Alþýðublaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 29. marz 1977
VETTVAMGUR 5
VERKALÝÐSFÉLÖGIN ÆnU AÐ KYNNA
SÉR BETUR ÞAÐ SEM HÉR FER FRAM
Rætt við Garðar Steingrímsson
,,Það er mikill haf-
sjór af fróðleik sem við
höfum innbyrt hér og ef
framhaldið verður af
sama toga er enginn
vafi á þvi að ég mun
reyna að komast
hingað aftur.” sagði
Garðar Steingrimsson
starfsmaður
hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar i
samtali við blaða-
mann. Ástæðuna fyrir
þvi að hann fór á nám-
skeiðið kvað Garðar
vera þá, að þegar hann
var kjörinn trúnaðar-
maður á sinum vinnu-
stað fannst honum
hann ekki vera
nægilega vel i stakk
búinn að leysa það
starf vel af hendi.
Fyrirrennari hans i starfinu
hafði verið mjög fær og staðið
sig vel og þvi hefði verið erfitt
að taka við er sá féll frá. Hann
leitaði til félaga sins sem sótt
hafði námskeið sem þetta áður
á vegum Dagsbránar og hvatti
*! 1
Garðar Steingrimsson.
hann Garðar eindregið til aö
sækja námskeiðið.
„Svona námskeið á náttúr —
lega heima hvar sem er, en að
minu mati þyrfti að stytta vega-
lengdirnar fyrir menn með þvi
að halda námskeiðin viðar um
landið. Ég mæli eindregið með
þvi að verkalýðsfélögin öll fari
að gera sér grein fyrir þvi sem
hér fer fram og á ég þá bæði við
þau sem teljast hægri og vinstri
sinnuð, þvi hér eru engir flokka-
drættir það er eitt sem víst er.”
Að lokum spyrjum við Garðar
hvernig kjaras'amningarnir
sem framundan eru leggist i
hann. „Nú, þeir leggjast nú
svona og svona i mann, maður
vonar bara að það verði nógu
sterk samstaða innan verka-
lýðshreyfingarinnar um þær
kröfur sem settar hafa verið
fram, þvi þær eru að minu mati
mjög hógværar.”
—GEK
SJÓNDEILDARHRINGURINN HEFUR VÍKKAÐ
— Rætt við
Guðbjart
Jónsson,
verkamann
frá Flateyri
Af hverju skyldi
Guðbjartur Jónsson,
verkamaður á Flateyri
hafa sótt þetta nám-
skeið? ,,Mér fannst ég
vera fáfróður um
réttarstöðu mina og
ýmis atriði varðandi
starf mitt sem
trúnaðarmaður og þvi
nauðsynlegt að leita
mér fræðslu. Hérna
hefur sjóndeildar-
hringurinn óneitanlega
vikkað og þó maður
læri kannski ekki nein
ósköp þá veit ég nú um
ýmis undirstöðuatriði
sem ég á eftir að hafa
gagn af seinna meir.
Annars er erfitt að
segja til um það strax
hvað maður hefur haft
nákvæmlega út úr
þessu, þvi það á eftir að
koma betur i ljós siðar.
Eitt af þvi sem ég held að eigi
eftir að koma okkur til góða er
ágæturkunningsskapursem hér
hefur myndast. Hérna kemst
maður i kynni við ýmsa menn
sem standa I verkalýðsbarátt-
unni og á sá kunningsskapur
örugglega eftirað hjálpa okkur i
félagsstarfinu.”
Erum ekki siður að
selja heilsuna
Hvernig gengurað halda uppi
félagsstarfi i þinu félagi? ,,Þaö
gengur ekki allt of vel enda
kannski ekki við þvi að búast i
litlu sjávarþorpi þar sem menn
verða að vinna 10-16 tima til að
hafa ofan i sig. Ég er sannfærð-
ur um að ef skepnur væru látnar
sæta þeirri meöferð sem verka-
fólk þarf sum staðar að búa við,
þá væri fyrir löngu búið að kæra
það til viökomandi dýravernd-
unarfélags. Það er ekki nóg með
að menn séu að selja vinnu sina
oft á tiðum erum viö ekki siður
aö selja heilsuna.
Það væri til dæmis fróðlegt að
fá að sjá skýrslurnar sem Fisk-
matið hefur gertum ástand fisfe-
verkunastöðva á landinu, af
Guðbjartur Jónsson.
hverju skyldum við ekki fá að
sjá þessar skýrslur?
Hér á námskeiðinu komst ég
til dæmis að þvi að ýmiss efni
sem við erum að handfjatla i
vinnunni geta valdið húðsjdk-
dómum og ofnæmi, ekki hafði ég
hugmynd um þetta.
Þannig vantar verkafólk og
ekki sizt trúnaðarmenn þess oft
fræðslu um þau efni sem það er
meö i höndunum og helstu at-
vinnusjúkdóma, sem hlýtur að
vera frumskilyrði þess að menn
geri sér grein fyrir hættunum
sem efnunum eru samfara og að
hægt sé að bregðast rétt við ef
slys verður.”
Hvernig leggjast kjarasamn-
ingarnir i þig? „Ef árangurinn
verður svipaður og i siðustu
kjarasamningum lizt mér illa á
þá, en ég hef trú á að almennt
muni nást betri árangur núna.
Allavega vona ég að krafan um
110 þúsund króna lágmarks-
launin nái fram að ganga, þvi
hún er siður en svo of há. Við
þurfum ekki annað en að
hringja i Hagstofuna til að fá að
vita að talið er að fjögurra eða
fimm manna fjölskylda þurfi
160 þúsund krónur sér til fram-
færis.
—GEK
Texti:
Gunnar
Kvaran
Kvaran
myndir
Félagsmáiaskólinn er til húsa 1 orlofshúsunum I ölfusborgum.