Alþýðublaðið - 15.03.1977, Side 7

Alþýðublaðið - 15.03.1977, Side 7
aæsr Þriðfudagur 15. marz 1977 . OTLÖND 7 .. „Morðsaga?T ný íslenzk kvikmynd... | Darryl B Monte: Faðirinn: Steindór Hjörleifsson með myndina i stúdió og „eftir- synka” hana sem kallað er en það er að tala inn á hana aftur. Slikt fyrirtæki er óhugnanlega dýrt og ekki á færi nema stór- fyrirtækja meö næstum ótak- mörkuð fjárráð. Klipping er vel af hendi leyst og nákvæmnis- lega unnin, og vafasamt hvort hægt væri að bæta um betur á þvi sviði. Tónlistin er þvi miður fremur sundurlaus og vantar heildar- stef i hana. Sennilega hefði verið betra ef hægthefði veri-að fá einhver- til að semja hana sérstaklega fyrir myndina. Stjórn er góð þótt maður hafi það á tilfinningunni á köflum að Reynir hafi veriö örlitið nervös og kannski ekki verið of viss um það sem hann var að gera. En þaðerekkertsem er til lýta og i heild er yfirbragö og hrynjandi mynda'rinnar með ágætum. Það má kannski deila um myndina efnislega og aðdraganda hennar upp að endapunkti en yfirleitt heldur efnið manni föstum og það eru næstum hvergi dauðir punktar. Ég vil eindregið hvetja fólk til aö fara og berja Morðsögu augum þviþetta er gottframtak og ágætasta mynd og satt að segja er myndin miklu betri en ég átti von á. Þaö væri kannske athugandi fyrir sjónvarpið að fá Reynir tilað stjórna eins og einu af þessum leikritum sem gerð verða hjá stofnuninni á næst- unni, þvi hann hefur sannað svo ekki verður um villzt, að hann hefurhæfileika til að bera I gerð kvikmyndaefnis. Þ.tl.B. Ég hugsa að það mætti leggja það nokkuð að jöfnu að koma sér upp húsi og að gera kvik- mynd. I báðum tilvikum er nokkur áhætta fyrir hendi. Þaö erallt i lagi að væla um styrki ef maöur hefur sýnt að maður þorir sjálfur að taka áhættuna. Það er ekki hægt að ætlast til þess aö þeir menn sem hafa ráðstöfunarrétt yfir fé hins almenna borgara, taki áhætt- una þegar kvikmyndagerðar- menn gera það ekki sjálfir, þótt þeir geti byggt hús fyrir mikla peninga. Mér virðast kvikmynda- gerðarmenn bara vera þátttak- endur I lifsgæðakapphlaupinu. En þetta stendur nú vonandi allt til bóta með frumvarpinu um kvikmyndasjóðinn sem mér skilst að sé I deiglunni. Alþingis- menn eru held ég hlynntir kvik- myndum en þá vantar trúna á kvikmyndagerðarmennina sjálfa. Það er kannski ekki nema von þar sem svo illa tókst til með kvikmyndasjóðinn sem stofn- settur var á sinum tima að frumkvæði Asgeirs heitins Asgeirssonar. Þá var samþykkt að skemmtanaskatturinn skyldi renna til Islenzkrar kvikmynda- gerðar og stofnsett var kvik- myndafyrirtæki og sett upp stúdió I húsi Rúgbrauðsgeröar- innar, keypt tæki, ráðið fólk og farið af stað með leikna mynd. t þetta fyrirtæki var eytt formúu og myndin svo sett I framköllun til Danmerkur. Það veitsjálfsagt enginn hvað skeði eöa hvers vegna, en það kom i ljós að það var engin mynd á filmunni og máliö var þaggað niður þar sem þetta þótti hneyksli. Nú, Alþingi tók af skarið og breytti lögunum um skemmtanaskattinn og nú er hann m.a. notaður til að borga félagsheimilabyggingar og rekstur sinfóniuhljómsveitar- innar. Það sitja margir á þingi sem muna eftir þessu máli og vita meira um það en ég og það er eðlilegt að þeir séu uggandi um að svona endurtaki sig. Nú er það svo að i Sviþjóð hefur verið eytt hundruðum miljóna i misjafnlega gufu- kenndar hugmyndir sem aldrei hafa svo orðið neitt. Enda eru Sviar að ranka við sér og hafa stórhert eftirlit með þvi i hvað peningarnir fara. A siðastliðnum 15 árum hafa ekki komið fram margir menn þar i landi sem virkilega geta eitthvað. Það eru helst þeir Jan Halldoff og Roy Anderson og svo nokkrir minni spámenn.” ,,Nú hefur verið rætt nokkuð um lögbann sem Borgfilm setti á viðtal sem Samúel átti við Þóru Sigurþórsdóttur og einn sjálfstæður, vandaður og hressilegur blaöamaður gerði samning Borgfilm og Þóru að umtalsefni. Um hvað var málið?” „Þóra var sú eina sem við gerðum samning við og var það vegna þess hversu ung hún er, eða réttara sagt var þegar samningurinn var gerður. Samningurinn var gerður meö hagsmuni Þóru i huga vegna þess að við vildum ekki að verið væri að misnota hana öðrum til framdráttar. Ef að Þóra fær einhver góð tilboð þá sjáum við ekkert athugavert við að hún taki þeim. Reyndar hefur hún fengiö eitt sem hún tók en það er i sjónvarpsleikþáttum sem Hrafn Gunnlaugsson er með ásamt fleirum fyrir sjónvarpið. Ég segi fyrir mig að ég yrði persónulega ekkert mjög hrif- inn ef að Þóra fengi eitthvert til- boð sem hún tæki sem reyndist svo vera i einhverri vafasamri italskri eða þýskri mynd. Jafnvel þótt það liti vel út þá er ýmsu hægt að breyta án þess aðnota leikara sem eru kannski i aðalhlutverkum. Það er alltaf hægt að finna varaskeifur i vafasöm atriði og klippa svo saman að það sjáist ekki.” ,,En nú orðaði þessi blaöa- maður það sem svo að þú værir orðinn kvikmyndajöfur eöa „movie mogul”. Ertu þaö?” ,',Nei,” sagöi Reynir og dæsti. Og meö það sláum við botninn I þetta viötal. Þ.U.B. Eyþjóð á krossgötum Seychelles-eyjar hlutu sjálfstæði á síðasta ári eftir 160 ára brezka stjórn Ibúar Seychelles eyjaklasans norður af Madagaskar fengu sjálfstæði sitt viðurkennt þann 29. júni á liönu ári. Þá höfðu eyjarnar lotið brezkri stjórn i 160 ár. Eyjarnar eru að tölunni til 86 með 60 þúsund ibúa og samanlegt land- rúmi aðeins 107 ferhyrningsmil- ur! Svo virðist i fljótu bragði, að slikt kotriki geti naumast verið þess umkomið að varðveita sjálfstæði sitt. En allt um það rikti einskær fögnuður þegar brezki sambandsfáninn (Union Jack) var niður dreginn i siö- asta sinn og rauð-blá-hvitur fáni eyjanna var dreginn að húni. Það voru vist fáir eyjarskeggja sem vöknaði ekki um augu við það tækifæri. Erlendir fréttamenn hug- leiddu, hvort tárin þýddu eftir- sjá eða gleði. Nýkjörinn forseti eyjanna, Sir James R. Mancham svaraði þeirri spurn- ingu ljúflega. „Hér á eyjunum á engin sorg heima við þetta tæki- færi. Hér rlkir gleðin ein!” Þessi nýi, 37 ára gamli valds- maður, er reyndar ekki með öllu óþekktur utan heimabyggðar. Reyndar hefur hann orð á sér fyrir að vera mikið kvennagull En þó hann talaði hressilega, verður þvi ekki neitað, að flest- allir, sem fréttamenn ræddu við — allt frá ráðherrum til kaup- sýslumanna og vikadrengja og bilstjóra — létu i ljós nokkrar áhyggjur um framvindu mál- anna. i þjóðbraut Kalla má að eyjarnar liggi i einskonar þjóðbraut i ýmsum skilningi. Rétt við þær liggur hin mikilsverða skipaleið til Persa- flóa. Þær eru i 1000 milna fjar- lægð frá Mombasa í Kenya og tvöfaldri þeirri fjarlægð frá Bombay. Samband Afrikurikja (OAU) hefur tekið við þeim sem meðlim og sótt hefur verið um aðild að Sameinuðu þjóðunum. Eyjarnar yrðu að þvi samþykktu 145. rikið innan Sameinuðu þjóðanna. Sýnt þyk- ir þvi, aö eyjaskeggjar verði að samhæfa sig mjög svo breyttum aðstæðum eftir hið nýfengna frelsi. Skiptar skoðanir Þrátt fyrir allt er eða réttara sagt var, ekki alger einhugur um stjórnarformið. Svonefndur Lýðræðisflokkur vildi halda konungssambandi við Breta, þótt annað yrði ofan á. Forystumenn hans sögðu eitt- hvað á þá leið. „Ef það er við hæfi, að Bandarikin teygi sig til Hawai og Frakkland til Thahiti, hversvegna geta þá Seychelles eyjar ekki tilheyrt Bretlandi?” Blandað ætterni íbúar Seychelleseyja eru af mjög blönduðu ætterni. Þar er að finna franskættað fólk,frá þvi eyjarnar lutu Frökkum, sem misstu þær i hendur Breta 1810. Auk brezkættaðra eru þar einn- ig Vestur-Afrlkubúar frá Gull- ströndinni og nokkuð Indverja. Tungumál eyjaskeggja ber vott um þessa þjóðablöndun, nánast eitthvað i átt við öll áðurtalin móðurmál. Fljótt á litið er þarna ekkert, sem minnir á kynþáttaátök „Við erum fágætt sýnishorn af þvi, að allir kynþættir geta búið saman i einingu andans”, segja eyjaskeggjar. En við nánari athugun kemur I ljós, aö yfir- leitt eru Evrópuættaðir menn i betri stöðum og hafa rýmri hendur. Svo sagði okkur for- stjóri ferðaskrifstofu á eyjun- um, að samheldnin væri mest i „lægri stéttunum”. Sjálfur er hann gott dæmi um blóðblönd- unina. Afi hans var franskur, amma hans indversk, faðir hans Portúgali og móðirin af frumbyggjaættum eyjanna! um 400 hótel, sem gætu rúmaö i emu minnst 1700 manns. Fnda þótt ýmsir eyjabua ali of örs aöstreymis ferðamanna, hugsa vist margir svipað og S brezkættaði forsæt.sráð- herra sem sagði:«Fiskveiðarn ar eig’a að vera brauð okkar, en ferðamannamóttaka smjorið. Horft til framtiðarinnar Aö sjálfsögðu er margs að Bakvið tjöldin Þrátt fyrir hið nýfengna sjálf- stæði er sambandið við Bretland nokkuð áberandi og brezk áhrif vara sjálfsagt enn um hrið. Þannig ráða brezkir þegnar miklu um innflutningsverzlun- ina. Barclays Bank er umfangs- mesta peningastofnunin og Bretarnir eru mikilsráðandi um ferðamanna- og skemmtiiðnað allan. Þvi er hvislað, að innan þeirra hóps séu ráðin ráðin, en forsetinn skrifi svo upp á vixil- inn og framselji hann! 1 stað útflutnings á guanó og ýmisskonar kryddjurta áður treysta nú eyjaskeggjar á ferðamannastrauminn sem aðaltekjulind. A siðasta ári heimsóttu 35 þús. ferðamenn þessa eyja-paradis, eða meir en helmingur íbúa rikisins að töl- unni til. Þar af voru aðeins 1200 Bandarikjamenn, enda um langan veg að sækja. Aldingarðurinn Eden Ollum ber saman um að flest hjálpist að, til að gera eyjarnar að eftirsóttri ferðamanna paradis, loftslag, baðstrendur og hlýlegt hæðalandslag. Agæt- ur flugvöllur er á eyjunum og uppi er áform um að reisa þar gæta. fyrir svo smátt riki, sem hér um ræðir. Landfræöilega tilheyrir það Afriku og það er næsta liklegt, að eyjarnar verði að hafa fulla hliðsjón af þvi, sem gerist á hinu „myrka megin- landi”. Mörgum er þó I hug, að feta i sömu slóð og t.d. Sviss, en viðurkenna á þvi nokkra öröug- leika. Meðan Bretar höfðu þarna ennþá flotabækistöð höfðu eyjarnar sérstaka hern- aðarlega þýðingu. Ennþá eimir eftir af þvi, þó smátt og smátt sé hverfandi. Bandarikin fengu leyfi til að reisa gervitunglastöð fyrir 15 árum á aðaleynni og greiddu fyrir það 10 milljónir dollara siðasta áratuginn. Eyja- skeggjar eru þess varir, að við hið nýfengna frelsi hafa margs- konar straumar tekið að leika um eyjarnar i pólitiskum skiln- ingi. Þar koma til bæði risaveld- in og stórveldi, s.s. Kina og Frakkland. Risaveldin hafa ákveðið að koma þarna upp sendiráðum og ákveðið er að þau fái sameigin- lega neðri hæðina á stjórnar- ráðsbústað forsetans! Eyjaskeggjar eru nú teknir að velta fyrir sér þeirri spurningu. Verður sjálfstæðið aðeins til málamynda, eða tekst okkur að sigla milli skers og báru? Svör við þvi liggja ekki á lausu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.