Alþýðublaðið - 06.04.1977, Qupperneq 2
2 STJÚRNMÁL/ FRÉTTIR
Miðvikudagur 6. apríl 1977 sœr
alþyóu-
blaöié
"Útgefaadi: Alþýöuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgbarmaöur: Arni Gunnarsson.
Aösetur ritstjórnar er I Sföumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Askr ftarslmi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur I lausasölu.
Alþýðublaðið og samstarf dag-
blaðanna
Nú er rúmt ár liðið frá
því að samningar tókust á
milli Alþýðuflokksins og
Reykjaprents hf. um
samstarf um tiltekna
rekstrarþætti í útgáfu
Alþýðublaðsins og Vísis.
Sameinuð var dreifing,
innheimta og ýmis skrif-
stofuvinna fyrir þessi tvö
blöð. Oll samvinna þess-
ara aðila hef ur tekizt með
ágætum. Alþýðublaðið
hefur komið út reglulega
i 16 til 20 síðum og út-
breiðsla þess aukizt veru-
lega. I siðasta mánuði
fékk blaðið 60 nýja
áskrifendur, og hefur
þeim fjölgað um liðlega
eitt þúsund f rá því í marz
í fyrra.
Þessi fyrrnefndii
rekstrarsamningur er
fyrir marga hluti merki-
legur. Hann sannar, að fs-
lenzku dagblöðin hafi
áhuga á aukinni sam-
vinnu, t.d. við dreifingu.
Samstarf f jögurra blaða í
Blaðaprenti hf. er til
fyrirmyndar, en þarf að
ná lengra. Vaxandi fjár-
hagsörðugleikar hvetja
til frekari þróunar á
þessu sviði, enda hefur
rækilega verið sannað, að
blöðin geta starfað sam-
an, þótt þau túlki mis-
jafnar stjórnmálaskoð-
anir.
Alþýðublaðið vill nota
þetta tækifæri til að
þakka þann hlýhug og
stuðning, sem það hefur
notið frá Alþýðuf lokks-
fólki og öðrum. Nú þarf
að gera nýtt átak í út-
breiðslu blaðsins, og
verður væntanlega hafizt
handa þegar eftir páska.
Það er von blaðsins, að
allir þeir, sem stuðla vilja
að vexti og viðgangi
jafnaðarstefnunnar á ís-
landi, efli málgagn sitt
með því að kaupa það,
skrifa í það, auglýsa í því
og veita því þann stuðn-
ing, sem þeir mega. Að-
eins þannig verður
áhrifamáttur blaðsins
aukinn.
Pðtýfónkórínn og menningin
(slendingar hafa löng-
um státað af því að vera
mikil menningarþjóð, og
er þá ósjaldan vísað til
fornbókmennta, fjölda
rithöfunda og málara og
blómlegs leikhússlífs.
Á hverju ári er úthlutað
listamannalaunum, og
koma flestar krónurnar í
hlut rithöfunda og mál-
ara. Ein grein menningar
okkar (slendinga virðist
hafa orðið harkalega út-
undan, en það er tónlistin
og þá einkum söngur.
Þessum þætti hefur sára-
lítill gaumur verið gef inn
og honum haldið uppi
með mikilli vinnu áhuga-
fólks.
Á þetta er minnzt vegna
þess, að nú virðist ekki
annað blasa við einum
bezta og mikilvirkasta
kór landsins, Pólýfón-
kórnum, en uppgjöf
vegna f járhagsvanda-
mála og aðstöðuleysis.
Stjórnandi kórsins,
Ingólfur Guðbrandsson,
og kórfélagar hafa lagt á
sig þrotlaust erfiði til að
flytja (slendingum mörg
fegurstu verk tónbók-
menntanna, sem þjóðin
hefur kunnað vel að
meta.
Það væri mikið áfall
fyrir íslenzkt menningar-
líf ef þessi kór þyrfti að
leggja upp laupana sakir
skilningsleysis ráða-
manna á þörfum hans.
Alþýðublaðið vill hvetja
til þess að þessu máli
verði gaumur gef inn áður
en það er um seinan.
—AG
UR YMSUM ÁTTUM
Pólýfónkórinn
A morgun mun Pólýfónkór-
inn, undir stjórn Ingólfs Guö-
brandssonar, flytja hátiöatón-
leika i Háskólabiói. Hljómleik-
arnir eru fluttir i tilefni þess aö
kórinn hefur nú starfaö i tuttugu
ár. A þessum timamótum ber
þaö einnig til tiöinda aö söng-
stjórinn, driffjööur og leiötogi
kórsins, hefur ákvebiö aö láta af
störfum sem „verkstjóri” kórs-
ins, eins og Ingólfur Guöbrands-
son hefur oröab þaö sjálfur.
1 tilefni þessara timamóta
hefur Ingólfur ritaö nokkur
lokaorö um starfsemi kórsins.
Þar segir m.a. á þessa leiö:
Þótt byggjendur þessa lands
séu enn ei fleiri en ibúöar ein-
hvers þess próvinsþorps i út-
löndum, sem aldrei er aö neinu
getið, nema þar gerist hörm-
ungar og voveiflegir atburöir,
vilja þeir á flestum sviöum vera
jafnokar stórþjóöa. Ekki veröur
þaö I krafti auðs né valds, held-
ur fyrir þá sök, aö stærö ein-
staklingsins er óháö smæö þjóö-
félagsins. A alþjóöavettvangi
liggur styrkur tslendinga i þvi,
aö i heimi andans er ekkert
mælt eftir höföatölu.
Þaö er mér óþrotlegt undrun-
arefni, hve mikið leynist af list-
rænum hæfileikum meöal svo
fárra einstaklinga. A engu sviöi
hafa jafnmiklir hæfileikar veriö
svo litils metnir i sönglistinni.
Hér er fullt af frábærum söngv-
urum, sem stæöu jafnfætis
beztu atvinnulistamönnum er-
lendis, ef þeir hlytu þroska
gegnum þá menntun, skólun og
ögun, sem öll æöri list krefst. ts-
lendingar gætu veriö mesta
söngþjóö veraldar. Þráin til aö
syngja er öllum i brjóst borin,
en söngmennt er hornreka I is-
lenzku þjóöfélagi.
1 lok greinarinnar segir
Ingólfur Gruöbrandsson:
Undirtektir almennings viö
framtak Pólýfónkórsins hin
sibari ár hefur veriö mikil lyfti-
stöng, kórinn hefur hlotiö met-
aösókn aö tónleikum sinum, og
nokkrir hafa sýnt þá raus,n, aö
láta fé af hendi rakna úr eigin
vasa til þessa starfs.
Útlendingar, sem gist hafa
Island og hlýtt á söng Pólýfón-
kórsins, telja starf hans til há-
menningar á borö viö þá, sem
rikir á þessu sviöi meö rótgrón-
um menningarþjóðum. tslend-
Ingólfur Guðbrandsson.
ingar, sem dvalizt hafa lang-
dvölum erlendis, telja sig ekki
hafa heyrt stórverk Bachs og
Handels betur sungin i Róma-
borg, Paris eöa Vin, en hér i
Reykjavik i túlkun þessa fátæka
kórs*
Um leiö og ég læt af verk-
stjórn i þvi verkstæði, sem
smibað hefur margar góöar
söngraddir til aö flytja Islend-
ngum perlur pólýfónskrar radd-
listar, vil ég flytja öllum þeim,
sem lagt hafa mér lið á einn eöa
annan hátt og ljáö hafa þessum
tón eyra, beztu þakkir. Launin
hafa ekki hrokkið fyrir brauöi
né húsaskóli, en starfiö hefur
veriö unnið i þeirri trú, aö hinn
hreini tónn eigi erindi til Islend-
inga og aö hlutdeild i fögru
mannlifi sé hið eina sanna rlki-
dæmi á þessari jörö.
Það blandast engum hugur
um þaö að Ingólfur Guöbrands-
son hefur unniö þrekvirki meö
þvi aö stofna og stjórna Plýfón-
kórnum nú samfleytt I tvo ára-
tugi.
Hvað sem framtiöin ber i
skauti sér hefur þessi eldhugi
gefiö okkur tónlist og söng, sem
þjóöin mun lengi búa aö. Fyrir
þaö ber aö þakka.
En hvort sem Pólýfónkórinn
heldur nú áfram eöa hættir er
eitt vist, aö ávöxtur iöjunnar,
þessa menningarframtaks, mun
koma fram I söng og tónlistarlifi
komandi kynslóöa.
—BJ
Kabarett-
bingó í
Sigtúni
annað
kvöld
Kvennadeild Styrktarfé-
lags lamaðra og fatlaðra
heldur Kabarett-bingó í
Sigtúni við Suðurlands-
braut annað kvöld klukkan
20.00. Stjórnandi verður
Svavar Gests.
Þetta Kabarett-bingó er
orðinn fastur liður í starf-
semi Kvennadeildarinnar,
og ef marka má reynsluna
undanfariðer vissara fyrir
fólk að koma tímanlega.
Verðmæti vinninga er
800 þúsund krónur, þar á
meðal þrjár utanlands-
ferðir, málverk, dvöl í
Skíðaskálanum í Kerlinga-
f jöllum, veiðileyfi, vöruút-
tektir, rafmagnsvörur og
f leira.
Meðal skemmtiatriða er
Ómar Ragnarsson með
undirleik Magnúsar Ingi-
marssonar og söngtríóið
„Bónus".
Spilaðar verða 18 um-
ferðir og er engin umferð
undir 20 þúsund krónum að
verðmæti.
—BJ
Söngsveitin Randver
með nýja plötu:
flftur og
nýbúnir
Söngsveitin Randver hefur sent
frá sér nýja hljómplötu og er þaö
fyrsta islenzka platan sem út
kemur á árinu. Þessi nýja plata
heitir „Aftur og nýbúnir” og eru á
henni tólf lög, öll meö Islenzkum
textum eftir félagana i Randver,
utan eitt, sem er á ensku. Þaö
heitir „Bjössi on the Milkcar” og
er orörétt þýöing á Bjössa á
mjólkurbilnum sem frægur var
hér fyrir allmörgum árum.
„Aftur og nýbúnir” er önnur
plata Randvers, en sú fyrri kom
út áriö 1975. A þessari nýju plötu
eru á ferðinni létt os skemmtileg
lög, flest I svonefndum „Country
and Western” stil. Textarnir hafa
flestir inni aö halda grin og glens
og ættu aö vera auðskiljanlegir
flestur.
Félagarnir I Randver heita
Ellert Borgar Þorvaldsson, Jón
Jónasson, Guömundur Sveinsson
og Ragnar Gislason. En þeim til
aöstoöar viö plötugeröina voru
margir þekktir tónlistarmenn
eins og Jakob Magnússon, Þóröur
Arnason, Ragnar Sigurjónsson
Tómas Tómasson, Karl Sighvats-
son og hesturinn Hotti, sem
hneggjar af innlifun I laginu „Upp
I sveit”. Tómas Tómasson stjórn-
abi upptöku plötunnar, en upp-
tökumaður var Jónas R. Jónsson.
Hljóöritunin fór fram I Hljóðrita
hf. i Hafnarfiröi.
Útlit umslaga hannaöi Pétur
Halldórsson, en þaö er Hljóm-
plötuútgáfan Steinar sem gefur
plötuna út.
—hm