Alþýðublaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 8
alþyóu- Þriðjudagur 29. marz 1977 ö,adid 8 FRÉTTIR Guðrún Jónsdóttir arkitekt: laða fólk að hús- Bernhöftstorfu” TVlyndirnar tók GEK er unnið var aö slökkvistarfi i Bernhöftstorfu á laugardaginn „Viljum unum á — Ég geri ráð fyrir að samtökin muni boða til fundar, þar sem tekin verður ákvörðun um starfið framundan, en við- horf þeirra félaga sem ég hef talað við eru þau, að tvimæla- laust beri að endurbyggja þessi hús, sem brunnu á laugardag- inn. Þannig fórust orð Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt, formanni Torfusamtakanna. i samtali við blaðið i gær. — Það var ljóst, áður en til brunans kom, að byggja þurfti að nýju bakhúsin við Skóla- stræti og við höfum þrýst á stjórnvöld lengi með að eitthvað yrði gert i málinu. Fyrir tæpum tveimur árum gerði starfshópur innan Torfusamtakanna upp- kast að leigusamningi á húsun- um i Bernhöftstorfu, en við telj- um nauðsynlegt að ná slikum samningi til nokkurra ára til að timi gefist til nauðsynlegra endurbóta þarna. Við lögðum samningsuppkastið inn hjá for- sætisráðuneytinu, en frá þvi hefur ekki heyrzt orð um málið siðan, utan það að okkur var bent á að bera erindið undir að- ila i fjármálaráðuneytinu. Við töluðum við embættismenn þar, en þrátt fyrir þetta hefur málið ekkert þokazt i átt að einhverri niðurstöðu. — Við önnuðumst tiltekt i hús- um á Bernhöftstorfunni ekki alls fyrir löngu og nutum til þess aðstoðar nemenda i Myndlistar- og handiðaskóla tslands vegna basars sem þeir ætluðu að halda þarna. Við óskuðum siðan eftir þvi að forsætisráðuneytið ann- aðist endanlega tiltekt i húsun- um, og það var einmitt draslið sem beið þeirrar tiltektar sem brann á laugardaginn. Ég tek það fram, að við höfum boðið fram aðstoð fagmanna, til þess að gera úttekt á húsunum og gera tillögur um úrbætur á þeim. En svo virðist sem áhug- ann fyrir málefninu skorti alveg hjá yfirvöldum. //Lifandi hús" —Nú fékkst þú viðurkenningu fyrir nokkrum mánuöum fyrir tillögur um skipulag i Þingholt- unum. llvað lagöir þú þá til aö gert yrði við húsin á Bernhöfts- torfu? — I þessum skipulagstillögum var visað beint til álits Torfu- samtakanna varðandi þessi hús. Við viljum að þarna sé einhver starfsemi sem laðarfólk að séj\ til dæmis litil kaffistofa, verlT- stæði, vinnustofur og fleira þess háttar. Landlæknishúsið gæti svo sem bezt verið einbýlishús, en i þessum hugmyndum er sið- ur hallazt að þvi að þarna yrði skrifstofuhúsnæði eða eitthvað þvi likt. Við viljum að þessi hús séu „liíandi” lengur en rétt á skrifstofutima, sagði Guðrún Jónsdóttir. —ARH Hver verður 300 lítrum af Tropicana ríkari í kvöld? — 1. sérstaka kynningin á íslenzkum matvælum opnuð í dag Klukkan 14.00 i dag, þriðjudag, verður opnuð Islenzk matvæla- kynning i húsi iðnaðarmanna að Hallveigarstig 1 i Reykjavik. Verður sýningin siðan opin dag- lega frá klukkan 12.00-22.00 til sunnudagsins 3. april. Aðgangur er ókeypis og öllum frjáls. Á fundi með fréttamönnum i gær, kom fram að það eru alls 25 fyrirtæki sem þarna sýna fram- leiðslu sina en tvær sýningar- deildir eru stærstar i sniðum: kynning lagmetisframleiðenda, þar sem 6 fyrirtæki standa sameiginlega að vörukynningu og kynning sælgætisframleiðenda, þar sem 7 sælgætisgerðir kynna sameiginlega framleiðslu sina. Erætlunin að kynna gestum ýmsa þætti lagmetisframleiðslunnar sem mörgum eru illa eða alls ekki kunnir. Þá má geta þess að þetta mun vera viðamesta kynning á sælgæti sem framkvæmd hefur verið. A sýningunni verða kynnt eftir- talin matvæli: Kjöt, ostar smjör, mjólk, is, lagmeti, brauð, kökur, súpur, kex, smjörliki, drykkjarvörur, sælgæti og sultur. Flestir framleiöendur munu veita gestum ókeypis sýnishorn af framleiðslu sinni og sagði Pétur Sveinbjörnsson i gær, að segja mætti aö takmark aðstand- enda sýningarinnar væri að þangað kæmi sem flest fölk og að enginn færi þaðan svangur! Þá var nokkrum framleiðend- um eldhúsinnréttinga gefinn kostur á þvi að sýna framleiðslu sina á þessari sýningu, en þrjú fyrirtæki sáu sér fært að þiggja boöið, J.P. innréttingar AK og Arfell. Sýna þau á 1. hæð iðnaðar- mannahússins, en aðalsýningin er I kjallara hússins. A sýningunni eru sýningar- skrár seldar á kr. 100 og er hver þeirra númeruð og gildir sem happdrættismiði. Dreginn verður út einn vinningur á hverjum degi og er miðað viö að hver vinningur samsvari ársneyzlu 4 manna fjöl- skyldu af einhverri matvæla- tegund i eitt ár. 1. vinningurinn sem dreginn verður út i kvöld er hvorki meira né minna en 300 litr- ar af Tropicana! A matvælakynningunni veröa sérstakir dagar helgaðir ein- stökum matvælategundum: Miðvikudagur 30. marz, lagmeti Fimmtudagur 31. marz sælgæti Föstudagur 1. april, mjólk og brauö. Laugardagur 2. april, kjöt Sunnudagur 3. april, gosdrykkir og aðrar drykkjarvörur. Undirbúning matvælakynning- ar hafa annazt þeir Pétur Svein- bjarnarson framkvæmdastjóri is- lenzkrar iðnkynningar, Gunnar Bjarnason leikmyndateiknari og Siguröur Guömundsson viöskiptafræöingur. Viö opnun kynningarinnar ki. 14.00 i dag mun Hjalti Geir Kristjánsson formaður verkefnis- ráðs Isl. iönkynningar flytja ávarp. —AB Árshátíð Alþýðuflokksfélags Reykjavfkur Árshátið Alþýðuflokksfélags Reykjavikur verður haldin á föstudag, 1. april i Félags- heimili Fóstbræðra. — Vel hefur verið vandað til hátiðarinnar. Þar verður kaldur matur á borðum, efnt verður til spurningakeppni: Björn Friðfinnsson hefur samið spurningarn- ar, Ólafur Hansson verður i dómarasæti og Gunnar Eyjólfsson spyr en hann er jafnframt veizlustjóri. — Þá verður happdrætti og dans stiginn við undirleik Kjarna. — Nánari upp- lýsingar á flokksskrifstofunni. — Framkvæmdastjórn Framsóknarflokks- ins endurkosin Um helgina kaus aðalfundur mið- stjórnar Framsóknar- flokksins fram- kvæmdastjórn flokks- ins. Engar breytingar voru gerðar á fram- kvæmdastjórninni, framkvæmdastjórnin öll endurkosin. Blaðstjórn Timans var einnig kosin um helgina. Geröur Stein- þórsdóttir var kosin i staö Þor- steins ólafssonar. Geröur var varamaöur i blaöstjórninni áöur svo ekki geta þessar breytingar talizt byltingarkenndar. 1 framkvæmdastjórnina voru kosnir eftirtaldir: Ólafur Jóhannesson, Einar Agústsson, Steingrimur Her- mannsson, Tómas Arnason, Magnús Ólafsson (sjálfkjörnir) Eysteinn Jónsson, Helgi Bergs, Þórarinn Þórarinsson, Er- lendur Einarsson, Jónas Jóns- son, Ragnheiður Sveinbjörns- dóttir, Guömundur G. Þórarins- son, Eggert Jóhannesson og Hákon Sigurgrimsson. t blaöstjórn Timans voru kjörnir eftirtaldir: Einar Agústsson, Eysteinn Jónsson, Erlendur Einarsson, Jón Kjartansson, Magnús Bjarnfreösson, Ólafur Jó- hannesson, Pétur Einarsson og Steingrimur Hermannsson. Varamenn voru kosnir Magnús Ólafsson og Halldór Asgrims- son. —ATA AÐALFUNDUR SAM- TAKA SYKURSJÚKRA í kvöld klukkan 8:30 verður aðalfundur Sam- taka sykursjúkra hald- inn i Átthagasal Hótel Sögu. Auk venjulegra aðalfundastarfa mun Ársæll Jónsson læknir, halda fræðsluerindi og þá mun ómar Ragnars- son skemmta. Talið er að i dag séu á milli 5 og 6 þúsund manns haldnir sykursýki á misháu stigi en samt eru félagar i Samtökum sykursjúkra ekki nema um 400. Það er þvi fyllsta ástæða til að hvetja alla félaga til að mæta á fundinn og að taka með sér gesti. Þess má siðan geta að lokum að veitingar verða á staðnum. —GEK

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.