Alþýðublaðið - 15.03.1977, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR 15.MARZ
siminn er
14-900
ALÞÝÐUSAMBAND VEST-
URLANDS STOFNAÐ
Gunnar Már Kristófersson, Hellissandi, formaður
Stofnþing Alþýöusambands
Vesturlands var haldiö i
Borgarnesi um siöustu helgi.
Jón Agnar Eggertsson,
formaöur Verkalýösfélags
Borgarness og miöstjórnar-
maður ASl, setti þingiö, en þaö
sóttu fulltrúar 9 aöildarfélaga.
Björn Jónsson forseti ASl
flutti ávarp og lét i ljós ánægju
með stofnun þessa nýja sam-
bands innan verkalýöshreyf-
ingarinnar.
Forsetar þingsins voru kjörn-
ir: Einar Karlsson, Stykkis-
hólmi, og Sigurður Lárusson,
Grundarfirði, en ritarar voru
kjörnir Arndis F. Kristinsdóttir,
Borgarnesi og Gisli Gunnlaugs-
son, Búöardal.
Hinrik Konráðsson, Ólafsvik,
formaöur undirbúningsnefndar,
rakti aödraganda aö stofnun
sambandsins, sem segja má aö
hafi verið i burðarliönum
siðastliðin tvö ár.
Siðan voru lög sambandsins
rædd og samþykkt og aö lokum
flutti Stefán Gunnarsson
bankastjóri Alþýðubankans
ávarp.
I fyrstu stjórn Alþýöusam-
bands Vesturlands voru kjörnir
eftirfarandi menn:
Gunnar Már Kristófersson,
Hellissandi, formaður
Hinrik Konráösson, Ólafsvik,
varaformaður
Guðrún Eggertsdó11 i r ,
Borgarnesi, ritari
Harkaleg umbrot
í vændum við
Kröflu?
„Þaö er ljóst, aö þaö sem er
að gerast hér fellur ekki inn i
þaö „hegðunarmynstur” sem
við þóttumst hafa séö út i fyrri
landrisum hér viö Kröflu,”
sagöi Karl Grönvold jarö-
fræöingur, isamtali viö Alþýöu-
blaöiö siödegis I gær, en hann
var þá staddur i Hótel Reyni-
hlið.
Ennfremur staöfesti Karl, aö
búast mætti viö harkalegri um-
brotum þar nyröra þeim mun
lengur sem núverandi þróun á
svæöinu héldi áfram.
Landris á Kröflusvæöinu hélt
áfram i gærdag, en fjöldi
skjálfta á siðustu mæliönn þ.e.
frá þvi klukkan 15á sunnudag til
klukkan 15 i gær, var 100.
Þannig hefur skjálftavirkni á
svæbinu nokkurn veginn staöiö I
stað siðustu sólarhringa. Flestir
skjálftanna á mæliönninni voru
vægir, en 12 þeirra mældust þó
um eöa yfir 2 stig á richter og sá
sterkasti 2,6stig. Upptök þeirra
voru á svipuðum slóöum og und-
anfarið, eöa á viö og dreif um
Kröfluöskjuna. —GEK
Vöruskiptajöfnuður íslendinga í janúar s.l.:
ÓHAGSTÆÐUR UM
1,7 MILUARDA
Hagstofa lslands hefur birt
tölur um vöruskiptajöfnuö ls-
lendinga I janúar-mánuöi s.l.
Hann reyndist óhagstæður um 1
milljarð og 700 milljónir króna,
sem er nokkru lægri tala en i
janúar á siöasta ári, en þá var
vöruskiptajöfnuöurinn óhag-
stæður um 1 milljarð og 900
milljónir króna.
Einna mesta athygli vekur
hve mjög útflutningur á áli og
álmelmi hefur aukizt frá þvi i
fyrra. í janúar i ár var ál og ál-
melmifluttútfyrir 1,3 milljaröa
króna, en fyrir 411 milljónir i
sama mánuöi I fyrra. Hins veg-
ar flutti Alfélagiö inn fyrir 293
milljónir i janúar.
Við samanburö á tölum um
útanrikisverzlun 1976 verður aö
hafa I huga, að meöalgengi er-
lends gjaldeyris I janúar s.l. er
talið vera 11,3% hærra en þaö
var I sama mánuöi 1976.
Einar Karlsson, Stykkishólmi,
gjaldkeri.
Meðstjórnendur voru kjörnir:
Gisli Gunnlaugsson, Búðardal,
Jón Agnar Eggertsson,
Borgarnesi og Sigurður Lárus-
son, Grundarfiröi.
í varastjórn voru kjörnir:
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Borgarnesi, Kristin Nielsdóttir,
Stykkishólmi, Jóhann Þóröar-
son, Hvalfirði og Arndis
Kristinsdóttir, Borgarnesi.
Endurskoðendur voru kjörn-
ir: Maria J. Einarsdóttir,
Borgarnesi, og Ölafur
Jóhannsson, Búðardal,
Varaendurskoðandi var kjörinn
Agnar Ólafsson, Borgarnesi.
Á þinginu voru Hinrik
Konráössyni færöar sérstakar
þakkir fyrir störf að undir-
búningi að stofnun sambands-
ins. I lok þingsins flutti nýkjör-
inn formaður, Gunnar Már
Kristófersson ávarp og hvatti
þingfulltrúa til góðra starfa fyr-
ir verkalýðshreyfinguna bæöi
innan hins nýstofnaða sam-
bands og einnig fyrir verkalýös-
hreyfinguna i heild.
Alþýöublaöiö haföi samband
við Gunnar Má i gær og spuröist
fyrir um stofnun þessa nýja
Alþýöusambands. Gunnar sagði
aö stofnun Alþýðusambands
Vesturlands væri mikið hags-
munamál fyrir verkalýöshreyf-
inguna og verkalýösfélögin á
Vesturlandi. „Það eru fjölmörg
mál, sem varða sameiginlega
hagsmuni verkalýðsfélaganna á
þessu svæði og þess vegna getur
Alþýöusamband Vesturlands
veitt betri og meiri stuöning i
einstökum málum heldur en
félögin hvert um sig,” sagöi
Gunnar Már Kristófersson, ný-
kjörinn formaöur Alþýðusam-
bands Vesturlands.
Gunnar sagöi að mikil eining
heföi rikt á þinginu og sagöist
hann vona, að þau félög á
svæðinu, þ.e. i Vesturlandskjör-
dæmi, sem ekki hefðu tekið þátt
i stofnun sambandsins, gengju i
það svo fljótt sem kostur væri.
Þingiö samþykkti tillögu um
kjaramál og birtist hún á öörum
stað I blaðinu á bls. 16 — BJ.
Reykháfur Fiskinijölsverksmiöjunnar spýr þessa dagana úr sér illa
þefjandi fnyk — peningatyktinni — sem minnir borgarbúa á aö
loönuvertiöin er I fullum gangi.
Ab mynd — GEK
L0ÐNUAFLINN
NÁLGAST 500
ÞUSUND
Heildaraflinn á
loðnuvertíðinni nálgast
nú óðfluga 500 þúsund
tonn og var siðdegis i
gær orðinn 490 þúsund
tonn. Þá höfðu 14 skip
tilkynnt um 5000 tonn
tonna afla frá þvi á
miðnætti á sunnudag,
en sólarhringinn á
undan höfðu veiðzt
13.890 tonn.
Aflahæstu skipin I lok siöustu
viku voru Siguröur RE 4 meö
16.979 tonn, Börkur NK 122 meö
16.367 tonn og Guðmundur RE
29 meö 16.030 tonn. Þá hafði
loðnu verið landaö á 22 stööum á
T0NN
landinu og voru eftirtaldir þrir
staðir hæstir: Vestmannaeyjar
70.802 tonn, Seyðisfjöröur 56.545
tonn og Neskaupstaöur meö
40.899 tonn.
Agætis veöur var á veiðisvæð-
unum vestur viö Jökul og viö
Vestmannaeyjar i gær. Aö sögn
dr. Björns Dagbjartssonar, for-
stööumanns Rannsóknarstofn-
unar fiskiönaöarins er loönan
sem nú er verib að veiöa út af
Snæfellsnesi þvi sem næst kom-
in aö hrygningu, en ætla má aö
loðnan viö Vestmannaeyjar eigi
enn eftir um tvær vikur.
Undanfarin ár hefur loönu-
ganga komiö upp aö Vestfjörö-
um um þetta leyti og gengið
suður meö landinu — svokölluö
Vestfjarðaganga — en ekkert
hefur enn sézt til þeirrar göngu.
—GEK