Alþýðublaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ
Langur vinnudagur
lítið kaup
Könnun gerd á aðstædum Sóknarkvenna
Meðalvinnutimi
einhleypra Sóknar-
kvenna er 37,4 klukku-
stundir á viku, en giftra
kvenna 31.9 klukku-
stundir á viku. Meðal-
vinnutimi maka
Sóknarkvenna er tals-
vert lengri eða 46.6
stundir á viku.
Þessar upplýsingar koma
fram ikönnun sem Auöur Styrk-
ársdóttir, nemi I ÞjóBfélags-
fræðum gerði á lífskjörum og
högum Sóknarkvenna og var
hún gerð i október- og nóvem-
bermánuði 1976. Náði könnun
in m.a. til tekna Sóknarkvenna,
lengdar vinnutima, barnagæzlu,
húsnæðis, menntunar o.fl.
þátta, sem varpað geta ljósi á
aðstæöur verkakvenna, meöal-
tekjur einhleypra kvenna —
rúm 66 þús.
Við útreikning á tekjum komu
48 einhleypar verkakonur til
greina. Reyndust samanlagðar
tekjur þeirra nema samtals
3.201,793 kr. sem þýðir, aö
meðaltekjur einhleypra Sóknar-
VERKAKONUR KAUPA
DÝRUSTU GÆZLUNA
Það er kunnara en frá
þurfi að segja, að verkakon-
ur eiga i erfiðleikum með að
koma börnum sinum fyrir ef
þær vinna sjálfar úti. Ýmsir
vinnustaðir t.d. sjúkrahús
reka þó eigin harnaheimili,
en þar fá Sóknarkonur ekki
inni með börn sin. A barna-
heimilum Sumargjafar
ganga börn námsmanna og
einstæðra foreldra fyrir, og
biðlistar hrannast upp.
i könnuninni sent gerð var
á högum Sóknarkvenna kom
fram að stór hluti kvennanna
kaupir börnumsinum gæzlu i
heimahúsum fyrir 20—25
þús. á mánuöi. Ails áttu 18
konur i úrtakinu börn á aldr-
inum 0—6 ára, og komu 5
þcirra börnum sinum fyrir i
einkagæzlu, 8 kvennanna
höfðu börn sln hjá foreldrum
eða ættingjum, en hinar
komu þcim fyrir með ýmsu
móti. —JSS.
Verkfall við Kröflu:
Ófremdarástand
ef ekkert gerist
næstu
Stór hluti starfsmanna við
Kröflu um 30 manns hefur ekki
mætt til vinnu á Kröflusvæðinu
siðan aðfaranótt fimmtudags-
ins. Ástæðan er deilur um kjara-
og aðbúnaðarmál.
— Það sem greinir á um
meðal annars, er að ekki hefur
fengizt greiðsla fyrir þá daga
sem starfsmenn hafa verið fjar-
verandi úr vinnu, vegna gos-
hættu, sagði Helgi Guömunds-
son formaður Trésmiöafélags
Akureyrar i samtali við Alþýðu-
blaðið i gær.
Þá sagði Helgi ýmsan aðbún-
að starfsmanna i miklum
ólestri. Til að mynda væri sal-
ernisaðstaða oft fyrir neðan all-
ar hellur, sökum vatnsskorts.
Hafa Heilbrigðiseftirlit rikisins
og heilbrigðisnefnd Mývatns-
sveitar gert kannanir i þeim
efnum, en Helgi sagðist ekki
vita um niðurstööur þeirra
kannana.
Helgi sagðist vilja taka það
fram að um verkfall i eiginlegri
merkingu væri ekki að ræða.
Þeir málmiðnaðarmenn sem
störfuðu við Kröflu, á vegum
Slippstöðvar Akureyrar neituðu
að vinna við Kröflu, en þeir neit-
uðu ekki aö vinna við Slippstöö-
ina, og hefðu þeir nú hafið störf
þar.
Um trésmiði þá sem hætt hafa
störfum sagði Helgi að þeim
hefði verið sagt upp störfum.
Hefði þeim siðan verið boðin
endurráðning, en þeir ekki þeg-
ið hana. — Þannig að þeir eru
ekki i ólöglegu verkfalli, eins og
Framhald á bls. io.
kvenna eru 66.704 krónurá mán.
Þessar konur höfðu, auk sjálfra
sin, 18 manns á framfæri.
Tekjur giftra kvenna reynd-
ust að meöaltali talsvert lægri,
eöa kr. 53,043. Tekjur maka
voru kr. 95.252 á einstakling.
Tekjur 42ja hjóna voru samtals
kr. 6.229.889 sem þýöir að hver
einstaklingur hafi ‘ i laun kr.
74.165 á mán. 70 konur höfðu
hlotið einhverja menntun
umfram barnaskóla eða skyldu-
nám. Flestar þeirra, eða 25
höfðu numið i húsmæðraskóla,
og 20 reyndust hafa gagnfræða-
próf. Hinar höföu flestar farið i
iðngreinar eða kvöldskóla.
Einhleypar konur reyndust
vera 52 af þeim 119 sem könnun-
in byggðist á, og eru þvi 43,7%
kvennanna einu fyrirvinnur
heimila sinna.
Langflestir makar þeirra
kvenna, er tóku þátt i könnun-
inni reyndust vera verkamenn
að atvinnu. 12 unnu iðnaðar-
störf, og 5 voru öryrkjar eða
sjúklingar. Þá voru 8 konur gift-
ar afgreiðslumönnum eða skrif-
stofumönnum.
Konurnar voru spurðar hvort
þær byggju i leiguhúsnæöi eða
eigin húsnæöi. Leigjendur voru
jafnframt spurðir hvort þeir
væru öruggir með þetta hús-
næði, eða hvort þeir gætu átt
von á uppsögnum með litlum
fyrirvara.
71 kona reyndist búa i eigin
húsnæði en 32 eða 26,9% i leigu
húsnæði.Hjá foreldrum eöa ætt-
ingjum bjuggu 16.
Mikill meiri hluti kvennanna
eða 68.8% kvaðst myndi halda
áfram að vinna, þó þær ættu
þess kost að hætta. Astæðurnar
sem konurnar nefndu voru eink-
um þær, aö vinnan gæfi þeim
tækifæri til að umgangast fólk
og væri tilbreyting frá heimilis-
störfunum. JSS
Verkalýðsfélag Akraness:
STYÐUR KRÖFUR
UM ÍOO ÞÚS. KRÓNA
LÁGMARKSLAUN
Fundur sem haldinn var i
kvennadeild Verkalýðsfélags
Akraness fyrir skömmu sam-
þykkti að skora á Alþingi að
samþykkja frumvarp það tii
laga sem Svava Jakobsdóttir
hcfur lagt fram til breytingar
á lögum um atvinnuleysis-
tryggingar.
Felur breytingin i sér afnám
skerðingarákvæða vegna há-
markstekna maka og segir i
fréttinni að skerðing þessi hafi
nær eingöngu beinzt gegn
konum varðandi atvinnuleys-
isbæturog fæðingarorlof. Telji
konurréttsinnhafa verið fyrir
borö borinn vegna þessara
ákvæða og vænti þess, að al-
þingismenn leiðrétti þetta nú
og afnemi skerðingarákvæðin
i báðum tilvikum.
Þá samþykkti fundurinn aö
lýsa yfir fyllsta stuðning viö
takmark verkalýðshreyfingar-
innar i yfirstandandi samn-
ingum, að lægstu laun hækki i
kr. 100 þús. á mánuði og önnur
laun fái sömu krónutölu-
hækkun. A sama hátt komi
fullar visitölubætur á laun
sem reiknist út mánaðarlega.
Frá þessu marki megi ekki
kvika undir neinum kringum-
stæðum, þar sem kjör lág-
launahópanna séu löngu orðin
óviðeigandi.
—JSS
Rætt við
Guðrúnu
Jónsdóttur
formann
Torfu-
samtakanna
um framtíð
Bernhöfts-
torfunnar
eftir brunann
á laugardag
bls. 8
Stefnuskrá
Alþýdu-
flokksins er
komin út
Sjá bls. 9
Þórður á
Sæbóli er
75 ára í dag
bls. 16
I blaðinu í
dag er sagt
frá heimsókn
í Félags-
málaskóla
alþýðu I
Ölfusborgum
Sjá bls.
4 og 5
Svar Alþýðuflokksins til Samtakanna á Vestfjörðum. Sjá 16. síðu