Alþýðublaðið - 27.01.1977, Blaðsíða 1
I
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR
OECD skýrslan, sem ekki var þýdd á íslenzku:
Upphaf verðbólgu má
rekja til útgerðar
í nóvember s.l. gaf OECD, Efnahags- og framfara-
stofnunin, út skýrslu um efnahagsmál á íslandi. Þetta er
stórfróðlegt rit, eins og fyrri skýrslur OECD um ísland
hafa verið. Þessari siðustu skýrslu hefur verið litill
gaumur gefinn, og sætir það nokkurri furðu, að þessar
skýrslur skuli ekki vera þýddar og gefnar út á islenzku,
jafn útgáfuglaðar og opinberar stofnanir eru hér á landi.
í siðustu skýrslu kemur meðal annars fram, að ríkis-
stjórnir auki beinlinis verðbólgu til að draga úr eftir-
spurn. Þá er sagt, að upphaf verðbólgunnar megi rekja
beint tii útgerðarinnar, en Verðjöfnunarsjóður fisk-
iðnaðarins er talinn bezta vopnið gegn verðbólgu. Þá er
látið að þvi liggja, að rikisstjórnir beiti röngum
aðferðum tii að stjórna eftirspurn, og að aðhald i fjár-
máium isienzka ríkisins hafi verið ófullnægjandi árin
1974 og ’75.
Úrdráttur úr skýrslunni er birtur á 3. siðu biaðsins i
dag, og er það fyrri hluti. Blaðið vill hvetja lesendur
sina til að kynua sér efni skýrslunnar.
Verðlaekkun
á brauðum
Samkvæmt
auglýsingu frá verðlags-
stjóra hefur verð á
franskbrauðum, heil-
hveitibrauðum og malt-
brauðum verið lækkað
frá og með deginum i
^a?.' Franskbrauð og
heilhveitibrauð kosta nú
76 krónur en kostuðu áð-
ur 80 krónur. Verð á
maitbrauði lækkar um
tvær krónur, kostar nú
82 krónur, en kostaði áð-
ur 84 krónur.
tJt af þessari fremur óvenju-
legu frétt snéri Alþýöublaöiö sér
til formanns verðlagsnefndar,
Björgvins Guðmundssonar, og
jb.e. brauó
lækka í verði
-- hækka ekki
spurði hann hvað ylli þessari
verðbreytingu.
Björgvin sagði að samtök bak-
ara hefðu um nokkurt skeiö unnið
að þvf, að ná hagkvæmum inn-
kaupum á hveiti og rúgmjöli.
Hefði svo veriö komið, að sögn
Björgvins, að bakarar áttu kost á
því, að kaupa þessar kornvörur á
hagkvæmara verði en fékkst hjá
innf lutningsf yr irtæk jum.
í gær samþykkti svo verðlags-
nefnd ofangreinda lækkun á
brauðum vegna hagstæöari inn-
kaupa á hveiti. Björgvin sagöi að
verð á rúgbrauöum mundi hald-
ast óbreytt vegna aukins kostnað-
ar.
—BJ
Rannsóknarblaðamennskan:
Athugasemd frá
c
ríkisbókhaldinu
vegna skrifa Dag-
blaðsins um ÁTVR
— Sjá opnu
KRAFLA:
•<**$
11
BEÐIÐ EFTIR
BLÆSTRI
t samtali við Jakob
Björnsson, orkumálastjöra i
gær, kom fram að nú er beöið
eftir þvi aö tvær holur á
Kröflusvæðinu fari að blása.
Er jafnvel búizt við að hola 9
blási einhvern næstu daga,
en sem kunnugt er var það
siðasta verkiö sem unnið var
að á sviði borana á siðasta
ári að dýpka þá holu.
Þá hefur hola 11 orðið
seinni til blásturs en búizt
hafði verið við og getur veriö
aö gripiö verði til þess að
dæl.a niðurf hana þrýstilofti
i þvf skyni aö hjálpa henni til
blásturs, en aö sögn Jakobs
er all algengt að gripið sé til
þess ráðs.
Um þessar mundir er unn-
ið aö gerð boráætlunar fyrir
. næsta sumar og má gera ráð
fyrir að sú áætlun verði lögö
fram eftir nokkrar vikur.
Sagðist Jakob Björnsson
ekki vilja útiloks þann mögu-
leika fyrirfram að leitað yrði
út fyrir þaö svæöi sem hing-
að til hefur verið boraö á til
gufuöflunar, en þaö myndi
væntanlega skýrast þegar
hin nýja boráætlun yröi lögö
fram.
Aðspurður kvað Jakob
ógerning aö spá um hve
kostnaður við gufuaðveit-
urnar myndu aukast mikiö ef
leitaö yrði út fyrir hið hefð-
bundna svæði, enda spilaði
þar margt inn I svo sem
hversu langt yrði farið, gild-
leiki leiðslna o.s.frv.
—GEK
Þrír í
gæzlu- |
varðhaldi
vegna
fíkni-
efnamála
Hjá Sakadómi i ávana- og
fikniefnum eru núna tvö :
meiriháttar mál f gangi,
annars vegar hið svokallaöa
stóra hassmál, sem unnið
hefur verið aö meira og
minna samfleytt siðan i júli-
mánuði siðast liðið sumar og
hins vegar nýrra mái sem
tekur til innflutnings á fikni-
efnum fram i byrjun þessa
mánaðar. Þrir menn sitja nú
i varöhaldi vegna þessara
mála og eru tveir þeirra
tengdir nýrra málinu.
AB sögn Asgeirs Friöjóns-
sonar, dómara, liggur geysi-
leg vinna i rannsókn þessara
mála, enda þarf ávallt aö
kalla margt fólk til yfir-
heyrslu. Er nú unniö að
fullnaöarvinnslu i eldra mál-
inu og skipta skýrslur og
gögn þess hundruðum blað-
siðna.
Sagði Asgeir að ætlunin
væri að taka mál þeirra ein-
staklinga sem skýrast liggja
fyrir út úr þvi máli og af-
grei^aþau sem fyrst, tilþess
að letta á rannsókninni.
Aðspuröur hvort nægt
starfslið væri við Fikniefna-
dómstóiinn til að sinna þeim
verkefnum, sem honum eru
ætluð sagöi Asgeir „Ef við
berum okkur saman við aðra
málaflokka tel ég að okkur
farist varla að kvarta”.
—GEK
Ritstjórn Sfðumúla II - Simi 81866