta
árs, og sýna þær jafnframt að
verð á sumarbústöðum hefur
hækkað um 72%.
A fyrstu sex mánuöum siðasta
árs voru seldar ibúðir fyrir alls
10.8 milljarða danskra króna, eða
3.3 milljörðum meira en á sama
tima 1975. Sala á lóðum hefur
einnig aukizt mjög, þvi á fyrri
hluta árs 1975 voru seldar lóöir
fyrir 85 milljónir danskra króna,
en á sama tima i fyrra fyrir 150
milljónir danskra króna.
Fjöldi fæðinga i Danmörku
árið 1976 reyndist vera ná-
lægt 65.000/ og er það
lægsta fæðingartala í land-
inu um 40 ára skeið.
Skv. frétt i danska blaðinu
Politiken verður að leita allt aft
ur til ársins 1933 til að finna sam-
bærilegan fjölda fæöinga. Þá rikti
mikið atvinnuleysi i landinu og
fæðingar á árinu urðu samtals
62.800 . íbúafjöldinn var þá 3.5
milljónir, en ú eru ibúar i Dan-
mörku alls 5 milljónir.
Ekki hafa fundizt neinar skýr-
ingar á, þessari miklu fækkun
fæöingatölu, en fæðingar eru 7.000
færri en áriö 1975. Ef þessi þróun
heldur áfram um ókomin ár, þá
liður ekki á löngu þar til ibúúm i
—JSS
| Auglýsið í Alþýðublaði
nu
Danmörku tekur að fækka svo um
munar. Afleiðingin verður einnig
sú, að eldra fóikið verður hlut-
fallslega miklu fjölmennara en
unglingarnir. Samfara þvi verður
að leggja áherzlu á fleiri og betri’
sjúkrahús, en draga úr uppbygg-
ingu skóla og kennslu segir loks i
Politikken.
GULLHÚSIÐ
FRAKKASTÍG 7
REYKJAVÍK
SÍMI 28519
Gull- og silfurskartgripir
í úrvali.
Handunnið íslenskt víravirki.
Gull- og silfurviðgerðir.
-
Gyllum og hreinsum gull-
og silfurskartgripi.
*-r-Fvi
Þrœðum perlufestar.
Afgreiðum viðgerðir samdœgurs
ef óskað er.
K0STAB0Ð
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 7 12(11» — 7 1201
P0STSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
3oli.nmt5 líni55on
TLniia.il)rgi 30
é'imi 10 200
DÚÚA
Síðumúla 23
/ími 84200
Heimiliseldavélar.
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Simai 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn