Alþýðublaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 16
ÞRIÐJUDAGUR
29. MARZ 1977
Þordur á Sæbóli
er 75 ára í dag
Þetta er sagan um Kópa-
vog allt frá því að tvær
manneskjur settust þar
að til að yrkja moldina
Hann Þórður á
Sæbóli er 75 ára í dag.
Það var þess vegna
sem blaðamaður
Alþýðublaðsins leit inn
hjá Þórði i gær til þess
að spjalla við hann i til-
efni afmælisins.
Þórður Þorsteinsson
er fæddur i Vigur i ísa-
fjarðardjúpi 28. marz
1902. Móðir hans var
Jensina Guðmunds-
dóttir sem lengstaf var
vinnukona hjá séra
Sigurði Stefánssyni.
Faðir Þórðar var
Þorsteinn Ólafsson.
Þórður ólst ekki upp hjá
móður sinni i Vigur en lenti
strax á allmiklum flækingi
manna á milli, allt þar til hann
var kominn á tiunda ár, að hann
fluttist aftur i Vigur og var þar
siðan áfram til 23 ára aldurs.
,,Ég var fluttur að Litlabæ i
Skötufirði strax eftir fæðingu.
Þaðan var ég svo sendur til
föðursystur minnar Mariu
Ölafsdóttur á Isafirði og var þar
nokkur ár. Þá var ég sendur til
ömmu minnar á Langeyri i
Alftafirði. Þaðan var ég lánaöur
sem smali á tiltekinn bæ i tæp
tvö ár.”
Þórður sagði að meðferöin á
þeim bæ hefði verið hin versta
og hefði hann verið sjúkur lengi
eftir að hann slapp úr dvölinni
þeirri.
En eftir að Þórður kemur aft-
ur i Vigur breytist hans hagur
mjög fljótt. Hann var bráð-
þroska og áhugasamur við öll
störf. Sextán ára var hann orð-
inn formaður á bát og stundaði
sjóróðra i Vigur þar til hann
flutti til Reykjavikur og réði sig
á togara.
Þórður segist hafa haft mik-
inn áhuga á sjómennskunni.
,,Og það var nú ef til vill vegna
þess, að ætt min var mikil fiski-
mannanætt, að ég var dubbaður
upp i formann svona ungur,”
segir Þórður.
A þessum árum voru venju-
lega þrir bátar gerðir út frá Vig-
ur og þá bjuggu i eynni allt upp i
40 manns. Bátarnir voru litlir,
svona 5 til6 manna för, að þvi er
Þórður segir.
Þegar Þórður var búinn aö
vera nokkur ár á togurum fór
hann i Stýrimannaskólann og
lauk þaðan prófi. Arið eftir varð
hann fyrir slysi sem leiddi til
þess að hann varð að leggja
sjómennskuna algerlega á hill-
una.
Þau Þórður og Helga Sveins-
dóttir giftust árið 1926. Helga
var mikil áhugakona um garð-
rækt, og það var ef til vill þess
vegna sem Þórður snéri sér að
garðræktinni eftir að hann
hætti á sjónum.
„Við byrjuðum með 100
fermetra kálgarð þar sem
Landspitalinn er núna,” sagði
Þórður. Svo vék hann sér að
Helgu og sagði: ,,Þú byrjaðir
þarna meðeina kartöflu Helga,
var það ekki?” Og Helga brosti
við og samþykkti, að það hefði
vist byrjað einhvernveginn
þannig.
Þórður á Sæbóli er sennilega
fyrsti maðurinn sem fær leyfi
bæjarstjórnar Reykjavíkur til
þess að selja úti. „Það var I
kringum 1932 sem ég fékk þetta
leyfi,” sagði Þórður. ,,Þá man
égeftirþviaðkona nokkurhafði
orð á þvi hvort mér þætti ekki
skömm að þvi að vera að selja
kartöflur úti á götu. Þetta var á
Lækjartorgi. Þannig var hugs-
unarhátturinn i þá daga.”
Arið 1935 fluttu þau i Kópavog
og reistu sér húsið Sæból. í heil
þrjú ár voru þau einu ibúar
þessa byggðarlags, sem nú er
stærsti kaupstaður landsins, að
höfuðborginni einni undantek-
inni.
„Hér vorum við ein, vatns-
laus, ljóslaus og vegalaus. Við
vorum búin að vera með garöa i
Sogamýrinni, en höfðum áhuga
á aö gera dálitið betur, svo við
ákváðum að flytja hingað. Við
fengum hérna um 12 hektara
erfðafestuland og hér erum við
enn i dag.”
Þórður segist hafa flutt græn-
metið á sendiferðahjóli fyrstu
árin. Þvinæst keypti hann bil á
100 krónur. Að lokum skipti
hann á bilnum og fékk hest i
staðinn.
„Ég held að þetta hljóti að
vera i eina skiptið sem maður
hefur skiptá bil og hesti,” segir
Þórður. „En þetta var lika
góður hestur.”
Helga var eitthvað farin að
brosa að samtalinu og minntist
á hundinn Kát. Hún sagði aö
Þórður og Bleikur og hundurinn
Kátur hefðu verið eitt i þá daga.
Og maður sá einhvernveginn
fyrir sér i huganum mynd af
manni með hestvagn á leið
niður á Lækjartorg til að selja
grænmeti, og svo kom hundur-
innKáturtritlandi á eftir. Og þá
flaug manni ósjálfrátt i hug
máltækið, milli manns og hests
og hunds hangir leyniþráður.
Þórður á Sæbóli var fyrsti og
eini hreppsstjóri i Kópavogs-
hreppi. „Og þá var nú fjör i
pólitikinni,” sagði Þórður og
glampa brá fyrir i augunum.
„Þetta var dálitið hávaðasamt
á köflum. Annars voru þetta allt
ágætis menn.”
Þórður segir að sér hafi alltaf
fundizt það hafa verið einkenni
á fólki sem flutti i Kópavog á
þessum fyrstu árum, aðþað hafi
verið fullt af sjálfsbjargarvið-
leitni. „Þetta var allt áhuga-
samt og duglegt fólk,” sagði
Þórður.
„Og nú er ég hættur að hugsa
um pólitikina og hugsa bara um
plönturnar minar. Það þarf að
sýna þeim mikla nærgætni. Ef
maður gleymir plöntunum úti
eina nótt þá geta þær féngið
kvef. Þetta er nú svona með
þetta starf eins og reyndar flest
önnur, að menn verða að sýna
nærgætni og umburðarlyndi i
nærveru allssem lifir og hrærist
i kringum mann.”
Þeir sem þekkja Þórð vita að
hann gat verið hvass og harð-
skeyttur þegar hann vildi það
við hafa i orðaskiptum við
pólitiska andstæðinga. Og þá
vaknar sú spurning hvort
plönturnar og blómin hafi
mildandi áhrif á hugarfarið.
Hvað sem þvl líður munu flestir
sammála um, að Þórður á
Sæbóli er sérstakur og mjög
athyglisverður persónuleiki,
sem býr yfir stórum leyndar-
dómi, sem er sagan um Kópa-
vog allt frá þvi að tvær
manneskjur settust þar að til að
yrkja moldina. —BJ.
Svar flokksstjórnar Alþýduflokks til
Samtakamanna:
Reidubúinn til samstarfs
undir merkjum flokksins
Klokksstjórn Alþýðuflokksins
fjallaði i gær um bréf Karvels
Pálmasonar alþingismanns um
hugsanlegar viðræður fulltrúa
Alþýðuflokksins og Samtaka-
manna um samstarf á Vestfjörð-
um.
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt á fundinum:
„Um leið og flokksstjórn
Alþýðuflokksins fagnar bréfi
Karvels Pálmasonar,
alþingismanns, fyrir hönd
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna á Vestfjörðum,
samþykkir hún eftirfarandi:
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
ályktar, að flokkurinn sé reiðubú-
inn til samstarfs við alla þá, er
vilja berjast fyrir framgangi
jafnaðarstefnunnar undir merkj-
um flokksins innan ramma 19.
greinar flokkslaganna.
Samkvæmt 19. greininni er
Fimm
fulltrúar
tilnefndir í
vidræðu-
nefnd
fyrirskipað opið prófkjör um val
frambjóðenda flokksins. Kjör-
gengi til prófkjörs til alþingis
kosninga hafa þeir, er hljóta með-
mæli minnzt 50 flokksbundinna
Alþýðuflokksmanna i Reykjavik
og Reykjaneskjördæmi, en 25 i
öðrum. öllum, sem eru 18 ára og
eldri og ekki eru flokksbundnir í
öðrum stjórnmálaflokkum, er
heimil þátttaka i prófkjöri
Alþýðuflokksins i viðkomandi
kjördæmi eða sveitarfélagi.
Til að eiga þær viðræður, sem
kjördæmisráðstefna Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna á
Vestfjörðum hefur óskað eftir við
fulltrúa Alþýðuflokksins, hafa
verið tilnefndir Agúst H. Péturs-
son, formaður kjördæmisráðs
Aiþýðuflokksins á Vestfjörðum,
Gunnar Pétursson, varafor.maður
kjördæmisráðsins, Elias H.
Gpðmundsson, stjórnarmaður i
kjördæm isráðinu, Björgvin
Sighvatsson, formaður upp-
stillingarnefndar i siðustu
kosningum og Benedikt Gröndal,
formaður Alþýðuflokksins.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
fagnar hverju skrefi i áttina til
aukinnar samstöðu jafnaðar-
manna á Islandi og væntir þess,
að ofangreindar viðræður geti
hafizt sem fyrst.”
Þessi ályktun var samþykkt
samhljóða.
Spasský
skorinn
upp
Boris Spasský stórmeist-
ari var i gærdag fluttur á
Landsspitalann vegna veik-
inda þeirra sem hann kenndi
á sunnudag að lokinni 12 ein-
vlgiskákinni. 1 eftirmiðdag-
inn i gær var siöan gerður á
honum uppskurður og rcynd-
ist vera um að ræða bráða
botnlangabólgu og munaöi
litlu aö botnlanginn hefði
sprungið. Uppskurðurinn
gekk að óskum og dvaldist
Spasský á gjörgæzludeild-
inni I nótt.
i gærkvöld var ekki Ijóst
hvað yrði um framhald ein-
vigisins, en Spasský mun
ekki geta sinnt skákiþrótt-
inni a.m.k. næsta mánuöinn.
Skáksambandið boðaði dóm-
ncfnd einvigisins til fundar i
gærkvöldi til að fjalla um
þetta mál og verður væntan-
lega haft samráð viö FIDE,
alþjóöasambandið um það.
—GEK
alþýðu
blaðið
Heyrt: í tilefni frétta um
slæman fjárhag útvegs-
banka Islands: Hér eitt
sinn fyrir löngu lét það orð
á, að „bisnisinn’ i Útvegs-
banda-útibúinu á Akureyri
væri litill og tregur. Eitt
sinn átti maður nokkur leið
i bankann. Hann opnaði
dyrnar, leit á gólfið og sið-
an á útibússtjórann, sem
stóð innan við afgreiðslu-
borðið, og sagði: Heyrðu,
ég kem frekar á morgun.
Þú þarft þá ekkert að láta
þvo i kvöld.
Lesið: 1 Frjálsri verzlun:
„Það vakti athygli er flug-
málastjórinn lýsti þvi yfir
við opinbert tækifæri fyrir
skömmu að hann labbaði
sig oft niður á skrifstofur
rannsóknarlögreglunnar til
að skoða þar skýrslur um
afbrotaferil fólks, sérstak-
lega ungra manna, sem
lent hefðu á glapstigum.
Enginn efast um, að flug-
málastjóra sé trúandi fyrir
persónulegum upplýsing-
um um menn, sem lög-
regluyfirvöld hafa afskipti
af. En af þessu tilefni velta
menn þvi fyrir sér, hvaða
reglur gildi hjá lögreglunni
almennt um aðgang að
slikum gögnum og hvaða
trúnaður eigi að rlkja um
lögreglumál hér, stór og
smá.”
Frétt: Að mikilreiði ríki nú
meðal grásleppukarla þar
eð þeim er gert að greiða
2000 krónur fyrir leyfi til
grásleppuveiða. Þetta mun
vera i fyrsta skipti að
mönnum er gert aö greiða
fyrir að veiða fisk I sjónum
á Islandi, þ.e. fyrir leyfi.
Gaman væri að velta þvi
fyrir sér hvað útgerðar-
menn loðnu veiðiskipa
þyrftu að greiða fyrir leyfi
til loðnuveiðar ef það yrði i
réttu hlutfalli við aflaverð-
mæti á grásleppuveiðun-
um. Kannski er þetta upp-
haf auðlindaskatts á ís-
landi.
Tekið eftir: Að Vestfirska
fréttablaðið fer stöðugt
stækkandi og efni þess
verður sifellt vandaðra.
Blaöið er offsetprentað, og
i siðasta tölublaði auglýsir
það eftir blaðamanni.